Morgunblaðið - 16.11.1983, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 16.11.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 39 Elísabet Brynjúlfs- dóttir — Minning Fædd 21. ágúst 1911. Dáin 6. nóvember 1983. Mig langar að setja á blað fáein- ar línur til að minnast Elísabetar eða Betu eins og hún var oftast kölluð. Ég hætti mér ekki út í það að rekja ætt hennar. Hún lést í Landspítalanum aðfaranótt hins 6. nóv. eftir tæplega þriggja sól- ahringa legu. Hún var lögð inn til rannsóknar vegna mikils slapp- leika en mig grunaði ekki að svo stutt yrði til leiksloka er við hjón- in heimsóttum hana daginn áður en hún dó. Hún spjallaði við okkur og var glettnin ekki langt undan. Við vonuðum að hún mundi ná sér, a.m.k. að nokkru, svo hún ætti þó einhver ár eftir. En ef til vill var þetta það besta, ekki hefði það átt við hana að verða lengi rúmliggj- andi. En eitt er víst, Guð ræður. Kynni okkar Betu urðu aldrei mjög náin. Kannski áttum við ekki skap saman en ég mat hana á minn hátt. Hún var hrein og bein svo sumum þótti kannski nóg um. Vol og víl átti ekki við hana. Ekki þó svo að skilja að þeir sem minna máttu sín ættu sér ekki hauk í horni þar sem hún var. Hún var ekki fyrir það að bera tilfinningar sínar á torg. Heimilið var ávallt mannmargt nema undir það síð- asta og átti það ekki við hana að vera mikið ein. Hún var höfðingi heim að sækja og rausnarleg þó ekki hefði hún úr miklu að spila. Hún var með afbrigðum listfeng. Þó hún hefði aldrei lært neitt þá málaði hún margar fagrar myndir og skar út í tré og leður og prýða þessir munir heimili hennar og barna hennar. Blóm döfnuðu með eindæmum vel í höndum hennar. Fengi hún lítinn afleggjara var ekki langt í að hann yrði að feg- ursta blómi enda var stofan henn- ar líkust aldingarði. Hún annaðist börn sín af alúð og helgaði sig heimilinu svo lengi sem þrek leyfði. Henni varð fimm barna auðið, og eru barnabörnin orðin tólf og barnabarnabörnin sjö, og leit það yngsta dagsins ljós daginn áður en hún lést. Þetta er hinn mannvæn- legasti hópur. Ég vil að lokum votta manni hennar og börnum mína dýpstu samúð. Fari hún í Guðs friði. Gyða Garðar Kjartansson (t.v.), Kjartan V. Guðmundsson og Guðmundur Kjartansson í hinni nýju verslun þeirra, Sportvali. Eigendur Bikarsins kaupa Sportval: Stærstu aðilar á sviði sport vöruverzlunar í Reykjavík í ÁGÚST sl. urðu eigendaskipti á einni stærstu íþróttavöruverslun Reykjavíkur er Kjartan V. Guð- mundsson og synir hans Garðar og Guðmundur keyptu Sportval við Hlemmtorg af Jóni Aðalsteini Jón- assyni. Þeir feðgar ráku áður og reka áfram sportvöruverslunina Bik- arinn við Skólavörðustíg og má segja að þeir séu nú umsvifamestu aðilar á sviði sportvöruverslunar í Reykjavík með á þriðja tug starfsmanna. Það var í apríl 1977, að Halldór Einarsson, öðru nafni Henson, stofnaði Bikarinn í Hafnarstræti 16. í ágúst sama ár keyptu þeir Kjartan V. Guðmundsson og Stef- án V. Pálsson búðina. í Hafnar- strætinu var staldrað við í rúm tvö ár, en sumarið 1979 var versl- unin flutt í núverandi húsnæði að Skólavörðustíg 14. í apríl 1980 tók Kjartan alfarið við rekstrinum ásamt Garðari syni sínum. í fyrstu var verslað eingöngu með vörur í boltaíþróttirnar en fljótlega var farið út í fleiri vöru- flokka t.d. skíðavörur, ballet- og leikfimifatnað o.m.fl. Fljótlega var farið að leita út fyrir landsteinana eftir vörum og smám saman gerðist Bikarinn umboðsaðili fyrir fjölmörg erlend fyrirtæki t.d. Dynamic, Uhl-sport, Capezio, Dubin, Röhnisch, Hefa, Danskin og marga fleiri. Fyrst og fremst var flutt inn fyrir verslun- ina en einnig var dreift til fjöl- margra staða víða um land. Reksturinn frá 1980 hefur geng- ið vel og hefur búðin verið stækk- uð tvívegis. Vegna mikils umfangs og til að auka þjónustuna úti