Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
37
Samband iönfræösluskóla:
Nefnd fjalli um flutn-
ing nemenda milli skóla
AÐALFUNDUR Sambands iðn-
fræðsluskóla var haldinn í síðasta
mánuði og var þar meðal annars
samþykkt að kjósa milliþinganefnd
til að fjalla um skipulag iðnfræðslu-
skóla með tilliti til flutningsnem-
enda milli skóla. Á fundinum voru
samankomnir um 40 fulltrúar 12
iðn- og fjölbrautaskóla ásamt nokkr-
um gestum og áheyrnarfulltrúum.
Fluttar voru skýrslur sambandsins
og Iðnskólaútgáfu og gerð grein
fyrir því helzta, sem unnið hefur ver-
ið á síðasta starfsári.
Samband iðnfræðsluskóla eru
samtök iðn- og tæknimenntaskóla
á íslandi. í samtökunum eru nú 12
iðn- og fjölbrautaskólar. Sam-
bandið rekur Iðnskólaútgáfuna,
sem er eina fyrirtæki landsins, er
helgar sig útgáfu kennslubóka
fyrir iðnfræðslustigið og er að
verða hliðstæð stofnun og Náms-
gagnastofnun er fyrir Grunnskól-
ann.
Stjórn Sambandsins skipa nú
Ingvar Ásmundsson, formaður Sam-
bands iönfræðsluskóla.
Ingvar Ásmundsson formaður,
Þór Vigfússon ritari og Pálmar
ólason gjaldkeri. Formaður
stjórnar Iðnskólaútgáfunnar er
ólafur Ásgeirsson.
Fréttatilkynning
Wterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
i t»
KOMDU
KRÖKKUNUMÁOVART!
Fcmki til þejrrg umjólin
Mömmur, pabbar, systur, bræöur, afar, ömmur, frændur,
frænkur, synir, dætur og vinir geta nú brugðiö undir sig betri
fætinum og farið sjálf með jólapakkana og hangikjötið til
útlanda.
Ástæðan er auðvitað hin hagstæðu jólafargjöld sem Flug-
leiðir bjóða til Norðurlandanna.
Fargjöld báðar leiðir eru sem hér segir:
Kaupmannahöfn kr. 8.430.00
Osló kr. 7.688.00
Stokkhólmur kr. 9.611.00
Að auki er í boði sérstök jólaferð til Gautaborgar. Bjóðum
við einnig jólafargjald til Gautaborgar í þessa ferð, kr. 8.333.-
Brottför frá Reykjavík er 18. og 21. des. og heimkoma 4.
eða 8. janúar.
Barnaafsláttur er 50%.
Fargjöldin taka gildi 1. des.
Upplýsingar um skilmála og ferðamöguleika veita söluskrif-
stofur Flugleiða , umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar.