Morgunblaðið - 12.02.1984, Qupperneq 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
POSTSENDUM
UM ALLT LAND
LAUGAVEGI 12
SÍMI 14160.
Embætti borgarfógeta:
Gjaldþrota-
beiðnir þrefait
fleiri í ár
MIKIL aukning hefur orðið á gjald-
þrotabeidnum til embættis borgar-
fógetans í Reykjavík það sem af er
árinu miðað við sama tíma í fyrra.
Þrefalt ileiri beiðnir hafa borist í
janúar og það sem af er febrúar,
miðað við sama tíma í fyrra. Til og
með 8. febrúar höfðu borist að með-
altali 1,74 beiðnir á dag, en voru
0,61 að meðaltali á sama tíma í
fyrra.
„Ef þessar tölur eru reiknaðar
upp í margrómaðan ársgrundvöll,
þá hefðu átt að verða samkvæmt
þessu meðaltali 223 gjaldþrota-
beiðnir í fyrra, en 635 beiðnir í ár.
Hins vegar kom fjörkippur seinni
hluta síðastliðins árs og beiðnir
urðu alls 267. Auðvitað ber að taka
þessum tölum með fyrirvara, þar
sem svo skammt er liðið á árið,“
sagði Markús Sigurbjörnsson,
fulltrúi yfirborgarfógeta, í sam-
tali við Mbl.
Á síðastliðnu ári voru 72%
gjaldþrotabeiðna vegna einstakl-
inga, en 28% vegna félaga og ein-
staklinga með atvinnurekstur.
Það sem af er árinu eru hins vegar
59% félög eða einstaklingar með
atvinnurekstur en 41% einstakl-
ingar. Þá er breyting á aðilum,
sem fara fram á gjaldþrot. f fyrra
voru sex af hverjum 10 beiðnum
frá gjaldheimtu, tollstjóra og inn-
heimtumönnum ríkissjóðs úti á
landi, en lögmenn og bankar voru
gjaldþrotabeiðendur í fjórum af
hverjum tíu tilvikum. Þetta hefur
alveg snúist við. Nú eru bankar og
lögmenn gjaldþrotabeiðendur í
sex af hverjum tíu tilvikum, en
innheimtumenn ríkissjóðs í fjór-
um af hverjum tíu tilvikum.
„Þetta hefur komið nokkuð á
óvart, því einhvern veginn fannst
manni það liggja í loftinu að
aukningin væri hjá „manninum á
götunni" ef svo má að orði komast.
Að það væru einstaklingar sem
væru á vonarvöl, en ekki fyrir-
tæki, eins og virðist vera. En auð-
vitað ber að taka þessum tölum
með fyrirvara og þetta gæti verið
tilviljun. Ljóst er að mikil aukning
hefur orðið á gjaldþrotabeiðnum,"
sagði Markús Sigurbjörnsson,
fulltrúi yfirborgarfótgeta.
Enn bjóðum við
úrvals JEPPA
— Tilboð óskast
Tilboö óskast í Bronco 11, árgerö 1984 — og Bronco XLT,
árgerö 1982. Bifreiðirnar veröa á útboöi þriðjudaginn 14. febrú-
ar nk. í bifreiðasal Sölu Varnarliöseigna, Grensásvegi 9, kl.
12—15. Bifreiöirnar veröa ennfremur til sýnis mánudaginn 13.
febrúar á sama Staö. Sala Varnarliöseigna.
RÁÐGJAFAR- OG FRÆÐSLUÞJÓNUSTA
VESTURGÖTU 10 -101 REYKJAVlK - SÍMI 25770
Námskeið í
fjölskyldumeðferð
Ráögjafar- og fræösluþjónustan TENGSL sf.,
gengst fyrir sex mánaöa námskeiði í fjölskyldu-
meðferö fyrir starfsfólk í heilbrigöis- og félagsmála-
þjónustu. Námskeiöiö hefst í mars nk.
Námskeiöið veitir grundvallarþekkingu á starfsað-
feröum í fjölskylduvinnu og þjálfun í að beita þeim.
Markmiðiö er aö veita haldgóöa þekkingu og
skilning á gerö og eðli fjölskyldukerfa, samskipta-
mynstri og sérkennum þeirra. Áhersla er lögö á að
veita litlum hópi valins starfsfólks samfellda þjálf-
un og trausta undirstööu til aö greina fjölskyldu-
vanda og stunda sérhæfðara nám í fjölskyldumeð-
ferð.
Leiðbeinendur á námskeiöinu veröa Sigrún Júlí-
usdóttir, (stjórnandi), Hulda Guðmundsdóttir og
Páll Eiríksson.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 25770 mánu-
daga til föstudaga kl. 17—19 og laugardaga kl.
10—12. Umsækjendur sendi umsóknir meö upp-
lýsingum um náms- og starfsferil fyrir 25. febrúar
nk. til: TENGSL sf., Vesturgötu 10, 101 Reykjavík.
o o