Morgunblaðið - 05.04.1984, Qupperneq 22
22
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. APRfL 1984
Jark Churchill, 8 ára gamall sonarsonur Sir Winston Churchills situr, hér í sæti afa síns í höfuðstöðvum hans úr
stríðinu. Til hægri við hann stendur frú Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, en hinum megin faðir
drengsins, þingmaðurinn Winston Churchill. Stjórnstöðvar Sir Winston Churchills hafa nú verið gerðar að safni og var
mynd þessi tekin við opnun þess.
Grenada:
Enn tap hjá Alusuísse
von um betri tíma
Bern, 4. apríl, frá Önnu Bjarnadóllur, frétlarilara
SVISSNESKA fyrirtækið Alusuis.se
var rckið með 82 milljón sv. franka
halla á síðasta ári. I*að var mun
skárri útkoma en árið á undan, 1982,
þegar halli fyrirtækisins var 179
milljón sv. frankar. l*að mun ekki
greiða hluthöfum arð annað árið í
röð. Stjórnendur fyrirtækisins líta þó
hjörtum augum á framtíðina. I'eir bú-
Mbl.
ast við gróða á þessu ári og vonast til
að geta greitt arð á næsta ári.
Eftirspurn eftir áli á vesturlönd-
um jókst um 10,5% á árinu. Verð á
alþjóðamarkaði hækkaði um 61%.
úr 46,6 centum/pund í 75,2 cent/-
pund. Tekjur fyrirtækisins urðu
meiri en kostnaður á seinni hluta
ársins og framleiðsla var yfirleitt á
fullu í öllum verksmiðjum þess.
Conalco, dótturfyrirtæki Alusuisse
í Bandaríkjunum, á í mestum erfið-
leikum og var rekið með gífurlegu
tapi. Nákvæmar tölur eru ekki
gefnar í ársskýrslu fyrirtækisins,
en orð stjórnenda Aiusuisse á fundi
með fréttamönnum bentu til að tap
Conalco hafi verið allt að 180 millj-
ónir sv. franka.
Rekstur Alusuisse hefur verið
tekinn til rækilegrar endurskoðun-
ar á síðustu árum og margar
sparnaðarráðstafanir gerðar.
Starfsmönnum var t.d. fækkað um
10.000 á síðustu þremur árum, þar
af um tæp 3.000 á síðasta ári. Alls
starfa 34.446 manns nú hjá fyrir-
tækinu. Starfssvið þess hefur verið
víkkað og stefnt er að því að aðeins
50 prósent starfseminnar verði í
beinu sambandi við ál í framtíð-
Skrautlegur
söngvari
Söngvarinn Boy George vekur að
jafnaði athygli fyrir skrautlegan
klæðnað og líflega sviðsfram-
komu. Hann er nú á hljómleika-
ferðalagi um Norður-Ameríku
ásamt hljómsveit sinni Culture
Club og er þessi mynd tekin í
Montreal.
Vopn finnast í
sendiráði Kúbu
Skýrðu stjórnvöld á Grenada frá
þessu í dag.
Varðmaður frá Grenada fann
vopnin, en honum hafði verið
falin gæzla sendiráðsins, eftir
að kúbanska sendistarfsfólkið
yiirgaf það og hélt til Kúbu 19.
mars sl.
Er varðmaðurinn var að
kanna sendiráðsbygginguna
fann hann skáp, sem honum
virtist vera með tvöföldum
botni. Við nánari rannsókn fann
hann talsvert magn af vopnum í
leynihólfi undir skápbotninum
og voru þar á meðal vélbyssur af
gerðinni M16 og AK-47 en einn-
ig þrjár sprengjuvörpur.
Sl. (ieorge’s, Crenada, 4. apríl. Al*.
KASSI með vélbyssum og
sprengjuvörpum fannst í kúb-
anska sendiráðinu á Grenada, er
það var rýmt fyrir skemmstu.
Allarskrúfur, múrfestingar, draghnoð og skotnaglar
II
SAMBANDIÐ BYGGINGAVORUR
SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033