Morgunblaðið - 19.02.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
19
16767
Opið sunnudag
2—4
Vesturbær
Ca. 50 fm 2ja herb. ibúö í kjall-
ara. Bein sala.
Hverfisgata
Rúmgóö einstaklingsíbúö
ásamt íbúöarherbergi í kjallara.
Bein sala.
Ránargata
Ca. 70 fm 3ja herb. íbúö á 2.
hæö. Bein sala.
Hringbraut
Rúmgóö 3ja herb. íbúö á efri
hæö í tvíbýli. Bein sala.
Barónsstígur
Rúmgóö 3ja herb. falleg ris-
íbúö. Bein sala.
Langholtsvegur
Rúmgóö 4ra—5 herb. íbúð á 1.
hæö i þríbýli. Bein sala eöa
skipti á góöri 3ja herb. ibúö í
sama hverfi.
Ásvallagata
Ca. 90 fm 4ra herb. ibúö á 1.
hæö í þríbýli ásamt tveim íbúð-
arherb. í kjallara og geymslu.
Bein sala.
Mosfellssveit
Raöhús á tveimur hæöum við
Byggöarholt.
Nönnugata
Litiö einbýlishús ca. 65 fm aö
grunnfleti. Hæð og ris. Bein
sala.
Fossvogur — Raöhús
Ca. 195 fm á 2 hæðum í góöu
standi með bilskúr. Bein sala.
Einar Sigurðsson hrl.
Laugavegi 66, sími 16767,
kvöld- og helgarsími 77182
esió
reglulega af
öllum
fjöldanum!
Athugasemd
Morgunblaðinu barst í gær eftir-
farandi athugasemd frá Eiði Guðna-
syni, formanni þingflokks Alþýðu-
flokksins:
„Frásögn Morgunblaðsins í gær
af því sem blaðið kýs að kalla
„djúpstæðan ágreining" innan Al-
þýðuflokksins vegna ráðningar
bankastjóra að Búnaðarbanka Is-
lands er úr lausu lofti gripin og
full af ósannindum og missögnum.
I fyrsta lagi var það auðvitað á
valdi Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks að ráða því hver yrði
ráðinn bankastjóri. Þessir tveir
flokkar starfa saman í ríkisstjórn,
og hefðu getað ráðið þessari stöðu-
veitingu, ef þeir hefðu viljað.
í öðru lagi er það rangt að Jón
Baldvin Hannibalsson hafi óskað
eftir sérstökum þingflokksfundi
vegna þessa máls. Hvorki hann né
nokkur annar þingmaður bar
fram ósk um slíkan fund við mig
eða annan úr stjórn þingflokksins.
í þriðja lagi liggur ekki fyrir að
meirihluti þingflokks Alþýðu-
flokksins hafi verið fylgjandi
ráðningu Lárusar Jónssonar. Það
kom aldrei fram á þeim fundum
þingflokksins þar sem þessi mál
voru reifuð.
í fjórða lagi barst þingflokki Al-
þýðuflokksins aldrei neitt það til-
boð sem Morgunblaðið kallar
„samvinnu almennt í bankamál-
um“, og því kom aldrei til þess að
afstaða væri tekin til slíks á fundi.
Þetta eru helstu rangfærslunar
sem fram koma í frásögn Morgun-
blaðsins og snerta raunar alla
meginþætti frásagnarinnar.
Vandséð er hvaða tilgangi slík
skrif þjóna. Helst dettur mér þó í
hug að þeim sé ætlað að leiða at-
hyglina frá því sem nú er mörgum
Sjálfstæðismönnum umhugsunar-
efni, en það er hvort það voru ekki
í rauninni afskipti fremstu for-
ystusveitar Sjálfstæðisflokksins
af málinu, sem leiddu til þeirrar
niðurstöðu sem endanlega varð.
Að lokum þetta: Ef til eru þeir
menn, sem gera því skóna eins og
Morgunblaðið segir að samstarf
flokka byggist á því hverjir fái að
verða bankastjórar, en ekki hug-
myndum um að skapa hér betra og
réttlátara þjóðfélag, þá er illa
komið.“
Aths. ritstj.
