Morgunblaðið - 12.02.1984, Síða 12
Strax daginn eftir aö kjarn-
orkunni hefur veríö útrýmt í 1.
sal Bíóhallarinnar, mun annar
vágestur banka þar upp á og
krefjast inngöngu. Cujo heitir
sá og eftir viöbrögöum áhorf-
enda og gagnrýnenda á erlendri
grund að dæma, er Cujo ógn-
vænlegasta ókindin síðan
„Ókindin" lét sjá sig á yfirborð-
inu.
• Stephen King
Cujo er byggö á samnefndri
skáldsögu konungs skelfisagn-
anna, Stephen Kings. Stefán er
fyrrverandi kennari en fyrir um
þaö bil tíu árum venti hann
kvæöi sínu í kross og fór aö
semja undarlegar sögur. Þær eru
allar þekktar en frægastar eru
Carrie, The Shining, The Dead
Zone, Firestarter, Cujo og
Christine.
Skáldsögur Stephens hafa
selst í 40 milljónum eintaka og
allar hafa komist í efsta sæti
metsölulista.
Stephen hefur ekki alltaf veriö
ánægður meö myndirnar sem
gerðar hafa veriö eftir bókum
hans. Hann var sáttur viö
„Carrie'1, sem Brian De Palma
geröi, hann var ósáttur viö „The
Shining", sem meistari Stanley
Kubrick geröi meö Jack Nichol-
son í aöalhlutverki, en sáttastur
er hann viö Cujo.
Hann segir: „Cujo er stórgóö.
Hún er fyrsta myndin sem nær
Sýndur í
Ðíóhöllinni
öllum þáttum bókarinnar. Cujo
er mynd sem þú aöeins sérö ef
þig langar aö sjá virkilega spenn-
andi mynd. Þaö er ekki mjög
mikið blóö í myndinni, enda
skapast spennan af öörum mik-
ilvægari þáttum."
• Hundur í vígahug
Söguþráðurinn er hvorki lang-
ur né flókinn, en viö skulum rótt
líta á hann:
Hjónin Donna og Vic Trenton
(sem Dee Wallace og Daniel
Hugh-Kelly leika) búa í Maine á
Nýja-Englandi ásamt ungum
syni, Tad (sem hinn sex ára
Danny Pintauro leikur). Þangaö
hafa þau nýlega flutt til aö forö-
ast ógnir stórborganna. Hjóna-
bandið hangir á bláþræöi.
Skammt frá þeim búa hjón sem
eiga hundraö kílóa sánkti
Bernhard-hund. Hann heitir ein-
faldlega Cujo.
Dag einn er Cujo, ósköp
elskulegur hundur, að elta enn
elskulegri kanínu. Hún sleppur
inn í holu sína, Cujo greyiö
kemst ekki inn. Hann festir
hausinn í holunni, sem er inn-
gangur aö helli. Þar fyrir innan
er griðastaöur fyrir leöurblökur.
Geltiö í Cujo hræðir næstum úr
leöurblökunum líftóruna. Þær
reyna að komast út, en Cujo er
fyrir. Nú eru góö ráð dýr. Ein
leðurblakan bítur Cujo í trýniö;
spýtir í hann eitri.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
Morguninn eftir, þegar Brett
litli, sonur eigenda Cujo, ætlar
aö gefa hundinum aö óta, blasir
viö honum óvenjuleg sýn; augu
Cujo eru eldrauð, trýniö er rifið
og froða lekur út úr munnvikun-
um. Þó Brett litli hafi ekki
hundsvit á hundaæði, þá veit
hann að eitthvað er að.
Cujo gengur laus og íbúar
bæjarins fá aö kenna á því.
• Dee Wallace
Meðal leikenda í Cujo eru tvelr
þekktir, en aöeins annar þeirra
hérlendis, Dee Wallace.
Dee Wallace er tiltölulega nýtt
nafn í kvikmyndunum, þótt hún
hafi veriö viöriöin kvikmyndir
undanfarin tíu ár. Þaö slá ekki
allir í gegn á einni nóttu eins og
dansarinn/hopparinn Travolta.
Dee Wallace haföi leikiö í
tveimur meiriháttar myndum og
einni lítt þekktri þegar henni
bauöst aö leika móðurina f Cujo.
Hún lék óhamingjusama konu í
karlmannsleit í hinni frægu
grínmynd Blake Edwards 10. Þar
á eftir lék hún i fyndnu hryll-
ingsmyndinni The Howling, sem
Lewis Teague geröi (hann leik-
stýrir Cujo).
En hennar stærsta og veiga-
mesta hlutverk var í vinsælustu
kvikmynd allra tíma, ET (The
Extra Terrestrial) eftir Steven
Spielberg. Dee lék móöurina,
sem sænskir siöapostular töldu
aö ekki væri hægt aö bjóöa
sænskum börnum. Þeir bönnuöu
myndina innan 11 ára.
Dee Wallace lagði af staö til
Hollywood fyrir tíu árum og meö
ET og Cujo í farangrinum er ekki
annað aö sjá en aö hún eigi
langa dvöl í vændum.
