Morgunblaðið - 23.03.1984, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.03.1984, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 Hér er Tryggvi langt kominn með að járnbinda skrokkinn. Seglskúta úr steinsteypu Bolungarvík, 21. mare. STEINSTEYPA er til margra hluta nyLsamleg, en nokkuð nýnæmi þykir það að steypt sé seglskip úr sandi og sementi. Fréttaritari Mbl. í Bolungarvfk hafði tal af Tryggva Thorstensen tæknifræðingi, sem hafið hefur smíði á 20 tonna lysti- snekkju og er byggingarefnið járnbent steinsteypa. Tryggvi var fyrst spurður að því, hvort stein- steypa teldist ekki nokkuð óvenju- legt smíðaefni til skipasmíða? Tryggvi sagði að ekki væri hægt að segja það. Skip hafa lengi verið gerð úr steinsteypu og hefur sú smíðaaðferð töluvert verið notuð hérlendis. Hann kvað flesta kannast við flot- þrærnar, sem notaðar voru við síldarflutninga hér áður og þeim síðan sökkt í höfnum við bryggjusmíðar. Þessi ker virðast hafa staðið sig vel. Blm.: Það voru nú klunnaleg mannvirki steypt úr þykkri járnbentri steinsteypu og harla ólík seglskipum, eitthvað hlýtur steyputækni sú sem þá var notuð við smíði þessara þróa að vera frábrugðin þessari aðferð þinni. | Skútan virðist hið rennilegasta skip. „Jú, vissulega er aðferðin frábrugðin, en þó eru minni frá- vik frá hefðbundinni steypu- tækni en ætla mætti. í höfuðat- riðum er þetta ósköp venjuleg steinsteypa, sem sagt sandur og sement, en þó er bætt við örlitlu af kísilryki frá Járnblendiverk- smiðjunni í sementið til að gera það sterkara og þolnara. Aðal- atriðið er að steypan er höfð ör- þunn, meira en ein tomma á þykkt og vandað mjög um val á sandi þeim sem notaður er.“ Blm.: Hefur þessi tækni verið notuð áður? „Tækni sú að nota þunna járnbenta steinsteypu við skipa- smíðar hefur þekkst síðan einka- leyfi var veitt fyrir henni í Frakklandi árið 1855, en hún hefur lítið rutt sér til rúms fyrr en nú á síðari árum. Erlendis er þessi smíðaaðferð þekktust und- ir nafninu Ferro-Cement." Blm.: Hvenær kynntist þú notkun Ferro-Cement og hvernig stóð á því að þú valdir þetta óvenjulega efni? „Eg man ekki glögglega hve- nær ég heyrði þess getið í fyrstu, en líklega hefur það verið er ég stundaði nám í Þýskalandi í kringum 1970. Síðan hef ég margoft rekist á þetta í ýmsum ritum. FAO hefur gert tilraunir með smíði fiskibáta úr Ferro- Cement. Kúpumenn byggðu stór- an fiskveiðiflota úr þessu efni, Bandaríkjamenn steyptu skot- helda varðbáta í Víetnam-stríð- inu til varðgæslu á fljótunum, en nánust kynni hafði ég af þessu er ég heimsótti áhugamannaklúbb um Ferro-Cement í Danmörku sumarið 1980. Fékk ég þar að vita að nú eru u.þ.b. 200 steyptar skútur í smíðum þar og alls um 900 á Norðurlöndunum öllum. Fór þá áhugi minn fyrir þessu efni að vakna fyrir alvöru, en ég hafði verið mjög efins um nota- gildi steypunnar. Verð ég að við- urkenna, að hugmyndir mínar um eiginleika steypunnar byggð- ust á hefðbundinni notkun henn- ar, sem maður þekkir úr sínu nánasta umhverfi. Við nánari athugun varð ég þó að endurskoða hug minn og við- urkenna að steypan er mun fjöl- hæfara efni, en ég hafði ætlað. Má til að merkja minnast á það, að danskir vísindamenn kalla steypuna undraefni og framtíð- arbyggingarefni fyrir lystiskip, enda hafa þeir nú þegar fram- leitt kanó úr tveggja millimetra þykkri steypu og er hann lítt þyngri en samsvarandi plastbát- ur en mun endingarbetri. Bandaríkjamenn