Morgunblaðið - 23.03.1984, Síða 33

Morgunblaðið - 23.03.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 33 boraðar, gáfu talsvert vatn, en með minni hita. Þessir erfiðleikar voru að skapa nokkra vantrú — of kalt vatn, of háir reikningar. Hola 7 var rannsóknarhola í bergið og hola 8 boruð að áliðnu síðasta sumri, 1983. Þá rættist draumur- inn — trúin á heita vatnið varð sér ekki til skammar — að hugsa ekki aðeins í árum sannaði gildi sitt, eins og augljóst er öllu skyn- samlegu viti. 21. október á nýliðnu hausti að morgni dags kom borinn niður á bullandi vatn á tæpum 700 - m. Magnið á að giska um 20 sek- úndulítrar a.m.k. og hiti 70—75°. Þeir, sem hugsa með „hagkvæmni stærðarinnar" geta hnerrað yfir smámunum. Þetta var vafalaust ekki heimsfrétt, en enn er svigrúm í litlum samfélögum íslenskrar þjóðar til að fagna. Samstarf þekkingar og þrautseigju skar þarna upp ríkulegan ávöxt, sem skapaði barnslegan fögnuð í um- hverfinu hjá öldnum ekki síður en ungum. Auðvitað voru háir taxtar hitaveitunnar farnir að valda ugg. Fyrir fáum árum var komið upp kyndistöð á hitaveituæðina og all- stórum miðlunartanki. í því liggja verulegir fjármunir, en jafnframt bráðnauðsynleg trygging. „Fátækraþerrir“ í nýju formi Á 700 m dýpi kom í ljós, eins og áður segir, öflug æð af rúml. 70° heitu vatni. Sú æð er á miklu meira dýpi en æðar þær er hingað til hafa gefið vatnið í eldri holun- • um. Borun var haldið áfram niður á rúma 1000 metra. Verulegt vatn bættist við á þeirri leið, og er talið að nær 40 sekúndulítrar streymi í þessa holu. Strax eftir að borun lauk var tekið til við virkjun hol- unnar. Dælubúnaður og hús var fært frá annarri holu, sem skilaði fremur litlu og notað á holu 8. Stærri dælu þarf þó að setja þar niður síðar. Þessu verki lauk fyrri hluta desember. Mér kom þá í hug það sem var á margra vörum í bernsku minni. Sú guðsgjöf, sem þá var vænst. Venjufremur var þvegið fyrir jólin og föt fengust tæpast þurr nema úti. Fátækra- þerrir kom þó augljóslega öllum að notum, en fátækum meiri nauð- syn. Nýja hitaholan við Urriða- vatn skapaði nýja, aukna vellíðan, andlega sem efnislega, hjá öllum njótendum hitaveigu Egilsstaða og Fella. Við skulum engar smæð- arkenndar kenna, þótt ég minni á þetta gamla orð, guðsgjöf var þetta nú, því að guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur. Jónas Pétursson er fyrrverandi al- þingismaður. arbreytingar í efnaskiptum og út- liti. Efnaskipti ganga hraðar, þar af leiðir að frumurnar skipta sér örar. Stjórnun erfðavísa fer líka úr skorðum, þannig að frumurnar byrja að tjá erfðavísa, sem að öllu jöfnu eru bældir. Þetta leiðir til þess að á yfirborði frumnanna birtast prótein, sem ónæmiskerfi líkamans þekkir ekki. ónæmis- kerfið bregst við því m.a. með því að framleiða mótefni gegn við- komandi próteini og þar af leið- andi frumunum. Þessi prótein verka sem sagt sem ónæmisvakar (antigen) á ónæmiskerfi líkamans. Flest krabbamein eru það sem kallað er einstofna, þ.e. allar frumurnar eru upprunnar frá einni móðurfrumu. Þær hafa því allar sama útlit. Mótefni gegn einni verka því auðveldlega gegn annarri. Menn gerðu sér því snemma grein fyrir því að ef hægt væri að tengja ýmis frumueitur við mótefni, sem myndu tengjast krabbameinsfrumum eingöngu, þá væri hægt að auka líkurnar á því að drepa allar krabbameinsfrum- urnar, auk þess sem menn kæmust af með mun minna af þessum lyfj- um, en gert er í dag. Allar aðgerð- ir verða því markvissari og ná- kvæmari. í stuttu máli, þá er hægt að fá fram mótefni gegn þessum ákveðnu yfirborðspróteinum. Þau frumueitur sem prófa