Morgunblaðið - 06.12.1983, Qupperneq 45
:#Ȥ
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
25
• Hinn kunni knattspyrnu-
madur úr Fram, Jón Péturs-
son, mun þjálfa lið Hauka
næsta sumar.
Jón með
Hauka
HAUKAR hafa ráðið Jón Pét-
ursson, Framara, sem þjálf-
ara fyrir meistaraflokk fé-
lagsins í knattspyrnu næsta
sumar. Jón mun að óllum
líkindum ekki leika með lið-
inu.
Staðan
NÚ eru átta umferöir búnar í
1. deild íslandsmótsins í
handknattleik 1. deild karla
og er staöan þessi eftir síð-
ustu leiki:
Stjarnan — Þróttur 18—22
Valur — Víkingur 21—20
Haukar — FH 20—38
Staöan er nú þannig:
FH 8 8 0 0 256—158 16
Valur 8 5 1 2 172—166 11
Víkingur 8 5 0 3 183—168 10
KR 8 4 1 3 142—133 9
Þróttur 8 3 1 4 172—188 7
Stjarnan 8 3 1 4 150—179 7
Haukar 8 1 1 6 156—194 3
KA 8 0 1 7 139—184 1
Markahæstu leikmenn eru
nú:
Kristján Arason, FH 82/37
Páll Olafsson, Þrótti 55/9
ÚRSLIT í leikjum 1. deildar
kvenna í handknattleik um
helgina urðu þessi:
Valur — Víkingur 20—16
ÍR — FH 15—15
KR — Fyjkir 17—14
Fram — ÍA 23—11
Staöan í 1. deild:
Fram 6 5 0 1 117—88 10
ÍR 5 3 2 0 94—68 8
FH 5 4 1 1 101—88 8
Fylkir 5 2 0 3 85—91 4
KR 6 1 2 3 89—105 4
Valur 5 2 0 3 83—98 4
Víkingur5 1 1 3 82—81 4
Akranes5 1 0 4 61—93 2
Naumur Valssigur
VALSMENN unnu nauman sigur á
liði Víkíngs í 1. deildinni í hand-
knattleik um helgina. Valur sigr-
aöi með einu marki 21—20 eftir
hörkuspennandi leik. í hálfleik
höfðu Víkingar hinsvegar foryst-
una í leiknum 13—12. Og þegar
10 mínútur voru liðnar af síðari
hálfleiknum var allt útlit fyrir að
Víkingar myndu sigra. Þá höfðu
þeir náð öruggri forystu 17—13
og spiluöu vel. En Valsmenn gáf-
ust ekki upp, þeir sóttu í sig veör-
iö og skoruðu næstu fimm mörk
gegn aöeins einu Víkingsmarki
og staöan var þá jöfn 18—18.
Síöustu 10 mínútur leiksins var
hart barist og vart mátti á milli sjá
hvort liöiö myndi sigra. Víkingar
náöu að komast í 19—18 og
10—19. En meö mikilli seiglu og
jafnframt mjög sterkri markvörslu
Einars Þorvarðarsonar tókst Vals-
mönnum aö knýja fram sigur meö
því aö skora tvö síðustu mörk
leiksins.
Víkingar áttu tvö mjög góð
marktækifæri undir lok leiksins en
Einar sem var meö mjög góöar
staðsetningar í markinu varöi vel.
Oft á tíöum sást góöur hand-
knattleikur í leiknum en leikmenn
geröu sig Ifka seka um slæmar vill-
ur. Ljóst er þó aö bæöi liöin eru í
sókn og framför.
Bestu menn í liöi Vals voru Einar
í markinu, Jón Pétur Jónsson sem
lék vel bæði í vörn og sókn. Þá
voru ungu mennirnir sprækir þeir
Geir, Guðni, Björn og Valdimar.
Þaö munaöi miklu fyrir Víking aö
Viggó stórskytta Sigurðsson
meiddist á hné og gat ekki leikið i
síðari hálfleik. Siguröur Gunnars-
son var góöur þrátt fyrir aö hann
væri í strangri gæslu. Þá stendur
Steinar fyrir sínu svo og þeir Hilm-
ar og Guömundur.
