Morgunblaðið - 25.02.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
+
Faöir okkar og stjúpfaöir,
KRISTINN GUNNLAUGSSON
frá Sauöárkróki,
til heimílis að Suöurbraut 7 í Kópavogi,
lóst á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 22. febrúar.
Minning:
Þorgeir Jóelsson
Sœlundi
Sigurlaug Kristinsdóttir,
Auður Kristinsdóttir,
Matthildur Kristinsdóttir,
Hulda Ingvarsdóttir.
Útför móöur okkar,
STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR,
Stigahlíð 2«,
sem lóst í Borgarspítalanum 19. febrúar, fer fram frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 27. febrúar kl. 13.30.
Sigurjóna Jónsdóttir,
Guöjón Jónsson,
Stefén Jónsson.
Systir okkar. + GUÐRÚN STEINDÓRSDÓTTIR fré Á»i, Týsgötu 5,
veröur jarösungin frá Hallgrímskirkju mánudaginn 27. febrúar kl. 13.30.
Systkinin.
+
Eiginmaður minn, faöir okkar og tengdafaöir,
ÞÓROURJÖRGENSON,
Fagrahvammi, Garði,
veröur jarösettur frá Útskálakirkju laugardaginn 25. febrúar kl.
13.30.
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir,
börn og tengdabörn.
+
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu við fráfall
eiginmanns mins og föður okkar,
GUDVARDAR VILMUNDARSONAR.
Gyöa Oddsdóttir og börn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför
SVEINS ÞORBERGSSONAR,
vélstjóra,
Öldugötu 17, Hafnarfiröi.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði og deild A-5 á Borgarspítalanum fyrir frábæra
hjúkrun og umönnun í veikindum hans.
Jónína Guölaugsdóttir,
Sigurbergur Sveinsson, Ingibjörg Gisladóttir,
Guómann Sveinsson, Þorbjörg Ragnarsdóttir,
Ásdís Sveinsdóttir, Þórarinn Sófusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Birting
afmœlis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vtra vélrituð
og með góðu línubili.
Fæddur 15. júní 1903
Dáinn 13. febrúar 1984
Með nokkrum orðum langar mig
að minnast Geira vinar míns og
frænda, en við vorum bræðrasyn-
ir.
Þorgeir Jóelsson fæddist á Vest-
urhúsum í Vestmannaeyjum 15.
júní 1903. Hann var sonur hjón-
anna Þórdísar Guðmundsdóttur
og Jóels Eyjólfssonar frá Kirkju-
bæ í Eyjum.
Þau hjón byrjuðu búskap sinn á
Vesturhúsum árið 1903 en fluttu
árið eftir í sitt eigið hús, Landmót,
sem var nýbyggt og stóð nyrst og
austast húsa í svokölluðum
Þykkvabæ, sunnan Vesturvegar,
sem síðar var lagður. Landamót
var þá eitt af stærstu húsum í
Eyjum, tveggja hæða timburhús á
steinsteyptum kjallara. Húsið
áttu þeir tveir saman, Jóel, sem
átti austurhelming þess, og Magn-
ús Magnússon í Hólshúsi, sem var
formaður með teinæringinn Hauk.
Magnús var fyrsti maður, sem
drukknaði af mótorbát við Eyjar;
hrökk hann út af sínum nýkeypta
báti, Portlandi VE 97 17. október
1906, þegar þeir voru í landtúr að
Eyjafjallasandi.
Þegar Þorgeir var fjögurra ára
gamall veiktist móðir hans af
berklaveiki og fór hún þá á heilsu-
hæli úti í Danmörku og þar dó hún
árið eftir, en var jarðsungin frá
Landakirkju. Þorgeir var þá tek-
inn í fóstur til ömmusystur sinn-
ar, Þorgerðar Erlendsdóttir í Fög-
ruvöllum, og manns hennar, Sig-
urðar Vigfússonar, sem nefndur
var Siggi Fúsa og kallaði Þorgeir
hann fóstra sinn, en hana nöfnu,
enda var hann heitinn í höfuð
hennar. Þau hjón höfðu ekki eign-
ast börn og tóku þau bæði miklu
ástfóstri við drenginn, sem hann
launaði þeim líka eins og góður
sonur og vann þeim og var hjá
þeim fram til 25 ára aldurs.
