Morgunblaðið - 06.12.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
Stjörnur í
Um bókina Fingramál
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Joanne Greenberg: Fingramál.
Þýðandi: Bryndís Víglundsdóttir.
Útg. Bjallan 1983.
Málefni heyrnarskertra/-
heyrnarlausra hafa verið í
sviðsljósinu að undanförnu,
minna má á ágæta sýningu í
Iðnó á leikritinu Guð gaf mér
eyra, hvar fjallað er um heim og
stöðu heyrnarlausra í samfélagi
heyrandi. Bókin Fingramál eftir
Joanne Greenberg er merkt og
þarft innlegg í þessar umræður.
Hins vegar ber þess fyrst að
geta að ég er afar ósátt við titil
bókarinnar, hann er villandi í
meira lagi. Að minnsta kosti
hélt ég í fyrstu, að hér væri á
ferðinni kennslubók í fingra-
máli, en þetta reyndist vera
saga þeirra Jennu og Abels, sem
eru bæði heyrnarlaus. í upphafi
bókar eru þau stödd í réttar-
salnum, þeim hefur orðið á að
kaupa bíl án þess að athuga að
lesa kaupsamninginn og niður-
girðingu
staðan verður sú að þau sitja
uppi með tuttugu ára skulda-
byrði á bakinu. Þau Jenna og
Abel hafa náð saman í skóla og
heyrnarleysið sameinar þau.
Þau stofna heimili við erfiðar
aðstæður, berjast áfram í vinnu
af kraftti og dugnaði, eignast
tvö börn, Bradley og Margréti,
og missa Bradley ungan af slys-
förum. Margrét er heyrandi og
þegar fram í sækir kemur upp
togstreita milli hennar og for-
eldranna, þau sætta sig aldrei
við heyrandi heiminn, eru af-
brýðisöm út í það sem hann ger-
ir eða breytir Margréti og finnst
hann taka dótturina frá þeim.
Þegar þaueru að stofna heimili
er kreppan mikla á næsta leiti,
en þeim tekst að komast í gegn-
um hana vegna seiglu og
þrjósku og þegar sögunni lýkur
eru bæði komin á efri ár og mik-
il saga hefur verið sögð af ævi
þeirra.
Joanne Greenberg hlýtur að
þekkja vel til heyrnarleysingja
og myndin sem hún dregur upp
af þeim Jennu og Abel virðist í
senn áhrifamikil, átakanleg og
sönn. þau stíga fram af síðum
bókarinnar ljóslifandi, það eina
sem mætti finna að er ákveðin
einfeldni sem er í fari þeirra,
einkum framan af. Kannski
stafar sú einfeldni, sem að vísu
jaðrar við kjánaskap, af því að
þau eru að byrja að feta sig
áfram í lífsbaráttuheimi hinna
Bryndís Víglundsdóttir
heyrandi — og verða að viður-
kenna hann þó að hann sé þeim
um margt ömurlegur og fram-
andi — heillandi og margslung-
inn. Dóttirin Margrét er vel gerð
persóna af hendi höfundar og
eins og sagði í upphafi er þessi
bók verulega þarft innlegg í þær
umræður sem hafa orðið um
þessi mál hér. Og þessi bók ætti
að verða til að auka skilning á
þessum heimi. Þó að hann virð-
ist tómur og fráhrindandi á
köflum er margt fólk sem verð-
ur að hafast við í honum. Það er
því hollt að kynnast honum i
persónunum og viðhorfum
þeirra og umhverfisins í þessari
bók. Þýðing Bryndísar Víg-
lundsdóttur er mjög eðlileg og
þjál og á örugglega sinn þátt í
að auka gildi frásagnarinnar.
17
Eftir reglum kúnstarinnar
Bókmenntir
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Þór Sandholt:
Hanastél hugsana minna
Ljóð, 45 bls. Bóksala MH.
Bóksala Menntaskólans við
Hamrahlíð hefur með þessari bók,
byrjað útgáfu á flokki bóka sem á
að innihalda skáldverk eftir nem-
endur skólans. Þetta er þarft og
gott framtak og yljar manni sem
fyrrverandi menntaskólaljóðara
um hjartarætur. Vonandi fellur
þessi útgáfa í góðan jarðveg. Hún
ætti að geta gert það, ef jafn vel
tekst til í framtíðinni og með
þessa fyrstu bók.
Þór Sandholt er nítján ára gam-
all og mun hafa fiktað við orðlist
um nokkurt skeið. Ljóð hans sem
birtast í þessari bók bera þess vott
að hann nálgast orðlistina af al-
vöru og einlægni. Það er ekki að-
eins heillavænlegt. Það er nauð-
syn. Það vill hins vegar oft brenna
við í menntaskólakveðskap að
orðaleikir og misjafnlega hallær-
islegir brandarar séu þar í aðal-
hlutverki. Flestir höfundar þeirra
fara eftir menntó í félagsfræði,
lögfræði eða verkfræði og hætta
að skrifa, guði sé lof.
Það er auðvitað of snemmt að
segja til um það hvort Þór Sand-
holt haldi áfram að skrifa eftir
menntó. Ég vona það. Ljóðin í
þessari bók eru vissulega nokkuð
misjöfn, og eins og eðlilegt er eru
hér ýmsar kunnuglegar líkingar
og setningar. En það breytir því
ekki, að víða er vel að orði komist.
Til dæmis má taka ljóðið „Stað-
reynd“, sem er hnyttið án þess að
vera eitthvert skop:
Þegar Bítlarnir létu það vera
kom ég organdi
inn í geðveikina.
Og ég er þar enn
pískaður áfram
eftir reglum kúnstarinnar.
Án þess að fá að gert
er ég að falla
eins og flís við rass.
Sú lífstragedía allra manna sem
hér er til umfjöllunar kemst vel til
skila og á hæfilega hátíðlegan
máta.
Ég sé ekki ástæðu til að skrifa
langt mál um þessa bók. Hún er
eins og fyrstu ljóðabækur höfunda
eiga að vera, full af spurn og leit
og með dálítið af bergmáli ann-
arra ljóða inn á milli. Það er ein-
mitt þessi spurn og þessi leit sem
skiptir öllu. Um leið og listamað-
urinn, eða verðandi listamaður-
inn, er orðinn viss um hlutina, til-
veruna, ástand heimsmála, þá er
hann á hálum ís. Þá er hann
staddur þar sem engin ljóð búa,
aðeins orð. Engar tilfinningar, að-
eins skoðanir. Enginn skáldskap-
ur, aðeins yfirlýsingar.
Að lokum óska ég höfundinum
og útgáfunni til hamingju með
bókina. Teikningar Guðmundar
Pálssonar eru margar ágætar.
Vonandi fer Bóksala MH ekki á
hausinn og vonandi fer Þór
Sandholt ekki í félagsfræði.
199.- 239
Höfum einnig Swegmark leikfimisbúninga.
Swegmark
Nærföt í háum
gæðaflokki
enlágum
veróflokki
Vorum að fá nýja sendingu af vinsæla kvenundirfatnaðinum
frá Swegmark. Brjóstahöld með A,B,C og D skálum.
Geysilegtúrval. Sími póstverslunarer 30980.
KREDITKOWT
139,-
Brjóstahöld 219,- Buxur 159,-
279,-
HAGKAUP