Mörk Vals: Brynjar 6/4, Jón P.
6, Valdimar, Steindór, Guöni, Geir
og Björn 2 mörk hver.
Mörk Víkings: Siguröur 8/1,
Guömundur 3, Hilmar 3, Steinar 2,
Karl 2, Höröur 1 og Viggó 1.
með Val gegn UMFN, hór er hann undir
ssyni.
ur liðið áfram og hann skorar mik-
iö.
Staöan í hálfleik var 50—36 og
haföi Torfi skorað mest eöa 11 stig
en hann lék að þessu sinni í búning
númer niu en ekki númer sex eins
og hann er vanur.
í upphafi síðari hálfleiks var mik-
ill hraöi í leik liöanna og virtist sem
hvort liö ætlaöi sér aö skora tíu |
stig í hverri sókn, slík voru lætin.
En liöunum gekk illa aö skora og
klúðruðu hverri sókninni á fætur
annarri. Þaö eina sem gladdi aug-
að voru frábærar sendingar frá
Stefáni Kristjánssyni hjá ÍR en
hann stóö sig mjög vel í þessum
fyrsta leik sem hann fær aö leika
með liöinu í vetur.
Leikurinn róaöist talsvert og
ÍR-ingar sóttu á en létu þá dómar-
ana fara mjög í taugarnar á sér og
fengu dæmd á sig fjögur tæknivíti
á stuttum tíma sem Valsmenn
skoruðu úr og nægöi þaö þeim til :
sigurs.
Bestir í liði IR voru þeir bræður
Hreinn og Gylfi auk Stefáns, en
Hreinn skoraði 27 stig þrátt fyrir
aö hann léki ekki, aö mínum domi,
nógu mikið meö. Hjá Val var Torfi
góöur, lék sinn besta leik í langan
tíma, einnig var Kristján góöur.
Tómas og Jón áttu góöan dag og
eru sendingar Tómasar hreint frá-
bærar en hann hefði mátt skjóta
meira i fyrri hálfleik.
Dómarar i leiknum voru Gunnar
Valgeirsson og Björn Ólafsson.
Gunnar hefur oft dæmt betur og
Björn virkaöi mjög taugaóstyrkur
enda var þetta fyrsti leikurinn hans
í úrvalsdeildinni á þessu ári.
Stigin: Valur: Kristján 17, Jón
14, Torfi 14, Björn 10, Tómas 10,
Valdimar 8, Leifur 9, Hannes 4, Jó-
hannes 4, Helgi 1.
IR: Hreinn 27, Gylfi 18, Stefán
13, Ragnar 8, Kristján Oddsson 7,
Hjörtur 5, Bragi 5, Jón 2. SUS
Allir Valsmennirnir skoruðu
— þegar Valur sigraði ÍR í úrvalsdeildinni
VALSMENN sigruöu ÍR í úrvals-
deildinni í körfuknattleik meö sex
stiga mun þegar liöin mættust í
Seljaskóla um helgina. Valsmenn
leiddu allan tímann og var ekki
óalgengt aö þeir heföu um 10—15
stiga forystu en þegar upp var
staðið var staöan 91—85.
Valsarar voru yfir allan fyrri hálf-
leikinn og notuöu þeir alla tíu
leikmenn sína að þessu sinni og
skoruöu þeir allir stig fyrir liö sitt.
Þegar um fimm m/nútur voru eftir
af fyrri hálfleiknum var staöan
38—28 fyrir Val og settu þeir þá
leikmenn sem lítiö hafa leikiö meö
í vetur inná og léku þeir þaö sem
eftir var hálfleiksins. Athygli vakti
aö ÍR-ingar nýttu sér þetta ekki
sem skyldi og voru þeir bræöur
Hreinn og Gylfi útaf á meöan, en
þeir höföu skoraö mest fyrir liö
sitt. Yfir höfuö má segja aö undrun
vekji aö Hreinn skuli ekki leika
meira meö því hann er sá sem dríf-
hefur brotist i gegnum vórn Vlkinga og skorar. Ljósm./ Friöþjófur Helgason.
