Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 25.02.1984, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 33 Magnús Oddsson, sölu- og markaðsstjóri Arnarflugs: Um 100% aukning á farþeg- um og bókunum í febrúar — Gerum ráð fyrir hagnaði af millilandafluginu í ár „HEILDARFJÖLDI farþega hjá okkur í millilandaflugi í janúarmánuöi var 959, en til samanburðar voru þeir 641 í janúar 1983. Aukningin milli ára er því um 50%,“ sagði Magnús Oddsson, sölu- og markaðsstjóri Arnarflugs, í samtali við Mbl. Magnús sagði að ekkert lát væri á aukningunni í febrúar. „Ef við lítum á farþega það sem af er og bókanir er fjöldinn liðlega 1.080, en heildarfjöldi farþega í febrúar á síðasta ári var 550. Aukningin milli ára er því þegar orðin tæp- lega 100%. Hvað vöruflutninga áhrærir, þá hafa þeir einnig aukizt verulega. í janúar sl. fluttum við liðlega 24,1 tonn, en til samanburðar voru vöruflutningar okkar í janúar á sl. ári um 10,6 tonn. Aukningin milli ára er því tæplega 130%,“ sagði Magnús. Magnús Oddsson sagði, að auk þess sem farþegum hafi fjölgað verulega hafi sú ánægjulega þróun átt sér stað, að erlendir farþegar væru nú mun fleiri en áður. „Það hefur leitt af sér töluvert meiri tekjur, þar sem útlendingarnir ferðast yfirleitt meira á fullborg- andi farmiðum en aðrir." Magnús sagði að eitt af stærstu verkefnunum á næstunni væri aukin kynning erlendis og þá ekki eingöngu í Evrópu. „Það má segja, að fjarlægari staðir séu að mestu óplægður akur, en farþegar t.d. frá Austurlöndum fjær og Suður- Ameríku sækja í síauknum mæli til Evrópu. Ég hef trú á því, að hægt sé að bjóða þessu fólki ís- land, sem annan eða auka ákvörð- unarstað á ferðum þess. Ekki er fráleitt að ætla að þetta fólk hefði áhuga á stuttum ferðum til ís- lands, þar sem aðstæður eru svo gífurlega ólíkar því sem það á að venjast heima fyrir.“ Magnús nefndi, að ferðaskrif- stofa í Bangkok í Thailandi hefði gert pöntun hjá Arnarflugi fyrir 100 farþega í sumar, en þeir hyggjast sækja ísland heim, sem annan áfangastað á ferðalagi sínu um Evrópu. Að endingu var Magnús Odds- son, sölu- og markaðsstjóri Arnar- flugs, inntur eftir því hvernig rekstrarafkoman af áætlunarflug- inu væri. „Hún stendur í járnum um þessar mundir, en þróunin hefur verið hagstæð undanfarið, eins og ég sagði áður. „Við gerum ráð fyrir því, að nokkur hagnaður verði af fluginu á þessu ári og farþegafjöldi og bókanir, sem af er árinu eru vonum framar, þannig að við höfum ekki ástæðu til ann- ars en að vera bjartsýnir." Flugleiðir ráða viðbótarsölumann í Bandaríkjunum: Áframhaldandi útvíkk- un á starfsemi okkar — segir Sigfús Erlingsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs VICTOR/ VICTORIA Kvikmyndir Ólafur M. Jóhannesson Leikstjóri, höfundur handrits og framleiðandi: Blake Edwards. Myndatökustjóri: Dick Bush. Tónlist: Henry Mancini. Sýnd í Nýja bíói. París millistríðsáranna hefir að sönnu verið hugljúf borg þar sem harmónikkan hljómaði af svölum útikaffihúsanna og lima- fagrar stúlkur sperrtu upp fót- leggi á Moulin Rouge þar sem dansarar á borð til La Goulue og Valentin le Désossé höfðu gert garðinn frægan. Nú, ef menn fengu nóg af holdsins lystisemd- um, gátu þeir sótt hljóðlát kaffi- hús sem sum hver áttu eftir að fyllast andagift úr vitum manna á borð við Jean-Paul Sartre. En sú París sem Blake Edwards leitast við að lýsa í nýjustu mynd sinni „Victor Victoria" og við getum nú upplifað í Nýja bíói er París hinna löngu nöktu leggja sem vísuðu til himins í gömlum myllum. Þar er lýst fá- tækri söngkonu (Julie Andrews) sem rekst á hýran skemmtikraft — Toddy (Robert Preston) — að nafni með þeim afleiðingum að hún klæðist karlmannsbúningi og fær þannig vinnu á fínustu skemmtihúsum sem karlmaður í konugervi. Er hér í raun verið að segja svipaða sögu og sögð var í Tootsie, það er söguna af lista- manni sem fær ekki vinnu fyrr en hann hefir skipt um kyn á sviðinu — er orðinn skuggi af sjálfum sér og nær þá fyrst að blómstra í sviðsljósinu. Þó fann ég ekki sama ádeilubrodd í þess- ari mynd Edwards og í fyrr- greindri kvikmynd Dustin Hoffmans. Mynd Blake Edwards er