Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 13 í hinum vernduðu íbúðum. Endur- hæfingarmiðstöðin verður opnuð síðar á þessu ári og unnið verður áfram við sundlaug heimilisins. Tómstundaaðstaða verður fyrir hendi og gott bókasafn. — Hvert er verðið á þessum íbúðum? Þegar framkvæmdir þessar hófust, var rætt um að íbúðirnar þættu dýrar. — Þetta er rétt, m.a. vegna þess að við tjáðum arkitekt okkar og verkfræðingi að við vildum heldur hafa kostnaðaráætlun okkar í samræmi við byggingarkostnað á Reykjavíkursvæðinu, svo fólk yrði ekki fyrir of miklum vonbrigðum, ef um áframhaldandi óðaverð- bólgu yrði að ræða og verð hækk- aði þess vegna. Fyrsta kostnað- aráætlunin var miðuð við bygg- ingarvísitöluna 2016. Nú höfum við opnað tilboð í þrjú tilboðsverk og sjáum fyrir um 75% af heildarkostnaði, og við höfum í höndum endurskoðaða kostnaðaráætlun sem er miðuð við byggingarvísitöluna 2213, en þá erum við komnir niður undir sama verð og var í fyrri áætlun. Verðið hefur lækkað um 15%. Að sjálfsögðu ber að hafa í huga að í raun eru Sjómannadagssam- tökin að byggja nýjan bæ vestast í Garðabænum. Við fáum óunnið land til úrvinnslu, sjáum um skipulag í samráði við tæknimenn bæjarfélagsins, leggjum skolp- leiðslur, gerum götur og gang- stéttir. Húsin eru sambærileg við einbýlishús, þ.e. hver íbúð út af fyrir sig með sérlóð og sérinn- gangi. Þetta eru lúxusíbúðir hvað frágang snertir, ekki stórar, en sérhannaðar fyrir aldraða og ör- yrkja. — Hvað er fólgið í slíkri sér- hönnun? — í eldhúsi er t.d. hægt að hækka eða lækka borð og búnað, svo sem eldavél, sem þar er notuð, t.d. ef fólk er hreyfihamlað og þarf að sitja við matargerð eða vera í hjólastól, en í þeim má fara um alla íbúð, út bæði á gangstétt og garð og inn. Lagnir fyrir sjónvarp, myndband og símakerfi verða í hverju húsi og auk þess fullkomið viðvörunarkerfi, svo ef fólk þarf skyndilega á aðstoð að halda, get- ur það á auðveldan hátt komist í tengsl við þjónustu- og öryggis- miðstöð. í íþúðunum er gott að koma fyrir hjúkrunarrúmi, hafi t.d. annað hjóna þörf fyrir hjúkr- unarhjálp. Með heimilishjálp og hjúkrun og slíkum íbúðum vel búnum er hægt í alvöru að hugsa sér að gamalt fólk geti með aðstoð maka dvalið á sínu einkaheimili til hinstu stundar. — Eru ekki einhverjar kvaðir á íbúðum sem þessum? — Eitt meginskilyrði, kvöð, sem verður þinglesin með afsali um að íbúðir þessar verði alltaf í notkun fyrir aldraða eða öryrkja. Mörkin höfum við hugsað okkur þau, að um a.m.k. 75% örorku verði að ræða, og lágmarksaldur sami og heimilar töku ellilífeyris skv. lögum. — Ef eigendur slíkra íbúða falla frá eða þurfa að leita vistar á langlegudeild, er þeim eða erfingj- um frjálst að ráðstafa slíkri íbúð? — Eigandi má leigja eða gefa slíka íbúð og hann má selja hana á markaðsverði. Eina skilyrðið er það sem að framan segir auk und- irskriftar samnings um umgengni og sameiginleg not utanhúss og í félagsaðstöðu. Við getum ekki sett nein ákvæði um að við eigum for- kaupsrétt, enda engir peningar til hjá okkar samtökum til slíks. Allt okkar fé er bundið mörg ár fram í tímann í dvalarheimilunum. — Og hvert er svo verðið á þessum íbúðum nú, þegar þið nán- ast vitið nákvæmlega um 75% kostnaðar og eruð aðeins með 25% áætlaðan kostnað? — Áður en ég kem að því, vil ég láta þá von mína í ljósi að þessi áætlaða upphæð sem eftir er eigi enn eftir að lækka, enda kemur það kaupendum íbúðanna til góða. íbúð sem er 59,2 m2 brúttó, kost- ar nú kr. 1.251.500.-. íbúð sem er 83,5 mz brúttó, með garðhýsi kr. 1.751.900.-. fbúð sem er 83,5 m2 brúttó, án garðhýsis kr. 1.744.800.-. En hér er ekki öll sagan sögð, því við þetta bætast kr. 200.000.