Morgunblaðið hafði haldgóðar
heimildir fyrir þessari frétt frá
aðilum, sem það hefur getað
treyst. Ef eitthvað fer á milli mála
er eins líklegt að ástæðan sé sam-
gönguleysi innan Alþýðuflokksins
eða samskiptavandræði annarra
flokka við hann.
Kvikmyndahátíð
Listahátíðar
„ENDANLEGAR tölur um aðsókn
og afkomu Kvikmyndahátíðar 1984
liggja ekki fyrir, en lausleg áætlun
bendir til þess að heildaraðsókn hafi
verið á sextánda þúsund manns og
að hátíðin muni standa undir sér,“
sagði Guðbrandur Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar, í samtali
við blm. Mbl. í gær.
I Mbl. sl. föstudag birtist frétt
um Kvikmyndahátiðina, þar sem
haft var m.a. eftir Guðbrandi að
um sextán þúsund manns hafi sótt
hátíðina. Þá tölu fékk Mbl. ekki
hjá Guðbrandi, heldur starfs-
manni skrifstofu Listaháíðar á
fimmtudag og biður Mbl. Guð-
brand afsökunar á því, sú tala
skuli hafa verið felld inn í samtal
við hann, eins og hún væri frá
honum komin.
Sú fullyrðing í föstudagsfrétt-
inni að hátíðin væri hallalaus
byggðist á því, að á þriðjudag
sagði Guðbrandur í samtali við
blm. Mbl. að færi aðsóknin yfir
15.000 manns yrði hátíðin líklega
hallalaus og dró blaðamaður þá
ályktun af upplýsingum skrifstof-
unnar um 16 þúsund manna að-
sókn, að svo yrði.
Sqppkz computer
Stórkostieg verðlækkim!
Nú geta allir fengið sér alvöru tölvu
Nú hafa verið felldir niöur tollar og söluskattur af tölvubúnaöi.
Þetta gerir íslendingum kleift aö tölvuvæöast í samræmi viö
kröfur nútímans. Nú átt þú næsta leik!
Nú getum viö boöiö þér vinsælustu alvöru einkatölvu í heimi,
Apple / / e, en hún hefur nú selst í 1.500.000 eintökum. Meira
en 20.000 forrit eru fáanleg á Apple / / e. en þaö er mun meira
en nokkur önnur tölva getur státaö af. Mörg íslensk forrit eru
fáanleg á vélina, t.d. fjárhagsbókhald, viöskiptamannabókhald,
lagerbókhald, launabókhald, tollvörugeymsluforrit, veröútreikn-
ingar o.fl. Mundu þaö, aö án forrita er tölva eins og bensínlaus
bíll.
Á Apple / / e er staölaö íslenskt lyklaborö, og hentar hún því
einkar vel til ritvinnslu.
Notendaminni vélarinnar er 64K, en þaö er stækkanlegt í 128K
og ætti þaö aö vera nægilegt fyrir flesta.
Apple tölvur eru notaöar hjá skólum, bönkum, opinberum
stofnunum, einkafyrirtækjum, skipafélögum, flugfélögum, verk-
fræöistofum, læknastofum, rannsóknarstofum, lögfræöistof-
um, endurskoöendum, vélsmiöjum, fataframleiöendum, ráö-
gjafarfyrirtækjum, verktökum, útgáfufyrirtækjum, prentsmiöj-
um og þannig mætti lengi telja. Fjölmargir einstaklingar nota
Apple, svo sem kennarar, rithöfundar, vísindamenn, forritarar,
rafeindavirkjar, radioamatörar, stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana, læknar, verkfræöingar, þýðendur og blaöamenn, og eru
þá aðeins tekin örfá dæmi.
Tilboð:
Kr. 63.990,-, nú aðeins kr. 49.990,-
Útborgun kr. 10.000,- og eftirstöðvar á 10
mánuðum!
Skipholti 19, sími 29800.