Morgunblaðið - 18.04.1984, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
SSSEbmBhMB
Óli í Suðurgardi horfir yfir Suðureyjarnar.
Guðni sýnir í Vestmannaeyjum:
Til móts við línur Eyjanna og liti
u
99
Guðni Hermansen listmálari í
Vestmannaeyjum sýnir um það bil
60 olíumálverk í AKOGES-húsinu
um páskana. Flestar myndanna
eru af Vestmannaeyjum, í stóru og
smáu, en einnig eru nokkrar
myndir úr hugmyndaleik listmálar-
ans utan við tíma og rúm.
„Jú, það er rétt, það hefur
gengið vel að helga sig mál-
verkinu eingöngu, því það er nú
komið nokkuð á annan áratug
sem ég hef eingöngu unnið við
málverkið. Lengst'af á þeim
tíma hef ég sótt fyrirmyndir í
sjálfar Eyjarnar, en þó hef ég
alltaf haft gaman af því að fara
út í fantasíuna og þannig hefur
þetta gengið fyrir sig eins og
nokkurs konar flóð og fjara þótt
Eyjarnar sjálfar hafi að sjálf-
sögðu ráðið ferðinni," sagði
Guðni Hermansen í samtali við
Mbl.
„Þótt Vestmannaeyjar séu ef
til vill ekki stórar að efnismagni
þá er hreint ótrúlegt hve þær eru
ríkar af myndefni fyrir Iistmál-
ara og ekki síður fyrir högg-
myndagerðarmenn. Sífellt birtu-
spil hafs, fjalls og himins er
nokkuð sem menn verða að
reyna, það er ekki mögulegt að
útskýra það í orðum, en hugsan-
legt í málverkinu. Fjallahringur-
inn er svo nálægt og sama er
reyndar að segja um úteyjarnar
og maður þarf varla að ganga
nema 5—10 metra vegalengd og
þá er nýtt sjónarhorn fætt.
Nei, ég þarf ekki að kvarta yfir
áhugaleysi, því mínar myndir fá
svo til jafnharðan samastað hjá
fólki, bæði hér heima og heiman
og nokkuð hefur farið til útlanda
af þeim. Þótt mér finnist stund-
um gott að fást við myndefni
sem fer út fyrir landhelgi Eyj-
anna þá er svo mikið afl, mikið
afdráttarafl í Eyjunum, að segja
má að pensillinn fari að hluta til
ósjálfrátt til móts við línur Eyj-
anna og liti.“
— á.j.
Aðalfundur VR:
Magnús L. Sveins-
son endurkjörinn
formaður félagsins
A AÐALFUNDI Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, sem
haldinn var 26. marz sl., kom
fram, að starfsemi félagsins var
mjög mikil sl. starfsár. Sérstök
áherzla var lögð á aukið út-
breiðslu- og fræðslustarf og tóku
nokkur þúsund manns þátt í fé-
lagsstarfinu. Þá kom fram, að
félagið er að hefja byggingu á 56
söluíbúðum fyrir eldri félags-
menn sína, tvær orlofsíbúðir
voru keyptar á Akureyri og eitt
orlofshús að Einarsstöðum.
í skýrslu formanns félags-
ins, Magnúsar L. Sveinssonar,
kom fram, að auk þeirrar
vinnu, sem jafnan fer í samn-
ingagerð og þá sérstaklega
vegna afgreiðslutíma verzlana
á sl. ári, var lögð megináherzla
á stóraukið útbreiðslu- og
fræðslustarf. Má þar nefna út-
gáfu á VR-blaðinu, sem kemur
nú reglulega út og komu 9
tölublöð út á síðasta ári. Með
hinni reglulegu og auknu út-
gáfu á VR-blaðinu hefur tekizt
að stórauka tengslin við fé-
lagsfólkið. í blaðinu er sagt
frá öllu því helzta, sem er að
Mývatnssveit:
Fjölmenn ráðstefna um at-
vinnumál og atvinnuþróun
Mvvatnssveil 16. apríl.
UM SÍÐUSTU helgi var haldin fjöl-
menn ráðstefna um atvinnumál og
atvinnuþróun í Mývatnssveit. Það
var sveitarstjórn og atvinnumála-
nefnd Skútustaðahrepps sem boð-
uðu til ráðstefnunnar og hófst hún í
Hótel Reynihlíð kl.20.30 á fóstu-
dagskvöld.
Oddviti hreppsins, Helga Val-
borg Pétursdóttir, setti ráðstefn-
una. Bauð hún alla velkomna og
alveg sérstaklega aðkomugesti.
Gat hún þess að alþingismönnum
kjördæmisins hefði verið boðið, en
aðeins einn, Steingrímur Sigfús-
son, hefði getað þekkst það.
