Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 34

Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 Elín J. Jónsdóttir Richter skrifar frá Vestur-Þýzkalandi: Erlent vinnuafl í Þýzkalandi Grózka og vöxtur efnahagslifs Sambandslýðveldisins Þýzka- lands eftir síðari heimsstyrj- öldina — en einkum í byrjun 7. og fram af miðjum 8. áratugn- um — var oft og einatt kallað „efnahagsundrið". Með miklum dugnaði og elju fólksins og að- stoð sigurvegaranna hafði tek- izt að reisa borg og bý úr rúst- um, og fyrr en varði blómstraði efnahagslífið á nýjan leik svo undrum sætti. Er 7. áratugur- inn gekk í garð, fór að bera á manneklu mikilli, sérstaklega í verksmiðjum og reyndar við flest þau störf, sem litla eða enga menntun þurfti til. Nú voru góð ráð dýr, því að ekki mátti með nokkru móti hamla þessum ótrúlega uppgangi. Það þótti því afbragðshugmynd að gefa íbúum annarra landa, sem voru efnahagslega verr stödd, tækifæri til að starfa í Þýzka- landi um óákveðinn tíma. Þar með hófust „þjóðflutningar" nútímans. Hundruð þúsunda hlýddu kallinu og streymdu til landsins; í fyrstu voru það ítal- ir, Spánverjar, Portúgalar og Júgóslavar, en seinna bættust Grikkir og Tyrkir í þennan litríka hóp, og áður en langt um leið voru Tyrkir orðnir langfjölmennasti hópurinn. Það er ekki erfitt að geta sér til um ástæðuna; Tyrkland býður börnum sínum litla atvinnu- möguleika, mikil fátækt er þar ríkjandi — margir hverjir lifa í örgustu eymd. Þannig er reyndar einnig ástatt í ýmsum landshlutum ofangreindra landa. — Tilboðið um vinnu og trygga afkomu í Þýzkalandi hlaut því að vera meira en lítið lokkandi, enda var ætlunin aö koma heim aftur, þegar maður ætti svolítið í handraðanum. Lítt hugað að vandamálunum Það hafði lítið verið hugsað um vandamálin, sem þessum ráð- stöfunum fylgdu. Ummæli eins þekkts rithöfundar, sem sagði: „Ráðið var vinnuafl, en svo kom fólk“, lýsa vel andvara- leysinu við þessum umbrotum. Umskiptin hafa skiljanlega verið erfiðust útlendingunum sjálfum, sem komu til fram- andi lands, mállausir og ókunnugir lífsvenjum og hugs- unarhætti. En oft stóðu lands- menn ráðalausir andspænis þessu einkennilega fólki, sem ekki gat gert sig skiljanlegt. Sem starfsmenn eru útlend- ingarnir óaðfinnanlegir. Auð- vitað er misjafn sauður í mörgu fé, en þegar á allt er litið, eru þeir iðnir, samvizku- samir og standa þýzkum starfsfélögum sínum í engu að baki. Ég veit heldur ekki til þess, að þeir hafi valdið nein- um vandræðum á vinnustöð- um, sem rekja mætti til þess, að um útlendinga er að ræða. Það eina, sem stundum kemur fyrir, — einkum hjá Tyrkjun- um, sem fara heim til Tyrk- lands í sumarleyfunum — er, að þeir eiga til að lengja fríið sitt um eina eða tvær vikur án þess að láta vita! Margt fer öðruvísi en ætlað er. Flestir þeirra, sem komu fyrst — fyrir meira en 20 árum — eru hér enn. Eins og ég nefndi áðan, eru það aðallega ítalir, Spánverjar og Portúgalar. Þeir hafa nokkurn veginn lært mál- ið og aðlagazt lífsháttum. Flestir þeirra líta orðiðá Þýzkaland sem annað heimili sitt og hafa ekki í hyggju