Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 47 Katrín H. Ágústsdóttir með nokkur verk sín í Gerðubergi Geröuberg: Sýning Katrínar H. Ágústsdóttur í menningarmiðstöðinni við Gerðuberg stendur nú yfir sýning á verkum Katrínar H. Agústsdóttur. Eru á sýningunni 36 vatnslitamyndir og nokkrar batikslæður. Vatnslita- myndirnar eru allar unnar á síðast- liðnum tveimur árum og er mynd- efnið sótt í miðbæ Reykjavíkur, auk þess sem nokkrar landslagsmyndir eru á syningunni. Þetta er fyrsta einkasýning Katrínar í Reykjavík, en sú átt- unda sem hún heldur, auk þess sem hún hefur tekið þátt í sam- sýningum. Sýningin stendur til 11. desem- ber og er hún opin daglega frá kl. 14.00 til 22.00. Siglufjörður: 21.000 krón- ur greiddar fyrir sýna- töku úr loðnu MORGUNBLAÐINU hefur borizt svohljóðandi athugasemd: „Vegna greinar Hilmars Rósmundssonar í Morgunblaðinu 1. desember síð- astliðinn, sem fjallar m.a. um laun starfsmanna Framleiðslueftirlits sjávarafurða við sýnatöku í loðnu- skipum í Vestmannaeyjum, vil ég undirritaður upplýsa að hér í Siglufirði eru komin á land 21 þús- und tonn af loðnu úr 50 skipum og launakostnaður við sýnatöku úr því magni er kr. 21.000.-. Siglufirði, 4. desember, Valtýr Jónasson, eftirlitsmaður. Kvikmynd SÍF sýnd á Fiskiþingi KVIKMYND Sölusambands ís- lenzkra fiskframleiðenda um salt- fiskvinnslu var sýnd á Fiskiþingi síð- astliðinn Töstudag. Tilefni þess voru ummæli eins af fulltrúum á Fiskiþingi, sem birtust í Morgunblaðinu síðastlið- inn miðvikudag. Valgarð J. ólafs- son, framkvæmdastjóri SÍF, sendi Fiskiþingi bréf, þar sem hann bauð myndina til sýningar á þing- inu svo öðrum þingmönnum gæf- ist kostur á að sjá hana og dæma. Fiskiþing samþykkti síðan, að myndin yrði sýnd. Leiðrétting ÓLAFUR Egilsson sendiherra annaðist útgáfu bókarinnar „Bjarni Benediktsson í augum samtíðarmanna". Nafn hans mis- ritaðist í blaðinu sl. sunnudag, er birtur var kafli úr bókinni. Biðst blaðið velvirðingar á því. Þyrill enn kyrrsettur í Noregi: Hugmyndir um að aðrir aðil- ar yfirtaki rekstur skipsins „HÉR ER um að ræða skuldir upp á um 100 þúsund norskar krónur, ýmislegur aukakostnaður sem safnast hefur upp. Eg hef verið að vinna í því baki brotnu undanfarið að útvega fjármagn til að leysa þetta mál, en það liggur ekki á lausu. Búnaðarbankinn neitar að lána okkur meira, og þótt við eigum milljónir útistandandi hjá tryggingafélögum þá gengur erfiðlega aö fá þá peninga út,“ sagði Sigurður Markússon útgerðarmaður flutn- ingaskipsins Þyrils, en Þyrill hefur legið kyrrsettur í höfn í Kristianssund í Noregi frá því 14. nóvember. Það voru lánardrottnar í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Frakklandi sem kröfðust útgerðarinnar Olíuskips hf. Morgunblaðið reyndi að afla sér upplýsinga um skuldir Olíu- skips hf. við Búnaðarbankann og hugsanlegar aðgerðir bankans hjá Magnúsi Jónssyni banka- stjóra, en hann vildi ekkert um málið segja. Þó er ljóst að nokkr- ir aðilar hafa undanfarið verið að kanna þann möguleika að yfir- taka rekstur skipsins, þar á með- al Gunnar Guðjónsson sf., skipa- miðlarar. Magnús Ármann hjá fyrirtækinu, vildi þó ekki tjá sig um málið að svo stöddu, sagði að- eins að það væri í athugun. Sigurður Markússon sagði að mikil óhappaalda hefði gengið yf- ir skipið undanfarið. Ljósavélar þess biluðu og skipið tók niðri við kyrrsetningar skipsins vegna skulda Höfn í Hornafirði þann 13. októ- ber sl. Voru ljósavélarnar sendar í viðgerð til skipasmíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts á Akranesi, en reyndust of illa farnar og bil- uðu aftur. Þá voru keyptar nýjar ljósavélar og gekk Búnaðarbank- inn í ábyrgð fyrir greiðslu á þeim. Sagði Sigurður að tjón þetta yrði bætt, en það tæki venjulega a.m.k. tvo mánuði hjá trygginga- félögum að meta tjónið, þannig að peningarnir næðust ekki út strax. Sex af ellefu manna áhöfn Þyr- ils eru enn um borð í skipinu, þrír komu nýlega heim til íslands, en tveir útlendingar sem voru í áhöfninni, Dani og Englendingur, eru farnir til síns heima. Islend- ingarnir þrír komu þeim á kostn- að norska ríkisins, en sem kunn- ugt er taldi utanríkisráðuneytið hér heima sig ekki eiga neinum skyldum að gegna gagnvart þess- um mönnum. Að sögn Guðmund- ar Hallvarðssonar, formanns Sjó- mannafélags Reykjavíkur, stóð til að þeir sex, sem enn eru í Nor- egi, kæmu heim í fyrradag og hafði Sjómannasamband íslands og Farmanna- og fiskimanna- sambandið gengið frá farseðlum þeirra. En vegna hugmynda um að nýir aðilar tækju að sér rekst- ur skipsins, ákváðu mennirnir að vera um kyrrt. Óskar Hallgrímsson í féiags- málaráðuneytinu var inntur eftir því hver réttarstaða skipverja um borð væri í tilfelli eins og þessu. Hann sagði: „Þegar útgerð missir af einhverjum ástæðum umráð yfir skipi, eiga skipverjar rétt á að komast heim til sín á kostnað útgerðarinnar, auk þess sem út- gerðinni ber að halda þeim uppi í erlendri höfn og greiða þeim kaup í einn til tvo mánuði eftir að þetta gerðist. Ef útgerðin verður hins vegar lýst gjaldþrota, kemur til kasta laga um ríkisábyrgð á launum, sem eiga að tryggja það að skipverjar fái laun sín greidd. Það er miklu meira vandamál með ferðakostnaðinn, en ég tel hæpið að ríkinu beri að greiða hann,“ sagði óskar. Þyrill hefur verið í lýsisflutn- ingum til Evrópu sl. ár. Olíuskip hf. keypti Þyril í fyrra fyrir 275 þúsund dollara af SÍS. Skipið er 20 ára gamalt og var áður notað til olíuflutninga. „íslendingar flytja út 60 til 80 þúsund tonn af lýsi til útlanda árlega," sagði Sig- urður Markússon, „en hingað til hefur þetta „verið flutt með er- lendum skipum að mestu leyti, aðallega dönskum. Ég vildi reyna að breyta þessu. En sagt að segja hefur allt gengið okkur í óhag. Skipið var mjög illa farið þegar ég keypti það, það var allt úr sér gengið nema skrokkurinn og að- alvélin. Það má segja að ég hafi keypt köttinn í sekknum." Vaknaöu í Korgen rúminu frá IKEA Hjónarúm meó náttborðum og dýnum 12.999- HAGKAUP Skeif unni 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.