Morgunblaðið - 06.12.1983, Page 24
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
Geysilegur fjöldi var við opnunina i Kjarvalsstöðum sl. laugardag. Unglingarnir skoða það sem i boðstólum er i kynningu Æskulýðsriðs.
Við unga fólkið“ á KjarvaLsstöðum:
Pældíðí, Stúdentaleikhúsið,
Ikarus og Megas í kvöld
- Frakkarnir koma fram á hljómsveitarkvöldi á morgun
„VIÐ unga fólkið", dagskri Æskulýðsriðs i Kjarvalsstöðum verður æ
fjölbreyttari eftir því sem líður i þessa kynningarviku. í kvöld hefst
klukkan níu, Kjarvalsstaðakvöld þar sem fram koma leikarar fri Stúd-
entaleikhúsinu, Pældíðí-hópurinn, hljómsveitin Ikarus og Megas. Það
eru Kjarvalsstaðir sem bjóða unglingum til skemmtunarinnar í kvöld.
Dagskráin í dag, þriðjudaginn 6.
des., til sunnudagsins 11. des.
verður sem hér segir:
Leiðrétting
í FRÁSÖGN Morgunblaðsins síð-
astliðinn fimmtudag af Fiskiþingi
var Hjalti Gunnarsson, þing-
fulltrúi, sagður frá Vopnafirði.
Hjalti er ekki þaðan, heldur frá
Reyðarfirði. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum
og leiðréttir þau hér með.
Þriðjudagur 6. des.
Kl. 14.00 Húsið opnað.
Kl. 16.30 Borðtennismót skóla og
félagsmiðstöðva.
Kl. 20.15 Spurningakeppni fé-
lagsmiðstöðva.
Kl. 21.00 Kjarvalsstaðakvöld.
Miðvikudagur 7. des.
Kl. 14.00 Húsið opnað.
Kl. 16.30 Borðtennismót skóla og
félagsmiðstöðva.
Kl. 20.15 Spurningakeppni fé-
lagsmiðstöðva fram haldið.
Kl. 21.00 Hljómsveitakvöld. Ýms-
ar hljómsveitir koma fram. Gestir
kvöldsins Frakkarnir. Vinsælda- ■
listi Reykjavíkur valinn í hléi.
Fimmtudagur 8. des.
Kl. 14.00 Húsið opnað.
Kl. 16.00 Tölvukynning.
Kl. 20.00 Keppni milli diskótek-
ara úr félagsmiðstöðvum.
Kl. 21.00 Danssýning. Hópar og
einstaklingar úr félagsmiðstöðv-
unum og skólum sýna.
Föstudagur 9. des.
Kl. 14.00 Húsið opnað.
Kl. 16.00 Tölvukynning.
Kl. 19.30 Lokakvöld músíktil-
rauna ’83. Hljómsveitakeppni.
Fram koma 9 hljómsveitir ásamt
hljómsveitinni EGO. Kynnir Ás-
geir Tómasson.
Laugardagur 10. des.
Kl. 14.00 Húsið opnað.
Kl. 14.15 Afhending verðlauna í
borðtennis og skákmótum.
Kl. 15.00 Fjölskylduskemmtun.
Jólasveinarnir koma af fjöllum að
Kjarvalsstöðum og skemmta.
Skemmtunin er undir stjórn Her-
manns Ragnars Stefánssonar.
Hljómsveit leikur jólalög.
Kl. 20.00 „Ragtime“-píanóleikur.
Kl. 20.30 Lokakvöld spurninga-
keppni félagsmiðstöðva.
Kl. 22.00 Dansleikur í Tónabæ til
kl. 02.00, hljómsveitir leika fyrir
dansi.
Sunnudagur 11. des.
Kl. 14.00 Húsið opnað.
Kl. 14.30 Brúðuleikhús Helgu og
Sigríðar með atriði úr Brúðu-
bílnum. Aðgangur ókeypis.