að hverfa til síns ættlands aftur. Skiljanlega halda menn af sama þjóðerni gjarnan hópinn, en þó blanda þeir geði við Þjóð- verja, og eru samskiptin að mestu vandræðalaus. Ólíkur menn- ingararfur Það gegnir allt öðru máli um Tyrkina. Þar sem allt í sam- bandi við þá er svo frábrugðið hinum útlendingunum, mun ég hér á eftir fjalla um þá aðal- lega. Þrátt fyrir langa dvöl í landinu hafa þeir lítið aðlagazt lífinu hér. Lítill áhugi virðist vera á að læra málið; það eru helzt börnin og unglingarnir, sem tala nokkurn veginn skammlausa þýzku. Það er t.d. mjög algengt, að börn — jafn- vel lítil börn — fylgi mæðrum sínum til læknis til þess að túlka fyrir þær. Það má vel vera, að Þjóðverjar hafi ekki gert sér nóg far um að láta tyrkneska fólkinu finn- ast „það vera eins og heima hjá sér“, en það er svo erfitt, að mér finnst ekki hægt að álasa þeim fyrir afskiptaleysi. Ég er hrædd um, að bilið á milli þjóðanna minnki ekki, þótt um áratuga nærbýli verði að ræða. En hver er ástæðan? Svarið er stutt, en um leið flókið: Tyrkir eru múhameðstrúar. Trúar- brögð þeirra, hefðir, hugsunar- háttur og lífsvenjur eru veiga- mesta ástæðan fyrir einangrun Tyrkjanna — ef það er þá hægt að tala um einangrum 2ja milljóna manna. Það er ekki hægt að ímynda sér það gljúf- ur skilningsleysis, sem svo ólíkur menningararfur myndar á milli manna. Staða kvenna grátleg Það er eitt, sem ég reyni eftir megni að forðast, en það eru fordómar. Samt sem áður er ég engin undantekning er taiað er um skilningsleysi gagnvart hefðum múhameðstrúar- manna. Auk þess hefur sitt að segja, að ég er kona, sem er mikið fylgjandi jafnrétti kynj- anna (ekki eingöngu jafn- „rétti“, heldur einnig jafn- „skyldum"), og því er hugsun- arháttu ' þessa fólks mér fjar- lægari og óskiljanlegri en tali tekur. Engu að síður verður maður að virða hann og um- bera. — Staða tyrkneskra kvenna er grátleg í augum okkar. sem höfum alizt upp á norðlægari slóðum Evrópu. í fyrsta Iagi er þaö mikil refsing Allah að eignast dætur. Synir eru aftur á móti hálfguðir í augum múhameðstrúarmanna. Uppeldi dætranna miðast við það eitt að gifta þær sem yngstar og búa þær undir móð- urhlutverkið. Að stúlkur geti haft eigin skoðanir eða hafi hæfileika, löngun eða yfirleitt nokkra ástæðu til menntunar er alger fjarstæða í augum þessa fólks. Það er mjög al- gengt, að dætur tyrkneskra fjölskyldna séu sendar til ætt- ingja í Tyrklandi upp úr því að þær verða 12 ára til þess að búa þær undir hið eina „rétta“ hlutverk kvenna í lífinu, en einnig ti! þess að forða þeim frá áhrifum, sem hin frjálsa, þýzka æska gæti haft á þær. Tyrkneskar konur eru auð- þekktar hvar sem þær fara. Ekki aðeins að þær eru yfir- leitt dökkar á brún og brá heldur eru þær oftast svo skrípalega klæddar, að maður ræki upp stór augu væri maður ekki orðinn vanur þessari sjón. Auk þess hafa þær langflestar klút um höfuðið, því að „rétttrúaðir" Tyrkir álíta það mjög ósiðsamlegt, að kona láti sjá hár sitt á almannafæri. Erfiðleikar i skólum Það gefur auga leið, að dvöl slíks fjölda útlendinga hefur valdið erfiðleikum