Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 18
Jg MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
Akureyrarpistill
Gnómundar Heiðar Frínuumsson
Ég hygg, að mörguin
hafi þótt húsið heldur
óvirðulegt fyrir listina.
Af einhverjum ástæð-
um er það útbreidd
skoðun, að menn eigi
að hitta hana í spariftit-
um. En það er mis-
skilningur. Ef menn á
annað borð hafa áhuga
á listinni, hitta þeir
hana eins og þeim þyk-
ir best hverju sinni.“
í fyrra varð að flytja merki-
legt hús úr miðbæ Akureyrar.
Það á sér langa sögu, er upp-
runnið frá Noregi og kom við á
einum stað á leið sinni þaðan til
Akureyrar fyrir sjötíu árum eða
svo. Það varð að víkja fyrir nýj-
um byggingum. Nú þjónar það
foreldrum fatlaðra barna og
stendur í landi Botns hér rétt
sunnan við Akureyri. Þetta hús
er Rauða húsið.
Síðustu árin sem það stóð í
miðbænum var það kaffistofa
verkamanna við höfnina, sem þá
var við Torfunefsbryggju. Þegar
höfnin fluttist niður á Oddeyr-
artanga, stóð húsið autt og ónot-
að. Það höfðu engar ákvarðanir
verið teknar um framtíð þess,
þegar við fórum fram á það
nokkur við yfirvöld bæjarins að
fá að reka í þessu húsi listsýn-
ingarsal. Raunar var hugmyndin
ekki einvörðungu að sýna þar
listaverk heldur líka að bjóða
þar upp á fleiri þætti menning-
ar. Helst átti þetta að verða
menningarstassjón. Þessari við-
leitni var vel tekið hjá yfirvöld-
um. Það voru engin sérstök
vandkvæði á því að fá húsið.
Hins vegar gátu yfirvöld ekki
tryggt, að við fengjum afnot af
húsinu eins lengi og okkur lysti.
Samkvæmt skipulagi átti það að
víkja, eins og varð raunin. En
áður en það gerðist blómgaðist
þar menningarstarfsemi í tvö ár.
Það var skemmtilegur tími.
Það lá ekkert sérstaklega
beint við að gera þetta hús að
sýningarsal. Það var orðið nokk-
uð illa farið og þurfti að þrífa
það og bæta áður en listin gat
tekið sér þar bólfestu. Ég hygg,
að mörgum hafi þótt húsið held-
ur óvirðulegt fyrir listina. Af
einhverjum ástæðum er það út-
breidd skoðun, að menn eigi að
hitta hana í sparifötum. En það
er misskilningur. Ef menn á
annað borð hafa áhuga á list-
inni, hitta þeir hana eins og
þeim þykir best hverju sinni.
Sparifötin eru fyrir aðra. Það
komu furðulega margir að hitta
listina í þessu húsi, miklu fleiri
en ég þorði að vona.
Mörgum íhaldssömum vinum
mínum varð nafnið á húsinu um-
hugsunarefni. Þeim fannst eins
og það bæri með sér einhvern
óþægilegan pólitískan stimpil.
En saga nafnsins er afskaplega
saklaus. Við komum auga á það í
skjölum bæjarins um þetta hús,
að það var æviniega nefnt Rauða
húsið. Það var líklega ekki komið
til af öðru en því, að það var
rautt á litinn. En sá grunur var
ekki ástæðulaus, að þarna væri
ákveðin róttækni á ferðinni. Hún
var að vísu ekki pólitísk, eins og
venjulega er litið á orðið. Þarna
var á ferðinni róttækni í skiln-
ingi og afstöðu til lista, sérstak-
lega myndlistar. Merkastur fyr-
irlestur, sem fluttur var í þessu
húsi á þessum árum, var Rauður
fyrirlestur eftir Þorstein Gylfa-
son og birtist hér í Morgunblað-
inu á sínum tíma og olli nokkr-
um deilum. f heiti hans er sams
konar leikur og í heiti hússins.
Það má kannski orða það svo, að
í þessu húsi hafi ekki verið boðið
upp á hefðbundna, spariklædda
list.
Það kannast margir við það,
sem nefnt er nýlist á íslensku.
Ég treysti mér ekki til að segja,
hvað við er átt með því að búa til
skilgreiningu á hugtakinu. En ég
gæti hins vegar í flestum tilvik-
um sagt til um, hvort eitthvert
tiltekið verk fellur undir heitið
eða ekki. Ég lærði það á þessum
árum. Sú hugmynd að kynna
þennan nýja anga í list lands-
manna mæltist misjafnlega fyr-
ir hygg ég. Ég sé það í nýlegum
Degi, að fáir sjá eftir húsinu. En
það er kannski aukaatriði, hvort
einhver sér eftir Rauða húsinu
eða ekki. Það hafði svolítii áhrif,
vandi menn hér í bænum við ný,
óvenjuleg listaverk. Þau eru
mörg hver ekki auðmelt í fyrstu
og erfitt að sjá tilganginn með
þeim. Þau lúta engum þeim regl-
um, sem listaverk eiga venjulega
að lúta. Fyrsta skilyrðið til að
geta metið slík verk er að sjá
þau. Það er mikið unnið, ef tekst
að fá lítinn hóp manna til að
meta og skilja verk af þessu tæi.
