Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
21
Kasparov og Korchnoi byrja á morgun í London:
Ólíkur stíll og mikill aldurs-
munur einkenna einvígið
Skák
Margeir Pétursson
Eftir helgina hefst í Lundúna-
borg einvígi sem vafalaust á eftir
að halda gervöllum skákheiminum
hugföngnum næstu vikurnar. Síð-
ustu tíu árin hefur Viktor
Korchnoi, 52 ára gamall landflótta
Sovétmaður, verið áskorandi
heimsmeistarans Karpovs, en jafn-
an orðið að bíða lægri hlut fyrir
honum í einvígjum. Að þessu sinni
fær Korchnoi verðugan andstæð-
ing í baráttunni um áskorunarrétt-
inn þar sem hinn tvítugi Sovétmað-
ur frá Bakú, Gary Kasparov, er.
Nú fyrir jól munu þeir Korchnoi og
Kasparov heyja tólf skáka einvígi
sem búist er við að verði æsispenn-
andi og marki jafnvel tímamót í
skáksögunni, ekki síst fyrir þá sök
að skákstfll keppinautanna tveggja
er gjörólíkur. Þrátt fyrir ungan
aldur hefur Kasparov þegar getið
sér orð fyrir ómannlega byrjana-
þekkingu og glæfralegar sóknir,
en Korchnoi lætur hins vegar vel
að tefla vörn og ræðst sjaldan
beint að kóngi andstæðingsins.
Hugvitsemi hans í endatöflum er
hins vegar orðlögð.
Hápunktur síðasta Ólympíu-
skákmóts var æsispennandi skák
þeirra Korchnoi og Kasparovs
þar sem hinn síðarnefndi bar
sigur úr býtum eftir flókna og
tvísýna baráttu sem lauk í tíma-
hraki. Þessi skák þeirra var svo
flókin og skemmtileg að mánuð-
um seinna voru skákskýrendur
um allan heim enn að velta
henni fyrir sér og finna glötuð
tækifæri fyrir báða teflendur.
Þegar ljóst var að þessir tveir
stórmeistarar ættu að mætast í
undanúrslitum áskorendakeppn-
innar beið gjörvallur skákheim-
urinn því í ofvæni því fullvíst er
talið að annar af þeim tveimur
hreppi áskorunarréttinn á
heimsmeistarann. En þegar
finna átti stað fyrir einvígið fór
allt í bál og brand og það hefur
nú verið í heimsfréttunum í sex
mánuði án þess að einum einasta
leik hafi verið leikið á taflborð-
inu sjálfu.
Lengst af var allt útlit fyrir að
Korchnoi kæmist sjálfkrafa
áfram í úrslit áskorendakeppn-
innar því Kasparov mætti ekki
til leiks í Pasadena í Kaliforníu,
þar sem einvíginu var upphaf-
lega valinn staður. Svo hat-
rammar voru deilur sovéska
skáksambandsins við Campo-
manes, forseta FIDE, að á tíma-
bili hrikti í stoðum alþjóða-
skáksambandsins og útlit var
fyrir að það myndi klofna í
tvennt.
En sem betur fór reyndust
vera til menn innan FIDE, svo
sem stórmeistararnir Raymond
Keene í London, og Júgóslavinn
Svetozar Gligoric, sem reyndu
sitt besta til að bera klæði á
vopnin. Öllum skákáhuga-
mönnum til mikils léttis reynd-
ist síðan unnt að finna lausn sem
allir aðilar gátu sætt sig við þótt
bæði Rússar og Campomanes
yrðu að brjóta odd af oflæti sínu.
Endirinn varð síðan sá að
Campomanes ákvað nýjan ein-
vígisstað, Lundúnaborg, og það
er einmitt Raymond Keene sem
er aðaidriffjöðurin í mótshald-
inu. Tölvufyrirtækið Acorn legg-
ur til verðlaunin, sem eru jafn-
virði 1,3 milljóna íslenskra
króna. Ef engin ný deilumál
koma upp á síðustu stundu ætti
þetta langþráða einvígi því að
geta hafist á morgun. Sundur-
lyndið og baktjaldamakkið í
FIDE mun þá fljótt falla í
skuggann af því sem skiptir
raunverulega máli, tvísýnni og
drengilegri keppni tveggja
stórkostlegra skáksnillinga.