Óskaði hún þess að Jón Illugason
yrði ráðstefnustjóri en Hallgrím-
ur Pálsson ritari. Fyrsti ræðu-
maður kvöldsins var Arnaldur
Bjarnason sveitarstjóri. Ræddi
hann atvinnu- og íbúaþróun í Mý-
vatnssveit. Kom hann víða við og
var ræða hans hin fróðlegasta.
Aðrir ræðumenn á föstudags-
kvöldið voru: doktor Valdimar Kr.
Jónsson um nýtingu orku háhita-
svæða, doktor Einar Siggeirsson
um lífefnaiðnað og hitakærar ör-
verur, Friðfinnur Daníelsson um
iðnráðgjöf, Helgi Jónasson um
landbúnaðarmál, Arnþór Björns-
son um ferðamál og ferðaþjón-
ustu, Hákon Björnsson um Kísil-
iðjuna, starfsemi og framtíð,
Gunnar Ingi Gunnarsson um
Kröfluvirkjun, starfsemi og fram-
tíð. Flestir ræðumenn voru með
glærur máli sínu til skýringar, og
voru öll þessi framsöguerindi hin
fróðlegustu. Þegar hér var komið
var klukkan farin að ganga eitt
eftir miðnætti, og ráðstefnunni
því frestað til næsta dags.
Klukkan tíu á laugardag var
komið saman á ný í Hótel Reyni-
hlíð. Fjórir vinnuhópar störfuðu
fram að hádegi og unnu allir vel.
Klukkan 13.30 hófst fundur á ný.
Fluttu þá formenn vinnúhópanna
framsöguerindi. Fyrstur tók til
máls Arnþór Björnsson og ræddi
hann um ferðamál vítt og breitt.
Reifaði hann margar athyglis-
verðar hugmyndir sem þyrfti að
vinna að til að auka ferðamanna-
strauminn hingað og jafnframt
lengja ferðatímann og gera þjón-
ustuna fjölbreyttari. Næst talaði
Hákon Björnsson um iðnað og nýj-
ar framleiðslugreinar tengdar
honum. Bar margt á góma í ræðu
hans og virðast vera ýmsir mögu-
leikar í þeim efnum sem full
ástæða er til að skoða. Þá talaði
Helgi Jónasson um mál er snerta
landbúnað. Taldi hann landbúnað
enn vera mjög mikilvægan fyrir
Mývatnssveit. Einnig gat hann um
nokkrar nýjar búgreinar, svo sem
refa- og kanínurækt, og nýtingu
birkiskóganna. Síðasti framsögu-
maður vinnuflokkanna var Gunn-
ar Ingi Gunnarsson. Ræddi hann
um orkumál, lífefnaiðnað og hag-
nýtingu jarðhitans á ýmsan hátt,
meðal annars við ræktun margs-
konar jurta. Nefndi hann í því
sambandi blóðberg, sortulyng og
fleiri áhugaverðar plöntur. Síðan
hófust frjálsar umræður. Fyrstur
á mælendaskrá var Arnaldur
Bjarnason. Gat hann þess helsta
er fram hafði komið hjá fram-
sögumönnum vinnuhópanna. Upp-
lýsti hann meðal annars að Nátt-
úruverndarráði hefði verið boðið
að senda fulltrúa á ráðstefnuna en
að því hefði ekki getað orðið. Aðrir
ræðumenn voru: Hallgrímur
Geirsson, Haukur Brynjólfsson,
Sigurður Rúnar Ragnarsson, Jón
Árni Sigfússon, Jón Ulugason,
Steingrímur Sigfússon alþingis-
maður, Arnþór Björnsson, Jón
Bjartmar Sigurðsson, doktor Ein-
&r Siggeirsson, Helgi Jónasson,
doktor Valdimar K. Jónsson og
Friðfinnur Daníelsson. Síöasti
ræðumaður var Arnaldur Bjarna-
son sveitarstjóri. Þakkaði hann
öllum viðstöddum fyrir komuna og
alveg sérstakleg þeim sem lagt
höfðu á sig langt ferðalag til að
mæta. Sleit hann síðan ráðstefn-
unni. Síðast ber að þakka sveitar-
stjórn og atvinnumálanefnd
Skútustaðahrepps fyrir að gang-
ast fyrir þessari vel heppnuðu
ráðstefnu.
Kristján
Kvikmynd um Ásgrím frumsýnd í sjónvarpi
Heimildarkvikmynd sem sjónvarp-
ið hefur gerl um Asgrím Jónsson list-
málara veróur frumsýnd í sjónvarp-
inu sunnudaginn 22. apríl.
„Ásgrímur Jónsson er af hinni
fyrstu kynslóð íslenskra listmálara
sem kemur fram á sjónarsviðið um
og upp úr síðustu aldamótum. ís-
lenskt landslag og blæbrigði þess
er höfðuviðfangsefni hans á sextíu
ára löngum og frjóum listaferli og
ferðaðist hann mikið um landið.
