Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 16 Ljósmyndir Gunnars Gunnarssonar Myndlíst Bragi Ásgeirsson í Gallery Lækjartorg hefur undanfarið staðið yfir sýning á 38 ljósmyndum eftir ungan mann, Gunnar Gunnarsson að nafni. Gunnar lauk ljósmynda- námi í Edinborg sl. vor svo að hér er um lærðan ljósmyndara að ræða er nú sýnir verk sín í fyrsta skipti á sérsýningu hér heima. Áður hefur hann haldið einkasýningu í Edinborg ásamt því að taka þátt í samsýningum þar. Hann hlaut fyrstu verðiaun í hinni svonefndu POLAROID- keppni sem haldin er árlega í Bretlandi. Við skoðun sýningarinnar er auðséð að um er að ræða áhuga- saman ungan mann á miklu mótunarskeiði, — áhrif sækja víða að, t.d. frá hinum fræga súrrealista Man Ray svo sem í myndinni er væntanlega fylgir þessum línum. Svipuð tilfinning fer um mann við skoðun mynda úr mannlífinu og þegar maður flettir í bókinni frægu: „Wee- gee’s New York“, en það þarf enganveginn að vera tilkomið vegna beinna áhrifa. Hér var ég að vísa til svart-hvítra mynda en í vel gerðum litmyndum, svo sem myndaröðinni „án sálar", má kenna áhrif frá hinum fræga ljósmyndara erótískra mynda, David Hamilton, en hjá honum er allt sviðið umlukið fjarrænni rómantík. Allt eru þetta góð og holl áhrif er bíða frekari úrvinnslu og persónulegrar mótunar. Gerand- inn er í upphafi ferils síns og á væntanlega langa og gifturíka braut á þessu sérsviði sínu fram- undan. Þessi fyrsta sýning Gunnars Gunnarssonar lofar góðu og trú- lega á hinn ungi maður eftir að láta mikið að sér kveða á vett- vangi íslenzkrar ljósmyndunar í framtíðinni. Síminn og Miðillinn Jón Asgeirsson Það er ekki mikil dýpt í tónlist Menottis en hún er leikandi og létt í gerð sinni, leikræn og feikilega vel unnin leikhústónlist. Sfminn er tveggja manna tal og er leik- verkið byggt utan um bónorðstil- raun, sem virðist ætla að mis- heppnast, vegna þess að símhring- ing er látin grípa þar inn í og lausnin því sú fyrir manninn, að hringja sjálfur í sína heittelskuðu og biðja hennar i gegnum síma. Það má segja að Síminn sé tákn- rænn fyrir nýjungagirni manna og það hversu maðurinn getur orðið upptekinn af ýmsum tæknileik- föngum sínum. Þetta er græsku- laust grín og er mjög vel flutt af Elínu Sigurvinsdóttur í hlutverki hinnar símaglöðu stúlku Lucy og John Speight er leikur biðilinn. Framburður enska textans var mjög góður svo og söngur og leik- ur. Miðillinn er andstæða Sfmans, alvarlegur sorgarleikur og fjallar um fólk, er flækist fast f sinni eig- in sviksemi. Aðfari morðsins er ekki nógu vel unninn frá hendi höfundar, draugahræðsla miðils- ins ekki orðin nægilega öflug og sannfærandi til að morðið verði bæði lausn fyrir draugahræðslu miðilsins og hámark harmleiks- ins. Þá var eitt atriði, sem skemmdi morðsenuna all mikið, og það var byssan, sem notuð var til verksins, hvellhettubarna- byssa, „sem ekki er einu sinni not- hæf til að drepa með leikara", eins og einn leikhúsgesta komst að John Speight og Elfn Sigurvinsdóttir orði. Allt um það, þá er nokkur spenna f leikverkinu. Aðalhlut- verkin eru sungin af Þuríði Páls- dóttur og Katrínu Sigurðardóttur og leikhlutverk mállausa drengs- ins er uppfært ágætlega af Viðari Eggertssyni. Gestir á miðilsfundi eru Sigrún V. Gestsdóttir, Snæ- björg Snæbj arnardóttir og Jón Hallsson. Þuríður Pálsdóttir leik- ur frú Flóru, miðilinn, án þess að yfirdrífa nokkurs staðar. Það mætti þó leggja meiri áherslu á hið dulúðuga, einkum þar sem svikamiðill á í hlut, er vegna sviksemi sinnar hefur sterka til- hneigingu til að ofgera. Fyrir bragðið ætti hræðsla hennar að standa sem sterkari andstæða, er næði hámarki í sefasjúkri skot- hríð konunnar á þau ókunnu öfl, er ógna sálarheill hennar. Þessar andstæður í skaphöfn Flóru koma í Símanum. einnig fram í meðferð hennar á mállausa drengnum. Mónika f meðferð Katrínar Sigurðardóttur er fallega stúlkan er leikur svika- leikinn með móður sinni en er þó ímynd sakleysisins. Bæði í atrið- inu, þegar hún og Toby eru að leika sér ein heima og hún huggar móður sína eru andstæður óhugn- aðarins, þar sem mannleg hlýja og elska