Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
Eyðileggingin í Gazli:
Slökkviliðsmadur beinir vatnsbunu að eldtungum á annarri hæð UNESCO-byggingarinnar í París í fyrrakvöld.
Símamynd AP.
Bruninn hjá UNESCO í París:
Mikilvægustu skjölin urðu eldinum ekki að bráð
París, 22. mars. AP.
FULLVÍST er talið að íkveikja hafi
valdið hinum mikla eldsvoða í höf-
uðstöðvum UNESCO, menningar- og
vísindastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, í París í gærkvöldi. Talsmenn
stofnunarinnar fullyrða að engin
skjöl er snerta fyrirhugaða rannsókn
Bandaríkjaþings á fjárreiðum og
stjórnsýslu UNESCO hafi eyðilagst.
Rúmlega 90 skrifstofur í bygg-
ingunni urðu fyrir skemmdum og
þúsundir skjala eyðilögðust þegar
eldtungurnar léku um sjö af átta
hæðum hennar í hálfan annan
tíma.
Enginn slasaðist í brunanum,
enda vinnudegi lokið og starfs-
menn farnir heim þegar eldsins
varð vart. Talsmenn UNESCO
segja að til séu afrit af um 40%
þeirra skjala sem eyðilögðust af
völdum vatns og elds.
Heimildarmenn úr röðum
starfsfólks UNESCO í París, sem
ekki vilja láta nafns síns getið,
segja að það sé almenn skoðun
meðal starfsmanna að brennu-
vargurinn sé innanhússmaður.
„Hitt vitum við ekki,“ sagði einn
úr þeim hóp, „hvort eldurinn var
kveiktur í því skyni að eyðileggja
einhver skjöl eða hvort um brjál-
æðisverk er að ræða.“
Rannsókn brunans er enn á
frumstigi, en margt bendir til þess
að eldurinn hafi fyrst kviknað í
póstherbergi á annarri hæð húss-
Paradip á Indlandi:
Hundruð manna saknað
eftir íkveikiu lögreglu
Nýju Delhí, 22. mars. AP.
UM 300 manna er saknað og talið er
að þeir kunni að vera látnir eftir að
óeirðalögregla í borginni Paradip á
Indlandi kveikti í hreysaþyrpingu
nálægt hafnarsvæði borgarinnar þar
sem vinna liggur niðri, að því er
dagblaðið Hindustian Times greindi
frá í dag.
Blaðið segir að vitað sé um ell-
efu manns sem létust í brunanum,
100 hafi slasast og 1.500 séu heim-
ilislausir.
Lögregluyfirvöld höfðu áður
greint frá því að níu manns, þ.á m.
fjórir lögreglumenn, hefðu verið
vegnir þegar iögregla hafði af-
skipti af bardaga tveggja hópa
verkfallsmanna við höfnina.
Fréttablaðið sagði að lögreglu-
menn hefðu gengið berserksgang
sl. mánudag og borið eld að hýbýl-
um verkafólks eftir að fjórir úr
þeirra hópi létust er þeir reyndu
að stilla til friðar með verkfalls-
mönnum.
Þrjú hundruð manna er saknað
eftir að eldurinn kviknaði í
hreysaþyrpingunni, og sagði blað-
ið að sá fjöldi bættist við þann hóp
sem þegar væri vitað að hefði lát-
ist eða slasast.
Blaðið hafði eftir sjónarvottum,
að íkveikja lögreglunnar hefði
verið hefndarráðstöfun, en yfir-
maður lögreglunnar í Paradip hef-
ur neitað því að hún hafi átt sök á
brunanum.
Þúsundir manna
heimilislausar
Moskvu, 22. mars. AP.
ÞÚSUNDIR manna eru heimilis-
lausir í borginni Gazli í Sovétlýð-
veldinu Uzbekistan eftir jarðskjálft-
ana sem urðu í Miö-Asíu fyrr í vik-
unni. Sovésk fréttablöð segja að í
Gazli hafi verið reist 3.000 tjöld fyrir
þá sem misstu heimili sín eða
treysta sér ekki til að snúa heim
vegna þess að hýbýli þeirra eru að
hruni komin. Engar frekari tölur
hafa hins vegar verið nefndar um
fjölda slasaðra, en TASS hafði áður
skýrt frá því að fleiri en hundrað
hefðu orðið fyrir meiðslum.
í Gazli hafa að undanförnu búið
um 20.000 manns. Þar varð einnig
mikill jarðskjálfti árið 1976 sem
lagði borgina nánast í eyði.
Talið að um íkveikju
hafi verið að ræða
Veður
víða um heim
AKureyri
Amsterdam
Aþena
Berlin
BrUssel
Buenos Aires
Chicago
Dublin
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kairó
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Malaga
Mallorca
Maxíkóborg
Miami
Montreal
Moskva
New York
Ostð
París
Peking
Perth
Reykjavik
Ríó de Janeiró
Róm
San Francisco
Seoul
Stokkhólmur
Sydney
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
4 skýjaö
12 bjart
16 skýjað
7 bjart
12 bjart
28 heiðskfrt
2 skýjað
8 skýjað
12 heiðrikt
12 heiðrfkt
11 skýjað
+1 bjart
15 skýjað
20 skýjað
29 bjart
28 skýjað
5 bjart
19 hélfskýjað
15 skýjað
11 skýjað
24 sól
17 skýjaö
16 skýjað
26 sól
26 heiðríkt
10 skýjað
45 bjart
11 rigning
5 sólskin
14 heiðskfrt
9 heiðrfkt
25 skýjað
1 snjóél
33 skýjað
13 rigning
17 rok
6 sólarlaust
4 skýjað
23 rigning
8 skýjað
10 skýjað
5 bjart
„30 prósenta klúbburinn“
berst gegn sýruregninu
Ottawa, 22. mars. AP.
