Morgunblaðið - 19.02.1984, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
27
sfræöi í framhaldsskólum 11.2. ’84
4.
Um kaffivatnið
hans Jóns
a) Sú orka, sem vatnið í katlin-
um hefur þegið frá rafveitunni,
eru (100 - 10)1-4200 Joule til
upphitunar að suðumarki, og
540-1-4200 Joule að auki til upp-
gufunar. Alls eru þetta 2,6
milljónir Joule, en 2-kílóvatta
ketill framleiðir 2000 J af
varma úr raforku á sek; tíminn,
sem spurt var um, verður þá
hlutfallið þarna á milli, sem
reynist vera rétt um 22 mínútur.
Vegna varmarýmdar ketilsins
sjálfs og tapa út um hliðar
hans yrði tíminn í raun eitt-
hvað lengri.
b) Orkan úr a), umreiknuð í kíló-
vattstundir, eru skv. þessu 22/60
sinnum tveir, svo kostnaðurinn
verður 2,90 kr.
c) Straumurinn er jafn afli (af-
köstum) ketilsins deilt með
spennunni, og er því 2000/220 = 9,1
Amper. Viðnámið er spennan
deild með þessum sama
straumi, sem sagt 24 ohm.
5.
Verkefni um
plötuþétti
a)- og b)-liðir eru sjálfstæðir, og er
svarið í b)-liðnum einfaldara en
í hinum. Ef þéttirinn er af-
tengdur fyrir færsluna, hlýtur
hleðsla hans að verða áfram Q
meðan á hleðslunni stendur, því
hún kemst ekki burtu.
Með auknu loftbili minnkar
rýmdin C, svo spennan V eykst í
hlutfalli við bilið. Rafsviðið er
því alltaf hið sama meðan á
færslunni stendur, og þá sömu-
leiðis krafturinn. Vinnan verður
margfeldi hans og viðbótar-
færslunnar, þ.e. QVod/2d eða
'á V0VC. Þetta er jafnt og
orkan, sem geymd var í þéttin-
um fyrir færsluna.
í a)-lið er spennan föst, þ.e. Vo,
en C minnkar svo Q minnkar
eftir því sem d eykst. Kraftur-
inn verður því í öfugu hlutfalli
við breidd loftbilsins í öðru
veldi. Með einfaldri tegrun
finnst, að vinna sú, sem færslan
kostar, er helmingurinn af svar-
inu úr b)-lið.
í c)-lið þarf að hafa í huga, að
spenna beggja þéttanna verður
að vera sú sama. Hleðslan er
áfram samanlagt 2Q á báðum
þéttunum, en skiptist ávallt á
milli þeirra í hlutfalli við rýmd
hvors um sig.
Að þessum upplýsingum fengn-
um er fljótlegt að leiða út for-
múlu, sem lýsir því að kraftur-
inn sé í hlutfalli við surnmuna
af loftbilum þéttanna í öðru
veldi. Vinnuna má þá finna með
tegrun.
6.
Brennipunktur
ljósgeisla
í glerkúlu
Ljósgeislinn er mjór miðað við
þvermál kúlunnar (2 R), sem þýðir
(eins og almennt í dæmum af
þessu tagi) að hornaföllin sínus og
tangent eru jafnstór hornunum
sjálfum í radíanmáli, eða því sem
næst.
Miðja ljósgeislans fer að sjálf-
sögðu gegnum kúlumiðjuna O (sjá
mynd) án þess að brotna. Látum
yzta hluta geislans öðrum megin
falla á kúluna í punktinum A í
fjarlægð h frá miðju geislans.
Innfallshornið i er þá jafnt og
h/R, svo brothornið b verður jafnt
og % af i við þessar einfölduðu
aðstæður, skv. lögmáli Snells um
ljósbrot.
Hæð punktsins B verður þá
greinilega h - ('A) (h/R)-2R = h/3
frá miðlínunni. Innfallshorn þessa
yzta hluta ljósgeislans í B er % i,
því AOB er jafnarma þríhyrning-
ur.