Sérstaklega laðaðist hann að nátt-
úrufegurð Húsafells og leitaði
þangað sumar eftir sumar í nær
fjóra áratugi,“ segir í freít frá
Sjónvarpinu um myndina.
„Myndina tókum við að mestu
síðastliðið sumar og höfum verið
að vinna í henni síðan," sagði
Þrándur Thoroddsen kvikmynda-
stjóri myndarinnar í samtali við
Mbl.„Hún er óvenju löng af svona
mynd að vera en okkur fannst efn-
ið gefa tilefni til þess. 1 myndinni
eru viðtöl við bræðurna frá Húsa-
felli, Kristleif og Þorstein Þor-
steinssyni, og segja þeir frá kynn-
um sínum af málaranum. Þorvald-
ur Skúlason listmálari, einn af ör-
fáum eftirlifandi nemendum Ás-
gríms, rifjar upp gamlar minn-
ingar og greinir frá þeim áhrifum
sem Ásgrímur hafði á kynslóð
hans. Einnig er rætt við Bjarn-
veigu Bjarnadóttur sem var upp-
hafsmaður og fyrrverandi for-
Frá töku myndarinnar
stöðumaður Ásgrímssafns. Þá er
skotið inn í myndina bútum úr
tveim gömlum kvikmyndum sem
til eru um Ásgrím, og æviferill og
listamanssferill hans rakinn. Þá
les Árni Kristjánsson píanóleikari
úr minningum Ásgríms inn á
myndina. Verk málarans eru
kynnt og leitaðir upp staðir og
jafnvel mótiv sem hann sótti í.“
Hrafnhildur Schram samdi
texta myndarinnar og er umsjón-
armaður hennar, Ijósmyndir tók
Hörður Kristjánsson, kvikmyndun
önnðust Óli Örn Andreassen og
Örn Sveinsson, klippingu Jimmy
Sjöland og hljóðmaður var Jón
Arason.
Magnús L. Sveinsson
gerast hjá félaginu hverju
sinni, og félagsfólk getur
þannig jafnóðum fylgst með
því.
Margs konar fræðslunám-
skeið voru haldin; námskeið
með trúnaðarmönnum á
vinnustöðum, fjögur námskeið
í heilsurækt og heilsuvernd,
tvö námskeið í ræðumennsku
og fundarsköpum og tvö nám-
skeið í teiknun og málun. Tvö
hundruð og fimmtíu félags-
menn VR sóttu starfsnám-
skeið hjá Verzlunarskóla ís-
lands og Stjórnunarfélagi ís-
lands samkvæmt samningi,
sem VR gerði við þessa aðila,
sem hafa sérhæft sig í nám-
skeiðahaldi.
Þá hélt félagið vinnustaða-
fundi með starfsfólki úr um 60
fyrirtækjum og fjórir félags-
fundir voru haldnir. Þann 1.
maí hafði félagið opið hús þar
sem félagsmönnum var boðið
að skoða hin nýju húsakynni
félagsins og þiggja kaffiveit-
ingar. Um tvö þúsund manns
komu í heimsókn til félagsins
þennan dag. Félagið er nýbúið
að festa kaup á tveimur íbúð-
um á Akureyri, sem leigðar
verða eftir sömu reglum og
orlofshúsin, og eitt nýtt
orlofshús verður tekið í notk-
un að Einarsstöðum í sumar
og á félagið þá orðið 18
orlofshús og tvær orlofsíbúðir.
Þá kom fram í ræðu Magn-
úsar, að félagið lét vinna sér-
staka könnun á högum eldri
félagsmanna sinna á síðasta
ári og er félagið að hefja bygg-
ingu á 56 söluíbúðum fyrir
eldri félagsmenn sína í sam-
vinnu við Reykjavíkurborg,
sem reka mun þjónustu í hús-
inu. Fyrsta skóflustunga að
byggingunni verður tekin 1.
maí nk.
Hér hefur verið getið nokk-
urra helztu þátta í starfsemi
félagsins á sl. starfsári. í öllu
þessu starfi tóku þátt nokkur
þúsund félagsmenn.
Magnús L. Sveinsson var
endurkjörinn formaður félags-
ins til tveggja ára. Aðrir í
stjórn eru Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir, varaformaður,
Böðvar Pétursson, ritari, Pét-
ur A. Maack, gjaldkeri, Arnór
Pálsson, Anna Laufey Stef-
ánsdóttir, Elín Elíasdóttir, El-
ís Adolphsson, Teitur Jensson,
Helgi E. Guðbrandsson, Grét-
ar Hannesson, Sigurlaug
Sveinbjörnsdóttir, Jóhanna E.
Sveinsdóttir, Jón ísaksson og
Jóhanna Vilhelmsdóttir.