Morgunblaðið - 25.02.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
27
Nokkur orð um bókastríðið
eftir Pálínu
Eggertsdóttur
Það var sú tíð á íslandi að barist
var í bókum, núna virðist barist
um bækur. Sennilega er hinn al-
menni lesandi fyrir löngu orðinn
langþreyttur á að lesa ótal orð-
sendingar og yfirlýsingar frá
bóksölum og bókaútgefendum á
víxl. Þar rekur hver langhundur-
inn annan, þar er þvælt sitt á hvað
og finnst trúlega flestum mál að
linni. Þar að auki eru slíkar nefnd-
aryfirlýsingar og fundarsam-
þykktir venjulega svo skreiðmælt-
ar, að hinn venjulegi lesandi með
almenna greindarv'ísitölu, eins og
ég og fleiri, er venjulega jafnnær
um hvað málið snýst, hlaupum yf-
ir þvæluna, snúum yfir á næstu
síðu í leit að einhverju skemmti-
legra. Það er samt einn hópur,
sem enn hefur ekkert látið í sér
heyra um þetta mál. Það er af-
greiðslufólk í þessum illræmdu
bókaverslunum. Alla daga vikunn-
ar erum við að reyna að skýra út
fyrir viðskiptavinum okkar hvern-
ig á því stendur, að við skulum
selja bækur á uppsprengdu verði,
þegar hægt sé að fá sömu vöru
mörg hundruð krónum ódýrari hjá
öðrum. Hvernig eru þessir bóksal-
ar eiginlega? Þeir eru á móti öll-
um lækkunum, þeir neita öllum
afslætti — já, hvernig stendur eig-
inlega á því að ég og aðrir álíka,
sem teljum okkur bærilega heið-
arlegt fólk, sjáum okkur fært að
vinna hjá þessum voðamönnum?
Ja, það er nú það. Ég panta inn og
sel bækur í bókaverslun í Reykja-
vík. Það skeður í stórum dráttum
á tvennan hátt. Ég hringi í útgáfu-
fyrirtæki, panta bækur, fæ þær
sendar og staðgreiði bækurnar.
Með sendingunni fylgir að sjálf-
sögðu reikningur. Þar stendur
svart á hvítu útsöluverð bókarinn-
ar, reiknað út og ákveðið af útgef-
anda, fyrir neðan dregin frá 30%
sem er sú álagning sem bóksala er
leyfð. Það eina sem bóksalinn og
hans starfsfólk gerir er að bæta
við hinum lögboðna söluskatti rík-
issjóðs. í hinu tilfellinu sendir út-
gefandi bók til bóksala í umboðs-
sölu, að sjálfsögðu fylgir líka
reikningur, fast verð á bókinni
sem áður, eini munurinn sá að í
umboðssölu fær bóksalinn 20% af-
slátt. Svona einfalt er málið. Bók-
sali ákveður aldrei verð á bók. Það
mál er alltaf, ég endurtek alltaf,
útreiknað og ákveðið af bókaút-
gefanda. Og hvað er þá verið að
rífast um? Hver vill ekki lækka
hvað? Með þessu er ekki einu sinni
allt sagt. Bíkaútgefendur hafa
lagt mikla áherslu á við samn-
ingagerðir að bók væri seld á
sama verði alls staðar. Þeir hafa
líka fengið framgengt í samningi,
að bóksala og hans starfsfólki er
óheimilt, já óheimilt, að gefa
viðskiptavini sínum afslátt þó
hann langi til. Ég og aðrir í bóka-
búðum, þurfum að selja sama
manni 10 stk. af bók til að við
megum gefa 10% afslátt sam-
kvæmt kröfum bókaútgefenda. Já,
já, ég hef veitt góðum kaupendum
afslátt, en ég tek fram að þá hef ég
framið lögbrot í augum bókaútgef-
anda og viðurkenni það hérmeð.
Við skulum nú fara nokkrum orð-
um um þetta síðasta ágreinings-
„Bókaverslanir eru notað-
ar sem grýlur á hinn al-
menna kaupanda og þetta
eru kveðjur frá mönnum
sem við erum ð selja bæk-
ur fyrir allt árið um kring.
Finnst einhverjum þetta
heiðarlegur sölumáti.“
mál, sem upp er komið einu sinni
enn. Ég á við þarna um daginn
þegar bóksalar bitu höfuðið af
skömminni og sendu útgefendum
til baka 20 bækur. Smáklausu las
ég í Morgunblaðinu á laugardag.
Þar var skýrt frá í stuttu máli af
aðilum Bókaklúbbsins Veraldar,
að bóksalar gætu ekki sætt sig við
að bókaklúbburinn lækkaði þessar
bækur um 30% og sent þær því til
baka. Það gat nú verið, þeir eru
alltaf við sama heygarðshornið
þessir bóksalaokrarar.