Með því að draga halla línunnar
OB, þ.e. i/3, frá brothorninu i utan
kúlunnar, fæst að útfallsgeislinn
stefnir neðan við lárétt um hornið
% i.
Brennipunktur geislans, F, verð-
ur þvi í fjarlægðinni <h/3)/(2h/3R) =
R/2 aftan viö kúluna, óháð stærð h.
Glerkúlur af þessu tagi, með hita-
næmum pappír fyrir aftan, hafa
lengi verið notaðar á veðurathug-
unarstöðvum til að mæla fjölda
sólskinsstunda. Svíður þá sólar-
ljósið pappírinn í punkti, sem fær-
ist eftir gangi sólar.
_____FRAM_______
_____TölvuskolT_
Tölvunámskeið
Innritun stendur nú yfir á neðangreind námskeið er hefjast á næstunni. Væntanlegum
þátttakendum er bent á að gera slíkt með góðum fyrirvara, því flest námskeið skólans
eru fullsetin.
ALMENNT GRUNNNÁMSKEIÐ
/
Á þessu námskeiði eru kennd grundvallaratriði tölvufræðinnar, svo sem upþbygging
tölva, helstu gerðir, notkunarmöguleikar og fleira.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er hafa áhuga á að kynnast tölvum og notkunarmögu-
leikum þeirra, sem og starfsmönnum fyrirtækja er nota eða munu koma til með að nota
tölvur.
ALMENNT GRUNNNÁM-
SKEIÐ FYRIR UNGLINGA
Námsefni þessa námskeiðs er það sama og á almenna grunnnámskeiðinu hér að ofan.
Framsetning efnisins er miðuö við að þátttakendur séu á aldrinum 12—16 ára.
BASIC 1
FORRITUNARNÁMSKEIÐ
Námsefni þessa námskeiðs er miðað við að þátttakendur hafi áður haft viðkynningu af
tölvum t.d. með almennu grunnnámskeiði. Kennd eru grundvallaratriði forritunar, upp-
bygging forrita og skipulagning. Við kennsluna er notaö forritunarmálið algenga BASIC.
Að loknu þessu námskeiði eiga þátttakendur að vera færir um að rita forrit til lausnar á
ýmsum algengum verkefnum er henta til lausnar með tölvu.
BASIC 1
FORRITUNARNÁMSKEIÐ FYRIR UNGLINGA
Námsefni þessa námskeiðs er það sama og á BASIC 1-námskeiðinu hér að ofan.
Framsetning efnisins er miðuö við að þátttakendur séu á aldrinum 12—16 ára.
BASIC 2
FORRITUNARNÁMSKEIÐ
Þetta námskeið er beint framhald af BASIC 1-forritunarnámskeiöi. Tekin er fyrir skráar-
vinnsla, kerfisfræði, skipulagning tölvuverkefna o.fl.
STÝRIKERFIÐ CP/M
Þetta námskeið kennir notkun stýrikerfisins CP/M (notenda stig) og er einstakt tækifæri
fyrir alla þá er vinna við eða eiga tölvur er nota það stýrikerfi, til að læra að nýta sér
möguleika CP/M.
COBOL1
FORRITUNARNÁMSKEIÐ
COBOL er eitt mest notaöa forritunarmál í heimi til lausnar á viöskiptalegum verkefnum.
Hér gefst þeim er hafa áhuga á að læra notkun þess tækifæri til aö auka þekkingu sína.
Athugið:
FÉLÖGUM INNAN BSRB SKAL BENT Á AÐ HAFA SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFUR
FÉLAGA SINNA TIL SAMRÁÐS UM GREIÐSLUFYRIRKOMULAG NÁMSKEIÐSGJALDA
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR UM OFANGREIND NÁMSKEIÐ FÁST í SÍMA 91-39566
VIRKA DAGA MILLI KLUKKAN 13.00 OG 18.00.
FRAMSÝN TÖLVUSKÓLI — TÖLVULEIGA, SÍÐUMÚLA 27, SÍMI 39566