Morgunblaðið - 12.02.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
87
verkalýðsfélanna. Þegar við vor-
um þarna var Peron eiginlega
notaður sem svipa, „Ef þið haldið
ykkur ekki á mottunni þá fáið þið
Peron yfir ykkur aftur," sögðu
ráðamennirnir einfaldlega við
fólkið, og það hlýddi."
Ótryggt ástand
— bylting
„Það fór því miður svo löngu
síðar að Peron náði aftur völdum í
Argentínu og steypti efnahagslíf-
inu þar í algjöra glötun á ný, eins
og kunnugt er. Ein byltingin var
gerð rétt eftir að við fórum úr
landinu — við vorum reyndar rétt
komin út úr argentínsku landhelg-
inni þegar hún skall á. Að minnsta
kosti ein byltingartilraun var gerð
þann tíma sem við vorum í Arg-
entínu og maður sá á ýmsu að
ástandið var orðið ótryggt.
Annars fór ég hálfpartin nauð-
ugur frá Argentínu. Þannig stóð á
að elsti sonur okkar, Logi, virtist
ekki þola hitann þarna og leið eig-
inlega bölvanlega allan tímann.
Ég var búinn að fá tilboð um mjög
skemmtilegt, vel launað starf og
ætlaði að setjast að í landinu til
leiðslunnar þurfti milljónir
Bandaríkjadollara. Bandaríkja-
menn voru tilbúnir að lána okkur
þessa peninga en settu það skil-
yrði að fá að kynna sér hugmynd-
ina að því hvernig framleiða ætti
mjölið og geyma það í hitabeltis-
löndum. Ingólfur vildi ekki treysta
þeim fyrir hugmyndinni og þannig
strandaði málið um síðir.
Ég var rúmlega ár að garfa í
þessu máli eftir að ég kom heim og
auðvitað alveg kauplaus allan tím-
ann. Þar kom að peningarnir sem
ég hafði þénað í Argentínu þrutu
og þá varð ég að fara að hugsa um
eigin skrokk og fjölskyldu mína.
Þá fór ég í það að stofna fyrirtæk-
ið Blossa sf. Oft hef ég óskað þess
heitt og innilega að ég hefði ekki
gefist upp þarna heldur reynt að
svelta mig í svo sem eitt ár enn —
þá hefði þessi fiskimjölsverk-
smiðja okkar sennilega komist af
stað og mörg þúsund manns væru
á lífi núna sem hafa orðið hung-
urvofunni að bráð. Ég ætlaði held-
ur alls ekki að fara í þetta véla-
drasl aftur, en það urðu nú örlög
mín þrátt fyrir það.“
Hvað hefur fyrirtækið starfað
lengi?
„Það varð 20 ára núna í janúar-
erum við komin út úr þessu. Það
hefur t.d engan tilgang að hækka
kaupið eins og á stendur — það
myndi einungis leiða til gengis-
fellinga og aftur gengisfellinga og
sama vitleysan endurtæki sig sem
undanfarin ár. Munurinn er bara
sá að við höfum ekki efni á þessari
vitleysu lengur, þegar undirstað-
an, fiskveiðarnar, er að hruni
komin.
Við verðum líka að gera okkur
ljóst að það eru hér fyrir hendi
ákveðin stjórnmálaöfl, sem kynnu
að vilja nota sér þá óreiðu og
þrengingar sem yrðu ef efnahagur
okkar færi verulega aflaga. Ég er
hræddur um að þá liði ekki á
löngu þar til þeir róttækustu færu
að sýna sitt rétta andlit og hefja
alls konar baktjaldamakk. Ég hef
komið nokkuð víða, auk Suður-
Ameríku ferðast um Rússland, og
ég er handviss um að þær þjóðir
sem fengið hafa einræði yfir sig,
óska sér þess núna að þær hefðu
hegðað sér öðruvísi meðan tími
var til. Yfirleitt hafa öfgamenn
hvarvetna notað sér upplausnar-
ástand meðal þjóða til að ná völd-
um og það er ekki laust sem fjand-
inn heldur, því ekki er boðið upp á
kosningar."
Runólfur Sæmundsson fyrir framan Blossa-húsið í Armúla.
Þinghúsið í Argentínu er í Buenos Aires, höfuðborg landsins, en borgin er
fræg fyrir glæsilegar byggingar.
frambúðar, en við vildum ekki
verða aðskilin sem fjölskylda."
Fóruð þið þá hingað til íslands
aftur?
