Morgunblaðið - 16.11.1983, Side 44

Morgunblaðið - 16.11.1983, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 TM Reo U S. Pat. Ofl —all rifltits reservad e1983 Los Angeles Times Syndicate Ég man að í gamla daga var Læknirinn segir að ofnæmið hér aðeins mjór stígur. stafi af þér og ekkert annað! Hlutverk móður ædsta hlut verk í heimi mannkyns Árelíus Níelsson skrifar: „Allt er betra en þögn og tóm- læti gagnvart miskunnarleysi mannlífsins. Þess vegna gladdist ég yfir orð- um og fyrirspurnum Tómasar Björnssonar í Velvakanda laug- ardaginn 12. nóvember, þótt vel mætti telja þau ásökun í minn garð. Ég hugði orð mín um Kvenna- bréf nr. 1 1983 ekki hafa náð til nokkurs eyra og því síður huga eða hjarta. Áskorun mín til kvenfylkingar Alþingis og íslendinga yfirleitt, um að afmá sem fyrst þann smán- arblett, sem lög um frjálsar fóst- ureyðingar af félagslegum orsök- um eru, að mínu áliti, er sjálfsagt „rembingur", en samt í anda lífs og til verndar hinum smáu og varnarlausustu alls sem lifir á vegum samfélagsins. I þeim fólst samt engin afsökun fyrir ófyrirleitni og valdbeitingu karla í ástum og aðstöðumun í kynlífi. Og því síður var þar nokkuð ymt að frelsi í ástamálum né afneitun þess, heldur miklu fremur að njóta og nota allt, sem nútíma tækni og heilbrigðishættir veita til varnar og takmörkunar óæski- legra afleiðinga. En veslings Heródesi kóngi og afrekum hans í Betlehem forðum gæti ég aldrei fylgt, né útburði barna í heiðnum samfélögum. Hugsið ykkur hópa þeirra barna að leik eða í skólastofum og í kirkjum, sem búin hafa verið ör- lög að hans fordæmi í leyndum nú undanfarin ár aðeins hér í okkar fögru og farsælu borg. Sjálfur höfundur kristninnar, meistari miskunnar og besti vinur barna og frumherji kvenréttinda í veraldarsögunni, sjálfur Jesús, hefði líklega aldrei fæðst, ef þau lög hefðu gilt í landi hans, sem hér eru til umræðu. Fyrsta blaðsíða N.T. gerir þess nokkra grein þar sem móðir hans flýr í skjól góðrar frænku til að forða sér þegar hún veit hans von og sjálfsagt fordóma og jafnvel grýtingar í kjölfarið að áliti hinn „réttlátu" og „vitru“. Um samanburð Tómasar Björnssonar á hlutverki, ábyrgð og aðstöðu karls og konu til mannlífs og upphafs þess, hef ég allt frá bernsku talið konunnar hlut æðri og helgari skilning hennar og lotningu fyrir lífi og vernd þess æðri og eðlislægari. Ábyrgð kynja ætti að vera hin sama. Én afleiðingar og framhald athafna skapa ójafnan leik, sem konan verður að annast. En fjarri sé það mér að afsaka karlveldi heimskra eða grimmra herra og feðra. Hlutverk móður er æðsta hlut- verk í heimi mannkyns. Þar hafa íslenskar mæður ljómað skært um aldaraðir gegnum myrkur marg- víslegra þrenginga. Megi svo verða um alla framtíð, hvað sem mæta kann. En í snertingu við örbirgð og raunir liðinna tíma kemur annað í hugann sem Tómas nefnir ekki. Það er offjölgun mannkyns. Þar er á ferð tilefni ótta og skelfingar ekki síður en kjarn- orkusprengjan. Milljónir barna deyja nú þegar árlega ægilegum hungurdauða og þar með fylgjandi þjáningum og neyð. Þar væru lög um fóstureyð- ingar afsakanleg og jafnvel sjálf- sögð. Samt eru getnaðarvarnir ennþá sjálfsagðari. Og síðustu fregnir um sigra á því sviði vekja vonir. En hér skora ég enn á alþingis- konur og -menn að taka sér hlé frá áhyggjum og umræðum vegna þorskfæðarinnar um stund meðan skuggi fóstureyðingalaga er máð- ur af skjaldarmerki Islands. „Karlremban" Árelíus er kom- inn úr hópi þeirra barna sem hér er beðið miskunnar, og veit um kjör þeirra barna sem eru í ónáð fædd og fordæmd af hinum „frels- uðu“ og „réttlátu", áður en þau fæðast. Hann er því hundrað prósent sammála viðmælandanum Tóm- asi, er hann segir í lokin: „Miskunnsemi þrái ég — en ekki fórn.“ Notið getnaðarvarnir en ekki fóstureyðingar." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hagnaður varð af sölu handsápanna. Rétt væri: ... af sölu handsápnanna. Betur færi þó: Handsápurnar voru seldar með hagnaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.