Morgunblaðið - 25.02.1984, Side 21

Morgunblaðið - 25.02.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 21 „Meðvitaður“ farsi ... ? Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir hjódleikhúsið sýnir: Amma þó, eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Leikstjóri: hórhallur Sigurðsson. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Leikmynd, búningar, grímur og brúður: Messíana Tómasdóttir. Hér hefur sögu, þegar börnin Fía og Fjódór(?) eru heima í leiguhjallinum sínum og reyna að dreifa huganum frá sulti og seyru; þau virðast sem sé ekki hafa smakkað mat í marga daga. Á meðan er amma úti að hjóla og leita að vinnu. Amma er skað- ræðisgripur í umferðinni og allt lögreglulið höfuðborgarinnar á eftir henni. Með klókindum — eða klækjum — bjarga börnin og amma málinu, þegar afspyrnu- vitlaus lögga kemur á vattvang. Úti á sjó er pabbinn að reyna að veiða fisk í soðið, hann fær nátt- úrlega ekki bein úr sjó. Eina þorskinn sem hann rekst á verð- ur selurinn fyrri til að éta. Ádeila þar? Vondur Braskara- Björn og Stúfur koma síðan að innheimta húsaleiguna, sem amman og börnin geta vitanlega ekki borgað og gera þau þessum vondu mönnum margan grikk til að losna við þá. En fá ekki nema þriggja daga frest til að bjarga húsaleigunni og er nú fundið upp á ýmsu í snatri. Það eru borin út blöð, en svo er hreytt í þau skæt- ingi þegar þau ætla að fá borgað fyrir, amman reynir að mála myndir úti á götum, Fía tekur að spila fyrir vegfarendur og hefur bróður sinn með sér í apagervi. (Hvernig hefði verið að selja fiðluna?) Þá kemur kvikindisleg lögga og handtekur þau fyrir betl. Hendir þeim síðan út af löggustöðinni og enn hafa þau ekki fengið neitt að borða. Þau ákveða að fremja innbrot hjá ríku mönnunum, sem hafa stolið peningunum þeirra. Það fer auð- vitað í handaskolum. Vondur bankastjóri vísar lánsbeiðni pabba á bug. Svo að öll sund eru að lokast og loks missa þau íbúð- ina og er nú lagt af stað út í óvissuna. Pabbi dregur vagn með hinum fátæklegu pjönkum þeirra og síðan koma þau að skrítnu, afskaplega óíslenzku- legu húsi. Og er nú ekki að orð- lengja að senn fer að vænkast hagur þeirra og allt endar vel og vondu mennirnir fá makleg málagjöld. Þrátt fyrir alla þessa eymd og mæðu og basl er þó fjarri því að amman og börnin missi móðinn og það er svo sem ekki volið og vílið á þeim bæ, heldur kátína og húllumhæ. Ýmsar skemmtilegar uppákomur, góðar replikkur og reglulega áheyrileg lög. Það fór þó ekki hjá því að glfman við lögguna minnti á Línu vinkonu okkar langsokk, vagnatriðið var eins og klippt út úr Mutter Cour- age og á tíma var ég farin að halda að veizlan í Kardimommu- bænum yrði endurtekin. En það hefur kannski verið eftir að sýn- ingu lauk. Boðskapurinn hlýtur að vera: Vandamál leigjenda og vonzka ríka fólksins og flónska lögreglunnar. Öllu meira mátti það nú ekki vera fyrir unga áhorfendur. En þar sem leik- stjóri hafði af leikni og fimi séð um að yfirleitt væri heilmikið um að vera á sviðinu, dreifði það huganum bersýnilega nokkuð og hélt athyglinni, svona oftast. Leikmynd Messíönu Tómasdótt- ur og annað sem hún lagði til sýningarinnar var skemmtilega og hugvitsamlega unnið. Þó var ég ekki dús við hús Salómons, það gekk á skjön við annað í leikmyndinni. Leikstjórn Þór- halls Sigurðssonar er eins og ég gat um lítillega tvímælalaust leyst af hendi af mikilli prýði og uppátektir margar fyndnar og hjálpuðu uppá þegar textinn var farinn að vera full tormeltur. Frammistaða leikenda var öll hin ágætasta. Fyrstan skal nefna smádrenginn Gísla Guð- mundsson sem var á sviðinu nánast allan tímann og var þar eins og fiskur í vatni. Herdís Þorvaldsdóttir var snjöll amma, sniðug og góð og gervið prýði- legt. Edda Björgvinsdóttir og Jón Gunnarsson skiluðu vel sínu. Árni Tryggvason var í einhverj- um vandræðum með Salómon, sem allt í einu skýtur upp kollin- um, en gerði án efa það bezta úr vandræðalegu hlutverki. Löggur Erlings Gíslasonar og Sigurðar Skúlasonar, svo og konur Helgu Jónsdóttur voru ágætlega dregn- ar. Einhvers staðar las ég að höf- undur hefði kallað þetta „geggj- aðan farsa". Víst er margt ab- súrd og sniðugt í þessu verki. Farsi telst það varla, að mínum dómi. Ef svo er myndi ég kalla það „meðvitaðan og félagslegan farsa“. Og með fleiri sýningum slípast vonandi út margt það sem er meðvitað og félagslegt og meiri geggjun fær að ráða. Það væri áreiðanlega miklu skemmtilegra. Bílasýning í dag frá kl. 1—4. Nýir og notaðir bílar til sýnis og sölu tfttnmmtc tintt tnimmtnnm* LADA 2107 LADA bílar hafa sannað kosti sína hér á landi sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti (könnun verðlagsráðs) og ekki síst fyrir hátt endursöluverð. Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd, stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð. Verö viö birtingu auglysingar kr. 213.600.- Lán 6 mán. 107.000.- Þér greiðið 106.600.- Bifreiðar & sífeiid pjonusta Landbúnaðarvélar hf. SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600 Söludeild sími 312 36 Verölisti Lada 1300 163.500 Lada 1300 safír 183.000 Lada 1200 station 175.500 Lada 1500 station 196.500 Lada 1600 198.500 LadaSport 299.000 IJ 27 15 sendibíll 109.500 UAZ 452 frambyggöur 298.000 UAZ 452 m/S-kvöð 234.100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.