Morgunblaðið - 12.02.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
85
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
, „ TIL FÖSTUDAGS
‘htwuJÆrf’an'iJK
Tilgáta
Landnámsmaðurinn var orðinn
aldraður. Hann hafði numið land
á íslandi. Ásatrúar var hann, eins
og forfeður hans, fastheldinn við
fornar venjur þeirra.
Landnámsjörðin hafði tekið
miklum stakkaskiptum. Mátti nú
sjá bleika akra og slegin tún.
Fénaðurinn gekk enn um sjálfala í
hinum grösugu skógum og kjarr-
svæðum landnámsins. Að vísu
hafði skógur verið höggvinn og
sömuleiðis kjarr og smærri trjá-
gróður. Þá var efnt til kolagerðar
eftir þörfum, en landeyðing var þó
ekki áberandi.
Gamli maðurinn átti sonu og
voru þeir fulltíða menn. Gamli
maðurinn vildi láta heygja sig að
fornum sið. Gaf hann sonum sín-
um fyrirmæli um staðinn. Það var
á grösugri skógi vaxinni hæð,
miðsvæðis í landnáminu. Er gamli
maðurinn andaðist, urpu synir
hans haug á hæðinni. Var vel
vandað til haugsins, allur trjá-
gróður hreinsaður af hæðinni svo
haugbúi gæti auðveldlega séð yfir
landnám sitt. Var þarna mikill
jarðvegur og í honum mörg ösku-
lög. Haugur þessi var vel gerður
að þeirra tíðar hætti og mátti sjá
hann langt að, enda enginn trjá-
gróður eftir á hæðinni.
Tíminn líður. Ef við mættum
sjá landnámið svo sem einni öld
síðar, myndi önnur sjón blasa við
okkur, en þegar landnámsmaður-
inn var heygður á hæðinni. Skóg-
urinn og kjarrið sem áður setti
svip sinn á hið grösuga landnám,
hafði eyðst mjög, af manna völd-
um, ágangs búfjár, veðurs og
vinda. Ekki má gleyma sandfokinu
og eyðingarmætti þess. Víða sást
nú örfoka land, foksandur eyddi
stöðugt jarðvegi, ekki síst þar sem
skógi og gróðri hafði verið eytt. Og
mörg öskulög voru í jarðvegi, líkt
og á hæðinni þar sem fornmannin-
um hafði verið orpinn haugur.
Stöðugt var skógur höggvinn,
smærri tré og kjarr. Þetta var
ekki að nauðsynjalausu gert. Við
þurfti til húsa, eldsneytis, áreftis
og kolagerðar, svo nokkuð sé
nefnt. Búpeningur nagaði litla
sprota um leið og þeir gægðust
upp úr jörðinni, svo trjágróðurinn
endurnýjaði sig ekki. Grasrót varð
laus í sér og eyddist víða, foksand-
urinn eyddi svo jarðveginum.
Hvað varð um haug fornmanns-
ins? — Foksandurinn eyddi hon-
um niður í grjót.
Eftir stóð hæðin, að vísu lægri •
og minni ummáls. Þetta virtist
vera jökulruðningur, allslaus af
jarðvegi, en mælt mál hlífir nafni
fornmannsins svo vel, að jökul-
ruðningurinn ber enn nafn hans.
Tilgáta endar.
Rök til sönnunar
Margir munu þeir staðir hér á
landi, sem líkt væri ástatt um og
haug fornmannsins í tilgátunni.
Margt er óljóst um fornsögu lands
og þjóðar, en ef þessi tilgáta gæti
hvatt menn til umfjöllunar þessa
efnis, myndu eflaust finnast
margar sannanir og enn fleiri lík-
ur fyrir henni.
Mig skorti bækur, ekki hef ég
getað farið á söfn, en samt læt ég
þetta frá mér fara og vona að les-
endur taki viljann fyrir Verkið.
Um og fyrir landnám mun hafa
verið hlýviðraskeið hér á landi og
það ber að hafa í huga. Með til-
komu manna og búpenings eyddist
fljótlega trjágróður í nágrenni
landnámsbyggða. Síðar, þegar
veðurfar kólnaði, gengu jöklar
fram svo byggð ból hurfu undir.
