Morgunblaðið - 18.03.1984, Page 41

Morgunblaðið - 18.03.1984, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984 41 Páll Magnússon frá Bitru - Minning Fæddur 15. janúar 1894 Dáinn 16. febrúar 1984 Páll Magnússon frá Bitru, fyrrv. starfsmaður Bögglaafgreiðslu KEA á Akureyri, lést hinn 16. f.m. háaldraður og farinn að heilsu og líkamskröftum. Hann var jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju 23. febrúar, og flutti aldavinur hans, sr. Birgir Snæbjörnsson, honum fallega kveðju við það tækifæri og minntist hans hlýlega sem verð- ugt var. Páll var um sína daga vel þekktur maður á Akureyri og í eyfirskum sveitum, vinmargur og kunnur fyrir háttvísi og ráð- vendni. Páll var Eyfirðingur að ætterni, fæddur 15. janúar 1894 í Bitru í Glæsibæjarhreppi. Voru foreldrar hans hjónin Magnús bóndi í Bitru Tryggvason frá Vöglum í Hrafna- gilshreppi og Sigríður Krist- jánsdóttir, einnig ættuð úr Fram- Eyjafirði. Magnús í Bitru var dug- legur bóndi, en ráða má af líkum, að heimilið hafi verið þungt og ekki auður í garði, þótt þar virðist öllu hafa reitt vel af vegna dugn- aðar hjónanna og barnaláns, þótt mörg væru börnin. Alls voru Bitrusystkin 9 talsins, fædd á ára- bilinu 1892—1906 og komust öll til fullorðinsára, lifðu fram á gam- alsaldur, 3 bræður og 6 systur. Bræðurnir voru ólafur, sundkenn- ari á Akureyri, Páll, sem hér er minnst, og Tryggvi, póstfulltrúi í Reykjavík. Voru þeir bræður elstir systkinanna og mjög jafnaldra. Systurnar voru: Kristín, giftist Finni Sigmundssyni landsbóka- verði í Reykjavík, María átti Karl Kristjánsson á Akureyri, Jónína, sem býr á Akureyri, giftist Guð- mundi Baldvinssyni frá Sólborg- arhóli, Lára, ógift og barnlaus, bjó í Reykjavík, Anna, á heima á Ak- ureyri, ógift, og Septína, bjó á Ak- ureyri, ógift, en átti eina dóttur. Öll eru þessi systkin nú látin nema þær María, Jónína og Anna, sem eiga heima á Akureyri. Það varð Bitruheimilinu mikið áfall, þegar Magnús Tryggvason dó á besta aldri frá konu og 9 börnum, því elsta 17 ára og því yngsta þriggja ára. Páll var þá 15 ára þegar faðir hans féll frá. Sig- ríður Kristjánsdóttir hélt áfram búskap nokkur ár eftir lát manns síns, og naut þar sinna tápmiklu sona, Olafs og Páls, en Tryggvi var í fóstri hjá föðurfólki sínu á Vögl- um. Ólafur giftist burtu og fór að búa á annarri jörð þar í sveitinni, og fluttist þá forstaða heimilisins mjög á hendur Páli, sem ætíð vann móður sinni og ungum systr- um, svo að heimilið sundraðist aldrei, þótt fjölskyldan flyttist frá Bitru og hætti þar búskap. Fer ekki milli mála að þá vann Páll mikið og óeigingjarnt starf fyrir móður sína og systur, þegar mest reið á. Má geta nærri að vinnan sat þar algerlega í fyrirrúmi, enda munu ekki tvímæli á, að Páll not- aði hverja stund og hvert tækifæri til þess að vinna fyrir heimilinu og verða móður sinni að liði í erfiðri lífsbaráttu. Skólanám kom auðvit- að ekki til greina. Hjá Páli varð brauðstritið því snemma aðal- hlutskiptið, og ekki varð annað séð en að hann yndi því án minnstu beiskju. Hann var vel að manni, mikill verkmaður og eftirsóttur til vinnu af þeim, sem slíku réðu. Lengi vann hann við sprengingar í grjótnámi Akureyrarbæjar og e;t.v. víðar, sannkallaða erfiðis- vinnu. Frá 1945 og fram yfir sjötugt var Páll starfsmaður Kaupfélags Eyfirðinga, fyrst í þjónustu kjöt- búðar, en lengst af starfandi i „Bögglaafgreiðslunni", sem svo er Anna Ólafs- dóttir - Minning Fædd 11. desember 1920 Dáin 9. mars 1984 Það er með sanni sagt að aldrei erum við tilbúin að heyra þá frétt að ástvinur sé látinn, þó öll skyn- semi hafi sagt síðustu vikur, að það var orðið það eina sem gat bundið enda á þjáningar Önnu og gefið henni frið. Margar hugsanir komu upp