Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
100.000 lestir af leyfðum loðnukvóta nást ekki:
Hefðu gefið 411 milljónir í
útflutningsverðmætum í haust
en aðeins 253 milljónir nú
FYRIRSJÁANLEGT virðist nú að ekki
náist um 100.000 lestir af leyfðum
loðnukvóta. Sjómenn og útgerðar-
menn telja að þar sé helzt um að
kenna þeirri ákvörðun, að ekki var
leyft að hefja veiðar fyrr en í nóvem-
ber, en loðnan er feitust og verðmæt-
ust fyrr á haustin. I»á var afurðaverð
einnig í hámarki. Miðað við að þa r
100.000 lestir, sem ekki nást, hefðu
verið teknar í september eða október,
hefðu þær gefið um 411 milljónir
króna í útflutningsverðmæti, cif.
Morgunblaðið innti Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóra
LlU, álits á þessu og sagði hann, að
svona mistök væru vissulega dýr og
yrðu ekki bætt, þar sem ekki næðist
það magn, sem annars hefði verið
hægt að ná í haust, þegar loðnan
hefði verið feitari. Nú fengjum við
nánast vatn í stað lýsis. Hefði end-
anlegt magn legið fyrir þegar t
haust, hefði verið hægt að byrja
miklu fyrr, viðbótin hefði komið allt
of seint til að bæta úr. Þess vegna
yrði þess vonandi gætt í haust, að
ekki yrði um sömu mistökin að ræða
aftur.
Þá má taka það inn í dæmið líka,
Samningaviðræður:
Dagsbrún
og VSÍ
FBM-FÍP
FUNDUR í kjaradeilu Dags-
brúnar og VSI, sem hófst kl.
10 í gærmorgun, stóð enn um
miðnætti. Hlé var gert milli kl.
12 og 16 í gær. Var deilan á
mjög „viökvæmu stigi“ undir
miðnættið.
Samningahljóð hafði verið
í deiluaðilum í upphafi fund-
ar en er á leið urðu samn-
ingamenn fastari fyrir. Seint
í gærkvöldi virtist sem
niðurstaðan gæti orðið á
hvorn veginn sem var: Ann-
aðhvort tækist fljótlega að
ná samkomulagi eða þá að
viðræðurnar sigldu í strand.
Um miðnætti stóð og enn
samningafundur bókagerð-
armanna og prentsmiðjueig-
enda og var ekki útlit fyrir
að samningar tækjust í nótt.
Nokkuð hafði þó miðað í
þeim viðræðum, skv. upplýs-
ingum Mbl.
Ósamiö við
Sókn og
blikksmiði
„VH> IIÖFIJM verið að ræða við okkar
viðsemjendur, en það hefur ekkert
fréttnæmt gerst ennþá í viðræðunum,"
sagði Kristján Ottóson, formaður
Klikksmiðafélags íslands í samtali við
Morgunblaðið.
Hann sagðist búast við að viðræð-
um yrði haldið áfram og vonaðist
fljótlega eftir niðurstöðu, sem síðan
yrði lögð fyrir félagsfund.
Annað félag sem felldi samning-
ana og ósamið er við, er Starfs-
mannafélagið Sókn. Haldinn verður
félagsfundur í félaginu næstkom-
andi mánudag, þar sem ný kröfugerð
verður kynnt.
að sú loðna, sem nú veiðist, er mun
magrari og afurðarverð lægra, að
100.000 lestir nú gefa aðeins rúmar
253 milljónir króna. Miðað við af-
urðaverð í október og verð til
bræðslu eins og það var í upphafi
vertíðar (1.330 krónur á lest miðað
við 16% fituinnihald og 15% þurr-
efnisinnihald) lítur dæmið þannig
út: Verð á 100.000 lestum til skipta
133 milljónir, auk 39% til útgerðar
utan skipta rúmlega 51 milljón,
samtals tæpar 185 milljónir króna.
