Morgunblaðið - 20.11.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
Forseti íslands
heimsækir Portúgal
FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hélt á (ostudag áleiðis til Portúgal
í opinbera heimsókn. Stendur heimsóknin þangað yfir frá mánudegi til
fimmtudags, en síðan heldur forsetinn til Vestur-Þýskalands, þar sem hún
mun opna „íslenska menningardaga"
Hin opinbera heimsókn hefst
mánudaginn 21. nóvember í Lissa-
bon. Forseti Islands leggur
blómsveig á leiði þjóðskálds
Portúgala, De Camoes, en fer síð-
an til fundar við Antonio Ramalho
Eanes, forseta Portúgal. Um
kvöldið heldur forseti Portúgal
kvöldverðarboð forseta íslands til
heiðurs.
Þriðjudaginn 22. nóvember
kemur forsætisráðherra Portúgal,
Mario Soares, til fundar við for-
seta íslands í Queluz-höll, þar sem
forseti íslands og fylgdarlið munu
búa á meðan á hinni opinberu
heimsókn stendur. Síðdegis heim-
sækir forseti íslands þjóðþingið
svo og ráðhús Lissabonborgar.
Miðvikudaginn 23. nóvember
mun forseti íslands m.a. skoða
Gulbenkiam-listasafnið og Bel-
em-vagnasafnið. Um kvöldið held-
ur svo forseti íslands forseta
Portúgal kvöldverðarboð og lýkur
þar með hinni opinberu heimsókn
til Portúgal.
í fylgd með forseta íslands
verða Geir Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra, og frú Erna Finns-
dóttir, Ingvi S. Ingvarsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins, og Halldór Reynisson, forseta-
ritari.
Fimmtudaginn 24. nóvember
heldur forseti íslands til Vestur-
Þýskalands og mun hún opna ís-
lenska menningardaga í Berlín 25.
nóvember.
I fylgd með forseta íslands í
Vestur-Þýskalandi verður Halldór
Reynisson forsetaritari.
Dæmdur í Þýskalandi
fyrir fíkniefnabrot
ÞRÍTUGUR Reykvíkingur, Siguröur
Þór Sigurðsson, var fyrir nokkru
dæmdur í tveggja ára og 9 mánaða
fangelsi í V-I>ýskalandi vegna fíkni-
efnamisferlis. Hann var tekinn í mars
síðastliðnum ásamt vinkonu sinni
með rúmt kíló af hassi. Auk þess voru
þau með amfetamín og kókaín, en í
litlum ma li.
I vikunni var málflutningur fyrir
Hæstarétti í máli hans, en í desem-
ber síðastliðnum var hann dæmdur
í 3 lÆ árs fangelsi hér á landi fyrir
fíkniefnamisferli, og er það þyngsti
dómur sem kveðinn hefur verið upp
í fíkniefnamáli hér á landi. Jónatan
Sveinsson, saksóknari, krafðist við
málflutning í Hæstarétti, að dómur
undirréttar yrði staðfestur efnis-
lega, en fangelsisvist lengd. í undir-
rétti var gerð upptökukrafa á fé,
sem lagt var hald á þegar Sigurður
Þór var handtekinn í gistihúsinu
„De Fem Svaner" í Kaupmanna-
höfn í mars 1979, en það voru 139
þúsund danskar krónur, 79.900
sænskar krónur og 20 þúsund
norskar krónur. Um var að ræða
ágóða, sem Sigurður Þór ásamt
fleirum hafði af sölu fíkniefna.
Danska lögreglan hefur varðveitt
féð frá því Sigurður Þór var hand-
tekinn. Auk fjárins var lagt hald á
um 20 grömm af kókaíni, 30 grömm
af hassi, byssu, auk fleiri muna.
Sigurður var dæmdur fyrir dreif-
ingu og smygl á rúmlega 20 kg. af
kannabisefnum auk 200 gramma af
kókaíni. Hann var hafður í Vestra-
fangelsinu í Danmörku, sem er hið
rammgerðasta þar í landi, en
strauk á ævintýralegan hátt úr
fangelsinu um hálfu ári eftir hand-
tökuna. Hann fór lengi huldu höfði
en gaf sig fram og kom hingað til
lands síðla árs 1981.