í huga okkar er við fylgdumst með veikindum hennar og vonin og vanmátturinn voru hlið við hlið. Anna frænka okkar var fædd í Reykjavík og var fjórða af níu börnum þeirra hjóna Þóru P. Jónsdóttur og ólafs J. Jónssonar múrara. Hún fluttist ung með for- eldrum sínum að Reynisvatni í Mosfellssveit og ólst þar upp með sex systkinum sínum sem eru: Geirlaug, Jón, Sigríður, Guðríður, Jóhanna og Kristinn, en tvær systur eru látnar, en þær hétu Geirlaug og Björg. Anna bast traustum böndum við Reynisvatn. Hún hafði næmt auga fyrir allri fegurð og mörg málverkin eru til eftir hana, þar sem fram kemur það sem hún kom auga á og var henni svo kært. Reynisvatn var myndarlegt býli, og þar var Anna í umhverfi sem henni þótti vænst um, innan um fólkið sitt og ekki síst innan um skepnurnar sínar. Anna starfaði í Reykjavík langan tíma við ýmsar atvinnugreinar og þar á meðal við saumastofuna Oltíma mörg ár, en fór allar helgar upp að Reynis- vatni til hjálpar. Þegar faðir hennar lést, 25. september 1965, fluttist hún alveg að Reynisvatni og hélt þar bú með móður sinni og þræðrum, þar til þau fluttust fyrir fjórum árum að Mávahlíð 3, Reykjavík. Það hefur trúlega ekki verið létt verk fyrir Önnu að flytja frá Reynisvatni en hún tók því eins vel og hægt var og það voru ófáar ferðir sem hún átti eftir að fara þangað uppeftir til að líta eftir landinu sínu. Anna giftist aldrei né eignaðist börn, en okkur segir svo hugur um að fáar mæður hafi eignast eins stóran barnahóp og Anna. Systkinabörnin voru mörg. og alltaf gat Anna bætt einu við. Við systkinabörnin erum þakklát Önnu fyrir svo margt. Hún var okkur allt sem börn þrá, góð, sönn frænka og vinur. Nú er við kveðjum Ónnu verður okkur hugsað til ömmu, sem hefur nú enn misst mikið. Megi góður Guð gefa henni styrk, systkinum og öðru frændfólki. Blessuð sé minning hennar. Systkinabörn nefnd og þekkt hefur verið sem eins konar miðstöð samgangna um sveitir Eyjafjarðar. Naut Páll sín vel í þessu starfi og leysti það ágætlega af hendi. Mun Páli hafa þótt skemmtilegt og tilbreytinga- samt að vinna 1 bögglaafgreiðsl- unni, þangað átti margur erindi og jafnan mikið um að vera. Persónu- eigindir Páls nutu sín á þessum stað, góðvild hans og hjálpsemi, snyrtimennska hans og ráðvendni. Auk þess var það svo að þó að Páll træði sér hvergi fram, var hann í eðli sínu mannblendinn og félags- lyndur og dró sig ekki í skel, síst af öllu í hópi vina og jafningja. En það voru einmitt slíkir menn, sem lögðu leið sína á bögglaafgreiðsl- una. Þar verða reyndar allir jafnir um leið og þeir koma inn fyrir dyr. Páll kvæntist 16. maí 1931 Helgu Jónsdóttur frá Öxl í Húna- vatnssýslu, einarðlegri og gáfaðri konu, sem mikið lét að sér kveða í ýmsum félagsmálum á Akureyri á sinni tíð. Þau Páll voru ekki bráð- ung þegar þau gengu í hjónaband, og talin voru þau býsna ólík að gerð. Þau virðast þó hafa átt ým- islegt sameiginlegt því sambúð þeirra varð hin farsælasta og síst verri en margra hjóna, sem stofn- að hafa til hjúskapar síns fyrir girndarráð ein saman. Þau Helga og Páll áttu friðsælt og fallegt heimili að Oddeyrargötu 6. Þar ríkti gestrisni, myndarskapur, ættrækni og tröllatryggð við þá, sem þau gerðu að vinum sínum. Helga Jónsdóttir lést 20. júlí 1969. Upp úr þvi flyst Páll á Dval- arheimilið Hlíð á Akureyri og átti þar heimili til dánardægurs. Sr. Birgir skýrði frá því i útfararræð- unni, að Páll hefði gefið Akureyr- arkirkju peningagjöf til minn- ingar um konu sína, og var upp- hæðinni ráðstafað til sjóðs, sem Kvenfélag Akureyrarkirkju hafði stofnað í því skyni að kosta flóð- lýsingu kirkjunnar hið ytra. Ann- að sem Páll Magnússon lét af hendi rakna við góð málefni verð- ur ekki rakið hér, en á margan hátt