Eftirleikurinn verður auðveld-
ari. Það tókst.
Til að finna þessum orðum
stað þarf ekki annað en að skoða
hvað gerðist á þeim tíma, sem
húsið starfaði. Það var opnað 14.
febrúar 1981 með sýningu Magn-
úsar Pálssonar á mjög sérkenni-
legri gifsmynd. Starfseminni
lauk undir vor 1983. Síðasta sýn-
ingin var í mars á myndverkum
Jóns Gunnars Árnasonar. Á
þessum tíma voru 49 myndlist-
arsýningar, 8 gerningar, 9 fyrir-
lestrar, 12 skáldaupplestrar, 10
tónleikar og 6 kvikmyndasýn-
ingar. Þótt hópurinn væri nokk-
uð stór, sem að þessu stóð,
mæddi starfið á þremur mönn-
um aðallega: Guðbrandi Sig-
laugssyni og Jóni Laxdal Hall-
dórssyni, sem báðir eru skáld, og
Guðmundi Oddi Magnússyni
myndlistarmanni. En þeim
tókst, að því er ég fæ best séð, að
halda hér uppi menningarstassj-
ón í tvö ár. Áuðvitað likaði ekki
öllum það, sem var á boðstólum,
engum líkaði allt, fáum líkaði
margt, sumum líkaði sumt og
mörgum líkaði fátt. Enda var
það ekki tilgangurinn með allri
vinnunni. Hann var að koma
fólki á óvart, ýta við því, láta það
sjá list í nýju ljósi.
Sjálfum eru mér minnisstæð-
astar sýningar Kristjáns Guð-
mundssonar, sem hann hélt á
þessum árum og voru verulega
frumlegar og snjallar. Hann var
eiginlega sá, sem sannfærði mig
um að nýlist væri réttilega köll-
uð list. Én af einhverjum ástæð-
um hefur sú skoðun orðið út-
breidd í þessum hópi lista-
manna, að allt væri list, sem
menn kölluðu list. Ef nokkrir
menn kæmu sér saman um að
kalla kaffikönnu listaverk eða
vatnsketil, þá væru þau það. En
þetta er náttúrulega rangt. Þótt
þau verk, sem kallast listaverk,
eigi sér fá sameiginleg einkenni,
þá er þó um það almennt sam-
komulag á hverjum tíma, hvað
er list og hvað ekki. Og við erum
nokkuð viss á í hvorum flokkn-
um hver hlutur lendir. En af
þessari skoðun leiðir, að hvaða
firra sem er, getur talist lista-
verk. Og það er ljóslega rangt.
Þótt húsið hafi verið flutt úr
bænum, er starfsemin ekki alveg
horfin. Hún lifir enn í litlu bóka-
forlagi, sem forstöðumenn húss-
ins komu á laggirnar undir heit-
inu Rauða húsið. Hjá því forlagi
hafa komið út nokkrar bækur.
Það er að vísu ekki sams konar
íburður í þessum bókum og hjá
venjulegum forlögum, en þar
hafa komið út merkilegar bæk-
ur. Sú sem mér þykir merki-
legust heitir Stofuljóö eftir Jón
Laxdal Halldórsson. í henni seg-
ir af samskiptum hjóna, hann er
kennari og næturvörður og hún
les reyfara og daðrar. Til að gefa
lesendum smásýnishorn er rétt
að birta hér þrjú ljóð.
Ef ég væri reyfari
Af því að ég er að reykja tekurðu reyfara og
breiðir vandlega yfir þig. Ég er löngu búinn
að drepa í og hjúfra mig upp að þér þegar
þú veltir þér á hliðina og rekur í mig bað-
heitan botninn eins og jökul. Þá veröur mér
Ijóst að morðinginn mun leika lausum hala
í alla nótt
Einfold sannindi
Tréskór eru til að ganga á
en ekki til að troða öðrum um tær
þó má sparka í þeim
ef þörf krefur
og mæla fátt
Landafræöi
Af hverju landamærin
séu rauð?
Stjórnmálamennirnir
leiðrétta líka
-stíla
Nýjustu bækur forlagsins
komu út nú rétt fyrir jólin. í
annarri eru myndir eftir Harald
Inga Haraldsson myndlistar-
mann, sem nú er við framhalds-
nám í Hollandi.
Það, sem hér hefur verið rakið,
er lítið brot af þeirri menning-
arstarfsemi, sem farið hefur
fram hér á Akureyri síðastliðin
ár. En það brot hvarf, þegar hús-
ið fór suður að Botni.