Flestir spá
Kasparov sigri
Þrátt fyrir áratuga setu
Korchnois á toppnum eru flestir
stórmeistarar og skákskýrendur
á því að Sovétmaðurinn ungi sé
líklegri til að bera sigur úr být-
um. Þessi afstaða þeirra kann að
nokkru leyti að ráðast af ósk-
hyggju, því marga er nú farið að
þyrsta í að sjá heimsmeistarann
mæta nýjum andstæðingi. Þeir
Karpov og Korchnoi hafa háð
þrjú einvígi og hinn fyrrnefndi
hefur jafnan borið sigur úr být-
um þótt hafi orðið mjótt á mun-
unum 1974 og 1978. Þykir því all-
mörgum sem fullreynt sé með
þeim tveimur og Kasparov sé
eini núlifandi skákmeistarinn,
e.t.v. að Bobby Fischer undan-
skildum, sem möguleika eigi á
því að hrifsa titilinn úr höndum
Karpovs.
Hlutlægt séð eru samt margar
ástæður fyrir því að telja megi
Kasparov líklegri sigurvegara.
Skákstigin segja t.d. sína sögu
um árangur þeirra síðustu árin.
Á nýjasta listanum hefur
Korchnoi 2610 stig en Kasparov
2690. Báðir verða vafalaust
hærri á næsta lista, en til sam-
anburðar má geta þess að Kar-
pov hefur nú 2710 stig. Eftir
frábæran árangur Kasparovs á
stórmótinu í Niksic í haust er
hins vegar líklegt að á listanum
sem gefinn verður út 1. janúar
næstkomandi verði hann orðinn
hærri en Karpov.
Síðan á stórmótinu í Tilburg
1981 hefur Kasparov sigrað á öll-
um þeim stórmótum sem hann
hefur tekið þátt í, en frammi-
staða Korchnois á mótum und-
anfarin ár hefur verið í meira
lagi skrykkjótt. Hann var t.d.
undir 50% mörkunum á alþjóð-
lega mótinu í Wijk aan Zee í
janúar og í fyrra var hann í
vandræðum með að vinna
svissneska meistaramótið þótt
hann væri eini stórmeistarinn á
þátttakendalistanum.
32ja ára
aldursmunur
Það sem vegur þó þyngst er
hinn mikli aldurmunur kepp-
enda. Kasparov er aðeins tvítug-
ur en Korchnoi hvorki meira né
minna en þrjátíu og tveimur ár-
um eldri. Því er um að ræða ein-
vígi tveggja fjarlægra kynslóða.
Kasparov er fulitrúi hinnar allra
yngstu, þeirrar, sem trúir á
þrotlausar byrjanarannsóknir,
en Korchnoi náði hins vegar
mest öllum styrk sínum á sjötta
áratugnum, þegar þeir Botvinnik
og Bronstein voru upp á sitt
besta.
Kasparov er því enn í mikilli
framför en hæfni Korchnois hef-
ur hins vegar náð sínum eðlilega
hápunkti. Stórmeistarinn land-
flótta hefur heldur ekki eins
mikið að keppa að, því eftir síð-
ustu vopnaviðskipti hans við
Karpov getur hann vart búist við
að ríða feitum hesti frá enn einu
heimsmeistaraeinvígi. Kasparov
er hins vegar ungur og kapps-
fullur og glæsilegur árangur
hans til þessa gerir það afar lík-
legt að hann eigi fyrr eða síðar
eftir að hreppa titilinn eftir-
sótta.
Enginn skyldi þó láta sér detta
í hug að afskrifa Korchnoi fyrir-
fram. Hann hefur margoft sýnt
það að þegar aðstaða hans virð-
ist hvað vonlausust er kraftur
hans mestur. Fyrir einvígi hans
við Portisch í vor spáðu t.d. fleiri
Ungverjanum sigri en niðurstað-
an varð yfirburðasigur Korch-
nois. Hann hefur síðan haft
drjúgan tíma til að rannsaka stíl
tilvonandi andstæðings síns og
hver veit nema hann hafi fundið
leiðina til að draga broddinn úr
beittum sóknum Kasparovs.