liösinnti hann náunga sínum og þau hjón bæði, en ekki varð þeim barna auðið saman og eiga þau enga niðja. Páll hafði góða líkamsburöi og var vel á sig kominn. En að lokum féll hann eftir nokkuð stranga glímu við Elli kerlingu, þá glímu sem enginn vinnur, sem í henni lendir. Mér virðist ævi Páls hafa verið einkar farsæl og að hann hafi skilað merkilegu dagsverki eins og reyndar öll þau Bitru- systkin, sem verið hafa sérlega vel látin og góðir þegnar talin. Blessuð sé minning Páls Magn- ússonar. lngvar Gíslason Guðmundur Guðna- son - Minningarorð Fæddur 13. október 1892 Dáinn 8. mars 1984 Kveðja til afa í gegnum líf, í gegnum hel, er Guð mitt skjól og hlíf, þótt bregðist, glatist annað allt, hann er mitt sanna líf. (Sálmur.) Er við kveðjum nú afa okkar systkinin, koma margar minn- ingar í huga okkar um eina afann okkar sem við áttum að, frá því við munum eftir okkur, sérstak- lega þó okkar fjögurra elstu sem munum heimsóknirnar til hans um næstum hverja helgi þegar við vorum lítil, og höfðum gaman af kisunum hans sem hann átti alltaf nóg af. Þegar við svo uxum úr grasi fór þessum heimsóknum fækkandi, en samt var litið inn til afa svona öðru hverju þegar hann var fluttur á Vesturgötuna. Afi bjó til góðan mat, og hafði gaman af ef von var á einhverju okkar, t.d. í hádeginu á virkum degi, var hann búinn að malla eitthvert góðgæti þótt tíminn væri naumur fyrir hann sjálfan, þar sem hann var í matarhléi frá sinni vinnu. Við munum atriði sem birtast okkur eins og værum við að skoða gamlar myndir, t.d. hvað þáð var gaman að heimsækja afa í gulu vinnuskúrana sem verkamenn höfðu sem kaffi- og matarskúra og var vel heitt þar inni, munum við eftir kolaofni eða nokkurskonar kamínu sem hitaði vel, og gaman var að öllum þessum körlum sem þar voru kátir og barngóðir. Afi missti konu sína, Ingveldi Árnadóttur, árið 1942 og stóð hann þá einn með börn sín fimm, pabba okkar, Lúðvík Rúdólf Kemp, elstan, þá 12 ára, Maríu (dáin 1982) þá 11 ára, Guðríði 8 ára, Ásu Ingu 1 árs og Ingveldi Sigríði, þá nýfædda. Lét afi skíra þær Ásu og Ingveldi við útför konu sinnar. Þetta hlýtur að hafa verið erfitt fyrir verkamann að sjá ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. einn fyrir sínum, án allrar þeirrar hjálpar sem hægt er að fá í þjóð- félaginu í dag. Aldrei giftist afi aftur en hvílir nú við hlið konu sinnar. Þrátt fyrir það að afi ætti 20 barnabörn og 12 barnabarnabörn voru heimsóknir okkar barnanna til hans nú síðustu árin alltof fáar og jafnvel engar hjá sumum okkar, nú vitum við þó að honum líður vel á meðal þeirra sem hann unni mest, en voru farnir á undan honum þangað sem við mfhum öll hittast einhvern timann aftur. Þá hrörnar sjónin, heyrn og mál, mig heyra lát það innst í sál af vinarvörum þínum, hve himnaríkið indælt er, og að þú hafir búið mér, þar vist og vinum mínum. (Sálmur.) Kveðjum hér elsku afa okkar. Ásta, Ingvar, Nonni, Guðni, Eygló og Bryndís. Kveðja til langafa Vertu nú yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir þinni. Guðrún Elín Þessir krakkar eiga heima í Stykkishólmi, en fyrir alllöngu færðu þau St. Franciskussystrum í spítalanum þar peningagjöf til nýbyggingar spítalans, en peningunum höfðu þau safnað í nýju hverfi þar í bænum, sem heitir „Á Flötunum". — Myndin er samsett úr tveimur myndum en á þeim eru Þorbjörn Geir Ólafsson, Sólrún Inga Ólafsdóttir, Magnús Ingi Bæringsson og Kristborg Hermannsdóttir. Síðan koma Sæunn Grétarsdóttir, Linda Sólveig Ragnars- dóttir, Guðrún Antóniussen og Sóley Hrönn Sigurþórsdóttir. Lokað mánudaginn 19. mars nk. frá kl. 1—6 vegna jaröar- farar GUÐFINNU H. STEINDÓRSDÓTTUR. Eldaskálinn, Grensásvegi 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.