Snorri Hall-
dórsson látinn
SNORRI Halldórsson, bygginga-
meistari, forstjóri HúsasmiAjunnar hf.,
lést í Reykjavík aðfaranótt föstudags-
ins 18. nóvember, 72 ára að aldri.
Snorri var fæddur 31. júlí 1911 í
Magnússkógum í Hvammssveit,
Dalasýslu. Foreldrar hans voru
Halldór Guðmundsson, bóndi þar og
kona hans, Ingibjörg Sigríður Jens-
dóttir.
Snorri lauk prófi frá Iðnskólanum
og sveinsprófi í húsasmíði 1932 og
fékk meistarabréf 1936. Hann
stofnsetti Húsasmiðjuna 1949.
Snorri gegndi fjöldamörgum trún-
aðarstörfum fyrir Sjálfstæðisfélögin
í Reykjavík og átti sæti á framboðs-
listum flokksins í Reykjavík.
Eftirlifandi kona hans er Inga
Berg Jóhannsdóttir.
Hópurinn í Rammagerðinni. Með á myndinni er Haukur Gunnarsson, verslunarstjóri. Morgunblaðið/KÖE.
Bandaríkjamenn í innkaupaferð til Islands
„ÞETTA er fyrsti innkaupahópurinn frá Banda-
ríkjunum, sem kemur hingað, en eftir viðbrögðum
fólksins að dæma, held ég að mikið framhald eigi
eftir að verða á þessu," sagði Sveinn Sæmundsson,
blaðafulltrúi Flugleiða, í samtali við Mbl. í gær, en
í gærmorgun komu tíu Bandaríkjamenn í sérstaka
innkaupaferð til íslands.
Sveinn Sæmundsson sagði, að fólkið væri frá
Lansing í Michican-fylki, en fyrst um sinn yrði
áherslan lögð á að auglýsa þessar ferðir þar.
Sveinn sagði, að ullarvörurnar hefðu átt mestalla
athygli fólksins, en einnig hefði það kynnt sér
skinnavörur og fleira. Fólkið eyðir fyrsta deginum
í verslunarferð og einnig fer það í verslanir fyrir
hádegi í dag. Eftir hádegi er svo skoðunarferð og
heim fer fólkið aftur á morgun, sunnudag.
Sjónvarpsmóttökuloftnet sovéska sendiráðsins:
Á sama tíðnisviði og
flestir gervihnettir
— en allt öðru en jarðstöðvar varnarliðsins hér
„ÁSTÆÐAN fyrir því að loftnetsskerminum er beint í suðurátt er sú sama
og ástæða þess að Skyggni er beint í suðurátt, í þeirri átt eru sjónvarpshnett-
irnir, sem þessar jarðstöðvar taka við merkjum frá,“ sagði Gústav Arnár,
yfirverkfræðingur Pósts og síma, er Mbl. spurði hann nánar út í möguleika á
notkun sjónvarpsmóttökuloftnetsins, sem sovéska sendiráðið hefur keypt af
Hljómbæ hf. og sett upp á einni byggingu sinni í Reykjavík.
tengdur sendir við loftnetið gætu
íslensk póst- og símamálayfirvöld
komist að því fyrirhafnarlítið, að
sögn Gústavs Arnar.
Loftnetið nær yfir tíðnisvið frá
3600—4200 MHz, eða það sama og
vel flestir fjarskiptahnettir, sem
nú eru á lofti. Jarðstöð bandaríska
hersins við Keflavík tekur á móti
og sendir á allt annarri tíðni, að
sögn Gústavs. Mbl. spurði hann
hvort hægt væri að beina loftneti
sendiráðsins að jarðstöðinni
Skyggni og komast þannig inn í
fjarskipti, t.d. símtöl milli Islands
og annarra landa. „Það er til-
gangslaust að beina þessu loftneti
Atriði dönsku dansmeyjanna kært:
Þykir lostugt athæfi er
særir blygðunarsemina
KONA nokkur sem fór í veitingahúsið Glæsibæ og fylgdist þar með atriði
tveggja danskra fatafella, hefur kært Halldór Júlíusson, framkvæmda-
stjóra veitingahússins Glæsibæjar, fyrir að bjóða upp skemmtiatriðið,
sem henni þykir ósiðlegt. Þykja skemmtiatriðin brjóta í bága við 209.
grein og 210. grein hegningarlaganna.