á landi var ákveðið í ágúst 1982 að stofna nýtt fyrirtæki til að annast innflutning og heildverslun og fékk nýja fyrir- tækið nafnið Inntak sf. Fram- kvæmdastjóri er Guðmundur, yngsti sonur Kjartans, en hann hafði áður unnið við Bikarinn með námi sínu. Þann 16. ágúst 1983 var síðan gengið frá kaupsamningi á Sport- val, en Jón Aðalsteinn Jónsson hefur rekið þá verslun í hart nær 20 ár. Garðar verður verslunar- stjóri í Sportval, Kjartan í Bik- arnum og Guðmundur hjá Inntak. Um daglegan rekstur og fram- tíðina segja þeir feðgar: „Hinn daglegi rekstur fyrir- tækjanna er algerlega aðskilinn, þ.e. þau eru rekin sem sjálfstæðar einingar. Það er reynsla okkar að með þessu fyrirkomulagi sé mun auðveldara að komast að rótum vandamála sem upp koma, birgða- eftirlit auðveldara og öll stjórnun nákvæmari. Markmið fyrirtækjanna er að bjóða upp á vandaðar vörur, góða þjónustu og sanngjarnt verð. Við íeggjum mikla áherslu á að versl- anirnar séu snyrtilegar og aðlað- andi, lipurt starfsfólk og líflegt. Nú er verið að endurskipuleggja Sportval bæði að utan og innan. Það er stefna okkar að búðin fái ferskara „andlit". Einnig hefur rekstrinum verið breytt í sam- ræmi við okkar hugmyndir á rekstri sportvöruverslunar. í byrjun nóvember var opnað fullkomið skíðaverkstæði hjá Sportval þar sem veitt verður besta fáanlega þjónusta t.d. á skíðaviðgerðum, ásetningum o.fl. Einnig verða þar skautaskerp- ingar og ýmsar aðrar viðgerðir á íþróttaáhöldum. Innan tveggja mánaða verður tekin í notkun ný tölva sem mun auðvelda alla bók- haldsstarfsemi til muna, en auk þess er ætlunin að nota hana til að spara vinnu og tíma á sem flestum sviðum sem of langt mál yrði að telja upp hér.“ ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargrcinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. t Kærar þakkir færi ég öllum sem veittu mór hjálp og sýndu samúð viö andtát og jarðarför bróður míns, GUÐMUNDAR ÞORSTEINSSONAR, Klafastööum. Guð blessi ykkur öll. Kristmundur Þorsteinsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför FANNEYJAR INGIMUNDARDÓTTUR, Ásgarði 23. Börn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir vinarhug og samúð viö andlát og útför JÓNS ELÍASSONAR, verzlunarfulltrúa, Eskihlíö 8a. Lilja Hafliöadóttir, Ragnar Kærnested, Sigrún Ólafsdóttir og börn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför MARGRÉTAR GUDMUNDSDÓTTUR frá Hellatúni. Jóhannes Pétursson, Vilborg Jóhannesdóttir og fjölskylda. t Innilegar þakklr færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur og afa, ALFREÐS STURLUSONAR, málarameistara, Hverfisgötu 99. Steinunn Jónsdóttir, Guörún Alfreðsdóttir og barnabörn. t Þökkum samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, ÁRNAJÓNASSONAR, húsasmíöameistara, Granaskjóli 40. Þorbjörg Agnarsdóttir, Hólmfríöur Árnadóttir, Bjarni Jónsson, Ingibjöra Árnadóttir, Haraldur Karlsson, Brjánn Árni Bjarnason, Bolli Bjarnason, Þorbjörg Haraldsdóttir, Heimir Haraldsson, Kristjana Haraldsdóttir, Siguróur Hermannsson, Ágúst Fjeldsted, Hermann Sigurðsson, Gunnlaugur Bollason. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför móöur okkar og tengdamóöur, ODDNÝJAR ÞORSTEINSDÓTTUR frá Eyri viö Fáskrúðsfjörö. Guðlaug Sigurbergsdóttir, Oddur Sigurbergsson, Þórunn Sigurbergsdóttir, Guðbjörg Sigurbergsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson, Karl Sigurbergsson, Arthúr Sigurbergsson, Valborg Sigurbergsdóttir, Bragi Sigurbergsson, Baldur Sigurbergsson, Stefanía Sigurbergsdóttir, Sveinn Ingimundarson, Helga Einarsdóttir, Halldór Benediktsson, Guómundur Gíslason, Herdís Antoníusardóttir, Valgeröur Bjarnadóttir, Lára Karlsdóttir, Reynir Pálsson, Brynhildur Magnúsdóttir, Anna Guömundsdóttír.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.