Morgunblaðið - 12.02.1984, Blaðsíða 36
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
« HIM Unlv.ful Prm
„ Ég kom meb hann Hrgab af )'\ ég
Vit ab harm bið/ist afóökunar. *
ást er...
... að segja henni aö þú
dáist að stóru fótunum
hennar.
TM Rn. U.S P>t OH.-m rtgMs ras«v«l
c1984 los Angeles Tmes Syndcate
Júlla mín, hvmð gerir þú þegar
sveppasósan hleypur öll í kekki?
HÖGNI HREKKVISI
,HANN E£ AP BKEVTA kJALLARAUUM. '
A þessari mynd, sem tekin er frá Flateyri yfir Önundarfjörð, sést fjallið Þorfínnur, þar sem landnámsmanninum
Þorfínni gæti hafa verið orpinn haugur, samkvæmt því sem bréfritari segir. „Var vel vandað til haugsins. Allur
trjágróður hreinsaður af hæðinni, svo haugbúi gæti auðveldlega séð yfír landnám sitt“.
Tilgáta um hauga ís
Ienskra fornmanna
Asgeir (iuðmundsson í Kópavogi
skrifar:
„Góði Velvakandi.
I nóvember 1983, fór ég að ihuga
hvernig stæði á því að kuml eða
aðrar minjar um fornmenn hafi
ekki, að mér vitanlega, fundist á
stöðum þar sem útsýn var góð yfir
landnám þeirra.
Sagnir um að þeir vildu láta
heygja sig á slíkum stöðum munu
vera margar. Kom mér þá í hug
ástæða fyrir þessu. Bjó ég til til-
gátu, sem gæti átt við fjölda
manna og staða, án þess að nokkur
sérstakur maður eða staður væri
hafður í huga. Lauk ég þessum
skrifum mínum í desember síð-
astliðnum.
Með fvrirfram þökk,
þinn Asgeir Guðmundsson.
Þessir hringdu . . .
SÍS og kaupfélagið
að gera bændur
gjaldþrota?
HJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég las nýlega
DV-grein, þar sem sagt er að
margir bændur séu á barmi gjald-
þrots. Rætt er við Gunnar Guð-
björnsson, sem telur ástandið
mjög alvarlegt og segir að bændur
verði að fá skuldbreytingu, ef ekki
eigi illa að fara.
Hingað til hefur maður álitið að
SÍS og kaupfélagið væru helstu
verslunarmiðstöðvar bænda og er
það þá þeirra mál hvort þeir ætla
að ganga að bændum og gera þá
gjaldþrota. Manni virðst satt að
segja að þeir aðilar hafi næga
fjármuni til að lána bændum, þeg-
ar maður hugsar til verslunar-
halla þeirra, bæði í Reykjavík og
út um land, til dæmis á Sauðár-
króki og í Keflavík. Og hverjir
bera meiri ábyrgð á eyðslu en þeir,
sem með sífelld auglýsingaglamri
í fjölmiðlum hvetja fólk til að
kaupa og eyða peningum.
Það eru ýmsir aðrir hópar sem
kvarta, til dæmis húsbyggjendur.
Er nokkru minni ástæða til að
þeir fái langtímalán en bændur
sem hafa fengið þessa fyrir-
greiðslu hvað eftir annað.