Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 13

Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 13 / Hægt að tyggja sauð- naut með augnalokunum Rætt við Finnbjörn Finnbjörnsson flugmann um flug hans á Grænlandi og sauðnaut Finnbjörn í návígi við sauðnaut. Hann reyndi að klappa því, en þá sneri nautið sér undan og stangaði nærstatt bjarg svo undir tók í næsta nágrenni. Dýrin lifa saman í hjörðum og afkvæmin fylgja foreldrunum í mörg ár. Hér eru þrír fjölskyldu- meðlimir saman komnir. „SAUÐNAUT eru, eins og nafnið gefur til kynna, eins konar sam- bland af sauð og nauti. Gæran er ekki ósvipuð rollugæru, en þó þétt- ari og hlýrri, enda þykja sængur úr , sauðnautaull þær alfínustu sem hægt er að fá. Að stærðinni til stendur sauðnautið hins vegar nær beljunni, og hornin eru eins og á buffaló. Ég hef sannreynt að kjötið af þeim er býsna gott, mér áskotn- aðist góður biti sem ég borðaði með bestu lyst meðal vina á Akur- eyri. Það er sætt og svo meyrt, að það liggur við að hægt sé að tyggja það með augnalokunum.“ Þannig lýsir Finnbjörn Finn- björnsson, flugmaður hjá Flug- félagi Norðurlands, skepnu sem hann hefur haft tölverð afskipti af á ferðum sínum á Grænlandi, þar sem hann hefur flogið með danska náttúrufræðinga í þeim erindum að rannsaka útbreiðslu og lifnaðarháttu sauðnauta. „Ég hef gert töluvert af því að fljúga á Grænlandi, fyrst fór ég þangað sumarið 1979 í þeim til- gangi að fljúga með jarðfræð- inga og landmælingamenn. Sú ferð varð þó styttri en til stóð: það var meiningin að við yrðum þarna í sex vikur, en þær urðu ekki nema tvær, því það kviknaði í vélinni í Daneborg, við danska herstöð, þegar við vorum að und- irbúa eldsneytistöku. Vélin, sem var af Twin Otter-gerð, brann til kaldra kola, en ég var sá eini úr áhöfninni sem brann eitthvað að ráði, fötin brunnu utan af mér og ég fékk annars og þriðja stigs bruna á fæti. Sumarið eftir var ég í sjö vik- ur í sama verkefni. Þá flugum Finnbjörn Finnbjörnsson flugmaður hja Flugfélagi Norðurlands fyrir framan Twin Otter-vél flugfélagsins. Morgunblaftið/Friftþjófur við meðal annars til Thule og Svalbarða til að sækja menn og tæki. Það var mjög skemmtilegt að vera þarna norðurfrá; við lifð- um eins konar útilegulífi, bjugg- um mest í tjöldum. Aðstæður til flugs eru geipilega erfiðar þarna, það vantar alla flugvelli og við urðum að lenda á stuttum sandmelum, sem við síðan merktum og kölluðum flugvelli! Það var síðan vorið 1981 sem ég byrjaði að fljúga með taln- ingarmenn frá dönsku villidýra- stofnuninni og hef gert það tvisvar síðan, vorið 1983 og nú síðast í janúar. Það er merkilegt að aðeins einu sinni á þessu brölti mínu sá ég ísbjörn, þótt oft hafi maður séð spor eftir þá í snjónum. Einu sinni tókst mér hins vegar að komast í návígi við sauðnaut. Ég var rétt kominn að því að klappa einu nautinu á Passamynd af sauónauti. hnakkann en hætti skyndilega við þegar nautið sneri sér snögg- lega frá mér og stangaði í nær- statt bjarg svo nötraði í. Þá leist mér ekki á blikuna og hörfaði. Annars eru sauðnaut yfirleitt ekki árásargjörn, nema helst gamlir tarfar, sem hjörðin hefur útskúfað vegna skapvonsku. Þessir tarfar geta orðið gífur- lega stórir og verða enn verri í skapinu þegar þeir eru einir og þá er eins gott að verða ekki á vegi þeirra. Við fengum eitt sinn einn slíkan tarf inn í tjaldbúð- irnar og hann elti leiðangurs- stjórann upp á þak. Okkur tókst samt fljótlega að reka hann í burtu með hávaða." V * -V.: i Inniheldur m.a. hin frá- bæru lög „Hold Me Now“ og „Doctor Doctor“. In the Gap er plata sem ekki gleymist. HLJÓMPLÖTUDEILD ^KARNABÆR Austurstræti 22, Rauðarárstíg 16, Laugavegi 66, Glæsibæ, Mars, Hafnarfiröl,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.