209. greinin hljóðar svo: „Hver
sem með lostugu athæfi særir
blyðgunarsemi manna eða er til
opinbers hneykslis, skal sæta
fangelsi allt að 3 árum, varð-
haldi eða sektum.“ og 210. grein-
in hljóðar svo: „Ef klám birtist á
prenti, skal sá sem ábyrgð ber á
birtingu þess eftir prentlögum
sæta sektum, varðhaldi eða
fangelsi allt að 6 mánuðum.
Sömu refsingu varðar það að
búa til eða flytja inn í út-
breiðsluskyni, selja, útbýta eða
dreifa á annan hátt út klámrit-
um, eða öðrum slíkum hlutum,
eða hafa þá opinberlega til sýnis,
svo og að efna til opinbers fyrir-
lestrar eða leiks, sem er ósiðleg-
ur á sama hátt.
Það varðar enn fremur sömu
refsingu, að láta af hendi við
unglinga, yngri en 18 ára, klám-
rit, klámmyndir eða aðra slíka
hluti."
„Ég er ákaflega undrandi yfir
þessari kæru. Mér var tjáð að
dansmeyjarnar hefðu listrænt
skemmtiatriði á boðstólum þeg-
ar ég tók þær hingað til lands og
ekkert hefur breytt þeirri skoð-
un minni," sagði Halldór Júlí-
usson í samtali við Mbl.
að Skyggni, því loftnet stöðvarinn-
ar snýr upp á við þótt stefnan sé í
suður," sagði Gústav Arnar. „Það
væri hins vegar hægt að komast
inn í merkjasendingarnar frá fjar-
skiptahnettinum, sem við höfum
aðgang að, en mynd- eða talgæðin
í gegnum loftnet af þeirri stærð,
sem hér um ræðir, væru mjög lítil.
Stórveldin hafa miklu betri mögu-
leika en þetta loftnet býður upp á,
enda er það aðeins þrír metrar í
þvermál, en t.d. Skyggnir er með
loftnet sem er tíu sinnum stærra,
eða þrjátíu metrar."
Fjarskiptahnötturinn, sem sov-
éska sendiráðið tekur á móti sjón-
varpssendingum frá, er einnig
ætlaður fyrir flutning á töluðu
máli, til ritsímanotkunar og fleira,
skv. upplýsingum, sem liggja hjá
Alþjóða póst- og símamálastofn-
uninni. Án yfirþyrmandi kostnað-
ar væri hægt að tengja sendi við
loftnetið. Þá væri hins vegar leyf-
isskylda tvímælalaus og væri
Einvígi Korschnoi
og Kasparovs:
Leikirnir á
telex og
skákir
skýrðar
í TILEFNI áskorendaeinvígis í
skák milli Gary Kasparovs frá Sov-
étríkjunum og Viktors Korschnoi,
hins landflótta Sovétmanns, í
Lundúnum, hefur Skáksamband
íslands ákveðið að gefa skák-
áhugamönnum kost á að sjá skák-
irnar um leið og þær verða tefldar.
Skákirnar verða sýndar í húsnæði
Skáksambandsins að Laugavegi 71
og munu leikirnir berast á telexi
mjög flótlega eftir að þeim er leikið
þar ytra. Kunnir skákmenn munu
annast skákskýringar.
Fyrsta einvígisskákin verður
annað kvöld og hefjast skákskýr-
ingarnar klukkan 20.
Nýr skemmtistaður í Keflavík
B/EJARSTJÓRN Keflavíkur samþykkti sl. þriðjudag vínveitingaleyfi til
fyrirtækisins Veislu hf„ en aðal hluthafar þess eru framreiðslumennirnir
Björn Vífill Þorleifsson og Ragnar Örn Pétursson.
Þeir hafa gert samning við
Karlakór Keflavíkur um leigu á
efri hæð hins nýja húss karlakórs-
ins við Vesturbraut 17 í Keflavík.
Þar er ætlunin að hafa sal til leigu
fyrir árshátíðir, dansleiki og
fleira. Unnið er af fullum krafti
við innréttingar og er ætlunin að
opna staðinn í byrjun desember
nk. Salurinn tekur 150 manns í
sæti.
Á miðju næsta ári er áformað
að taka neðri hæð hússins í notk-
un, sem mun rúma 350 manns í
sæti. Sú hæð verður rekin sem al-
mennt veitingahús.