„VIÐ VORUM að stofna 30 prósent klúbbinn," sagói umhverfismálaráó-
herra Kanada, Charles Caccia, í dag, eftir að hann hafði ásamt starfs-
bræðrum sínum frá níu Evrópulöndum undirritað samþykkt og áætlun
viðkomandi landa um að draga úr mengun af súru regni í löndum sínum
sem næmi 30 prósentum á næstu 10 árum.
Auk Kanada undirrituðu um- deau, franski ráðherrann, sagði:
hverfisráðherrar Austurríkis,
Danmerkur, Vestur-Þýskalands,
Finnlands, Frakklands, Hol-
lands, Noregs, Svíþjóðar og Sviss
plaggið. „Við snúum nú hver til
síns heima og söfnum nýjum fé-
lögum í klúbbinn," bætti Caccia
við og frú Huguette Bouchar-
„Við ætlum ekki að standa ein í
þessari baráttu."
Umhverfisverndarsinnum
þykir tími til kominn að eitthvað
markvert sé gert í þessum efn-
um, enda er mengun af völdum
sýruregnsins víða gífurleg, eyðir
lífi í stöðuvötnum og ám og
drepur skóga. Súrt regn er regn
mettað brennisteins- og nitróg-
enoxíðum, sem dælt er upp úr
verksmiðjustrompum í flestum
þeim löndum sem stofnað hafa
umræddan baráttuhóp. Noregur,
Svíþjóð og Kanada eru þó í hópi
þolanda, því mengunin hefur
einkum gert vart við sig í þeim
löndum.
Það stendur baráttu gegn súru
regni verulega fyrir þrifum, að
austantjaldslöndin „framleiða"
gífurlega mikið af súra regninu
og eru lítt eða ekki til viðtals um
að gera eitthvað í málinu. Orsök-
in er fyrst og fremst hin sama og
gerir öllum öðrum erfitt um vik
að draga úr menguninni, eða
kostnaðurinn. Kostnaðurinn er
talinn gífurlegur og verksmiðju-
eigendur fjarri því allir tilbúnir
að stuðla að náttúruvernd í fjar-
lægum löndum, telja að meiri
rannsóknir verði að fara fram og
sanna beri með áþreifanlegri
hætt' að verksmiðjur þeirra eigi
sök a náttúrudauðanum.
Skjálftinn nú var að sögn sovéskra
blaða harðari og mældist rösklega
7 stig á Richter-kvarða.
Sovéska sjónvarpið hefur sýnt
fréttamynd frá eyðileggingunum í
Gazli, en erlendum fréttamönnum
verður ekki leyft að ferðast um
jarðskjálftasvæðið fyrr en á
morgun, föstudag.
Boston, 22. mars, AP.
KOFFÍNMAGN í tveimur bollum af
sterku kaffi hefur jafn góó áhrif til
að halda aftur af asma eins og
venjuleg lyf sem gefin eru við andar-
teppu og kemur í mjög góðar þarfir í
neyðartilvikum, eftir því sem ný
rannsókn vísindamanna við Mani-
toba-háskóla í Winnipeg hefur leitt í
Ijós. Frá þessu er greint í nýjasta
hefti bandaríska læknaritsins New
England Journal of Medicine.
Vísindamennirnir segja að ekki
sé ráðlegt að láta kaffi koma í stað
asmalyfja en það komi að góðum
notum þegar lyf séu ekki við hönd-
Perú:
Þriggja daga
neyðarástand
Líma, 22. mars. AP.
SKÆRULIÐAR marxista sprengdu
sprengjur á sex stöðum í Líma, höf-
uðborg Perú, í gærkvöldi, um það bil
sem þar var að hefjast allsherjar-
verkfall sem boðað var til í mót-
mælaskyni við efnahagsstefnu Fer-
nando Belaundes, forseta.
Fimm manns slösuðust í
sprengingunni, einn óbreyttur
borgari, tveir lögregluþjónar og
tveir skæruliðar, sem lögreglan
segir að tilheyri samtökum maó-
sinna. Þau samtök hafa áður stað-
ið að slíkum hermdarverkum í
höfuðborginni.
Nokkrum klukkutímum áður en
sprengjurnar sprungu hafði Bel-
aunde forseti lýst yfir þriggja
daga neyðarástandi í landínu,
bannað fundi og fyrirskipað rit-
skoðun.
Sovéskar
þotur til
Sýrlands?
Kuwail, 19. mars. AP.
SOVÉTMENN hafa gert nýtt vopna-
sölusamkomulag við Sýrlendinga, og
samkvæmt því fá Sýrlendingar full-
komnustu orrustuþotur Rússa, af
gerðunum MiG-29 og MiG-31.
Samkvæmt forsíðufrétt blaðsins
Al-Qabas var samkomulagið und-
irritað í heimsókn fyrsta aðstoð-
arutanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, Geidar Aliev, til Damaskus (
síðustu viku. Jafnframt segir blað-
ið að vopnasölusamkomulagið geri
ráð fyrir því að hlutverk Sýrlands-
hers breytist úr því að vera varn-
arhlutverk í árásarhlutverk.
Hafði blaðið eftir heimilda-
mönnum sínum að Aliev hafi í við-
ræðum við sýrlenska ráðamenn
útilokað að eðlileg tengsl kæmust
á að nýju milli Sovétríkjanna og
Israel.