Snemma hneigðist hugur Geira
að sjónum, og má með sanni segja,
að fjörusandurinn og sjávarlónin
neðan við Strandveginn, skammt
frá Fögruvöllum, hafi verið
bernskuleikvangur hans og fleiri
hans leikfélaga. Sjómennskan var
honum í blóð borin. Jóel, faðir
hans, var sjómaður og formaður á
áraskipum og mótorbátum, en
móðurbróðir hans var Magnús
Guðmundsson á Vesturhúsum,
einn kunnasti sjósóknari í Vest-
mannaeyjum á sinni tíð og for-
maður í 30 ár. Um og innan við
fermingaraldur fór Þorgeir að róa
á smáferjum á sumrin með göml-
um Eyjasjómönnum; þeim Sigga í
Vegg og Ola í Nýborg og var veið-
arfærið handfæri. Fljótlega
reyndist Geiri netfiskinn með fær-
ið sitt. Innan tíu ára aldurs fór
Geiri að æfa sig í „spröngunni" í
Skiphellum ásamt fleiri Eyja-
peyjum og fljótlega fékk hann þar
orð á sig fyrir kjark og fimi, enda
varð hann einn af bestu fjalla- og
sigmönnum í Eyjum og í fleiri
sumur seig hann vestra sigið í
Fiskhellum á þjóðhátíð Vest-
mannaeyja.
Vorið 1918 hittust fjórir ferm-
ingarbræður frá árinu áður, kom
þeim þá saman um að fá sér lán-
aðan árabát og róa saman á hon-
um til fiskjar með handfæri um
sumarið og tókst þeim fljótlega að
fá sér bátinn. Þessir ferm-
ingarbræður og félagar voru Ben-
óný Friðriksson í Gröf, Magnús ís-
leifsson Nýjahúsi, Karl Guð-
mundsson Goðalandi og Þorgeir
Jóelsson Fögruvöllum. Þeir byrj-
uðu svo að róa og tók Binni í Gröf
að sér að vera formaður á bátnum.
Fljótlega vöktu þessir drengir at-
hygli fyrir djarfa sjósókn og fiski-
sæld. Það kom æði oft fyrir að
strákarnir reru þó aðrir sætu í
landi. Oft óttuðust feður þeirra
um þá á sjónum þegar hvessti og
töluðu þá um að fá vélbát til að
leita þeirra, en Friðrik, faðir
Binna, dró oftast úr því og sagði
„Við skulum bara láta þá eiga sig,
þeir plumma sig strákarnir", og
þeir gerðu það líka.
Þessir drengir urðu síðar allir
miklir sjómenn og mótorbáta-
formenn. Binni landsþekktur afla-
maður, Geiri og Kalli fyrirmyndar
vélbátaformenn og miklir fiski-
menn um tugi ára í Eyjum, en
Maggi flutti þaðan burt eftir
stutta formannstíð.
Eina sjóferðasögu ætla ég að
skrifa hér af þeim félögum, sem
Þorgeir sagði mér, og sýnir hún
hvað Binni var mikill formaður og
úrræðagóður svo ungur að árum
sem hann var.
Þennan róður voru þeir sem
oftar suður í sjó, á sviðunum vest-
an við Brand. Það snögghvessti þá
á norðan, svo að þeir urðu þegar
að taka til segla og leita lands.
Ekki höfðu þeir dregið nema
nokkra fiska í bátinn þegar
hvessti. Á heimleiðinni urðu þeir
að fara yfir harðan straumál,
vestan við Suðurey, en áður en
kom að honum lét Binni háseta
sína taka alla lifrina úr fiskinum
og merja hana vel undir fótum
sér, saman við austurinn í bátn-
um. Þegar komið var í straumál-
inn var þessu svo ausið út til að
lægja brotbáruna og það hélt
Þorgeir að þetta hafi bjargað þeim
í það sinn.
Þorgeir byrjaði, sextán ára
gamall að róa á vetrarvertíð og
var það á áttæringnum Örk, sem
Kristinn Ástgeirsson frá Litlabæ
var formaður með. Örkin var með
færeysku lagi og síðasti áttæring-
inn, sem róið var á vetrarvertíð
frá Eyjum. Næstu vertíðar var
Þorgeir á vélbátum.
Vertíðina 1925 byrjaði hann
sína löngu formannstíð, þá 22 ára
gamall, með mb. Lunda VE 141,
sem var rúm 7 tonn að stærð, og
átti Jóel faðir hans V* part í bátn-
um. Þessa fyrstu vertíð gekk
Geira vel að fiska og sýndi áber-
andi góða fortnannshæfileika.
Haustið 1924 var Þorgeir á skip-
stjóranámskeiði, sem haldið var í
Eyjum eins og hafði verið 7 und-
anfarin ár. Þessi þriggja mánaða
lærdómur og prófskírteini veitti
þá réttindi til skipstjórnar á allt
að 30 lesta stóru skipi.
