Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
Úr greinargerð Þorvalds Búasonar:
Niðurgreiðslur vaxta-
gjalda hreinar tekjur
— gjöld til
sjóðanna rýrna
HÉR FER á eftir þriðji
kaflinn, sem Morgunblað-
ið birtir úr greinargerð
Þorvalds Búasonar, eðlis-
fræðings, um rekstrar-
kostnað vinnslustöðva
landbúnaðarins, afurða-
lán, niðurgreiðlsur o.fl.
Krónutölur eru í gömlum
krónum og á verðlagi
september 1980. (1000
gkr. svara til 47 kr. í nóv-
ember 1983). Tekið skal
fram, að á stöku stað hef-
ur orðalagi verið hnikað til
þannig að betur færi í birt-
ingu í dagblaði, en það
hefur enga efnislega þýð-
ingu.
f greinargerðinni er ávallt
miðað við 1000 kg af dilkakjöti
(1. flokkur). Til að fá mynd af
heildarupphæðum fyrir heild-
ardilkakjötsframleiðslu haustið
1980 er nauðsynlegt að marg-
falda tölur í töflum með u.þ.b.
10500.
Tekur vinnslustöðva af niður-
greiðslum svokallaðs vaxta-
kostnaðar hefur því árið
1980—1981 verið sem næst 3,2
milljarðar á verðlagi september
1980 eða u.þ.b. 152 milljónir á
verðlagi nóv. 1983. Þar sem um
engan raunverulegan vaxta-
kostnað vinnslustöðva er að
ræða vegna hinna vægast sagt
hagstæðu lánskjara sem
vinnslustöðvarnar njóta, er hér
hreinlega um fundið fé að ræða.
Þessi liður er langmikilvægasti
„tekjuliður" vinnslustöðva.
Tekjur sjóða, sem vinnslustöðv-
ar eiga að skila skatti til, rýrna
um nær 175 milljónir í gömlum
krónum, eða um 8 milljónir á
verðlagi í dag.
Niðurgreiðslur
Dilkakjöt er niðurgreitt með
tvennum hætti; beinum niður-
greiðslum og niðurgreiðslum á
vaxta- og geymslukostnaði.
Beinar niðurgreiðslur greiðast
vinnslustöð í næsta mánuði eftir
sölu. í töflu V er í 1. dálk færðar
tekjur af beinum niðurgreiðsl-
um eftir mánuðum, sem þær eru
greiddar.
Vaxta- og geymslugjald er
greitt á hvert kg, sem er geymt
allan mánuðinn næstan á und-
an. Tekjur af niðurgreiðslum á
vaxta- og geymslugjaldi (birgðir
í lok næsta mánaðar á undan x
vaxta- og geymslugjald í þeim
mánuði) eru færðar í 2. dálk. í 3.
dálk eru færðar heildartekjur af
niðurgreiðslum eftir mánuðum.
Loks eru allar upphæðir í
1,—3. dálki færðar á föstu verð-
lagi í 4.-6. dálk í töflu V.
Miðað við fast verðlag hafa
heildartekjur af beinum niður-
greiðslum orðið 759.858 kr. (mið-
að við 1000 kg) en áttu sam-
kvæmt áætlun að verða 919.000
kr. Tekjur af beinum niður-
greiðslum hafa því orðið 159.142
kr. minni en áætlað í sept. 1980.
Á móti koma niðurgreiðslur á
vaxta- og geymslugjaldi, sem
fyrst og fremst stafar af
ákvörðun stjórnvalda á þeim
tíma um hlutfallslega minnk-
andi niðurgreiðslur. fþeim köfl-
um sem birtust hér í gær eru
leidd rök að því, að vinnslu-
stöðvar greiða ávallt minna til
baka en þær fá að láni svo
raunverulegur vaxtakostnaður
er enginn. Hluti niðurgreiðslu á
vöxtum í vaxta- og geymslu-
gjaldi er u.þ.b. 80% (skv. áætlun
sexmannanefndar).
Geymslukostnaður er u.þ.b.
20% af vaxta- og geymslugjaldi
skv. áætlun sexmannanefndar).
þeim köflum sem birtust sl.
fimmtudag eru færð rök fyrir
því, að sexmannanefnd áætli
frystikostnað svo ríflega, að
hann mæti öllum hugsanlegum
geymslukostnaði allt árið. Við
heildsöluálagningu er enda yfir-
leitt reiknað með geymslu- og
lagerkostnaði.
Á föstu verðlagi reiknast tekj-
ur af niðurgreiðslum á vaxta- og
geymslukostnaði vegna 1000 kg
framleiðslu samtals 384.829 kr.
Sjóðagjöld;
neytenda- og
jöfnunargjöld
Vinnslustöðvar afurða eiga að
skila svokölluðum neytenda- og
jöfnunargjöldum af allri fram-
leiðslu (1+1=2% af óniður-
greiddu heildsöluverði, sem
leggjast við hreint heildsölu-
verð). Framleiðsluráð landbún-
aðarins annast innheimtu gjald-
anna. Reglugerð mælir svo fyrir,
að í janúar (hér reiknað með
des.) skuli greidd innheimt gjöld
af sölu í mánuðunum júní til
nóvember og í júlí af sölu á
mánuðunum desember til maí.
