Morgunblaðið - 12.02.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
55
Félag áhugamanna
um heimspeki:
Fyrirlestur
um arf Hegels
SUNNUDAGINN 12. febrúar flytur
Kristján Árnason fyrirlestur á veg-
um Félags áhugamanna um heim-
speki. Nefnist fyrirlesturinn: Arfur
Hegels.
f fyrirlestrinum verður fjallað
um gagnrýni ýmissa hugsuða 19.
aldar — svo sem Schopenhauers,
Feuerbachs, Marx og Kierke-
gaards — á heimspeki Hegels og
einnig hugleidd staða hennar á
okkar tímum.
Fyrirlesturinn verður fluttur i
Lögbergi í stofu 101 og hefst kl.
15.00.
Norræna húsið:
Fyrirlestur
Mari Kollandsrud
MARI Kollandsrud, arkitekt frá
Oslé verður stödd hérlendis dagana
13.— 21. þessa mánaðar í boði Nor-
ræna hússins og Árbæjarsafns. Mari
er formaður Fortidsminnesforening-
en, samtaka áhugamanna um vernd-
un menningarminja í Noregi.
Mari flytur erindi um verndun
húsa í Noregi þriðjudaginn 14.
febrúar kl. 20.30 í Norræna hús-
inu. Miðvikudaginn 15. febrúar kl.
20.30 verður hún gestur á fundi
Torfusamtakanna í Ásmundarsal
við Freyjugötu . í Eimreiðar-
skemmunni í Árbæjarsafni heldur
hún síðan erindi á vegum Skóg-
ræktarfélagsins og félags Lands-
lagsarkitekta 20. þessa mánaðar.
Erindið fjallar um varðveislu
gamalla trjáa og framhald af
átakinu „plant et træ“ sem hún
stóð fyrir árið 1980.
Vetrarútsala
er hætt!!
Það eru komnar
nýjar vörur
í allar deildir
(í^j KARNABÆR Z
ZZ'J'66' SESBI6ARI
pinnn Laugavegi 66 — Austurstræti 22 — Glæsibæ
DHIIDU Bonanaza — Bonaparte — Garbo
SPRAUTUUTSOG
Sprautuútsog fyrir trésmíða- og
málningarverkstæði og aðra
sem vinna við ryk og hættuleg efni.
Hættið þessu hættulega sniffi.
Nú er lausnin fyrir hendi,
sogið óloftið frá ykkur.
Skeljabrekka 4. 200 Kópavogur. Sími 44040
Samvinnubankinn á Akranesi
mun frá og meö þriðjudeginum 14. febrúar nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um kaup og sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að kaupa innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.