í skólunum. Börn erlendra vinnuþega eru skóla- skyld alveg eins og þýzku börn- in. En kennsla þeirra er erfið f framkvæmd, einkum þegar á það er litið, að fylgja á þeirri stefnu, að einangra ekki út- lendu börnin í sér bekkjum, heldur hafa bekkina blandaða. En hvað á að taka til bragðs, ef börnin ráða varla viö málið og foreldrarnir sína lítinn skiln- ing á því, hve mikilvæg skóla- ganga barna þeirra er? í sum- um skólum er þaö m.a.s. þann- ig, að helmingur eða jafnvel meirihluti barnanna í mörgum bekkjunum eru útlendingar. Ég get ekki láö þýzkum for- eldrum, sem eiga börn sín í slíkum bekkjum, aÖ þeir hafi áhyggjur af framförum af- kvæma sinna, og mér finnst tæplega hægt aö dæma þá sem „útlendingahaiara", þótt sumir þeirra beiti sér fyrir því, að fá börn sín flutt í aðra bekki, þar sem færri útiend börn eru. Eftir því sem ég kemst næst er reynt að koma til móts við hina erlendu samborgara eftir beztu getu. Mér er t.d. kunnugt um, að hér i iseriohn hafa Spán- verjar, ítalir og Portúgalar húsnæði til umráða fyrir sam- komur sínar og Tyrkir eiga sitt bænahús. Haldin ' eru ' þýzku-* ' námskeið og ýmis félög efna til samkoma og funda til þess að efla kynni landsmanna og „gesta" þeirra. Ekki get ég dæmt um hvernig þátttakan er, en mér segir svo hugur um að hún sé dræmust á meðal Tyrkjanna. í upphafi höfðu menn talsverð- ar áhyggjur af því, að afbrot og glæpir kynnu að aukast tilfinn- anlega við komu hinna blóð- heitu Suðurlandabúa, sem kváðu grípa fljótt til hnífa, ef eitthvað ber út af. Sem betur fer hefur þessi kvíði reynzt ástæðulaus. Reyndar eykst tala afbrota frá ári til árs eins og í öðrum velferðarríkjum, en þáttur útlendinganna er hlut- fallslega ekki hærri en ann- arra. Gert jafnt undir höfði hvað atvinnu snertir Við olíukreppuna 1973 kom aft- urkippur í efnahagslíf Þýzka- lands eins og annrra Vestur- landa. Atvinna fór minnkandi þótt atvinnuleysis yrði ekki til- finnanlega vart fyrr en nokkr- um árum síðar. Samt sem áður voru strax gerðar ráðstafanir til að stemma stigu við frekari aðflutningi verkafólks, og frá nóvember 1974 fengu eingöngu þegnar Efnahagsbandalags- landanna atvinnuleyfi. Að sjálfsögðu voru atvinnuleyfi þeirra, sem fyrir voru, viður- kennd áfram og endurnýjuð. Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar. At- vinnuleysi er nú orðið meira en 10% og bitnar þaö ekki síður á útlendingunum en heima- mönnum. Atvinnuleysisbætur og aðrir styrkir eru þungur baggi, en fá ráð virðast vera til að létta fargið. Heyrzt hafa raddir, sem segja „útlendingana burt“, eða „út- lendingarnir taka vinnu frá okkur“, en máliö er nú ekki svo einfalt. í fyrsta lagi njóta út- lendingarnir sömu réttinda og Þjóðverjar sjálfir. Þeir voru kallaðir hingað þegar mikið lá | við. Það má segja, að Þjóðverj- ar eigi útlenda verkafólkinu | gengi efnahagslífs landsins að miklu leyti að þakka. Það er j því ekki hægt að hrekja það af höndum sér, nú er verr gengur. — Og svo er eitt, sem menn gjarnan gleyma: Útlendingarn- ir hafa oft störf með höndum, sem Þjóðverjar líta ekki við; sem sagt