Morgunblaðið - 25.02.1984, Page 48

Morgunblaðið - 25.02.1984, Page 48
STAÐFEST LANSIRAUST LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Krafa um gæzlu yfir þremur feðgum: Grunaðir um ránið í Iðnaðar- bankanum og á Laugaveginum Rannsóknarlögregla ríkisins gerði síðdegis í gær kröfu um gæzluvarðhald yfir feögum, — föður og tveimur sonum hans um tvítugt, vegna tveggja rána, sem framin voru í Reykjavík á dögunum, þegar 364 þúsund krónum var stolið úr útibúi Iðn- aðarbankans í Breiðholti og þeg- ar 1840 þúsund krónum var rænt af tveimur starfsmönnum ÁTVR fyrir utan útibú Lands- banka íslands á Laugavegi. Þeir eru grunaðir um að hafa sameig- inlega staðið að báðum ránun- um. Kröfurnar eru ekki samhljóða. Krafa um gæzlu yfir föðurnum og öðrum syni hans er til 7. marz en til 14. marz yfir hinum syni hans. Grunur leikur á að sá hafi verið að verki í Iðnaðarbankanum en óljóst er hvernig þeir eiga að hafa skipt með sér verkum við ránið á leigu- bifreiðinni og fénu af starfs- mönnum ÁTVR fyrir utan Lands- bankann. Jón Abraham Ólafsson, Ábyrgðartrygg- ingar bifreiða: Um 20% hækkana- beiðni til umræðu Samstarfsnefnd bifreiða- tryggingafélaganna hefur haft til athugunar afkomu bifreiða- trygginga í þeim tilgangi að gera tillögur til Tryggingaeftirlitsins um hækkun iðgjalda ábyrgðar- trygginga. Nefndin hefur ekki lokið störfum, en samkvæmt heimildum Mbl. mun nefndin leggja til eftir helgi, að iðgjöldin hækki samtals frá 1. marz 1983 til 1. marz 1984 í kringum 20%. Gjalddagi ábyrgðartrygg- inga er 1. marz, en frá 1. marz 1983 hafa tryggingafélögin enga áfangahækkanir fengið. Þau fóru fram á áfangahækk- un 1. júní sl. en ráherra hafn- aði þvi að fenginni tillögu Tryggingaeftirlitsins. Sex tryggingafélög af átta eru með gjalddaga húftrygginga (kaskó) 1. maí ár hvert og verður síðar, að lokinni könn- un samstarfsnefndarinnar, lögð fram beiðni um hækkun þeirra. Feðgarnir eru grunaðir um að hafa sameiginlega staðið að ránunum í Iðnað- arbankanum og við Landsbankann. sakadómari, tók sér frest til síð- degis í dag til að taka afstöðu til kröfu RLR. Samkvæmt heimildum Mbl. var faðirinn stöðvaður á Keflavíkur- flugvelli ásamt sonum sfnum á leið til Bandaríkjanna síðdegis á fimmtudag. Rannsóknarlögreglu- menn sátu fyrir þeim og stöðvuðu för þeirra. Yfirheyrslur stóðu yfir í alla fyrrinótt og í kjölfarið var krafan um gæzluvarðhald sett fram. Engar játningar liggja fyrir, né hefur féð komið í leitirnar eða byssan, sem notuð var til verknað- arins á Laugavegi. Maðurinn mun hafa skrifstofu skammt frá þeim stað í Brautarholti þar sem mannlaus leigubifreiðin fannst skömmu eftir ránið á Laugavegi. Það vakti athygli, að ræninginn virtist ekki hafa skipt um bifreið í Brautarholti. Sporhundar röktu slóð hans, þó ekki hafi það leitt til niðurstöðu. Faðirinn er af bandarísku bergi brotinn, 58 ára gamall. Hann fluttist hingað til lands fyrir mörgum árum. Hann hefur ekki áður komið við sögu afbrota hér, né synir hans. Þórir Oddsson, vararannsóknarlögreglustjóri, vildi ekkert tjá sig um rannsókn málsins. Sagði aðeins að rann- sóknin væri á sérlega viðkvæmu stigi. Frá fundi Hlífar um samninginn í gær. MorminblaAiA/Krutján Einnrsnnn Karl náði alþjóðleg- um áfanga NÍUNDA umferö Keykjavíkur- skákmótsins var tefld á Hótel Loftleiöum í gærkvöldi og af úr- slitum má m.a. nefna að Margeir Pétursson og Jóhann Hjartarson gerðu jafntefli, svo og Jón L. Árnason og Reshevsky. Þá vann Karl Þorsteins Zaltsman og náði 1. áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli. Þá á Helgi betri biðskák á móti Lobron. Biðskákir verða tefldar fyrir hádegi í dag, en 10. umferð mótsins hefst kl. 14.00. Önnur helstu úrslit: Schneider — deFirmian 1—0 Wedberg — Geller 0—1 Christiansen — Ornstein 1—0 Ree — Balashov '/4 — 'A Shamkovich — McCambridge 1—0 Ostermeyer — Byrne 1—0 Chandler — Knezevic 1—0 King — Friðrik Ólafsson bið Guðm. Sigurjónsson — Meyer 1—0 Eftir 9. umferð er staða efstu manna sú að Jóhann er efstur með l'h vinning, í 2.