á, eru síðan í stuttu máli Yfirmenn semja Yfirmenn á farskipum skrifuðu undir samninga um miðnætti í fyrrinótl, sem eru eins og sam- komulag ASÍ og VSÍ og mun at- kvæðagreiðsla um samningana standa yfir til 15. apríl í húsnæði félagana í Borgartúni 18. Samningurinn nær til stýri- manna, vélstjóra, loftskeyta- manna og bryta, en ekki til skipstjóra. Hann er eins og samkomulag ASÍ og VSÍ að öðru leyti en því að útfærsluat- riði varðandi orlof og eftirvinnu eru öðruvísi. Borgarnes: Verslunar- menn semja MUNNLEGT samkomulag tókst hjá Verslunarmannafélagi Borg- arness og viðsemjendum þeirra i fyrradag með fyrirvara um sam- þykki félagsfundar. Er samkomulagið eins og samningur ASl og VSÍ að öðru leyti en því, að ákvæði um að tekjutryggingu nái ekki nema að hluta til til þeirra sem eru 16—18 ára, fellur út. Þá er einn- ig samkomulag um að skipa 4 manna nefnd, sem fjalla skuli um taxtatilfærslur og og sam- skiptamál, skipuð tveimur frá hvorum aðila. Félagsfundur verður í Verslunarmannafélag- inu seinnipartinnn í næstu viku. ÆSÍ heldur ráðstefnu ÁKVEÐH) var, á síðasta þingi /Eskulýðssambands íslands, að efna til ráðstefnu til undirbúnings alþjóðaárs æskunnar 1985. Ráð- stefnunni er ætlað að skilgreina væntanlcgt hlutverk ÆSÍ vegna alþjóðaársins og verður hún hald- in á Fríkirkjuvegi 11, laugar- daginn 24. mars og hefst kl. 14:00. Sölvi Ólafsson, formaður Æskulýðssambands Islands, mun setja ráðstefnuna og Nfels Á. Lund, formaður fram- kvæmdanefndar alþjóðaárs æskunnar, mun flytja erindi um hlutverk nefndarinnar. Á eftir verða almennar umræður og verður ráðstefnunni slitið kl. 17:30. fest við mótefnin með efnafræði- legum aðferðum, án þess að þau hindri hæfileika mótefnanna til að finna og bindast við mark sitt. Mótefnið leitar uppi þær frumur, sem hafa mótsvarandi ónæmis- vaka á yfirborði sínu og binst við hann. Frumueitrinu er því fær leið inn í frumuna og fruman drepst. Þar sem ricin á í hlut, þá er A- keðjan einfaldlega skilin frá B- keðjunni. Þegar B-keðjan er ekki til staðar, þá getur A-keðjan ekki bundist frumunum og er óvirk. Sé A-keðjan hins vegar fest við mót- efni, sem þekkir ónæmisvaka á yf- irborði ákveðinna krabbameins- frumna, þá má segja að mótefnis- sameindin hafi tekið að sér hlut- verk B-keðjunnar, en nú er um sérvirka verkun að ræða í stað ósérvirkrar, þ.e. krabbameins- frumurnar eru deyddar, en heil- brigðar frumur sleppa. Enn er töluvert eftir af tilraun- um, áður en þessi aðferð verður nothæf. En þeir sem þessar til- raunir stunda, hafa trú á, að að loknum yfirstandandi klínískum prófunum, þá gæti þessi aðferð nýst eftir u.þ.b. 5 ár. Ileimildir: A. ('hristie (1979). Partner.s in ('rime (5. útgáfa), bLs. 119—133. Kontana (’ollin.s, (;ia.sgow. E-S. Vitetta o.fl. (1983). Immunotoxin.s: A new approach to cancer therapy. Science 219:644-650. L.E. llood o.fl. (1978). Immunology. Benjam- in ( umminus PublÍHhing ('ompany, Inc., Menlo Park. Morgunblaöiö/HBj. Þessar ungu Borgarnesdömur sem þarna gretta sig móti sterkum geislum vetrarsólarinnar héldu tombólu og söfnuðu með því 220 kr., sem þær gáfu Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Þær heita: Elva Björk Sveinsdóttir, Eva Steinunn Sveinsdóttir, Stefanía Anna Sveinsdóttir og Hafdís Helgadóttir, en sú flmmta, Erla Björk Atladóttir var ekki viðstödd myndatökuna. VW GOLF og VWJETTA á sérstöku helgartilboði: Tveir sólarhringar (föstudagskvöld til sunnudagskvölds) gegn einu daggjaidi auk venjulegs km. gjalds. flvað ertu að gera um helgina? FLUGLEIDIR fS BÍLALEIGA Simi: 21188-21190

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.