Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
3
Tilboð í annan áfanga flugstöðvarinnar opnuð í gæn
ÍSTAK með lægsta tilboð
- rúmar 205 milljómr króna
sem er aðeins 65,5% af kostnaðaráætlun
SEX tilboð bárust í 2. áfanga flug-
stöðvarbyggingarinnar á Keflavíkur-
flugvelli, og reyndist tilboð ístaks
hf. vera lægsta tilboðið, en það
hljóðaði upp á tæpar 206 milljónir
króna sem er einungis 65,5% af
kostnaðaráætlun hönnuða flugstöðv-
arinnar, sem var upp á rúmar 314
milljónir króna. Tilboðin voru opnuð
í gær í húsakynnum varnarmála-
deildar utanríkisráðuneytisins að
viðstöddum fulltrúum verktaka.
Annar áfangi flugstöðvarbygg-
ingarinnar miðast við það að
bygginging verði rúmlega fokheld,
að undanskildum biðsalnum, en
hann verður boðinn sérstaklega
út.
Eins og áður segir var lægsta
tilboðið frá ístak hf. en það hljóð-
aði upp á nákvæmlega 205.725.485
krónur. Annað lægsta tilboðið var
frá Hagvirki hf. og hljóðaði það
upp á 232,5 milljónir króna. Þriðja
lægsta tilboðið var frá Steintaki
hf. upp á 234.800.000 krónur og
frávikstilboð þess var upp á
222.037.500 krónur. Ármannsfell
hf. átti fjórða tilboðið og hljóðaði
það upp á 247.897.394 krónur.
Fimmta tilboðið var frá banda-
rísku fyrirtæki, Howard Corpora-
tion, Greensborrow, N-Carolina,
upp á 248.860.733 krónur og hæsta
tilboðið, sem var þó ekki nema
91,6% af kostnaðaráætlun, var frá
Eyfirskum verktökum hf. og
hljóðaði það upp á sléttar 288
milljónir króna.
Blm. Mbl. spurði Sverri Hauk
Gunnlaugsson, formann bygg-
ingarnefndar flugstöðvarbygg-
ingarinnar, hvenær mætti búast
við að byggingarnefndin tæki
ákvörðun um það hverju þessara
tilboða yrði tekið: „Það er útilokað
að segja til um það á þessu stigi.
Það þarf að gera alls konar út-
reikninga og samanburð áður en
hægt er að segja til um það.“
Sverrir Haukur sagðist telja
þessi tilboð vera mjög góð fyrir
byggingarnefndina, og að sér
sýndist sem svipað væri að gerast
nú og gerst hefði með tilboðin í
fyrsta áfangann, þ.e. jarðvegs-
vinnuna, að tilboðin væru talsvert
lægri en kostnaðaráætlunin.
Svavar Jónatansson hjá Al-
mennu verkfræðistofunni er einn
hönnuða flugstöðvarinnar og
spurði blm. Mbl. hann í gær hvort
hann teldi að það hversu miklu
lægri tilboðin væru en kostnað-
aráætlunin væri vísbending um
það að hönnuðirnir áætluðu allan
kostnað of mikinn: „Eg get ekkert
um það sagt á þessu stigi," sagði
Svavar, „því við eigum eftir að
skoða þessi tilboð og bera þau
sarnan."
Aðspurður um hvort það kæmi
honum á óvart hversu lág tilboðin
hefðu verið sagði Svavar: „Já,
vissulega kemur það mér á óvart,
einkum það að lægsta tilboðið
skuli aðeins vera 65,5% af kostn-
aðaráætlun." Er Svavar var
spurður hverjar hann teldi ástæð-
ur þessa vera sagði hann aðeins að
vafalaust hefði harðnandi sam-
keppni þarna sín áhrif.
TILBOÐIN OPNUÐ — Hér lesa þeir Svavar Jónatansson fri Almennu verkfræðistofunni (t.h.) og Sverrir
Haukur formaður bygginganefndar, eitt tilboðið og þeir Jón Böðvarsson byggingarstjóri flugstöðvarinnar, Garðar
Halldórsson húsameistari ríkisins og Jóhanna Björgólfsdóttir fylgjast með. Ljó.sm. Mbi. Júlíu*
Madness
Poppstjörnur á Lista-
hátíð í sumar:
Mestar líkur
á Madness eða
Paul Young
HUÓMSVEITIN Madness eða
söngvarinn Paul Voung eru þeir popp-
listamenn, sem Listahátíð hefur nú
mestan augastað á að sögn Bjama
Ólafssonar, framkvæmdastjóra hátíð-
arinnar. Önnur þekkt nöfn koma einn-
ig til greina, þ.á m. bæði Nina Hagen
og Queen.
Listahátíð hefur staðið í ströngu
að undanförnu við leit að þekktum
poppstjörnum til þess að leika á há-
tíðinni í sumar. Haft hefur verið
samband við alla ofangreinda aðila,
en enginn þeirra hefur enn gefið
endanlegt svar.
Að sögn Bjarna hefur Listahátíð
lagt snörur sínar fyrir fjöldann all-
an af stórstirnum poppheimsins,
auk framangreindra, á undanförn-
um vikum en með litlum árangri.
Ýmist væru viðkomandi hljómsveit-
ir eða listamenn bókaðir á þeim
tíma, sem Listahátíð stendur yfir,
eða kostnaðurinn samfara heim-
sóknum þeirra svo mikill, að ekki
væri hægt að kljúfa hann.
HVER MAN EKKI EFTIR LÖGUNUM:
Mama, Do Run Run, Do You Wanna Dance? My Prayer, I Only
Have Eyes for You, Splish Splash, Personality,
Sweet Nothing, Hurt, King Creole, Trou
ble, You’re Sixteen, Sea Cruise, Adam og
Boröapantanir í síma 77-500
Gunnar Þórðarson og hljómsveit ásamt
Dúa Dúa-kvartettinum.
Kynnir Páll Þorsteinsson
Aðgöngumiðaverð eftir kl. 23
er kr. 150.
Broadway-pakki Flugleiða
verð frá 3.272 krónum!
Flugleiðir bjóða flug, gistingu í 2
nætur, kvöldverð og skemmtun á
Broadway frá 3.272 krónum!
114 Al HtV
FLUGLEIDIR
Gott lólh hjá traustu télagi J
sívinsæla Didda og Sæmi
rokka
Nu er siðasta tækifærið að sjá
einu bestu rokksyningu a land-
inu i dag með bestu rokklögum
herna megin himins