Morgunblaðið - 25.02.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
19
íslenska
hljómsveitin
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Kfnisskrá:
Johan Helmick Roman
Fiðlukonsert í d-moll
Kdward Grieg Norsk svíta
Carl Nielsen Tveir söngvar
Jean Sibelius Þrír söngvar
Haukur Tómasson
Torrek (frumflutningur)
Kinleikari og einsöngvari:
Hlíf Sigurjónsdóttir —
Sigríður Klla Magnúsdóttir.
Stjórnandi: Guðmundur Kmilsson.
Tónleikarnir hófust á
sænsku barokktónskáldi er var
uppi frá 1694 til 1758. Johan
Helmick Roman stundaði tón-
listarnám og starfaði í Eng-
landi í fimm ár, meðal annars
hjá hertoganum af Newcastle.
Eftir hann liggja 21 sinfónía, 5
fiðlukonsertar og margvísleg
önnur verk eins og t.d. svítur,
tríósónötur, konsert fyrir óbó
„d’amore", kantötur og stærri
kórverk. Auk þessa þýddi hann
á sænsku tónfræðileg rit, og
ásamt nemanda sínum, Petter
Brant, var hann forvigismaður
fyrir almennu tónleikahaldi í
Stokkhólmi og uppfærði meðal
annarra verka óratoríur eftir
Hándel. í kórverkum sínum
minnir Roman á Hándel en
aftur á móti er Corelli-stíllinn
meira áberandi í hljóðfæra-
tónlist hans. Fiðlukonsertinn í
d-moll var fyrst gefinn úr 1935
og vann það verk Hildin Ros-
enberg. Trúlega er það sú gerð
sem flutt var á tónleikum ís-
lensku hljómsveitarinnar, þó
þess sé ekki getið í efnisskrá.
Konsertinn er ekta „barokk-
verk“, skemmtileg og góð tón-
list og var hann á köflum vel
fluttur þó nokkuð vantaði á að
hljómsveitin væri „fullskipuð".
Norska svítan eftir Grieg er
lítilfjörleg „smáhljómsveitar"
umritun á píanólögum eftir
tónskáldið, vel passandi fyrir
nemendur og „amatöra" en
ekki konsertviðfangsefni.
Sigríður Ella Magnúsdóttir
og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir fluttu sönglög eftir Carl
Nielsen og Sibelius. Trúlega er
hljómgun Bústaðakirkju ekki
góð fyrir söngvara, einkum ef
einsöngvara og píanóleikara er
skáskotið „út undir vegg“, eins
og átti sér stað á þessum tón-
leikum. Hvað sem því líður var
söngur Sigríðar frábær í lög-
unum Sáf, sáf susa og Flicken
kom ifran sin álsklings möte
en bæði lögin og þó einkum
það seinna eru stórkostlegar
tónsmíðar. Tónleikunum lauk
svo með flutningi verks eftir
Hauk Tómasson en hann
stundar nám við tónlistar-
háskólann í Köln. Haukur
Tómasson er efnilegur tónsm-
iður og ber verkið, er hann
nefnir Torrek, þess merki að
hér er á ferðinni alvarlega
hugsandi tónskáld. Tónskipan
verksins er mikið byggð á
stuttum tónhendingum, sem
skipt er ört á ýmis hljóðfæri.
Formgerð verksins er skýr, þar
sem skiptast á kaflar þar sem
unnið er með stefin upp að
sterkum hápunkti en á milli
eru svo einfaldari kaflar tón-
stuttra tónhendinga. í þessu
stutta verki eru töluverð átök,
víða skemmtilega og vel út-
færð. Bæði upphafið og niður-
lag verksins er gaf verkinu
sannfærandi umgerð. Það
verður fróðlegt að heyra þenn-
an unga og efnilega tónsmið,
er hann hefur lokið námi og
lagt af sér klafa forskriftar og
kennslu og tekið að yrkja sín
eigin ljóð.
GOLFSTRAUMURINN TIL ÍSLANDS
NÝIGOLFINN1984 ER KOMNN
OG KOSTIRNIR LEYNA SÉR EKKl
Hann ber svipmót fyrirrennarans,
en er fyrst og íremst NÝR GOLF
ÖFLUGRI - VERÐMÆTARI
Aukið viðbragð og meiri hámarkshraði um leið
og eldsneyiiseyðslan lcekkar.
Farangursrými er 30% stœrra — stóraukin
ryðvörn —. aukin ending — minna viðhald —
ódýrari í rekstri — hœrra endursöluverð.
PÆGILEGRI
GOLF ' 84 er mun þýðari, vegna aukins tjöðrun-
arsviðs. Sœtin eru þœgilegri með íleiri stíllingum
og bíllinn allur nlmbetri að innan. Hávaðamörk
em mun lcegri. bœði veg- og vélarhljóö. Miðstöð
og loftrœsting em endurbœtt, bœði aíköst og
loítdreifing
KOMIÐ OG KYNNIST NÝJA GOLFINUM
STÆRRI
LENGD 3.985 mm — (170 mm lengri)
BREIDDt 1,665 mm - (50 mm breiðari)
HJÓLAHAF: 2.475 mm - (70 mm lengra)
SPORVÍDD, framan: 1.413 mm (25 mm meiri)
SPORVÍDD, aftan: 1.408 mm - (50 mm meiri)
NÝTÍSKULEGRI
Lausnarorðið við hönnun þeirra bíla, sem skara
framúr í nútímanum er lágur vindstuöull. Hin
mjúku og ávölu form bera með sér að loítaíls-
frœðileg gildi voru höíð að leiðarljósi þegar yfir-
byggingin var hönnuð, enda er vindstuöuU
GOLF ' 84 aðeins cw= 0.34.
6
ARA RYÐ VARNARABYRGÐ
[hIheklahf
I Laugavegi 170 -172 Sími 21240
FJÖLSKYLDAN OG FÍKNIEFNIN
Almennur fundur um fíkniefnamál í dag
laugardaginn 25. febrúar kl. 13.30 í Norræna húsinu.
SÁÁ í samvinnu vid Landlæknisembættid og
Áfengisvarnadeild Reykjavíkurborgar