skítverkin. Það fnyndi því'lítið rætast úr mál- inu, þótt allir útlendingar yrðu sendir heim — öllu fremur myndi skapast óskaplegt öng- þveiti. Kerfið er nú einu sinni þannig, að atvinnuleysisbætur miðast við síðustu tekjur (mig minnir, að bæturnar séu 65% af síðustu nettólaunum). Ef maður með góða starfsmennt- un færi í starf svokallaðs „hjálparverkamanns" yrðu laun hans væntanlega lægri en atvinnuleysisbæturnar — og þar með er málið úr sögunni. Auk þess ber þjóðfélaginu sið- ferðileg skylda til að gera þess- um gestum sínum jafnhátt undir höfði og landsmönnum sjálfum. Vilja ekki hverfa heim Oft höfðu útlendingarnir þann háttinn á að koma hingað einir og skilja fjölskyldu sína eftir heima. Margir hverjir létu fjöl- skylduna síðan koma til sín, er þeir voru búnir að koma sér fyrir. Aðrir voru áfram fjarri konu og börnum. Fyrir skömmu gengu ný lög í gildi um aðflutning fjölskyldna út- lendinga, sem vinna hér, en þau eru þess efnis, að börn eldri en 6 ára fá ekki dvalar- leyfi. Þessi ráðstöfun hefur valdið miklum deilum og virð- ist ómannúðleg í meira lagi. Tilgangurinn er hins vegar ein- göngu sá, að reynt er að forð- ast aðstreymi unglinga, sem stæðu síðan á götunni er að því kæmi, að þeir færu út í at- vinnulífið, en það er einmitt erfiðast fyrir ungt fólk að fá vinnu eða lærlingspláss. í þessu sambandi má geta þess, að fjölskyldubætur eru greidd- ar fyrir öll börn, hvort sem þau eru búsett í landinu eða ekki. Útlendingunum er auðvitað frjálst að hverfa heim hvenær sem þeir vilja. Eftir að at- vinnuleysið færðist í aukana er reynt að hvetja þá (engan veg- inn þvinga) til heimflutnings með því að greiða þeim ákveðna upphæð við brottför. Við það eiga þeir ekki lengur heimtingu á atvinnuleysis- styrk, en upphæð þessi er það há, að menn eiga auðveldara að koma undir sig fótunum aftur í heimalandinu. Samt eru furðu fáir, sem nota sér þetta tilboð. Staðreyndin er nefnilega sú, að flestir útlendingarnir vilja vera hér áfram, þrátt fyrir at- vinnuleysi og aðra óáran — þeir telja afkomu sinni samt sem áður betur borgið hér. Útlendingahatur? Það hefur oft verið rætt og ritað um aukið útlendingahatur Þjóðverja síðustu mánuðina. Ég get hvorki staðfest né hrundið þessari fullyrðingu, en ég hef á tilfinningunni, að gert sé meira úr því í blöðunum en ástæða er til. Að vísu hafa út- lendingarnir verið sumum þyrnir í auga frá byrjun, og enn aðrir líta niður á þá, en slíkt finnst því miður víða. Aftur á móti verð ég ekki vör við neina andúð hjá fólki, sem ég þekki, og sem umgengst er- lent verkafólk. Það kann að virðast undarlegt. að ég skuli skrifa svo mikið um „útlendingana" án þess að telja sjálfa mig til þeirra, en er þó líka útlendingur í Þýzkalandi. Munurinn er vafalaust sá, að fólk frá öðrum Evrópulöndum — að undanskildum Suður- Evrópu — er ekki svo mjög frá- brugðið Þjóðverjum og á því ekki erfitt með að aðlagast staðar- og lífsháttum. Það er ástæðan fyrir því, að útlend- ingum er skipt í tvo hópa. Kveðjustund — tyrknesk fjölskylda hverfur heim

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.