geta fram- leitt steypu, sem hefur álagsþol til jafns við stál og hafin er framleiðsla á steinsteyptum vélahlutum. Ástæðurnar fyrir Þannig kemur skútan til með að líta út fullbúin. því að ég valdi þennan bygg- ingarmáta eru þríþættar: 1. ódýr byggingarmáti: Kostnað- ur við skipsskrokkinn þ.e. byrð- ingur, dekk, tankar og vélaund- irstöður, er áætlaður minni en 150 þús. kr. í efniskaupum og sex mánaða vinna fyrir einn mann. Sparast hér meira en ein og hálf milljón króna, ef miðað er við trefjaplast sem byggingarefni. 2. Einföld smíði: Smíðaaðferð þessi krefst engrar sérkunnáttu og hverfandi lítils tækjakosts, verkefnið er því viðráðanlegt fyrir leikmann með takmarkaða aðstöðu. 3. Eiginleikar efnisins: Til sam- anburðar má nefna eftirfarandi kosti, sem Ferro-Cement hefur umfram hin hefðbundnu smíða- efni. Það fúnar ekki, ryðgar ekki, brennur ekki, gliðnar ekki { sól- arljósi, er ekki etið af ormi eða Járnbindinguna þarf að vanda vel. Tryggvi leggur síðustu hönd á binding- una við skrúfugatið. seltu, er létt, sterkt, ódýrt og endingargott." Blm.: Hvers vegna er þá efni þetta eingöngu notað til skipa- smíða? „Líklega má ætla, að fastmót- aðar hugmyndir um notkun steinsteypu ráði þar nokkru um. Man ég hve erfitt ég átti sjálfur með að endurskoða hugmyndir mínar um efnið. Auk þess eru efninu nokkur takmörk sett hvað varðar vinnuhagræðingu, en all- ur undirbúningur krefst mikillar og einfaldrar handavinnu, sem lítt þykir henta við fjöldafram- leiðslu. Þessi hindrun verður þó fljótlega yfirstigin þar sem vís- indamenn eru nú farnir að vinna steypuna í mótum líkt og gert er með trefjaplast." Blm.: Hvaðan færðu sandinn og sementið? „í samvinnu við Rannsókn- arstofnun byggingariðnaðarins má rannsaka hvort hægt sé að nota innlent. efni. Ég er því hlynntur að nota eingöngu inn- lent efni fáist jákvæð niðurstaða úr slíkri rannsókn, en mikið er í húfi að steypan tákist vel. Tel ég að notkun innlends efnis gæti orðið öðrum hvatning til að kynna sér hina fjölmörgu van- nýttu möguleika, sem steypan býður uppá í iðnaði." Blm.: Viltu ekki að lokum lýsa skútunni í stórum dráttum? „Langt er í það að skipið verði skúta þó skrokkurinn klárist í sumar. Samkvæmt teikningu er þetta 14,5 metra löng lysti- snekkja með fullkomnum vistar- verum í þrem tveggja manna ká- etum, borðsal, eldhúsi og böðum. Skipið er tvímastra, nefnist Ketch á ensku og hefur allan út- búnað til ótakmarkaðra siglinga á úthöfum. — Gunnar fomhjólp Nýja hljómplatan Heyr þú minn söng er til sölu í kaffistofunni Hverfisgötu 42 alla virka daga kl. 13—17. Tekiö er á móti póstpöntunum í síma 11000 og 10477 virka daga kl. 9—17. Samhjálp. Styrkir til háskólanáms í Frakklandi Frönsk stjórnvöld bjóöa fram sjö styrki handa íslendingum til háskólanáms í Frakklandi á skólaárinu 1984—85. Þrír styrkj- anna eru til náms í frönskum bókmenntum, tveir í málvísindum, einn í leikhúsfræöum og einn í höggmyndalist (Arts plastiques) Umsóknarfrestur um myndlistarstyrkinn er til 4. apríl, en hina sex til 18. apríl nk. Umsóknum, ásamt staöfestum afritum af prófskírteinum og meömælum, skal skila til menntamála- ráöuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Umsókn um styrk til náms í höggmyndalist skulu fylgja myndir af verkum um- sækjanda. — Umsóknareyðublöö fást í ráðuneytinu. Menntamálaráöuneytiö. 21. mars 1984. Jk .__yíT?S_ V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.