Afurðaverð þá var 8 dollarar á prót-
eineiningu mjöls og 420 dollarar á
lýsislestina og miðað við áðurnefnd
hlutföll fitu og þurrefnis, hefðu
100.000 lestir af loðnu gefið 14.500
lestir af lýsi að verðmæti rúmar 169
milljónir króna og 16.000 lestir
mjöls að verðmæti tæpar 242 millj-
ónir króna, samtals um 411 milljón-
ir króna.
Sé litið á dæmið í marzmánuði og
ekki tekið tillit til hrognatöku (verð
til skipta 660 krónur lestin miðað
við 8% fituinnihald og 16% þurrefn-
isinnihald. Afurðaverð, próteinein-
ing mjöls 6,35 dollarar og lýsislestin
400 dollarar), gefa 100.000 lestir nú
66 milljónir til skipta auk 39% til
útgerðar utan skipta tæpar 26 millj-
ónir króna, samtals tæpar 92 millj-
ónir; 16.500 lestir af mjöli að verð-
mæti tæpar 207 milljónir og 4.000
lestir af lýsi á rúmar 46 milljónir,
samtals rúmar 253 milljónir króna.
í þessum útreikningum skal það
tekið fram að útflutningsverðmæti
miðast við meðalgengi dollars i
október annars vegar og marz hins
vegar.
Yfirtekur SÁÁ
áfengisvarnadeild
borgarinnar?
„HUGMYNDIR um að SAA taki að
sér rekstur áfengisvarnadeildar
Heilsuverndarstöðvarinnar hafa
lengi verió á döfinni, jafnvel í nokk-
ur ár. Þær umræður gætu verið á
lokastigi núna,“ sagði Davíð
Oddsson, borgarstjóri, í samtali við
blm. Morgunblaðsins.
„Þetta er ekki ákveðið en gæti
orðið,“ sagði borgarstjóri. „Menn
sjá í því ákveðna hagræðingar-
möguleika, að einn aðili annist
þessa starfsemi í stað tveggja.
Samtök áhugafólks um áfengis-
vandamálið, SÁÁ, og áfengis-
varnadeildin hafa starfað hlið við
hlið, til dæmis á sjúkrastöðvum
samtakanna. Það er því ef til vill
ekki óeðlilegt, að þetta starf verði
á einni hendi."
— Er það ekki nokkuð mikil
grundvallarbreyting ef einkaaðiii
eins og SÁÁ fer að taka að sér
ákveðinn þátt heilbrigðisþjónust-
unnar?
„Það þarf ekki að vera,“ sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri.
„Vegna þess að þessir aðilar hafa
starfað hlið við hlið er þetta ekki
eins stórt skref og ella. Málið
verður væntanlega rætt í heil-
brigðisráði borgarinnar í næstu
viku en endanlega verður tekin um
það ákvörðun í borgarstjórn og
borgarráði.“
Ríkisstjórnin fjallar um fjárlagagatið:
r-
Veöríð og vortízkan
Veðrið og vortízkan fara ekki alltaf saman. Um þessar mundir er
vortízkan að berast til landsins frá tízkufrömuðum umheimsins, þar um
ráðum við vist litlu. Enn minna ráðum við um sveiflur og umhleypinga
veðurguðanna og með vortízkunni veita nú lægðir úr suðvesturátt vetri
konungi lið í lífsbaráttu hans gegn vorkomunni og tízku þeirri, sem
henni fylgir.
Frumvarpsdrögum er haldið
leyndum fyrir stjórnarliðum
- á meðan ráðherrar reyna að ná samkomulagi
DRÓG AÐ frumvarpi til laga um
ráðstafanir í ríkisfjármálum voru
til umfjöllunar á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun. í frumvarpinu
eru gerðar tillögur um hvernig
brúa megi hið svonefnda fjárlaga-
gat upp á tæpa tvo milljarða kr.