Þá má nefna eldfjöllin. Hraun
rann og öskufall varð víða.
Ég hefi, sem fyrr segir, engin
tækifæri til gagnasöfnunar er
stutt gætu tilgátu mína, en nefni
samt nokkra staði í önundarfirði,
sem vel gætu fallið í mynstur
hennar.
Önundur heitir allstór hnjúkur
innarlega við Önundarfjörð og
herma munnmæli að Önundur sá,
er nam Önundarfjörð, hafi verið
heygður þar. En hann vildi láta
heygja sig þar sem útsýni væri
gott yfir landnám hans.
Valþjófur. Inn af botni Val-
þjófsdals við Önundarfjörð eru
hæðardrög. Þar lengst frá- sjó
nefnist Miðdalur, lítil dalkvos að
hálfu umkringd hömrum. Fyrir
miðju er hæð og nefnist hún Val-
þjófur.
Munnmæli herma að Valþjófur
sá, er nam Valþjófsdal, sé heygður
þar. Þaðan sést vel yfir landnám
hans.
Skógar á Sauöanesi
við Onundarfjörð
Úr Vísitazíubók: „Anno 1790,
dag 13. august, vísiteraði biskup-
inn Hannes Finnsson kirkjuna að
Kirkjubóli í Valþjófsdal. Hún á
eptir Gísla biskups máldaga 1200 í
jörðu, eitt hundrað í skógi á
Sauðanesi og fjögur kúgildi."
Gísli Jónsson var biskup í
Skálholti á árunum 1558 til 1587.
Máldagabók hans þykir merk
heimild um kirkjueignir á þeim
tíma. Hugsum okkur að máldag-
inn sé frá 1584, varla er hann
yngri, og er þá 400 ára gamall.
Þá segir í Vísitazíu ó. Sveins-
sonar árið 1855: „En skógur þessi
er nú gjörsamlega eyddur."
Tel ég, tvímælalaust að þarna
hafi fyrrum verið nytjaskógur.
íhuga mætti, hvort nesið hafi
fyrrum hlotið nafn af sauðum, er
þar gengu sjálfala í skógi.
Skógur í Fjallshlíð
Fyrir rúmum fjórum áratugum
var lagður bílvegur um hlíðar
Þorfinns. Það er mikið fjall, gegnt
Flateyri. Vegurinn er á milli
Fjarðardals og Valþjófsdals.
Fundust þar í hlíðinni, Fjarðar-
dalsmegin, viðarkol. Þetta hefi ég
eftir áreiðanlegum heimildum,
sömuleiðis að viðarkol hafi fundist
víðar en þar sem vegurinn var
lagður.
Tæplega hefðu menn nú borið
við til kola upp brattann. Augljóst
má vera að þeir efndu til kola, þar
sem nægur skógur var fyrir hendi.
Þetta er einfaldlega sönnun þess,
að þarna var einhverntíma skógur
til kolagerðar; Skógarbrekkur
nefnast brekkur í hlíð Breiðadals
við Önundarfjörð.
Ef rétt er, að landnámsmenn
vildu láta heygja sig þar sem vel
sást yfir landnám þeirra, vaknar
spurningin um á hvaða stöðum,
með góðu útsýni yfir landnám
þeirra hafa fundist menjar um
þá.“
Endurflytja
erindi Ása í Bæ
Guðmundur Heigason hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar að vita hvort Ríkisútvarpið
getur endurtekið erindi sem Ási í
Bæ flutti í útvarpinu í þættinum
um daginn og veginn mánudaginn
6. febrúar.
Starfsmenn sovéska sendiráðsins:
ekki tímabært
að fækka þeim?
l>orsteinn Scmupdmon skrifar. til viðskipta- eða menninRar- blaðsins min.iast þess, að bla>
Velvakandi. tengsla ríkjanna. Mér sýnist, aö hefur hvað eftir annað ber
■ ' < Vn»-ejíi hefur Sovétmenn Rsetu látið sér nænja óeðlileR umsvif sovéska s-
Vísa vikunnar
Ljósmæðrafélagiö:
Þeir sýna víða svik og tál,
sendum hóp til baka.
Þetta er bara þrifamál
og það er af nógu að taka.
