Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
23
BA-þotan sem rænt var.
Flugrán í Kína:
Símamynd AP.
Óvopnaður ræningí
Taipei, Taiwan, 22. mars. AP.
UNGUR MAÐUR, Hong Kong
búi, rændi í dag Júmbóþotu
breska flugfélagsins British Air-
ways sem var á leið frá Hong Kong
til Paking. Sneri hann þotunni til
Taiwan, þar sem hann gaf sig fram
og baðst hælis sem pólitískur
flóttamaður. 337 farþegar voru um
borð og slasaðist enginn.
Þotan var vart komin í loftið
er hinn 28 ára gamli Liang Waij-
iang laumaði miða í lófa flug-
freyju þar sem á var letrað að
hann væri með mikið magn
sprengiefna innanklæða. Hótaði
hann að tendra mikla spreng-
ingu ef þotunni yrði ekki flogið
til Taiwan þar sem hann lofaði
að ganga frá borði, sem hann og
gerði. Talsmaður lögreglunar í
Taiwan sagði að maðurinn hefði
verið óvopnaður með öllu.
Fregnir herma að flugræning-
inn sé trúlega ekki heill á geðs-
munum og óvíst hvort hann fái
hæli sem pólitískur flóttamaður.
í mai síðastliðnum rændu sex
Kínverjar kínverskri farþega-
þotu í innanlandsflugi í Kína og
stefndu henni til Suður-Kóreu
þar sem þeir báðust hælis. Það
var ekki veitt og mennirnir
fengu fjögurra til sex ára fang-
elsisdóm.
Framleiða Indverjar
kjarnorkusprengju?
Nýju Delhi, 22. marH. AP.
HARÐAR DEILUR risu á indverska
þinginu í dag er þingmaður úr röð-
um stjórnarandstæðinga krafðist
BelfaHt, 22. mars. AP.
TVKIR háskólastúdentar á Norður-
írlandi hafa verið úrskurðaðir í fjög-
urra daga gæsluvarðhald grunaðir
um aðild að morðinu á næstæðsta
yfirmanni Maze-fangelsins í Belfast
6. mars sl. Átta manns hafa nú verið
handtc-knir vegna rannsóknar máls-
ins.
Stúdentarnir eru báðir 24 ára að
aldri og stunda nám við Queen’s
University í borginni. Annar
þess af ríkisstjórninni, að gengiö
yrði svo frá hnútunum að Indverjar
gætu annað hvort smíðað sér kjarn-
þeirra er sakaður um beina aðild
að morðinu og hinn um að hafa í
fórum sínum skotfæri og halda
leyndum mikilvægum upplýsing-
um um verknaðinn.
Fangelsisstjórinn, William
McConnel, var 35 ára að aldri þeg-
ar hann var veginn á heimili sínu
í Belfast. írski lýðveldisherinn
hefur lýst ábyrgð á hendur sér.
orkusprengju eða aflað sér slíks
grips með sólarhringsfyrirvara, þar
eð Pakistanar væru í þann mund að
Ijúka smíði kjarnorkusprengju og
myndu þannig ógna öryggi Indlands.
Umræddur þingmaður, Khumar
Singh, úr Lok Dal-flokknum í
norðurhluta landsins, lagði hart
að varnarmálaráðherra Indlands
að svara fyrirspurn sinni og kröf-
um. „Indverjar mega ekki dragast
aftur úr,“ sagði Singh. Út frá ræðu
Singhs spunnust umræður á þing-
inu út í nauðsyn þess að Indverjar
kæmu sér saman um sérstaka
þjóðaröryggisstefnu, þar eð landið
væri umkringt risaveldum sem
væru að „ota fingrum sínum og
ekki væri treystandi á neitt
þeirra“.
Stofnun NATO:
Norðmenn
áttu hug-
myndina
Ósló, 19. m»rs Kri iin Krik
Lauré, rréttariUra Mbl.