Samkvæmt heimildum Mbl. er
þar m.a. reiknað með niðurskurði,
frestun nýframkvæmda og bent
er á þá leið að taka sölu-
skattsálagningu til endurskoðun-
14 sækja um stöður
útvarpsfréttamanna
FJÓRTÁN umsóknir höfðu borist um
stöður tveggja fréttamanna útvarpsins
þegar skrifstofum þar var lokað síð-
degis í gær. Umsóknarfrestur rann út á
miðnætti. Ekki er útilokað, að umsókn-
irnar verði ræddar á fundi útvarpsráðs,
sem hefst árdegis í dag.
Um er að ræða stöður þeirra
Gunnars E. Kvaran og Helga H.
Jónssonar, sem báðir sögðu stórfum
sínum lausum þegar beiðnum þeirra
um launalaus ársleyfi hafði verið
synjað. Hverfa báðir til starfa á öðr-
um stöðum.
Önnur staðan er laus frá og með 1.
apríl, hin frá og með 1. maí.
ar, bæði hvað varðar undanþágur
og eftirlit með innheimtu. For-
sætisráðherra hefur boðað ráð-
herra síns flokks til fundar síð-
degis til að fjalla um málið og hið
sama munu ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins gera, en fyrirhugað er
að ná pólitískri samstöðu innan
ríkisstjórnarinnar, áður en málið
verður kynnt í þingflokkum
stjórnarliða.
Frumvarpsdrögin voru unnin
af hópi embættismanna, ásamt
formanni og varaformanni fjár-
veitinganefndar. Samstaða er
samkvæmt heimildum Mbl. um
að leggja tillögurnar fram á Al-
þingi í formi frumvarps um
ráðstafanir í ríkisfjármálum, þó
svo að reglugerðarbreytingar
nægi í mörgum þeirra tilvika
sem nú er a.m.k. fjallað um.
Samkvæmt heimildum Mbl.
gætti nokkurrar togstreitu í
umfjöllun ríkisstjórnarinnar
um málið í gærmorgun og var
ekki ljóst í lok fundarins, hvort
pólitísk samstaða næst þar um
tillögurnar, eins og þær liggja
nú fyrir. Funda ráðherrar hvors
flokks fyrir sig í dag og verða
tillögurnar áfram til athugunar
um helgina. Vilji er fyrir því að
hraða málinu og sagði einn ráð-
herra Framsóknarflokksins í
viðtali við Mbl. í gærkvöldi, að
hann vænti þess að ríkisstjórn-
in gæti afgreitt málið til þing-
flokkanna á fundi sínum á
þriðjudag.
Spennu gætir innan þing-
flokka stjórnarliða vegna máls
þessa, og töldu viðmælendur
Mbl. úr þeirra hópi í gær, að
viðbúið væri að til deilna kæmi
þar, þegar tillögurnar sæju
dagsins ljós. Þrátt fyrir að
frumvarpsdrögunum hafi verið
haldið mjög leyndum hafa ein-
staka hugmyndir kvisast út á
meðal þingmanna og valdið
hörðum viðbrögðum ýmissa
stjórnarliða. Megináhersla er
því lögð á það á þessu stigi, að
ná samstöðu meðal ráðherr-
anna um málið, fyrst ráðherra
stjórnarflokkanna hvors um sig
og síðan í ríkisstjórninni, áður
en þingmenn stjórnarflokkanna
fá nokkuð meira að vita um
málið.
Þýskaland:
Lágt ferskfisk-
verð á mörkuðum
LÁGT verd er nú á ferskfiskmörkuö-
um í Þýzkalandi vegna mikils fram-
boós á fiski þar. Því hefur verið lítið
um það, aö íslenzk skip selji afla
sinn þar, en þau, sem það hafa gert,
ha'a fengið mun lægra verð fyrir
r.ila sinn en var fyrr á árinu.
Ýmir frá Hafnarfirði seldi sam-
tals 179,3 lestir í Cuxhaven á mið-
vikudag. Heildarverð var 2.958.600
krónur, meðalverð 16,50. í gær
seldi Júlíus Geirmundsson ÍS
213,9 lestir í Bremerhaven. Heild-
arverð var 3.994.900 krónur, með-
alverð 18,68.