■
Viö auglýsum
nýtt símanúmer:
687210 — (2 línur) I
Lögg. endurskoöendur: Stefán Bergsson,
Sigurður B. Arnþórsson.
Endurskoðunarskrifstofa
Bergs Tómassonar Sf.,
Síðumúla 33, Reykjavík. „
Símar: 687210 og 31210.
SPA RIFJÁ REIGENDUR
Ný leið til ávöxtunar!
GENGISTRYGGÐ SPARI-
SKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS.
Veitum allar upplýsingar um
hinn nýja ávöxtunarmöguleika.
Sölugengi verðbréfa 13. febrúar 1984
SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS: sölugengi midað vii 5,3% verti umfram vertlr. pr. 100 kr.
1. FLOKKUR 2. FLOKKUR
Útg. Sölugengi pr. 100kr. 5,3% vextirgildatil Sölugengi pr. 100kr. 5,3% vextirgildatil
1970 1971 1972 15.286 13.730 15.09.1985 25.01.1986 11.371 15.09 1986
1973 8.646 15.09.1987 8.179 25.01 1988
1974 5.430 15.09.1988 - -
1975 4.034’1 10.01.1985 3.0092' 25.01.1985
1976 2.808 10.03 1984 2.26131 25.01 1985
1977 2.047 25.03.1984 1.713 10.09. 1984
1978 1 388 25.03.1984 1.094 10.09 1984
1979 939 25.02 1984 711 15.09.1984
1980 602 15.04.1985 466 25.10. 1985
1981 399 25.01.1986 295 15.10 1986
1982 277 01.03.1985 205 01.10 1985
1983 158 01.03.1986 102 01.11.1986
1) lnnlausnarveröSedlabankans5.febrúar 1984 17.415,64
2) Innlausnarverð Seðlabankans 10. janúar 1984 4.002,39
3) lnnlausnarverðSeðlabankans25. janúar 1984 3.021,25
4) Innlausnarverð Seðlabankans 25. janúar 1984 2.273,74
Ávöxtun eldri Spariskírteina Ríkissjóðs
hækka úr 5 í 5,3%
krónur
1800
1600
rpíí
1200
r
3 2 4 6 8 10 12 a
Eldri Spariskírteini
Ríkissjóðs gefa nú
5,3% vexti umfram
verðtryggingu sem
þýðir að þú tvöfaldar
höfuðstól þinn á
rúmlega 13 árum.
VEÐSKULDABREF
VERÐTRYGGÐ
ÓVERÐTRYGGÐ
Með 2 gjalddögum á ári
Láns- tími ár: Sölu- gengi Vextir Avöxtun umfram verðtr. Söluqerx 3! Soluqerv 3!'
18% ársvextir 20% ársvextir HLV" 18% ársvextir 20% ársvextir HLV"
1 95,54 21/2 9 94 95 96 91 92 93
2 92,76 21/2 9 83 85 86 79 81 82
3 91,71 31/2 9 73 75 76 68 70 71
4 89,62 31/2 9 65 68 69 60 63 64
5 88,41 4 9 59 62 63 54 56 57
6 86,67 4 91/4
7 84,26 4 91/4 Athugið að sölugengi veðskuldabréfa er háð
8 82,64 4 91/2 gjalddögum þeirra og er sérstaklega reiknað út
9 81,10 4 91/2 fyrir hvert bréf sem tekið er í umboðssölu.
10 78,13 4 10 1) Hæstu leyfilegu vextir.
Með 1 gjalddaga á ári
Kaupþing hf. reiknar gengi verðbréfa daglega
KAUPÞING HF
Husi Verzlunarinnar, 3. hæð simi 86988
A ekki að skila
myndunum?
4192-7828 hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Fyrir rúmlega
ári auglýsti Ljósmæðrafélagið eft-
ir myndum af gömlum ljósmæðr-
um. Ég sendi mynd af frænku
minni sem var ljósmóðir og ég hef
ekki séð myndina síðan.
Mig langar til að spyrja Ljós-
mæðrafélagið hvort það hafi ekki
hugsað sér að skila þessum mynd-
um til baka. Ég hef reynt að
hringja en það svarar aldrei neinn
símanum.