NORÐMENN áttu hugmyndina að
stofnun Atlantshafsbandalagsins,
NATO, að sögn Hákon Lie fyrrum
ritara Verkamannaflokksins.
Lie dvelst i Bandaríkjunum og
hefur haft aðgang að skýrslum
sem hingað til hafa verið leyni-
legar. Samkvæmt þeim var það
norski utanríkisráðherrann, sem í
mars 1948 viðraði þá hugmynd við
Ernest Bevin utanríkisráðherra
Bretlands, að stofnað yrði varn-
arbandalag Evrópuríkja með að-
stoð Bandaríkjanna.
Bevin setti sig þegar í stað í
samband við Bandaríkjamenn.
Fljótlega hafi komið í ljós mikill
áhugi fyrir varnarbandalagi af
þessu tagi, sem m.a. var talið
mundi tryggja varnir Noregs.
Einar Gerhardsen fyrrum for-
sætisráðherra hefur verið inntur
álits á þessum fullyrðingum fyrr-
um nánasta samstarfsmanns síns,
en engu viljað svara.
Hermdarverkið við
Harrods í London:
Atvinnulaus Bel-
fastbúi tekinn
London, 22. mars. AP.
MAÐUR frá Norður-írlandi
kom fyrir rétt í dag grunaður
um aðild að hryðjuverki skæru-
liða IRA við Harrods-verslun-
ina um jólaleytið í fyrra, er þar
sprakk sprengja sem olli því að
sex manns létust og 94 slösuð-
ust.
Hinn grunaði heitir Paul
Kavanagh og er 29 ára gamall
atvinnulaus Belfastbúi. Hann
var úrskurðaður í viku gæslu-
varðhald á meðan rannsókn
fer fram á því hvort hann
hafi átt þátt í hermdar-
verkinu.
Kavanagh var handtekinn
á heimili sínu í vesturhluta
Belfast á föstudag í síðustu
viku og kom til London dag-
inn eftir.
Handtökur í Maze-málinu
Nakasone um áreksturinn í japönsku lögsögunni:
„Verðum að feta varlega“
Tokýó, 22. m«rs. AP.
Árekstur bandaríska flugmóðurskipsins Kitty Hawk og sovéska kjarn-
orkukafbátsins á japönsku hafsvæði í fyrradag er ekki fyrsta atvikið af
sinni tegund, heldur það nýjasta af nokkrum síðustu árin. Stjórnvöld í
Tokýó sögðu í dag að þau vonuðu að atvikið myndi ekki auka spennu
milli stórvcldanna.
Nakasone forsætisráðherra
var í forsvari um málið og er
hann ávarpaði japanska þingið í
dag sagði hann meðal annars að
það væri afleitt að atburðir sem
þessir gerðust í japanskri lög-
sögu og Japanir yrðu að „feta
varlega" til þess að komist yrði
hjá meiri háttar milliríkjadeilu.
Fram hefur komið, að
skemmdir urðu litlar, bæði á
Kitty Hawk og sovéska kafbátn-
um og Bandaríkjamenn hafa
sakað kafbátsverja um að eiga
sök á óhappinu, þeim hafi skotið
úr kafi ljóslausir með öllu.
Bandarísk herskip voru þarna á
æfingum og Sovétmenn að vanda
að fylgjast með. Síðast varð
svipaður árekstur, er bandarísk-
ur tundurspillir og sovésk freig-
áta strukust saman í Arabíuhaf-
inu í nóvember á síðasta ári.
í japanskri lögsögu hafa hins
vegar ýmsir atburðir átt sér stað
þar sem kafbátar risaveldanna
hafa verið annars vegar. 1 apríl
1981 gerðist það til dæmis, að
bandarískur kjarnorkukafbátur
rakst á 3500 tonna japanskt
flutningaskip með þeim afleið-
ingum að það sökk og tveir
áhafnarmeðlimir drukknuðu, en
þrettán björguðust eftir mikið
volk daginn eftir. Kafbáturinn
hvarf af vettvangi og aðstoðaði
ekki við björgun skipverja.