Samkvæmt upplýsingum um
dreifingu sölu má reikna út hlut
sjóðagjalda í sölutekjum
vinnslustöðvar eftir mánuðum
(sala í hverjum mánuði x neyt-
enda- og jöfnunargjald). Þessar
upplýsingar eru færðar í 1,—3.
dálk í töflu VI. f 4. dálk eru færð
skil vinnnslustöðvar til fram-
leiðsluráðs á sjóðagjöldunum og
í 5. dálk sömu upplýsingar á
föstu verðlagi. Miðað við fast
verðlag fá sjóðirnir samtals 51.438
kr. en áætlun gerði ráð fyrir
62.000 kr. Tekjur sjóðanna rýrna
því um hvorki meira né minna en
-r 10.562 kr. (miðað við 1.000 kg
1)1) eða um 17,0% miðað við áætl-
un. Þessi liður er ekki stór eða
afgerandi fyrir afkomu vinnslu-
stöðvar, en skiptir þá sjóði, sem
gjöldin eiga að renna til, þeim
mun meira máli.
Sjóðagjöld til:
Stofnlándcildar landbúnað-
arins, Bjargráöasjóðs og
Búnaðarmálasjóðs
Samkvæmt reglugerðum er
innheimt 1,85% gjald af fram-
leiðsluverðmæti landbúnaðaraf-
urða (grundvallarverði) og renn-
ur gjaldið til: Stofnlánadeildar
iandbúnaðarins (1%), Bjarg-
ráðasjóðs (0,35%) og
Búnaðarmálasjóðs (0,5%) en
þessi gjöld skerða að sama skapi
greiðslu til bænda. Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins annast inn-
heimtu og skulu gjöld innt af
hendi einu sinni á ári fyrir allt
árið í nóv. og des. eftir því hvaða
sjóðir eiga hlut að máli. Hér er
til einföldunar gert ráð fyrir að
vinnslustöð geri skil á öllum
gjöldum í nóvember. í töflu VII
getur að líta yfirlit yfir inn-
heimtu og skil gjaldanna. í 3.
dálk er færður hluti þessara
gjalda í tekjum vinnslustöðvar, í
4. dálk greiðsla til framleiðslu-
ráðs og í 5. dálk hefur sú upp-
hæð verið færð á fast verðlag og
nemur hún þá 37.929 kr. Áætlun
gerði ráð fyrir 44.000 kr. svo
verðbólga og greiðslumáti hefur
valdið 6.071 kr. rýrnum. Þar á
einnig við um þessi gjöld, að þau
hafa óveruleg áhrif á afkomu
vinnslustöðvar, en 13,8% rýrnun
tekna sjóðanna getur skipt máli,
þegar verkefni þeirra eru höfð í
huga.
TAFLA V
Yfirlit vfir tekjur af niðurRreiðslum árið sept. 1980 til ág. 1981 miðað við 1.000 kR (Dl).
i 2 3 4 5 6
Beinar Niðurgr Tekjur Beinar Niðurgr. Tekjur af
niðurgr. á vaxta- af niðurgr. vaxtagj. niðurgr.
gj- niðurgr. f ast f ast f ast
verðlag. verðlag. verðlag.
kr. kr. kr. kr. kr. kr.
1980 sept.
okt. 101.090 101.090 98.330 98.330
nóv. 91.900 73.739 165.639 85.642 68.717 154.359
des. 67.087 66.925 134.012 60.620 60.473 121.093
1981 j an. 70.763 68.704 139.467 61.146 59.367 120.513
febr. 62.492 61.404 123.896 51.737 50.836 102.573
marz 76.277 52.494 128.771 60.076 41.344 101.420
apr í 1 71.592 46.669 118.261 54.925 35.804 90.729
maí 64.998 38.872 103.870 48.410 28.952 77.362
juní 108.330 25.877 134.207 78.701 18.800 97.501
júll 75.332 18.755 94.087 53.425 13.301 66.726
ág- 69.224 10.527 79.751 47.578 7.235 54.813
sept. 88.566 88.566 59.268 59.268
759.858 384.829 1.144.687
Aætlaðar niðurgr. -919.000 -919.000
-159.142 384.829 225.687
Yfirlit yfir innheimtu og skil TAFLA VI vinnslustöðvar á neytenda- og jöfnunargjaldi (miðað
við 1 000 kg Dl) fyrir sept. 1980 - áR. 1981 .
1 2 ' 3 4 5
Sala Hlutur Hlutur Skil til Skil á
gjalda í gjalda 1 framl.r. gjöldum
verði tekjum fast verðl.
kg kr/kg kr. kr. kr.
1980 sept. 110 62 6.820
okt. 100 " 6.200
nóv. 73 " 4.526
des . 77 70 5.390
1981 j an. 68 " 4.760 17.546 15.161
febr. 83 " 5.810
marz 76 75 5.700
apr í 1 69 " 5.175
maí 115 " 8.625
júní 74 83 6.142
júlí 68 " 5.644 35.460 25.148
ág. 87 " 7.221
sept.
okt.
nóv.
des.
1982 j an. 19.007 11.129
Samt. 51.438
Aæt 1. -62.000
Rýrnun -10.562
Yfirlit yfir innheimtu og skil TAFLA VII vinnslustöðvar á sjóðagjöldum af framleiðsluverðmæti
(miðað við 1 000 kg Dl) fyrir árið sept. 1980 til ág. 1981.
1 2 3 4 5
Sala Hlutur Hlutur Greiðsla Greiðsla
gjalda í gjalda I til til framl.r.
verði tekjum framl.r. fast verð.
kg kr. kr. kr. kr.
1980 sept. 110 44 4.840
okt. 100 " 4.400
nóv. 73 " 3.212
des . 77 50 3.850
1981 j an. 68 " 3.400
febr. 83 " 4.150
marz 76 54 4.104
apr 11 69 " 3.726
maí 115 6.210
júní 74 62 4.588
júlí 68 " 4.216
ág- 87 " 5.394
sept.
okt.
nóv. (52) 8.000 60.090 37.929
37.929
1.000 Aætlun: -44.000
-6.071