Morgunblaðið - 12.02.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
Á FÖRNUM
VEGI
Bílstjórar þaulsetnir
við spilaborðið
Læknar og lögfræöingar hafa
löngum státað af því aö vera
fjölmennir í hópi bridgespilara.
Þeir halda því fram aö þaö sé
engin tilviljun: í daglegum störf-
um lækna og lögfræðinga
þroskist einmitt þeir eiginleikar
sem mestu máli skipta viö
græna borðið. Þá eiga þeir viö
vísindalega ögun og nákvæmni
annars vegar, og skilning á
mannlegu eðli hins vegar. Rök-
festu og mannþekkingu.
Það kann aö vera eitthvaö til
í þessu. En það breytir ekki
þeirri staöreynd aö langfjöl-
mennasta stéttin í hópi bridge-
spilara á íslandi eru bílstjórar.
Þeir eru svo fyrirferöarmiklir í
íþróttinni aö um árabil hafa þeir
starfrækt eigið félag og komið
saman reglulega i Hreyfilshús-
inu við Grensásveg á mánu-
dagskvöldum yfir veturinn.
Þetta er Bridgefélag Hreyfils,
BSR og Bæjarleiða.
sem nýlega fór fram, voru 17
sveitir, eöa aöeins þremur fleiri.
Sjálfsagt er einföld skýring á
þessum mikla bridgeáhuga bíl-
stjóra. Þeir hittast oft á dag á
stööinni á meðan beðið er eftir
túr, og taka þá gjarnan í spil
eða tefla eina skák til aö drepa
tímann.
Guömundur Kr. Sigurðsson
hefurstjórnað keppnum hjá bíl-
stjórunum nokkur síðustu ár, en
Guðmundur Kr. er einstakt und-
ur í bridgesögu landsins. Hann
stjórnaöi sinni fyrstu keppni áriö
1945 hjá Bridgefélagi Reykjavík-
ur og hefur ekki látiö af þeirri
iöju síöan. Það eru ekki mörg ár
síðan Guömundur var meira og
minna bundinn öll kvöld og
helgar viö aö sjá til þess aö allt
gengi snurðulaust fyrir sig í
bridgekeppnum hvar sem var á
landinu. Hann er nú heldur far-
inn aö draga sig í hlé, en stjórn-
ar þó nokkrum félögum ennþá
l l
Hlaut Skoda-bifreið
íþróttafélagiö Leiknir stóö
fyrir bingói í Sigtúni sl. sunnudag
og bauö í aöalvinning Skoda-
bifreiö frá bílaumboöinu Jöfri.
Myndin er tekin viö afhendingu
bifreiöarinnar í sýningarsal Jöf-
urs á Nýbýlavegi. Sá heppni er
Höröur Jónsson, lengst til vinstri
á myndinni, en hann tekur á
móti lyklunum úr höndum Ólafs
Kristinssonar, formanns Leiknis.
Viö hliö Ómars er Guðmundur
Guðmundsson hjá Leikni og loks
Haraldur Sigurösson, sölustjóri.
í vinning
Guðmundur Guðmundsson
sagöi að heildarverömæti vinn-
inga heföi veriö tæplega 200
þúsund krónur og heföi félagið
komiö út úr bingóinu með 32
þúsund króna gróöa.
Morgunblaöið/KEE
Guðmundur Kr. Sigurösson
keppnisstjóri, með skjöldinn
sem Sunnlendingar gáfu hon-
um í þakklætisskyni fyrir
keppnisstjórnina.
Um þessar mundir stendur
yfir sveitakeppni hjá félaginu og
taka þátt í henni hvorki meira né
minna en 14 sveitir, eða á milli
60 og 70 spilarar. Þetta er gífur-
legur fjöldi, þegar þaö er haft í
huga að í undankeppni Reykja-
víkurmótsins í sveitakeppni,
Frá viðureign tveggja efstu
sveitanna hjá bílstjórunum. Frá
vinstri: Anton Guðjónsson, Jón
Sigtryggsson, Arnar Guð-
mundsson og Skafti Björns-
son.
— því eins og hann segir sjálfur:
„Ég neita ekki ef til mín er leit-
að.“ Og þá skiptir ekki máli þótt
Guðmundur þurfi aö setja undir
sig betri fótinn og fara út á
landsbyggöina. Þaö er ekki
lengra síðan en um síðustu helgi
aö hann stjórnaöi móti úti á
landi, Suðurlandsmótinu, sem
haldiö var á Flúðum meö þátt-
töku 14 sveita.
Aldrei hefur hann teKiö krónu
fyrir keppnisstjórn úti á landi,
og hefur bæöi á þann hátt og
ýmsan annan, unniö mikiö sjálf-
boöastarf í þágu bridge-
íþróttarinnar á íslandi. En þótt
Guömundur sé ekki alltaf fáan-
legur til að taka viö greiðslu fyrir
erfitt starf, þá þykir honum
vænt um þegar starf hans er
metiö að veröleikum, eins og
Sunnlendingar geröu um síð-
ustu helgi með því að færa hon-
um sérstakan minningarskjöld í
þakklætisskyni.
Þessir ungu Akureyringar eru að hvíla lúin bein yfir spilum ( setustofu Skíöastaða eftir daglangt basl á
skíðum í brekkum Hlíðafjalls fyrir ofan Akureyrarbæ.
Á skíöum
frá 5 ára aldri
Akureyringarnir hafa
margra ára reynslu aö baki
í skíðaíþróttinni þótt ungir
séu, en þaö er algengt að
krakkar á Akureyri eignist
sín fyrstu skíöi í kringum
fimm ára aldur, eöa á sama
tíma og reykvískir strákar
fá sinn fyrsta bolta til að
sparka í. Þannig mótar um-
hverfiö áhugamálin, en þaö
tekur ekki nema örskots-
stund að keyra upp í Hlíö-
arfjall neðan úr bæ. Þetta
eru keppnismenn hinir
mestu, ýmist meö Þór eöa
KA, en æfingar stunda allir
sameiginlega á vegum
Skíðaráðs Akureyrar.
Drengirnir heita, frá vinstri
talið, Kári Ellertsson, Valdi-
mar Valdimarsson, Jón
Haröarson, Kristinn Helgi
Svanbergsson, Gunnar
Reynisson og Bjarni Frey-
steinsson.