Enn einn stórsigur
sterkra FH-
ENN einn stórsigur FH-inga á ís-
landsmótinu leit dagsins Ijós á
laugardaginn þegar liðiö lagöi
Hauka aö velli meö 18 marka mun
í íþróttahúsinu í Hafnarfiröi. Úr-
slitin uröu 38—20, en í hálfleik var
staöan 17—9. Þaö gefur augaleið
að þegar skoruö eru 58 mörk í
handboltaleik, eru gæðin ekki
ýkja mikil. Oft á tíðum var um
hreina vitleysu aö ræöa þar sem
menn spiluöu meira af kappi en
forsjá. Það er vissulega kominn
tími til, bæöi fyrir leikmenn og
áhorfendur, aö FH mæti liði sem
getur reglulega staöiö í þeim, en
hafi Haukarnir haldiö sig vera í
þeim flokki þegar þeir gengu inn
á völlinn á laugardaginn voru þeir
fljótir aö skipta um skoöun.
Þaö tók FH-ingana reyndar tals-
veröan tíma aö hrista andstæö-
ingana af sér og má þar fyrst og
fremst kenna um slökum varnar-
leik þeirra. Engu aö síður höföu
þeir forystuna allt frá upphafi leiks-
ins en aldrei skildu fleiri en eitt til
tvö mörk á milli. Þegar um 10 mín-
útur voru eftir af fyrri hálfleiknum
var staöan 10—8, og þá tóku
FH-ingar fyrst aö sýna sitt rétta
andlit, bundu vörnina vel saman
og skoruöu 7 mörk á þeim mínút-
um sem eftir voru af hálfleiknum.
FH-Haukar
38-20
Haukarnir skoruöu hins vegar að-
eins eitt mark á þessum kafla og
því skildu 8 mörk í hálfleik, staöan
17—9.
FH-ingar þurftu ekki aö sýna
mikla festu til að fylgja þessari for-
ystu eftir og segja má aö eftirleik-
urinn hafi komiö af sjálfu sér.
Haukarnír stóöu oftast aftarlega í
vörninni og gættu línuspilara vel
sem geröi það aö verkum aö
Kristján og Hans voru óáreittir fyrir
utan og meö samanlegt 23 mörk,
þar af 6 víti, áttu þeir stærstan hlut
í sigri FH.
Á fyrstu 15 mínútum síöari hálf-
leiksins geröu FH-ingar 11 mörk
en Haukar 2 og staðan 28—11.
Þegar liö hefur náð 17 marka for-
ystu eftir 45 mínútna leik þarf ekki
mörg orö til aö lýsa því sem fram
fer inni á vellinum. FH-ingar hóldu
inga
sínu striki eins og viö var aö búast
og stórsigur var þeirra, 38—20.
Eins og fyrr segir voru þeir
Kristján og Hans atkvæðamestir
hjá FH en aðrir virtust frekar dauf-
ir, nema þá Haraldur markvöröur
Ragnarsson, sem kom í markiö í
síöari hálfleiknum. Varöi hann oft á
tíöum ævintýralega, þar á meöal
tvö vítaköst.
Haukaliöiö var ekki upp á marga
fiska í leiknum og sá sem átti einna
skástan leik var Jón Hauksson.
Mörk FH: Kristján Arason 13 (4
v.), Hans Guðmundsson 10 (2 v.),
Atli Hilmarsson 4, Pálmi Jónsson
og Valgarð Valgarösson 3 hvor,
Þorgils Óttar 2, Guöjón Arnason,
Sveinn Bragason og Guömundur
Óskarsson eitt mark hver.
Mörk Hauka: Jón Hauksson og
Sigurjón Siguörsson 5 hvor, Snorri
Leifsson og Höröur Sigmarsson 2
hvor, Ingimar Haraldsson, Sigur-
geir Marteisson, Þórir Gíslason,
Lárus K. Ingason, Helgi Haröarson
og Pétur Guönason eitt mark hver.
Harldur varöi tvö víti, annaö frá
Jóni Haukssyni en hitt frá Þóri
Gíslasyni.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Rögnvaldur. Dæmdu þeir þokka-
lega.
— BJ.