Ferill Kasparovs minnir
á Fischer og Tal
Frami skáksnillingsins tví-
tuga frá Kaspíahafi hefur verið
svo skjótur að samanburður við
aðra en allra mestu hæfileika-
menn sem skáklistin hefur átt er
útilokaður.
Gary Kimovich Kasparov er
fæddur 13. apríl 1963 í Bakú og
lærði að tefla sex ára gamall.
Eins og er um fleiri skáksnill-
inga er til skemmtileg saga,
væntanlega sönn, um það hvern-
ig hann lærði mannganginn.
Foreldrar hans höfðu rétt
ákveðið að hann skyldi byrja að
leika á hljóðfæri er þau sama
kvöld reyndu árangurslaust að
leysa skákdæmi sem þau sáu í
dagblaði. Gary litli tók ekki aug-
un af stöðunni á taflborðinu allt
kvöldið og við morgunverðar-
borðið daginn eftir kom hann
öllum á óvart með því að stinga
upp á lausn á dæminu sem for-
eldrum hans hafði ekki tekist að
leysa. Það vissi jú enginn að
hann kynni reglurnar, hvað þá
meira.
Eftir þetta tók hann skjótum
framförum og fór snemma að
vekja athygli. Níu ára var hann
kominn í 1. flokk (ca. 2000 Elo-
stig) og strax árið eftir fékk
hann inngöngu í skákskóla Bot-
vinniks þar sem hann varð fljót-
lega uppáhaldsnemandi heims-
meistarans fyrrverandi. Sá
meistari sem hann hafði mest
dálæti á á þessum árum var
sóknarskákmaðurinn frægi, Al-
exander Aljekín. Snemma beyg-
ist krókurinn.
Breytt um nafn
Fram til tólf ára aldurs bar
Kasparov nafnið Weinstein, en
faðir hans var af gyðingaættum
en móðirin armensk. Þessi nafn-
breyting mun hafa komið til af
því að faðir Kasparovs lést þegar
hann var ungur og hann vildi
taka upp nafn móður sinnar og
móðurforeldra sem hann ólst
síðan upp hjá.
Fyrsti stórsigur Kasparovs
kom árið 1976 þegar hann varð
unglingameistari Sovétríkjanna
aðeins tólf ára gamall. Tvö
næstu árin var hann síðan send-
ur á heimsmeistaramót 16 ára og
yngri í Frakklandi. Á fyrra mót-
inu virtust taugarnar ekki alveg
í lagi og hann var úr leik í topp-
baráttunni eftir töp í fyrstu
tveimur skákunum. En undir
lokin var hann farinn að tefla
mjög vel og varð að lokum í
3.-6. sæti ásamt undirrituðum.
Hann varð síðan þriðji á þessu
móti 1977, en það var árið sem
Jón L. Árnason sigraði.
Þessi ár var Kasparov því að-
eins efnilegur en 1978 kom stóra
stökkið er hann sigraði á sam-
sovéska úrtökumótinu sem er
gífurlega sterkt og það fleytti
honum alla leið upp í úrslitin á
sjálfu meistaramótinu. Þrátt
fyrir hrakspár stóð hann fyrir
sínu gegn sextán stórmeisturum
og náði 50% vinningshlutfalli.
Næsta vor leyfðu mótshaldar-
arnir í Banja Luka í Júgóslavíu
Kasparov af rælni að vera með
þótt hann hefði engin alþjóðleg
stig. Hann þakkaði fyrir sig með
því að sigra með miklum yfir-
burðum og hlaut fyrri áfanga
sinn að stórmeistaratitili. Sama
ár varð hann í þriðja til fjórða
sæti á sovéska meistaramótinu
og eftir öruggan sigur á móti í
heimaborg sinni, Bakú, var hann
orðinn langyngsti stórmeistari
heims, þá nýorðinn sautján ára.
Sumarið 1980 sigraði hann síðan
án erfiðleika á heimsmeistara-
móti unglinga í Dortmund.
