Morgunblaðið - 07.12.1983, Side 15
það atriði sem skiptir jú mestu
máli?
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1983
47
Marklausar áætlanir
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að efnahagskerfi okkar hef-
ur ekki verið upp á marga fiska
undanfarin ár og jafnvel heilan
áratug. Áætlanir allar marklitlar
og hinn raunverulegi kostnaður
við rekstur ríkisbáknsins orðið
mun meiri en menn höfðu ætlað.
Fjárlög ríkisins í raun marklítið
pappírsgagn sem ekki er í neinu
samræmi við raunveruleikann.
Haft er fyrir satt að aukafjár-
veitingar vegna grunnskólarekst-
urs á öllu landinu muni þurfa að
nema hátt í 50 milljónir króna nú
fyrir áramót ef öllu á að vera til
skila haldið. En þá vaknar sama
spurningin og nefnd var fyrr:
Hvernig stendur á því að svo stórt
„gat“ myndast?
E.t.v. skýrist það að einhverju
leyti með eftirfarandi upplýsing-
um sem ég hef frá fræðsluskrif-
stofu Norðurlands vestra á
Blönduósi.
Árið 1982 nam heildarkostnaður
vegna reksturs grunnskólanna í
umdæminu um 5,53 millj. króna.
Áætlanir menntamálaráðuneyt-
isins fyrir árið 1983 til sömu verk-
efna námu 6,58 milljónum kr. en í
endanlegri útgáfu fjárlaga fyrir
þetta ár var ekki gert ráð fyrir
nema 4,9 millj. króna.
Fyrir árið 1984 mun áætlun
menntamálaráðuneytisins hafa
hljóðað upp á kr. 9,9 millj. til
grunnsk.rekstursins á N.v. En sú
tala mun þannig fengin að sam-
kvæmt fyrirmælum Hagsýslu-
stofnunar var upphæðin frá 1982
kr. 5,53 millj. notuð og framreikn-
uð um 80%.
í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið
1984 sem nú liggur fyrir Alþingi
er gert ráð fyrir kr. 7,78 millj. til
þessa sama málaflokks.
Aö lokum
Hvernig sem menn leika sér
með tölur þá virðist það alveg
ljóst að við erum að eyða í skóla-
kerfinu, og auðvitað miklu viðar,
peningum sem ekki eru til, hafa
ekki verið til og ekki verið reiknað
með að væru til. Þess vegna þolir
það enga bið að taka þessi mál öll
til endurskoðunar. Eg legg megin-
áherslu á að ekki verði beitt þeirri
aðferð að skera niður af handa-
hófi, sem bitnar oft harðast á
þeim sem síst skyldi. Hagræðingin
má ekki verða þannig í fram-
kvæmd að hún leiði til aukinnar
mismununar eftir búsetu, heldur
fremur á hinn veginn, að draga úr
henni.
Lítið réttlæti finnst mér vera í
því að segja í sömu andránni,
skerum niður skólaakstur í dreif-
býli en aukum í staðinn kennslu 6
ára barna í þéttbýli.
— Umfram allt, skoðum málið.
Til þess er ég fús.
Páll Dagbjartsson er skólastjórí í
VarmahlíA í Skagafirði.
Viö munum hér eftir
veita almenningi aukna
þjónustu, við kaup og sölu
gjaldeyris til ferðamanna
og námsmanna, - og
opnun innlendra gjaldeyris-
reikninga.
stofnað til viðræðuhópa á eftir-
töldum sviðum:
Á atvinnuvegasviði, og er Þór-
arinn Gunnarsson forsvarsmað-
ur hans.
Á bókasafnssviði,sem Einar
Sigurðsson er forsvarsmaður
fyrir.
Á gagnavinnslu- og fjarskipta-
sviði. Oddur Benediktsson er for-
svarsmaður hans.
Á skipulagssviði, sem Gestur
Ólafsson er í forsvari fyrir.
Á staðlasviði og fræðslusviði,
sem hafa Jón Erlendsson sem
forsvarsmann sinn.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
hefur fjárhagsstaða nefndarinn-
ar verið mjög veik, en í frum-
varpi til fjárlaga 1984 væru
nefndinni ætlaðar 250 þúsund
krónur til starfsemi sinnar.
Sagði hann nefndarmenn vonast
til að mega glæða svo skilning
manna á þjóðfélagslegu, efna-
hagslegu og menningarlegu gildi
upplsingamiðlunar, að fjárveit-
ingar til þeirra verkefna sem
nefndin ynni að, færu vaxandi í
framtíðinni.
Mnaðaitanliinn
Aðalbanki og útibú
Samvinnubankinn U€RZLUNflRBflNKINN
Aðalbanki Aðalbanki
P Íi(Jfi0!lTOl>feííÍi b
Góðan daginn! OD CP