í stuttu máli, Bókaklúbburinn
Veröld var settur á stofn á síðast-
liðnu ári. Að honum standa fjögur
útgáfufyrirtæki í Reykjavík. Þeir
gáfu út kynningarrit um tilvist
klúbbsins og dreifðu víða. Síðan
hafa þeir sent félögum klúbbsins
fréttabréf reglulega, þar sem
skýrt er frá hverju sinni hvað á
boðstólum er, bæði verð og úrval
bóka. Ekkert athugavert við neitt
af þessu, hreint ekki — og þó. Lit-
um aðeins nánar á þessar frétta-
tilkynningar Veraldar. Þar stend-
ur yfirleitt, ef ekki undantekning-
arlaust: Okkar verð — Annað
verð, og munar þá venjulega tals-
verðu á þessu tvennu. Og hvað er
svo „okkar verð“ og hvað er „ann-
arra verð", sem þeir kalla svo?
„Okkar verð“ er það sem bóka-
klúbburinn er að bjóða niðursett,
„annað verð“ er það sem þessir
menn ætla bókaverslunum að
selja sömu bækur á. Þeir gleyma
bara að geta þess, að hvort tveggja
er þeirra verð. Mér persónulega
hefði fundist heiðarlegra að þeir
hefðu orðað þetta svolítið öðruvísi.
Af hverju stendur ekki bara: Þetta
verð bjóðum við ykkur, en vitið þið
bara hvað bóksalaóhræsin ætla
ykkur að borga? Já, því ekki, um
þetta snýst málið. Bókaverslanir
eru notaðar sem grýlur á hinn al-
menna kaupanda og þetta eru
kveðjur frá mönnum sem við erum
að selja bækur fyrir allt árið um
kring. Finnst einhverium þetta
heiðarlegur sölumáti? Ég vil taka
fram að ég á ekki bókaverslun og
hef aldrei átt, en ég er ekki að
skrifa þetta að beiðni neins, ég er
aðeins að lýsa yfir hvernig mér
persónulega finnst svona fram-
koma.
Með bóksalakveðju,
Pálína Eggertsdóttir.
Pálíaa Eggertsdóttir er verslunar-
stjóri í Bókarerslun ísafoldar.
Gullna hliðið frumsýnt á Hvammstanga
UNDANFARNAR vikur hefur leik-
flokkurinn á Hvammstanga æft
Gullna hliðið eftir Davíð Stefínsson
undir leikstjórn Þrastar Guðbjarts-
sonar, en hann gerði einnig leik-
mynd.
Þetta er fjórða verkið sem
Þröstur leikstýrir hjá leikflokkn-
um. Æfingar hafa gengið vel. Það
er mikið átak, ekki síst fyrir
áhugahóp, að setja á svið svo viða-
mikið verk sem Gullna hliðið. Vill
leikflokkurinn koma á framfæri
þakklæti til allra sem lagt hafa
hönd á plóginn og gert honum fært
að setja upp þessa sýningu. Eru
það ekki færri en 40—50 manns
sem þar hafa að komið. Er það
ekki lítiil hópur í 600 manna
byggðarlagi.
Nú eru um 20 ár síðan Davíð
Stefánsson andaðist og er Gullna
hliðið eitt þekktasta verk hans.
Leikflokkurinn á Hvammstanga
mun frumsýna Gullna hliðið á 20
ára dánardægri Davíðs, þann 1.
mars nk. Fyrirhugað er að fara
með sýninguna í nágrannabyggðir.
Næstu sýningar verða: Hofsósi
laugardaginn 3. mars, Miðgarði 4.
mars, Hvammstanga miðvikudag-
inn 7. mars, Skagaströnd laugar-
daginn 10. mars, Blönduósi sunnu-
daginn 11. mars, Búðardal laug-
ardaginn 17. mars, Varmalandi
sunnudaginn 18. mars. i
(Frétutilkjnning)
i ser
Úrvals skíðaferð til Austurríkis er örugglega skemmtilegasta ævintýri sem
íslenskir skíðamenn eiga kost á, því Badgastein er án efa einn allra besti
skíðastaður Austurríkis. Aðstaðan er öll eins góð og hægt er að hugsa
Snjóhvít fjöll, fagurblár himinn, heit sól, endalausar skíðabrekkur, vi
veitingastaðir, hlýleg hótel, elskulegt fólk. í einu orði sagt: Ævintýri.
Við bjóðum úrvals gistingu á:
Gletschermuhle m/morgunverði
Leimböch m/morgunverði
Simader m/hálfu fæði
Satzburgerhof m/hálfu fæði.
Verð aðeins 21.650.- krónur, - m/morgunverði
Síðasta brottför í vetur:
4. mars. - örfá sæti
m/gistingu á Gletschermúhle.
Nú er bara að taka tram skíðaskóna!
:\
4®
FERMSKRIFSTOMN ÚRVAL