- til kr. 270.000,- eftir fermetra- stærð, vegna gatnagerðargjalda, gatna og stíga. Hins vegar er eng- inn kostnaður reiknaður þessum aðilum vegna þeirrar verðmætis- aðstöðu sem Sjómannadagurinn leggur til í Hrafnistu. — Og hvernig gengur, fá ekki færri en vilja þessar íbúðir? — Jú, það er óhætt að segja. Samt eru 7 íbúðir lausar og til sölu vegna þess að fólk hefur orðið að kippa að sér hendi. Enn er það svo í okkar þjóðfélagi, að hjón sem eiga stóra en óhentuga íbúð eða litla íbúð en takmarkað fjármagn, getur ekki keypt þessar íbúðir, nema að fá bráðabirgðalán meðan á byggingu stendur og það er að losna við eldri eign. Við byggjum þessi hús á tæpu ári. Þau eiga að verða tilbúin til afnota í desember nk. En fólkið sem vill kaupa, fær hvergi bráðabirgðalán. Við gátum sjálfir útvegað lán til þess að standa undir skipulagi og fyrstu framkvæmdum. Þetta er ástæðan til þess að margir hafa orðið að fresta ákvörðun sinni og þess vegna er nú meira en tvísett um- sækjendum í annan áfanga. Að vísu höfum við fengið loforð frá Húsnæðisstofnun ríkisins um hús- næðislán og við höfum líka fengið loforð frá þeim um framkvæmda- lán, en ég fæ ekki séð, miðað við núverandi aðstæður, að fram- kvæmdalán komi til greiðslu fyrr en eftir að fólkið er flutt inn, en þá er takmarkað gagn að því. Stjórn Húsnæðisstofnunar lofar okkur að það verði afgreitt á næstu 18 mán- uðum. Þetta svar barst eftir að verk var hafið og við áttum 10—12 mánuði í að fullklára húsin sam- kvæmt okkar áætlunum. Það er mikill skaði að Húsnæðisstofnun ríkisins skuli búa við fjársvelti. í þessu tilfelli er um tvöfaldan sparnað að ræða fyrir þjóðfélagið. Annars vegar koma góðar íbúðir í notkun sem aldraða fólkið flytur úr. Það fjármagnar sjálft sér- hannaðar íbúðir, sem gífurleg þörf er á, og síðast en ekki síst er þriðja og þýðingarmesta atriðið að þetta léttir á gífurlegum umsókn- arþunga að dvalar- og hjúkrun- arheimilum. Með skipulögðu starfi, sem á að vera hægt að vinna ekki dýrar en t.d. í Reykja- vík í dag, en þar þarf að veita þjónustu víðs vegar um hið mikla höfuðborgarsvæði frá örfáum þjónustustöðum. Hér í Garðabæ þarf að fara nokkra tugi metra til þess að veita heimilisþjónustu og heimahjúkrun þegar á þarf að halda. Þetta hlýtur að verða hag- kvæmt fyrir alla aðila, sveitarfé- lögin, ríkið og fyrir einstaklingana sjálfa. Síðast en ekki síst fær þetta gamla fólk uppfyllt þá ósk mikils meirihluta þjóðarinnar að eiga áfram sína eigin íbúð, þótt aldur sæki á og búa í henni þar til yfir lýkur. ’SVO VEffiöM Vlf> BRRR R{) VONR RP HRNN TOLU" Skíðagöngu- braut opnuð í Öskjuhlíð í TENGSLUM við þýsku dagana, sem lýkur í dag, laugardag, á Hótel Loft- leiðum, hefur verið opnuð skíðagöngu- braut í Öskjuhlíð, á útivistarsvæðinu þar. Er brautin ætluð hótelgestum, sem og Reykvíkingum öllum. Skiðagöngubrautin var opnuð sl. fimmtudag, og er meðfylgjandi mynd tekin í upphafi fyrstu ferðar- innar. Á myndinni eru m.a. Emil Guðmundsson hótelstjóri og Sigurð- ur Matthíasson, forstöðumaður fraktdeildar Flugleiða, en þeir eru á vélsleðanum nær, en á sleðanum fjær má sjá þýsku sendiherrafrúna, frú Krieg. Aftan í vélsleða hennar má síðan sjá þýska skemmtikrafta sem hér eru staddir í tilefni þýsku vikunnar. Ljósmynd: Kristján. Þetta eru tilboð helgarinnar frá DAIHATSU Árg. Litur Km. Verð W Daihatsu Charmant 1600 Le '82 Silfurgrár 10 þús. 280 þús. Daihatsu Charmant 1300 LC ’82 Stálblár 24 þús. 250 þús. Daihatsu Charmant 1600 81 Vínrauður 41 þús. 195 þús. Daihatsu Charmant 1600 Stat. ’81 Vínrauöur 45 þús. 180 þús. Daihatsu Charmant 1400 Stat. ’79 Ljósbrúnn 43 þús. 140 þús. Daihatsu Charmant 1400 4ra d. ’79 Vínrauöur 27 þús. 150 þús. Daihatsu Charmant 1400 4ra d. ’79 Silfurgr. 34 þús. 140 þús. Daihatsu Charade Runabout ’81 Blár Met. 30 þús. 185 þús. Daihatsu Charade Runabout '80 Kremgulur 45 þús. 150 þús. Daihatsu Charade 5 dyra ’81 Vínrauöur 19 þús. 190 þús. Daihatsu Charade 5 dyra '80 Vínrauður 23 þús. 155 þús. Daihatsu Charade 5 dyra ’79 Blár Met. 64 þús. 130 þús Toyota Tercel 5 gíra ’82 Koparbrúnn 24 þús. 230 þús. BMW 520 beinsk. vökvast. ’78 Vínrauður 20 þus. 230 þús. Mazda 626 2000 4ra dyra ’79 Silfurgr. 63 þús. 200 þús. Toyota Corolla 4ra dyra '81 Rauöur 30 þús. 245 þús. VW Golf 4ra dyra ’80 Rauöur 80 þús. 165 þús. Höfum góða kaupendur að Daihatsu Charade árg. 1980 og 1981 DAIHATSUUMBOÐIÐ ARMULA 23 85870—81733.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.