Morgunblaðið - 12.02.1984, Side 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
eistari
unnhör
nar
Toots Thielemans væntanlegur til íslands
„Nú leikur belgíski munnhörpuleikarinn Toots Thielemans nokk-
ur lög ásamt félögum sínurn." Það er ekki óalgengt að heyra
kynningar svipaðar þessari í morgunútvarpinu í hinu eina og
sanna gufuradíói. Síðan flæða ljúfir munnhörputónar frá út-
varpstækjum víðs vegar um landið. Toots Thielemans og tón-
list hans hefur yljað mörgum í morgunsárið hér á Fróni, þó
ekki hafi allir lagt sig eftir því hver blési svo þýtt í munn-
hörpuna. Núna á miðvikudaginn 15. febrúar mun þessi sami
Toots Thielemans láta svo lítið að koma fram í eigin per-
sónu á tónleikum í Gamla Bíói. Mun Toots leika á einum
tónleikum ásamt íslensku tríói, sem skipað er þeim Guð-
mundi Ingólfssyni, sem leikur á píanó, Árna Scheving,
sem leikur á bassa og Guðmundi Steingrímssyni, sem
leikur á trommur. Hefjast tónleikarnir klukkan 21.00.
Stríð og jazz
Hingað til lands kemur Toots í
boði Jazzvakningar, en það hefur
lengi verið draumur margra að sjá
og heyra þennan merka músík-
mann.
Jean Babtiste Thielemans fædd-
ist 29. apríl 1922 í Brussel í Belgíu.
Þriggja ára að aldri fór hann að
reyna sig við harmónikkuna og
gladdi gesti og gangandi á kaffi-
húsi foreldra sinna með þessu
fikti sínu. Þegar Toots var sestur á
menntaskólabekk, 17 ára að aldri,
greip hann í munnhörpu til að
stytta sér stundirnar. Þremur ár-
um síðar hafði hann kynnst tón-
list belgíska gítaristans Django
Reinhardt og reyndi allt hvað af
tók að líkjast honum. Gítarinn var
orðinn aðaláhugamál þessa unga
manns. Síðari heimsstyrjöldin var
í algleymingi og þrátt fyrir her-
nám Þjóðverja tókst Toots og vin-
um hans að komast yfir nokkrar
bandarískar jazzplötur. Hann
varð fyrir miklurn áhrifum frá
mönnum eins og Duke Ellington
og ekki hvað síst Charlie Parker.
Þegar leið að lokum heimsstyrj-
aldarinnar síðari var Toots byrj-
aður að skemmta á klúbbum
bandarískra hermanna í Evrópu.
Á vængjum jazzins
vestur um haf
Fljótlega urðu menn þess varir
að Toots Thielemans var einstak-
ur tónlistarmaður. Hann lék á
munnhörpu öðrum mönnum betur
og tvinnaði saman laglegum gítar-
leik og dillandi blístri. Þess háttar
samspili áttumenn alls ekki að
venjast og vakti Toots því óskipta
athygli. Arið 1950 ferðaðist Toots
með AIl Star-hljómsveit Benny
Goodman um Evrópu í hópi
stjarna á borð við Roy Eldridge,
Zoot Sims og Eddie Shaughnessy.
Ári seinna fluttist hann búferlum
til Bandaríkjanna í því skyni að
komast í nánari snertingu við
jazzinn. Píanistinn George Shear-
ing réð Toots í hljómsveit sína
1953 eftir að hafa misst fyrri gít-
arista sinn í herinn. Með Shearing
var Toots allt til ársins 1959 er
hann stofnaði sína eigin hljóm-
sveit. Um þessi ár hefur Toots
Thielemans sagt: „Fyrir mig voru
þessi ár eins konar lokapróf. Það
má segja að ég hefi verið evrópsk-
ur jazz-nemi þar sem ég lærði all-
an minn jazz af plötum. Ég kunni
allar nóturnar, en með George
Shearing öðlaðist ég reynsluna."