„Nei, við fórum til Ítalíu og þar
keypti ég mér nýjan Alfa Romeo
bíl. Ég hafði sparað töluvert í
Argentínu, ekki síst vegna þess að
ég lagði allar mínar tekjur þar inn
á dollarareikning og tapaði því
engu á verðbólgunni. Frá Ítalíu
ókum við til Kaupmannahafnar og
reyndar þurftum við að aka fljót-
lega til Ítalíu aftur. Var það í sam-
bandi við fiskimjöl til manneldis
en ég var að kanna sölumöguleika
á því.“
Fiskimjöl til
manneldis
„Þegar heim kom var ég þegar
að fást við áhugavert málefni sem
reyndar er mikið til umræðu núna
— sem sé að framleiða fiskimjöl
til manneldis úr úrgangsfiski
jafnt sem góðfiski. Ingólfur Espol-
ín hafði fundið upp aðferð til hag-
kvæmrar mjölvinnslu. Var málið
komið svo langt áður en lauk, að
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
hafði gengist inná að kaupa af
okkur alla framleiðsluna. Við
höfðum I ráði að kaupa verksmiðj-
una í Örfirisey en til þess og fram-
lok og hefur gengið á ýmsu með
reksturinn. Synir okkar Logi og
Daði hafa starfað í því með mér
frá upphafi, en yngsti sonur okkar
Halldór er listfræðingur. Verð-
bólgan og óreiðan í fjármálum
þjóðarinnar undanfarin ár hefur
gert rekstur fyrirtækja erfiðan
svo vægt sé til orða tekið. Við
ákváðum t.d. að reisa nýtt hús yfir
fyrirtækið 1979 og þá hljóðaði
kostnaðaráætlun upp á 30 milljón-
ir — núna er kostnaðurinn orðinn
margfaldur, þó aðeins hluti húss-
ins hafi verið reistur. Satt að
segja skil ég ekki hvernig við höf-
um komist út úr þessu án þess að
missa kjarkinn. Það hefur verið
hrein martröð að reka fyrirtæki
hér á íslandi undanfarin ár. Mesta
furða að fjárhagur þjóðarinnar
skuli hafi þolað þessa óstjórn svo
lengi."
Algjörlega undir sjálf-
um okkur komið
En hvað um framtíðina, ertu
bjartsýnn á að úr rætist?
„Það er algjörlega undir okkur
sjálfum komið og hvort þjóðin
hefur þroska til að bregðast við
þeim vanda sem steðjar að. Það
verður að stilla öllum kröfum í hóf
í eitt til tvö ár og ef það tekst
Okkur hættir til
að líta á frelsið
sem sjálfsagðan hlut
„Og veistu hvað það þýðir ef ein-
ræðisöfl ná völdum. Éinn daginn
verða hvorki farþegaskip né flug-
vélar í förum með ferðamenn og
þá höfum við glatað frelsinu. Hér
er ekki hægt að skríða undir
gaddavír eins og í útlöndum, at-
hugaðu það. Okkur hættir til að
líta á frelsið sem við höfum sem
sjálfsagðan hlut — en sá sem ver-
ið hefur í einræðisríki gerir sér
ljóst hversu dýrmætt frelsið er.
Við bjóðum hættunni heim með
því að láta skapast hér kreppu-
ástand og atvinnuleysi. Nú þegar
fiskast minna verða allir að sætta
sig við að bera minna úr býtum.
Áður en langt líður náum við
okkur upp úr þessu. Þetta tekst og
ég er sannfærður um að góðir tím-
ar eru framundan þvi þegar fjár-
hagur þjóðarinnar batnar stönd-
um við með pálmann í höndunum.
Við kunnum svo margt s.s. allt
varðandi virkjanir, en höfum samt
ekki nýtt nema brot af þeirri orku
sem hér er að hafa. Við höfum
þekkingu til að gera fisk að betri
vöru en flestar fiskveiðiþjóðir, en
hingað til höfum við ekki staðið
nógu vel að þessum málum. Við
höfum staðist amerískum og ann-
arra þjóða kaupsýslumönnum
snúning og stöndum nú t.d.
fremstir með fisk á Bandaríkja-
markaði. Við höfum líka náð fót-
festu í Bretlandi og rekum okkar
eigin fiskverksmiðju þar. Við gæt-
um lagt undir okkur Evrópu með
sama hætti og haft gnótt gjald-
eyris ef rétt er staðið að hlutun-
um.
Allt sem við þurfum að gera er
að nýta auðlindir okkar, nota bet-
ur þá þekkingu sem til er í landinu
og varast að eyða um efni fram
eins og við höfum gert. Takist
okkur þetta þurfum við síst allra
að kvíða framtíðinni.
Kjólar — Kjólar
Vortískan er komin. Seljum ennfremur kjóla á
lækkuðu veröi frá kr. 500,00.
Dalakofinn Hafnarfirði.
Trésmiðir —
Húsbyggjendur
Spónaplöturnar og krossviðinn, sem þið kaupið
hjá okkur getið þið sagað niður í plötusöginni
okkar og það er ókeypis þjónusta.
Birkikrossviður
Furukrossviður
Grenikrossviður
Spónaplötur í öllum
þykktum og stærðum,
rakavarðar og eldvarð-
ar spónaplötur.
BJORNINN
I Skúlatúm 4. Sími 25 1 50. Reykjavík I
- bó