K1 20.30 Lokahátið. Bestu atriði
liðinnar viku.
Flugeldasýning kl. 23.00 i umsjón
Hjálparsveitar skáta.
Sýningunni er lokað kl. 23.00 alla
sýningardagana.
Ný skuldlaus björgun-
arstöð tekin í notkun
Olafsfiréi, 5. desember.
SÍÐASTLIÐINN laug arag var tekin í notkun ný björgunarstöð Björgunar-
sveitarinnar Tinds í Olafsfiröi. Stööin er í nýju húsi, sem slysavarnardeildirn-
ar hafa byggt viö Strandgötu í Ólafsfirði. Þetta er tveggja hæöa hús byggt úr
steinsteypu i 150 fermetrum.
Neðri hæð hússins er fullfrá-
gengin, en þar er aðstaða fyrir
tæki björgunarsveitarinnar. Á
efri hæð hússins verður innréttað
félagsheimili fyrir starfsemi
slysavarnadeildanna. Nær öll
vinna við bygginguna hefur verið
unnin í sjálfboðavinnu og hvíla
engar skuldir á byggingunni í dag.
— Jakob
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Röntgentæknir
Röntgentæknir óskast aö Sjúkrahúsi Suöur-
lands Selfossi, strax, eöa í síöasta lagi frá 1.
janúar, 1984.
Upplýsingar gefur Guörún Hálfdánardóttir
röntgentæknir í síma 99-1300 á vinnustað
eða í síma 99-4647 heima.
Sjúkrahús Suðurlands.
Afgreiðslumaöur
— Bifreiðavarahlutir
Viljum ráða nú þegar afgreiöslumann í bif-
reiöavarahlutaverslun okkar.
Umsóknareyðublöð liggja frammi.
Félagsheimilið Stapi
— Forstöðumaður
Staöa forstöðumanns viö Félagsheimiliö
Stapa Njarövík er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 11. desember. Nánari
upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarstjóri Njarövíkur.
Utlitsteiknari
Morgunblaöiö óskar eftir aö ráöa útlitsteikn-
ara. Um framtíöarstarf er aö ræöa. Æskilegt
er að umsækjandi hafi nokkra starfsreynslu.
Umsóknir sendist ritstjórn Morgunblaðsins
fyrir 20. desember meö upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf.
fHttrgtmMiitoife
Aðstoð vantar
á tannlæknastofu hálfan daginn.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist Morgunblaöinu merkt: „A — 46“.
Skíðadeild Víkings
óskar eftir starfskröftum til aö annast skála
og lyftuvörslu á skíðasvæði félagsins í
Sleggjubeinsskaröi. Upplýsingar í síma
23269 eftir kl. 19 til 9. desember.
Stjórnin.
Bytibúr
Starfskraftur óskast í býtibúr. Starfið felst í
afgreiöslu á kaffi, víni, tóbaki o.fl. til þjóna.
Æskilegt aö umsækjandi sé ekki undir 25 ára
aldri. Aöeins reglusöm og traust manneskja
kemur til greina.
Nánari uppl. veitir starfsmannastjóri á staön-
um milli kl. 9—12.
Hótel Saga, veitingarekstur.
Forritari —
Kerfisfræðingur
Vegna aukinna umsvifa óskum viö eftir aö
ráða starfsmann með eftirfarandi verksviö:
Uppsetning á tilbúnum forritakerf-
um hjá viöskiptavinum okkar, að-
stoö og kennsla, auk almennrar
forritunar og kerfisvinnu.
Viö leitum aö manni meö þægilega fram-
komu, þekkingu á viðskiptakerfum og góöa
skipulagshæfileika.
Skriflegar umsóknir óskast sendar skrifstofu
okkar fyrir 15. desember nk.
Farið veröur meö allar umsóknir sem algjört
trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Garöar Jóhannsson
milli kl. 9—10 næstu daga.
Laugavegi 168. Sími 27333.