Hann var síðan valinn í sov-
ésku sveitina á Ólympíumótinu á
Möltu og reyndist traustsins
verður því hann átti stóran þátt
í naumum sigri sveitarinnar.
Hann varð að sleppa sovéska
meistaramótinu þetta ár, en um
vorið fékk hann að spreyta sig
þrisvar gegn Karpov á skömm-
um tíma. Öllum skákunum lauk
með jafntefli, en í tveimur
þeirra hékk staða heimsmeistar-
ans á bláþræði. Á stórmótinu í
Moskvu þetta vor varð hann síð-
an í öðru til fjórða sæti á eftir
Karpov sem sigraði.
í Tilburg haustið 1981 olli
hann mörgum skákunnendum
vonbrigðum þó hann næði 50%
gegn sterkustu skákmönnum
heims. Hann var enn ekki í stakk
búinn til að skara fram úr í slík-
um hópi, en það átti eftir að
breytast. Síðan á því móti hefur
sigurganga hans verið óslitin ef
undan er skilin sovéska flokka-
keppnin í fyrrasumar, en þá var
hann með tilraunastarfsemi og
tefldi undir styrkleika.
Leiðin í áskorendakeppnina
Um áramótin 1981—82 varð
hann loksins skákmeistari Sov-
étríkjanna ásamt Lev Psakhis. í
Bugojno næsta vor tókst honum
síðan að bæta fyrir bakslagið í
Tilburg og varð langefstur. Um
haustið var tími alvörunnar
runninn upp er Kasparov tók í
fyrsta sinn þátt í heimsmeist-
arakeppninni. Hann fór rólega
af stað á millisvæðamótinu í
Moskvu en stóð að lokum uppi
sem yfirburðasigurvegari. Það
var orðið greinilegt að jafnvel
reyndustu stórmeistarar báru
óttablandna virðingu fyrir hár-
beittum skákstíl hans. þannig
féllust þeir Ulf Andersson og
Mikhail Tal á jafntefli gegn hon-
um í stöðum sem þeir hefðu
áreiðanlega teflt áfram gegn
flestum öðrum. Með þessum
sigri var sæti í áskorendakeppn-
inni tryggt.
Á Ólympíuskákmótinu í Luz-
ern var engihn vafi á því að
Kasparov átti heima á öðru
borði í sovésku sveitinni. Honum
tókst síðan að stela senunni frá
Karpov með glæsilegri tafl-
mennsku. Hápunkturinn var í
viðureign Sovétríkjanna og
Sviss. „Ég þarf ekki að sanna
neitt gegn Korchnoi," sagði
Karpov og tók sér frí. Kasparov
fékk því að tefla við áskorand-
ann á fyrsta borði og nýtti sér
tækifærið til fullnustu með sigri
í æsispennandi skák.
í fyrstu umferð áskorenda-
keppninnar mætti Kasparov
landa sínum Alexander Belj-
avsky í Moskvu. Framan af var
einvígið í járnum, en undir lokin
reyndist ekki nokkur vafi á því
hvor væri sterkari, og lokatöl-
urnar urðu 6—3, Kasparov í vil.
í haust þegar útséð virtist um
að einvígi hans við Korchnoi
myndi fara fram bætti hann enn
einni fjöður í hatt sinn og vann
yfirburðasigur á stórmótinu í
Niksic. Þar með sannaðist að
hann er besti mótaskákmaður
heims, a.m.k. í ár. Hvass skák-
stíll Kasparov hentar frábær-
lega vel á mótum þar sem nýjum
andstæðingi er mætt í hverri
umferð, en hefur ekki fyllilega
sannað gildi sitt í einvígjum.
Líklegt er því að Kasparov fari
rólega af stað í London, því mik-
ið er í húfi. Sigur yfir Korchnoi
er óhjákvæmilegur áfangi á leið
hans að heimsmeistaratitlinum.
Ef þessi tvítugi undramaður
kemst á leiðarenda verður hann
yngsti heimsmeistari skáksög-
unnar. Líkurnar eru góðar, en
það má ekki mikið út af
bregða...
Spá: Kasparov 6% v.
Korchnoi 4% v.