Þing Nordurlandaráðs hefst
í Stokkhólmi á mánudag
Á fundi með fréttamönnum í fyrradag gerði íslenzka sendinefndin, sem sækir
þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í nestu viku, grein fyrír dagskrá og fyrirbug-
uðum störfum þingsins. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Ólafur G. Einarsson
alþm., Pétur Sigurðsson alþm., Snjólaug Ólafsdóttir, starfsmaður Alþingis, Páll
Pétursson alþm., sem er formaður í«l. scr.diuefnuarinnar, Friðjón Sigurðsson,
Skrífsiofustjórí Alþingis, Friðjón Þórðarson alþm., Eiður Guðnason alþm. og
Guðrún Helgadóttir alþm. Á myndina vantar Stefán Benediktsson alþm.
ÞING Norðurlandaráðs kemur saman
í Stokkhólmi á mánudaginn kemur og
sækja það 87 fulltrúar frá öllum Norð-
urlöndunum.
Héðan fara fimm ráðherrar á
þíngið auk íslenzku sendinefndar-
innar, sem skipuð er 7 þingmönn-
um. Að vanda verða fjölmörg mál
til meðferðar á þinginu, en þar
verða einnig afhent bókmennta-
verðlaun og tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs.
í upphafi umræðna á þinginu
flvtur formaður norrænu ráðherra-
nefndarinnar stefnuræðu. Er ætl-
unin, að í ræðu hans komi fram að-
almarkmið samstarfsins á komandi
starfsári og eins á hvaða verkefni
höfuðáherzla verði lögð.
Á meðal beí.rrá mála, sem rædd
VSFoa á þinginu, er tillaga ráð-
herranefndarinnar um efna-
hagsmál og efnahagssamvinnu.
Einnig verður til umræðu ráðherra-
nefndartillaga um byggðaþróunar-
lán Norræna fjárfestingarbankans,
þingmannatillögur um rýmkun á
reglum um fjármagnsmarkaði og
samstarf á sviði peningamála á
Norðurlöndum og um frjálsan nor-
rænan hlutabréfamarkað.
Efnahagsmálanefnd þingsins
leggur til, að fyrir þing ársins 1985
verði lögð tillaga um samstarfs-
áætlun um „Norðurlönd sem heima-
markað". Er þessi tillaga byggð á
könnun, sem nýverið hefur verið
gerð um heimamarkað útflutnings-
iðnaðarins á Norðurlöndum. í efna-
hagsmálanefnd eiga sæti af Islands
hálfu þingmennirnir Ólafur G. Ein-
arsson og Páll Pétursson.
Meðal þeirra mála, sem lögð
fram á sviðí féiags- og umhverfis-
ir.áianefndar þingsins, eru þing-
mannatillögur um aukna kennslu í
félagslækningum á heilsugæzlu- og
hjúkrunarbrautum og í læknanámi.
I síðastnefndu tillögunni er einnig
lagt til, að aukið verði eftirlit með
útgáfu lyfseðla á vanabindandi lyf,
en nefndin leggur til, að þingið
samþykki ekki þann hluta tillög-
unnar.
Ráðherranefndin leggur fram
fyrir þingið tillögu um endurskoðun
sáttmála frá 1976 um atvinnuleys-
isbætur. Ástæður þessarar endur-
skoðunar eru, að komið hafa í ljós
ýmsir gallar varðandi greiðslufyr-
irkomulag á atvinnuleysisbótum til
þeirra atvinnulausra, sem hafa
flutt milli norrænna landa.
Laganefnd þingsins leggur m.a.
áherzlu á, að flýtt verði undirbún-
ingsvinnu að nýjum kaupalögum.
Nefndin óskar einnig eftir að grein-
argerð um þær umræður rn;IJ; ',ánd-
anna, serr. eiga sér stað um reglur
um bætur fyrir náttúruspjöll, verði
lögð fram fyrir næsta þing ráðsins.
Árið 1983 var Norrænt umferðar-
öryggisár og er framkvæmd þess
talin hafa gengið vel. Mun umferð-
aröryggisárið vafalaust bera oft á
góma í umræðum þingsins nú, en
samgöngumálanefnd þingsins
hyggst ganga fyrir ráðstefnu í Nor-
egi þann 16.—27. september nk. um
árangur umferðaröryggisársins og
áframhaldandi samstarf á því sviði.
Ráðherranefndin mun leggja
fram skýrslu um NORDSAT-málið.
I skýrslunni kemur fram, að könn-
un þeirri, sem nú fer fram, mun
sennilega verða lokið 1. ágúst nk. og
lokaákvörðun um það þvi verða tek-
ið í haust.
Alls sitja 87 fulltrúar þing Norð-
urlandaráðs að þessu sinni, þar af
20 frá Noregi, 20 frá Svíþjóð, 16 frá
Danmörku, 2 frá Grænlandi, 2 frá
Færeyjum, 18 frá Finnlandi, 2 frá
Álandseyjum og 7 frá íslandi. Einn-
ig munu margir ráðherrar úr ríkis-
stjórnum Norðurlanda sækja þing-
ið. Fjöldi embættismanna og gesta
verða þar auk fjölmargra frétta-
manna, sem fylgjast munu með
störfum þingsins, er standa mun í
fimm daga.