-4. sæti eru þeir Margeir, Reshevsky og Schneider með 6V4 vinning. I 5.—10. sæti eru þeir Jón L., Christiansen, Ornstein, Sham- kovich, Geller og Karl Þorsteins með 6 vinninga. í næsta sæti fyrir neðan er m.a. Helgi Ólafss- on, en hann gæti komist upp í hóp næstefstu manna, vinni hann biðskák sína, sem líkur eru á. Alþjóðaskákmót í Grindavík NOKKRIR helstu skákmenn landsins munu taka þátt í alþjóða- skákmótinu „Bláa lónið-Festi", sem hefst í Grindavík á miðviku- daginn. Einnig er búist við að nokkrir útlendingar taki þátt í mótinu, þeirra á meðal Larry Christiansen og séra William Lombardy. Það er tímaritið Skák, sem stendur fyrir mótinu í félagi við bæjaryfirvöld í Grindavík og Samband sveitarfélaga á Suður- nesjum. Teflt verður í félags- heimilinu Festi í Grindavík en þátttakendur munu búa í gisti- húsinu Bláa lóninu í Svartsengi, að sögn Jóhanns Þóris Jónsson- ar, ritstjóra tímaritsins Skákar. 2% launauki í bónus gerði út- slagið í ályerssamningunum SAMNINGAR tókust í kjaradeilu starfsmanna og framkvæmdastjórn ar álversins í Straumsvfk á tíunda tímanum í gærmorgun, eftir um það bil 20 tíma samningafund, sem hófst skömmu eftir hádegið á fimmtudag. Samkomulagið felur í sér 5% kaup- hækkun frá og með undirritun samnings, 2,5% þann 14. aprfl, 2,5% þann 14. september og 3% 1. janúar 1985, en samningstíminn er til 31. mars 1985. Þá fela samningarnir einnig í sér samkomulag um afkastahvetj- andi kerfi, svonefndan álhvata, og lagfæringar á framleiðsluhvetj- andi kerfi sem fyrir var. Sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins munu þær lagfæringar vera metnar til 2% í launum, og urðu þær til þess að samningar náðust, þegar aðeins tæpir 36 tím- ar voru þar til að framleiðsla í álverinu yrði stöðvuð. Þá er einnig í samningunum samið um hækkun starfsmanna í lægstu flokkum og fleira. Álhvatinn nemur rúmlega 6% í launum á ári miðað við há- marksframleiðslu, 84 þúsund tonn á ári. Samningarnir eru uppsegj- anlegir 1. september og 1. janúar 1985. Upp úr samningaviðræðum slitnaði aðfaranótt miðvikudags- ins var og sá þá ríkissáttasemjari ekki ástæðu til að halda samn- ingaviðræðum áfram eins og staða málsins var þá. Hann boðaði síðan til nýs fundar á fimmtudags- morgun og stóð sáttafundur óslit- ið þar til samningar höfðu tekist. „Þetta er búin að vera erfið deila og standa lengi. Þess vegna er ég mjög feginn því að henni skuli lokið með því að samningar hafa tekist," sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari um lausn deilunnar. „Fresturinn á framkvæmd verkfallsins gaf mönnum tíma til að hugsa þessi mál og á fimmtudagsmorguninn var ljóst að aðilar höfðu gert það, þannig að rétt væri að reyna aft- ur,“ sagði Guðlaugur ennfremur. Atkvæði voru greidd um samn- ingana í þeim verkalýðsfélögum sem aðild eiga að samningunum og voru þeir samþykktir með góð- um meirihluta. Meðal annars sem samningarn- ir fela í sér, er frestun fram- leiðslustöðvunar um a.m.k. 2 vikur eftir að verkfall skellur á f stað 4 áður. Sjá umsagnir og fleiri samn- ingafréttir í miðopnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.