eiginlega of áferðarfalleg og hugljúf til þess að grípa hressi- lega um hjartarætur áhorfand- ans. Þannig verða örlög söng- konunnar er Julie Andrews leik- ur hvorki þess valdandi að mað- ur felli samúðartár né hristist af hlátri nema stöku sinnum. Hinu er ekki að leyna að það er ákaf- lega notalegt að sitja undir svona mynd þar sem hver sviðs- myndin er annarri smekklegri og glæstir dansarar hoppa um palla en ofar öðru hljómar söng- ur Julie Andrews, söngur sem hljómaði fyrrum í The Sound of Music. Fyrir þá sem hafa gaman af léttum dans- og söngvamyndum er þessi mynd kjörin. Persónu- lega hef ég lítinn áhuga á slíku hoppi og híi, þótt sveipað sé glæstum umbúðum. En ég hafði því meiri áhuga á aukaleikurun- um í þessari mynd, og þá fyrst og fremst á Leslie Ann Warren, sem ég tel að hér hafi afsannað rækilega þá kenningu, að kvik- myndaheimurinn eigi í dag enga frambærilega grínleikara af hinu veikara kyni. Leslie Ann Warren er hreint óborganleg í hlutverki hinnar vitgrönnu/ vergjörnu Normu. Verður að leita aftur til mynda Mel Brooks (Young Frankenstein ’75, Silent Movie ’76) til að finna svipuð ærsl hins veikara kyns. Julie Andrews — þótt hún sé söngfugl góður — er hinsvegar eins ófyndin og verða má, en mikið er þessi kona alltaf indæl og vina- leg, einsog hún sé besti vinur áhorfandans. Það er ekki hægt annað en láta sér þykja vænt um þessa konu og þann „sound of music“-heim sem hún flytur ætíð með sér hvert á svið sem er og ekki skemmir að hér er henn- ar helsti mótleikari enginn ann- ar en Robert Preston í hlutverki hins „hýra“ Toddy. Svo segja menn að persónuleiki leikaranna skipti engu máli. „ÞAÐ MÁ segja, að þetta sé áfram- haldandi útvíkkun á starfsemi okkar í Bandaríkjunum, en hún hefur vax- ið mjög á síðustu árum,“ sagði Sig- fús Erlingsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða, í samtali við Mbl. í tilefni þess, að Símon Pálsson hefur verið ráðinn til að sinna sölustarfi í Bandaríkjunum, en hann hefur um árabil verið starfs- maður markaðsdeildar Flugleiða. „Við höfum verið með tvo sölu- menn, sem hafa stöðugt verið á ferðinni í Bandaríkjunum við sölustörf. Símon er einfaldlega viðbót við þetta sölukerfi okkar. Hann verður aðallega staðsettur í Norður-Karólínu- og í Suður- Virginíu-fylkjum," sagði Sigfús ennfremur. Flug Flugleiða hefur farið mjög vaxandi á síðustu árum yfir Norður-Atlantshafið, eftir að fé- lagið átti í miklum erfiðleikum með flugið a tímabili. „Farþega- aukningin á árinu 1982 var liðlega 32% og á síðasta ári var aukning- in um um 25%. Ef áætlanir okkar standast á þessu ári verður aukn- ingin um 20%. Á háannatímanum munum við fljúga 18 ferðir í viku yfir Atlantshafið. Sjö sinnum til New York og Chicago og þrisvar til Baltimore og loks einu sinni í viku til Detroit, sem er nýr áfangastaður í áætlun félagsins," sagði Sigfús Erlingsson, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða. Pétur Pétursson í Kjötbúri Péturs. Kjötbúr Péturs í stað Kjötverzlunar Tómasar í 75 ÁR var Kjötverzlun Tómasar Jónssonar, sem flestum Reykvíkingum var aó góðu kunn, rekin í kjallara hússins að Laugavegi 2. Sú verzlun hefur nýverið hætt starfsemi. Á hinn bóginn hafa hjónin Anna Sigríður Einarsdóttir og Pétur l’éturs- son, kjötiðnaðarmaöur, hafið rekstur verzlunar í þessum sömu húsakynnum. Hefur verzluninni verið valið heitið Kjötbúr Péturs og hafa verið gerðar ýmsar breytingar og cndurbætur. Af hálfu Kjötbúrs Péturs verður lögð sérstök áherzla á alls konar unnar og óunnar kjötvörur, einkum þó sérvalið nauta- og kálfakjöt, kinda- og dilkakjöt, svína- og grísa- kjöt og villbráð margs konar. Þá býður verzlunin heitan mat af ýmsu tagi í hádeginu alla virka dag og verði þessara rétta stillt í hóf. Að mati eigenda verzlunarinnar hafa bættri matarmenningu ekki fylgt nauðsynlegar sérverzlanir, sem kappkosta að bjóða viðskiptavinum sínum faglega og persónulega þjón- ustu um leið og boðið er upp á úr- valsvörur, jafnt algengar og þær sem sjaldnar eru á borðum neyt- enda. Það er ætlun eigenda að Kjöt- búr Péturs geti bætt úr þessu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.