Morgunblaðið - 17.11.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
69
Heildarútflutningur jókst um 10% á fyrstu níu mánuðum ársins:
Liðlega 93% aukning á út-
flutningi áls og álmelmis
— Samdráttur útflutnings á sjávarafurðum og landbúnaðarafurðum
HEILDARÚTFLUTNINGUR landsmanna jókst um 10% fyrstu níu mánuði
ársins, í magni talið, þegar samtals voru flutt út um 447.114,7 tonn, borið
saman við 405.997,2 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmctaaukningin milli ára
er um 136%, eða liðlega 13.329,5 milljónir króna í ár borið saman við 5.656,9
milljónir króna í fyrra. f þessu sambandi er vert að hafa í huga, að meðal-
gengi dollars hækkaði á sama tímabili um 113%, eða úr 11,25 krónum í 23,96
krónur.
Samdráttur í sjávarafurðum
Ef litið er á skiptingu útflutn-
ingsins milli frumvinnslugrein-
anna kemur fram, að um 9% sam-
dráttur varð í útflutningi sjávar-
afurða, í magni talið, þegar út
voru flutt 250.323,4 tonn, borið
saman við 274.763,2 tonn á sama
tíma í fyrra. Verðmætaaukningin
varð eigi að síður um 131%, eða
9.246,4 milljónir króna á móti
4.337,7 milljónum króna.
Samdráttur í
land bú naðarafu rðu m
Útflutningur landbúnaðaraf-
urða dróst saman um 5%, í magni
talið, þegar út voru flutt 3.733,4
tonn, borið saman við 3.948,7 tonn
á sama tíma í fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára varð aðeins
um 74%, eða 112,7 milljónir króna
á móti liðlega 64,7 milljónum
króna á sama tíma í fyrra.
löndum Efnahagsbandalags Evr-
ópu, þar sem innflutningshamlan-
ir hafa verið við lýði að undan-
förnu. Það má nefna það, að um
þriðjungur af útflutningi fer á
Evrópumarkað. Stærstu markaðir
okkar þar fyrir utan eru í Indó-
nesíu og í Saudi-Arabíu, en í þess-
um löndum hefur okkur gengið
sérstaklega vel á liðnum misser-
um.“
Aðspurður um fjárhagsstöðu
Daihatsu sagði Sakea Ohara hana
vera góða, sem sæist bezt á því, að
á síðasta ári hefði verið greiddur
10% arður til hluthafa og afkom-
an á þessu ári væri sizt lakari. Að
vísu hefði verið lagt í miklar fjár-
festingar á síðustu misserum
vegna hönnunar nýrra bíla. Dai-
hatsu Charade var kynntur nýr á
dögunum eins og áður sagði og í
ársbyrjun 1984 yrði kynntur enn
einn nýr frá Daihatsu. „Ég tel
stefnu okkar vera rétta og því er
ég sannfærður um að framtíðin er
björt fyrir fyrirtækið. Ég vil
reyndar taka sérstaklega fram, að
við erum mjög ánægðir með þann
góða árangur, sem náðst hefur á
Islandi. Okkar menn hér eiga sér-
stakan heiður skilið," sagði Sakea
Ohara, aðalforstjóri Daihatsu
Motor Co. að síðustu."
Veruleg aukning í
iðnaðarvöruútflutningi
Iðnaðarvöruútflutningur jókst
um hvorki meira né minna en 60%
á fyrstu níu mánuðum ársins, í
magni talið, þegar út voru flutt
samtals 184.046,1 tonn, borið sam-
an við 114.810,8 tonn á sama tíma
í fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára er um 217%, eða 3.843,2 millj-
ónir króna á móti 1.213,4 milljón-
um króna á sama tíma í fyrra.
Ál og álmelmi
Útflutningur á áli og álmelmi
jókst á fyrstu níu mánuðum árs-
ins, í magni talið, um 93%, þegar
alls voru flutt út 82.492,1 tonn,
borið saman við 42.811,2 tonn á
sama tíma í fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára er um 330%,
eða 2.327,7 milljónir króna, borið
saman við 541,7 milljónir króna á
sama tíma í fyrra.
Kísiljárn
Útflutningur á kísiljárni jókst
um 38% á umræddu tímabili, í
magni talið, þegar alls voru flutt
út 36.353,0 tonn, borið saman við
26.357,7 tonn á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukningin milli ára er
um 202%, eða 424,1 milljón króna
á móti 140,3 milljónum króna.
llllarútflutningur
Ullarútflutningur dróst saman
um 5%, í magni talið, fyrsti níu
mánuði ársins, þegar samtals voru
flutt út 997,2 tonn, borið saman
við 1.049,0 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára er um 93%, eða 499,3 milljónir
króna á móti samtals 259 milljón-
um króna. Samdrátturinn í ullinni
er mestur á Vestur-Evrópumark-
aði.