Vertíðina 1926 er Þorgeir með
Lunda II VE 141, nýjan bát, sem
smíðaður var í Fredrikssund í
Danmörku, eins og flestir Vest-
mannaeyjabátar voru þá. Þorgeir
var með að sigla honum heim til
Eyja. Báturinn var tvístefnungur,
rúm 13 tonn að stærð með 36 hest-
afla tveggja strokka Danvél. Um
1940 var báturinn stækkaður og
hekkbyggður og eftir það mun
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
jaröarför
BRYNHILDAR STEFÁNSDÓTTUR,
Ijósmóður.
Systkinin.
<$^** • yrve
hann hafa verið um 20 tonn. Þor-
geir var ásamt Jóel föður sínum
einn af eigendum bátsins. Hann
var síðan með Lunda II um 30 ár
og var það einsdæmi í Eyjum að
sami formaður væri svo mörg ár
með sama bátinn. Alla sína sjó-
mannstíð var Þorgeir mjög
mannsæll og voru sumir menn
hans með honum 20 ár.
Þorgeir var mjög athugull mað-
ur og veðurglöggur og náði stund-
um róðri fram yfir aðra báta.
Þá tel ég að hann hafi verið al-
kunnugastur allra Eyjaformanna
á sinni tíð á öllum fiskimiðum og
hraunum við Eyjar, áður en botn-
dýptarmælarnir voru teknir í
notkun og er þá mikið sagt, því að
margir voru þeir glöggir og miða-
kunnugir Eyjaformennirnir. Hann
var alla tíð ágætur fiskimaður og
vetrarvertíðina 1949 varð hann
aflahæstur á vertíðinni og fiski-
kóngur Vestmannaeyja.
Þorgeir var formaður í sam-
fleytt 35 vetrarvertíðar síðasta ár-
ið 1960. Þá var hann með mb. Von
VE 113, sem þeir Holtsbræður
áttu, frændur hans. Þeir voru
systrasynir.
Þorgeir átti einn albróður, Guð-
mund Eyjólf, sem var tæpum 3 ár-
um yngri en hann.
Það var Þorgeiri Jóelssyni sár
söknuður og harmur þegar tveir
bræðrasynir, hans Jóel og Bjarni,
synir Guðmunds fórust með mb.
Báru VE 141 í Faxaflóa 4. mars
1981.
Þorgeir átti fimm hálfsystkini,
eina systur og fjóra bræður. Þau
eru nú tvö eftir á lífi og bæði bú-
andi í Vestmannaeyjum, Þórdís
gift Emil Andersen skipstjóra og
útgerðarmanni og Sigurður Ingi
útgerðarmaður og formaður giftur
Fanneyju Ármannsdóttur. Fyrri
kona Þorgeirs var Guðfinna Lár-
usdóttir frá Álftagróf í Mýrdal og
eignuðust þau saman tvær dætur,
Láru sem gift er Sveini Valdi-
marssyni skipstjóra frá Varmadal
Vestmannaeyjum og eiga þau
tvær dætur, og Þorgerði Sigríði
gifta Kjartani Friðgeirssyni bif-
vélavirkja frá Hvíld í Vestmanna-
eyjum og eiga þau þrjú börn og
búa í Kópavogi.
Seinni kona Þorgeirs var Mar-
grét Pétursdóttir frá Norðfirði,
ekkja Valdimars heitins Sveins-
sonar í Varmadal, Vestmannaeyj-
um. Eins og flestir Eyjabúar
fluttu þau Margrét og Þorgeir
burt frá Eyjum fyrstu gosnóttina
23. janúar 1973. Settust þau þá að
hjá vinafólki Margrétar í Keflavík
og voru þar í eitt ár; fluttu síðan í
Eyjaholt í Garði og bjuggu þar í
Viðlagasjóðshúsi, í nábýli við
frændur og vinafólk, þar til þau
fluttu aftur út til Eyja. Síðast
bjuggu þau hjón í mjög vistlegri
íbúð á elliheimilinu Hraunbúðum.
Nokkur síðustu æviár sín var
Þorgeir heilsuveill, en bar það með
kjarki og karlmennsku.
Hann andaðist í Landakotsspít-
ala eftir uppskurð og sex daga
veru þar hinn 13. febrúar sl.
Minningarathöfn hans fór fram
í Kópavogskirkju föstudaginn 17.
febrúar og var kirkjan þéttsetin
skyldfólki hans og vinum.
Jarðarför Þorgeirs Jóelssonar
fer fram frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum í dag, laugardag.
Veri kær frændi kvaddur og
Guði falinn.
Eyjólfur Gíslason