Tónskáldið og
blúsettan
Hagur Toots tók heldur betur að
vænkast þegar fram yfir 1960 leið.
Hann fór í reglulegar hljómleika-
reisur til Evrópu og árið 1962 datt
hann niður á gullæð. Þegar Toots
var staddur í Svíþjóð þetta ár
hljóðritaði hann frumsamið lag
„Bluesette", þar sem hann leikur á
gítar og blístrar samsíða gítar-
hljómnum. Lagið varð vinsælt og
nú hefur það verið hljóðritað í
meira en 100 útgáfum. Þær tekjur
sem Toots hefur af höfundar-
launum fyrir þetta eina lag gera
það að verkum að framtíð hans er
fjárhagslega tryggð það sem eftir
er. Engu að síður hefur Toots alls
ekki sest i helgan stein.
Nokkru síðar, eða 1965, hófst
samstarf Toots og hins kunna
upptökustjóra Quincy Jones. Qu-
incy hafði verið falið að semja
tónlist við kvikmynd og leitaði nú
til Toots og munnhörpunnar hans.
Samstarfið lukkaðist með mestu
ágætum og hefur Toots sjaldan
verið langt undan þegar Quincy
hefur hljóðsett spennustef fyrir
kvikmyndir síðustu 18 árin. Meðal
frægra laga úr kvikmyndum sem
Toots hefur leikið, má nefna „Mid-
night Cowboy", „The Getaway",
„Sugarland Express" og „Cinder-
ella Liberty" auk þess sem stefið
úr hinum vinsæla barnaþætti
„Sesame Street" er blásið af Toots
á krómatísku Hohner-munnhörp-
Virtur meöal popp-
ara sem jazzara
Toots Thielemans hefur komið
víða við á ferli sínum. Um tíma
Munnhörpu-
meistarinn
Toots
Thielemans.
starfaði hann í Svíþjóð og gegndi
þá m.a. þeim starfa að vera tón-
listarlegur ráðunautur hjá sænska
sjónvarpinu. Hann hefur fengist
við jazzlög og popplög, kvik-
myndatónlist og skemmtitónlist,
auk þess að gera auglýsingastef
sem fræg eru orðin. Hvar sem
Toots kemur við skilur hann eftir
sig djúp spor. Hann er vinur vina
sinna, ljúfastur í hópi músíkanta
og vel metinn, enda fer sérstak-
lega gott orð af prúðmennsku
hans og lítillæti. í hópi tónlist-
armanna er Toots sagður vera
besti munnhörpuleikari heims.
Það er sama hvórt hann tryllir í
gegnum erfiða tónskala bopópusa,
eða kallar fram tárin í þýðustu
ballöðum. Þar sem Toots snertir á
tónunum með blæstri sínum verð-
ur vart betur gert. Fáir, ef nokkur
munnhörpuleikari, Ijær þessu litla
hljóðfæri aðra eins „breidd“. Það
er helst að Stevie Wonder komist
Atvinnuhúsnæði
650—1.300 fm, 2. hæð í húsi við Vatnagaröa getur veriö
til leigu frá haustdögum. Fagurt útsýni.
Lysthafendur hafið samband við Vélar hf., símar 86120
og 86625.
„EMPLOYER MARITIME“ fyrir árið 1984 er komin út.
Skrá yfir ráðningaraðila í sjávarútvegi, skipaflutningi og
öðru er að sjó lýtur.
Bókin hefur að geyma upplýsingar um eigendur, um-
boðsmenn og fyrirtæki um heim allan.
Ensk útgáfa, myndskreytt.
Verð Hfl. 70.- án póstburðargjalds.
MAX INTERPUBLISHING
P.O. Box, 332 NL-1250 AH Laren
The Netherlands
Tel: 35-83 02 45 Telex 73250.
terkur og
k J hagkvæmur
auglýsingamióill!
Litmyndir samdægurs
Filman inn fyrir kl. 11. Myndirnar tilbúnar kl. 17.
Sími 85811
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
LAUGAVEGI 178 PO BOX 5211 125 REYKJAVIK