Skinnavara
Útflutningur á skinnavörum
dróst saman um 41%, í magni tal-
ið, fyrstu níu mánuði ársins, þegar
út voru flutt samtals 227,1 tonn,
borið saman við 383,6 tonn á sama
tíma í fyrra. Verðmætaaukningin
milli ára er um 33%, eða 96,5
milljónir króna á móti tæplega
72,6 milljónum króna á sama tíma
í fyrra.
Vörur til sjávarútvegs
Útflutningur á vörum til sjávar-
útvegs jókst um 9% á fyrstu níu
mánuðum ársins, í magni talið,
þegar út voru flutt samtals 1.366,4
tonn, borið saman við 1.256,2 tonn
á sama tíma í fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára er um 102%,
eða 66,6 milljónir króna á móti
32,9 milljónum króna á sama tíma
í fyrra.
Niðurlagðar sjávarafurðir
Útflutningur á niðurlögðum
sjávarafurðum jókst um 6%, í
magni talið, fyrstu níu mánuði
ársins, þegar út voru flutt samtals
1.741,8 tonn, borið saman við
1.640,6 tonn á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukningin milli ára er
um 147%, eða 227,1 milljón króna
á móti 92 milljónum króna.
Kísilgúr
Útflutningur á kisilgúr dróst
saman um 2% á fyrstu níu mánuð-
um ársins, þegar út voru flutt
samtals 18.303,3 tonn, borið sam-
an við 18.699,3 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára er um 108%, eða tæplega 99
milljónir króna á móti liðlega 47,5
milljónum króna á sama tíma í
fyrra.
Vikur og gjall
Útflutningur á vikri og gjalli
jókst fyrstu níu mánuði ársins, í
magni talið, um 102%, þegar út
voru flutt samtals 33.123,7 tonn,
borið saman við 16.392,2 tonn á
sama tíma í fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára er um 362%,
eða 22,1 milljón króna, borið sam-
an við tæplega 4,8 milljónir króna
á sama tíma í fyrra.
Þangmjöl
Útflutningur á þangmjöli jókst
um 59%, í magni talið, á fyrstu
níu mánuðum ársins, þegar út
voru flutt samtals 2.291,7 tonn,
borið saman við 1.442,4 tonn á
sama tíma i fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára er um 227%,
eða 14,5 milljónir króna, borið
saman við liðlega 4,4 milljónir
króna í fyrra.
Brotajárn
Útflutningur á brotajárni jókst
um 32%, í magni talið, á fyrstu
níu mánuðum, þegar út voru fiutt
samtals liðlega 5.054,6 tonn, borið
saman 3.823,7 tonn. Verðmæta-
aukningin milli ára er um 130%,
eða tæplega 11,6 milljónir króna,
borið saman við liðlega 5 milljónir
krónur á sama tíma í fyrra.
FURUHILLUR
Útsölustaðir: REYKJAVlK: JL-Húsið húsgagnadeild, Liturinn Siðumúla 15, KÓPAVOGUR: Byko
Nýbýlavegi 6, HAFNARFJÖRÐUR: Málur Reykjavfkurvegi 10, KEFLAVlK: Dropinn, AKRANES:
Verslunin Bjarg, BORGARNES: K.B. Borgarnesi, HELLISSANDUR: K.B., ÓLAFSVlK: Verslunin
Lára, STYKKISHÓLMUR: Húsið, PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar. BOLUNGARVÍK: Jón Fr
Einarsson, ISAFJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, HVAMMSTANGI: Versl. Sig. Pálmas.,
BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga, SAUÐARKRÓKUR: Hátún, SIGLUFJÖRÐUR: Bólsturgerðin,
ÓLAFSFJÖRÐUR: Versl. Valberg, DALVlK: Versl. Sogn, AKUREYRI: Grýtan Sunnuhlfð, HÚSAVlK:
Kaupfeiag Þingeyinga, EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurtands, SEYÐISFJÖRÐUR: Versl. Dröfn
NESKAUPSTAÐUR: Nesval, REYÐARFJÖRÐUR: Lykill, FASKRÚÐSFJÖRÐUR: Versl. Þór, VlK,
Kaupfélag V-Skaftfelling, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldur og Einar, SELFOSS: Vöruhús K.A.
PLflNTERS HNETUR
í nýjum og ódýrum umbúðum. 50 gr.,
80 gr., 100 gr., 200 gr. álpokar.
Heildsölubirgðir: Agnar Ludvigsson hf.,
Nýlendugata 21,
sími 12134.
Vesturþýskar alvöru-hrærivélar
á br®sandi verði! 2 stærðir
IUL
Lokuð skál -
engar siettur
Hræra - þeyta - hnoða - mixa - sjeika -
mauka - mylja - hakka - móta - mala - rífa -
sneiða - skilja - pressa - og fara létt með það!
Qóð kjör!
jFonixi
Hátúni 6a - Sími 24420
Raftækjaúrval
Hæg bílastæði!