komu fallega fram, bæði í leik og söng. í báðum þessum at- riðum reynir Menotti að spila á alþýðlegar nótur og er huggunar- lagið sem Mónika syngur við móð- ur sína einkar ljúflegt í blæ og gerð. Gestir á miðilsfundi voru vel leiknir af Sigrúnu V. Gestsdóttur og Jóni Hallssyni, er túlka hjón, sem eru orðin upphafin í sorgar- dekri og sínu, og Snæbjörg Snæ- bjarnardóttir lék á sannfærandi máta nýgræðing á miðilsfundi, óttaslegna og umkomulausa f sjálfsvorkunn sinni. Söngur og flutningur hljóm- sveitar var með ágætum undir stjórn Marc Tardue. Leikmynd, búningar og lýsing ágæt, en þar unnu að Steindór Sigurðsson, Hulda Kristín Magnúsdóttir og Sigurbjarni Þórmundsson. Hall- mar Sigurðsson leikstýrði verkinu. Menotti leikur oft með andstæður, sem ef jafnaðar eru um of, verða marklausar. Skerpa andstæðn- anna hefði mátt vera meiri f Miðl- inum og sú málamiðlun, sem Hall- mar virðist leggja áherslu á, deyf- ir verkið að nokkru. í Símanum eru andstæðurnar fólgnar í yfir- drifinni mynd, sem stendur eins og andstæða þeirrar tilveru er við öll þekkjum heima við símann okkar. í Símanum tókst að leika með þessar andstæður en ekki eins vel í Miðlinum. Viðar Eggertsson og Katrín Sigurð ardóttir ein heima að leika sér. Tónlist Engin stórtíðindi, en tíðindi samt Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Guðmundur Daníelsson: Á VINA FUNDI. Sautján samtöl. Setberg 1983. Nú hefur sautján viðtölum Guðmundar verið safnað sam- an I bók sem nefnist Á vina fundi. Ég drep niður í viðtal við Vigdísi Magnúsdóttur sem hef- ur lifað 99 jólanætur þegar við- talið er skráð 1964, en lést 102 ára 1968 eftir legu vegna lærbrots og hafði aldrei fyrr komið á spítala. Guðmundur segist sjá það á Vigdísi að henni líði vel í ellinni: Guðmundur Daníelsson hef- ur lengi fengist við blaða- „Já, það er rétt, mér líður mennsku með góðum árangri vel, og ég má vera þakklát og og birt margt eftirminnilegt hamingjusöm. Fólkið hérna er eftir sig í Suðurlandi. Guð- mér frábærlega gott. Þar að mundur hefur ekki síst fengist auki finn ég, að það er yfir mér við að skrá viðtöl, hlýr og ein- vakað. Ég finn nálægð horf- lægur við samferðafólk sitt og inna ástvina, helst þegar ég er hefur með viðmóti sínu fengið milli svefns og vöku á morgn- margan manninn til að opna ana. Það er faðir minn sem hug sinn. Viðtöl Guðmundar stendur mér næstur, að mér eru yfirleitt ekki löng, en segja finnst. En við skulum ekki orð- oft mikla sögu í fáum orðum. lengja um það, margur er sá sem ekki er trúaður á slíkt. Það er mér nóg, að sjálf er ég sannfærð." Það er einmitt þessi þægilegi rabbtónn sem gerir viðtöl Guð- mundar Daníelssonar trúverð- ug, spyrillinn er ekki fyrir- ferðarmikill, leitar ekki bein- línis stórtíðinda, en leggur áherslu á að draga upp heillega mynd af þeim sem hann ræðir við. Það er einkum alþýðufólk sem Guðmundur Daníelsson ræðir við í Á vina fundi. Meðal undantekninga er samtal við nýlátið skáld, Kristmann Guð- mundsson, skrifað 1953. Þetta er örstutt samtal, en lýsir Kristmanni vel. Mest áhersla er lögð á að skýra frá frægð Kristmanns erlendis, en minna fer fyrir því að meta stöðu hans í samtímanum. Það Guómundur Daníelsson verður að segja eins og er að fortíð Kristmanns skyggði allt- af á það sem hann var að fást við eftir að hann kom heim. Menn einblíndu á það sem hann hafði skrifað, en ekki á það sem hann var að skrifa. En nú er tækifæri til að horfast í augu við skáldskap Krist- manns og láta deilur um hann niður falla. Ágætir bók- menntamenn eins og Erlendur Jónsson hafa lagt drög að því að við sjáum Kristmann eins og hann var, en ekki með aug- um annarra. Á vina fundi er hollur lestur. Við kynnumst lífsbaráttu margra íslendinga og einnig útlendinga sem hér hafa sest að og orðið góðir íslendingar. Meðal þátta sem ég las af mik- illi athygli er frásögn Jónasar Magnússonar í Stardal af ver- tíð í Þorlákshöfn 1916. Þannig mætti lengi telja. Ég get ekki ímyndað mér að aðrar þjóðir geti státað af alþýðlegum frá- sögnum af því tagi sem finna má í Á vina fundi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.