Morgunblaðið - 12.02.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
77
Lífeðlisfræði
Örnólfs
Fyrsta íslenzka
kennslubókin
KOMIN er út Lífeðlisfræði eftir
Örnólf Thorlacius og er ætluð sem
kennslubók handa framhaldsskól-
um. Bókin er 330 bls. aö stærð, með
skýringaruppdráttum, heimildaskrá
og atriöisorðaskrá, svo auðvelt er að
fletta upp í henni. Hún er útgefin hjá
Iðunni og prentuð í Odda hf.
í formála segir höfundur: „Líf-
eðlisfræðin fjallar um lífsstörfin,
um virkni líkamans, hvernig sam-
an starfa frumur hans, vefir og
líffæri. Fræðiheiti greinarinnar,
fysiologia, kemur fyrst fyrir um
600 f. Kr. í grískum ritum og
merkir þá nánast náttúruvísindi
eða náttúruheimspeki, fræðilega
könnun á eðli náttúrlegra hluta,
jafnt í lífvana náttúru sem líf-
heiminum. í lok miðalda var hug-
takið látið tákna vísindin um störf
heilbrigðs mannslíkama og á 19.
öld innlimaði lífeðlisfræðin loks
lífsstörf allra lifandi vera, örvera
og plantna jafnt sem dýra og
manna. Lífeðlisfræði tengir líf-
fræði við læknisfræði, landbúnað-
arfræði og hagnýt fræði. Hún á
erindi til flestra, stundum sem
undirbúningur að lífsstarfi, en
eigi síður sem þáttur í almennri
menntun. Þetta mun vera fyrsta
bókin skrifuð á íslensku gagngert
sem kennslubók í lífeðlisfræði."
Herflug-
menn á
lyfjagjöf
BRESKIK herflugmenn, sem
þátt tóku í Falklandseyjastríð-
inu, voru látnir taka inn lyf til að
þeir gætu sofið fyrir orrustu og
til að koma í veg fyrir, að þeir
örmögnuðust af álaginu. Var frá
þessu skýrt í London í dag.
Rúmlega 200 flugmenn voru
látnir taka lyf, sem lyfjastofn-
un flughersins hafði gert, til að
gera þeim kleift að vinna við
það óhemju álag, sem stríðinu
fylgdi. Flugmennirnir þurftu
að vera til taks allan sólar-
hringinn og máttu alltaf eiga
von á því að þurfa að fljúga til
Ascension-eyjar, þar sem voru
bækistöðvar breska flughers-
ins. Þangað var 28 stunda flug
frá Falklandseyjum. Lyfið auð-
veldaði þeim að sofna hvar og
hvenær sem var.
Lyfið er kallað temazepam,
skylt valíum, og ekki gefið
neinum manni lengur en í tvær
vikur i senn. Aðstæður í Falk-
landseyjastríðinu voru óhemju
erfiðar fyrir bresku flugmenn-
ina, sem þurftu að fljúga miklu
lengri vegalengdir en þeir arg-
entínsku. Flugmenn á Herc-
ules-flutningavélum flugu t.d.
yfirleitt í 150 stundir á 24 dög-
um í stað 80 endranær.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
%
Hverfisgötu 33 — Sími 20560 Pósthólf 377
Authorized IBM Dealer - IBM Personal Computer
f
INNLENT
JHií)V01WÍÓIflíítí>
Askriftarsíminn er 83033
AIIKLIG4RDUR
MARKAÐUR VIÐ SUND