HJÓ
Úr heimi kvikmyndanna H
„Raging
Bull“
— bráðlega sýnd í Tónabíói
Nýi meistarinn ... en aðdáendurnir vita ekki að hann hefur Ifka verið
þjófur, nauðgari og drápari.
hans leiddi á endanum til al-
gjörrar niðurlægingar og loks
fangelsisvistar. Það var ekki
fyrr en í fangelsinu sem hann
stóð andspænis sjálfum sér og
skapi sínu í fyrsta skipti á
ævinni.
En Jake var ekki sigraður og
eftir að hafa skemmt um nokk-
urn tíma í klúbbum og tekið að
sér að leika í kvikmyndum,
skrifaði hann sjálfsævisögu,
„Raging Bull“. Bókin er meira en
lýsing á litríkum einstaklingi,
hún fjallar um keppnismanninn,
hvers vegna hann keppir, hvers
vegna hann vinnur og hvers
vegna hann tapar. Og á sinn hátt
er hún lýsing á spillingu amer-
íska draumsins.
Eftir þessari bók er myndin
gerð eins og áður sagði. 56 ára að
aldri þjónaði La Motta sem
tæknilegur ráðunautur kvik-
myndarinnar og kenndi De Niro
að keppa eins og hann og tala
Jake La Motta (De Niro) og konan
hans unga, Vickie (Cathy Moriaty).
eins og hann. En De Niro gerði
meira en að vinna í marga mán-
uði með La Motta og þjálfa sig í
hnefaleikum. Hann þyngdi sig
um 25 kíló á tveimur mánuðum
til þess að leika kappann á efri
árum. Það er svo sem ekkert
nýtt fyrir De Niro að lifa sig
þannig inn í hlutverk sem hann
leikur. Sem dæmi má nefna að í
einni af hans fyrstu myndum,
þegar hann lék eiturlyfjasjúkl-
ing á móti Shelley Winters árið
1969 í „Bloody Mama“, léttist
hann um 20 kíló að sögn Wint-
ers, „fékk ör á andlitið og klóraði
í þau og varð á endanum svo
veiklulegur að fólk var farið að
hafa þungar áhyggjur af hon-
um.“
„Það sem ég reyni að gera,“
segir De Niro þegar hann er
spurður að því af hverju hann
leggur svo mikið á sig fyrir hlut-
verkin, „er að skapa eins skýra
og sannverðuga mynd af persón-
unum og ég mögulega get. Fólk
vill ímynda sér hluti og kvik-
myndirnar bjóða uppá ímyndan-
ir. Ég vil hafa hlutina eins raun-
verulega og hægt er.“
— ai
í vígahug er hinn ódi Cujo ekki árennilegur.
Móöir og barn (Dee Wallace og Danny Pintavro) eftir að Cujo hefur
ráöist á þau.
„Herrar mínir og frúr ... Marc-
el ('erdan getur ekki haldið áfram
í tíundu lotu ... Sigurvegarinn nýi
og heimsmeistarinn í milliþunga-
vikt — nautið frá Bronx, Jake La
Motta.“ Þetta var í Madison
Square Garden í New York árið
1948 og La Motta var hylltur sem
hetja. Rúmlega 30 árutn seinna var
gerð kvikmynd um ævi hans, sem
hlaut nafnið „Raging Bull“ eftir
sjálfsævisögu hnefaleikakappans.
Leikstjórinn, Martin Scorsese,
gerði myndina og fékk náinn vin
og samstarfsmann, Robert De
Niro, til að leika aðalhlutverkið.
Myndin verður sýnd á næstunni í
Tónabíói en hún er farin að eldast
nokkuð, gerð árið 1981.
„Raging Bull“ eða Keppnis-
nautið, er eflaust réttnefni á
Jake La Motta. Hann ólst upp í
fátækt í Bronx-hverfinu í New
York, sonur italskra innflytj-
enda. La Motta lærði fljótt það
tvennt, sem fátækir strákar í
Bronx þurftu að kunna, að stela
og berjast. Og honum lærðist
það einnig fljótt að eina leiðin til
að komast sæmilega af var að
vera sterkari en náunginn. La
Motta fór mikið einförum og
treysti engum. Hann barðist í
gegnum lífið í bókstaflegri
merkingu, barði konuna sína,
vini sína og eiginlega hvern
þann sem vogaði sér að æsa upp
illa stillt skap hans.
Og innan hringsins var La
Motta sigurvegarinn. Hann
De Niro 25 kflóum þyngri. Hann
ferðaðist um Norður-Italíu eftir að
hafa tekið sér frí í tvo mánuði frá
upptökum á „Raging Bull“ og
safnaði skipulega á sig fitu.
græddi á tá og fingri, milljónir
dollara þann rúma áratug, sem
hann var í hnefaleikunum. Pen-
ingunum sóaði hann látlaust i
hús, bíla, konur sem hann aldrei
elskaði og vini sem hann gat
raunverulega aldrei treyst. Og
þegar hann missti titilinn og
hætti hnefaleikunum hneig
stjarna hans fljótt og ör hnignun