Bandaríkjamenn lýstu ekki yfir
hvað gerst hafði fyrr en sólar-
hring seinna, er skipverjunum
hafði verið bjargað. Þetta var
viðkvæmt mál fyrir Bandaríkja-
menn, skipherrann var settur af
og stjórnvöld greiddu nokkrar
milljónir dollara í skaðabætur,
en gátu þess að slæmt skyggni
hefði valdið því að kafbátsmenn
höfðu ekki gert sér grein fyrir
því að japanska skipið sökk.
Japanir eru lítið hrifnir af
ferðum hinna sovésku og banda-
rísku kafbáta í lögsögu sinni,
einkum þeim kjarnorkuvæddu. í
ágúst 1980 gerðist það, að eldur
kom upp í sovéskum kjarnorku-
kafbáti og að minnsta kosti 9
skipverjar létust. Japanir óttuð-
ust útgeislun og neituðu Sovét-
mönnum um leyfi til að draga
kafbátinn stystu leið, um jap-
anska lögsögu, til Vladivostok.
Sovétmenn létu synjun Japana
sem vind um eyru þjóta og drógu
kafbátinn samt um umrætt haf-
svæði og mótmæli Japana voru
hávær. Japanir ákváðu hins veg-
ar að „feta varlega" og létu sér
nægja að mótmæla framferði
Rússa og segja þá hafa hagað sér
ófriðsamlega.
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 6. april
City of Hartlepoo! 17. april
Bakkafoss 27. april
City of Perth 8. mai
NEWYORK
Ðakkafoss 5. april
City of Hartlepool 16. april
Bakkafoss 26. april
City of Perth 7. maí
HALIFAX
Bakkafoss 9. april
Ðakkafoss 30. apríi
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 25. mars
Álafoss 1. apríl
Eyrarfoss 8. april
Álafoss 15. apríl
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 26. mars
Álafoss 2. april
Eyrarfoss 9. april
Álafoss 16. apríl
ANTWERPEN
Eyrarfoss 27. mars
Álafoss 3. april
Eyrarfoss 10. april
Álafoss 17. april
ROTTEROAM
Eyrarfoss 28. mars
Alafoss 4. april
Eyrarfoss 11. april
Álafoss 18. apríl
HAMBORG
Eyrarfoss 29. mars
Álafoss 5. apríl
Eyrarfoss 12. apríl
Álafoss 19. april
WESTON POINT
Helgey 2. apríl
LISSABON
Vessel 21. apríl
LEIXOES
Vessel 22. aprii
BILBAO
Vessel 24. apríl
NORDURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 23. mars
Dettifoss 30. mars
Mánafoss 6. apríl
Detfifoss 13. apríl
KRISTIANSAND
Mánafoss 26. mars
Dettifoss 2. apríl
Mánafoss 9. apríl
Dettifoss 16. april
MOSS
Mánafoss 27. mars
Dettifoss * 30. mars
Mánafoss 10. april
Dettifoss 13. mars
HORSENS
Detfitoss 4. april
Detfifoss 18. apríl
GAUTABORG
Mánafoss 28. mars
Deftifoss 4. apríl
Mánafoss 11. apríl
Dettifoss 18. apríl
KAUPMANNAHÓFN
Mánafoss 29. mars
Detfifoss 5. apríl
Mánafoss 12. apríl
Detfifoss 19. april
HELSINGJABORG
Mánafoss 30. mars
Dettifoss 6. apríl
Mánafoss 13. apríl
Dettifoss 21. apríl
HELSINKI
irafoss 4. april
irafoss 30. apríl
GDYNIA
írafoss 9. apríl
írafoss 4. mai
7 ÞÓRSHOFN
Dettifoss 31. mars
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram og til baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriójudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga