Morgunblaðið - 18.04.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
„AÐSÓKN hefur verið góð, á fjórða
þúsund manns hefur nú komið á
sýnint'una frá því hún var opnuð, og
ég er ánægður ineð undirtektir,"
sagði Baltasar listmálari í stuttu
spjalli við Morgunblaðið um sýn-
ingu á verkum hans, sem nú stend-
ur yfir að Kjarvalsstöðum. Á sýn-
ingunni sýnir Baltasar 55 málverk,
sem hann skiptir í nokkra flokka
eftir myndefni og er þetta tíunda
einkasýning listmálarans, auk þess
sem hann hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga bæði hér heima og er-
lendis.
„Þessi sýning er á margan hátt
frábrugðin mínum fyrri sýning-
um,“ sagði Baltasar ennfremur,
„það má eiginlega líta á þetta
eins og symfóníu í mörgum mis-
munandi þáttum, sem ég reyni
svo að samræma. Það er einn
sýningunni.
(Morfninblaðió OI.K.M.)
\^m
Baltasar við eitt verka sinna á
Undirbúningur að
lífeverkeftii mínu
tónn sem gengur í gegnum heild-
ina, með mismunandi stefum þó.
Myndirnar eru allar unnar á
svipaðan hátt tæknilega, með
sama litakerfi, en fjalla um mis-
munandi hluti. Ástæðan fyrir
þessum vinnubrögðum er það
stórverkefni sem býður mín í
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, en
það er 200 fermetra freska, sem
mér hefur verið falið að mála þar.
Það má því segja, að ég líti á
þessa sýningu sem æfingu fyrir
mig fyrir þetta mikla verkefni.
Þetta er t.d. í fyrsta skipti sem ég
mála allar myndirnar mattar og
það er m.a. til að venja mig við þá
áferð. Litirnir sem ég nota eru
einnig nákvæmlega þeir sömu og
ég kem til með að nota á fresk-
una, en það eru ekki nema sér-
stakir litir, sem þoia kalkið, en
freskan er máluð á blautt kalk og
því verður að nota sérstaklega
sterka liti, sem þola brennsluna
og kalkið étur ekki. Þetta setur
auðvitað sterkasta svipinn á
þessa sýningu, að verkin eru öll
máluð með þetta í huga. Má þar
m.a. nefna fjórar stórar litaæf-
ingar, sem eru bara litlir partar í
smækkaðri stærð af því verki,
sem ég kem til með að mála í
Víðistaðakirkju."
Hvenær byrjarðu svo á þessu
mikla verkefni í Víðistaðakirkju?
„Freskur eru þannig, að það
verður að mála þær um leið og
Segir Baltasar
um sýninguna að
Kjarvalsstöðum
húsin eru fokheld og mér skilst að
þeir nái að loka kirkjunni nú
fyrir sumarið. En þar sem svo
mikið vatn er notað við fresku-
gerðina, er ekki hægt að byrja
fyrr en öruggt er, að ekki muni
frjósa. En eins og ég sagði, er
sýningin eins konar æfing fyrir
þetta verkefni, þar sem ég nota
sömu liti og sömu tækni og ég
ætla að nota á freskuna. Ég hef
unnið að þessari hugmynd frá ár-
inu 1982, er mér bauðst að taka
þessa kirkjuskreytingu að mér og
á sýningunni koma fram þær
hugmyndir, sem ég hef gert mér
að þessu verki.
Það er auðvitað Ijóst, að svona
verkefni nær sterkum tökum á
manni, því freskur geta staðið til
eilífðar, ef vel tekst til, og þú fest-
ir ekki slíkt verk á vegg, sem
kannski á eftir að standa í tvö til
þrjú þúsund ár, nema að vel
hugsuðu máli. í slíkum tilfellum
þýðir ekki að hugsa um einhverj-
ar tískulínur, sem ganga í dag,
heldur spyr maður sjálfan sig,
hvernig maður vill að komandi
kynsióðir sjái mann. Á sýning-
unni kemur því fram þessi leit
mín að sjálfum mér og hvernig ég
vil að komandi kynslóðir sjái mig.
Þetta er sem sagt leit að stíl,
formi og litagerð sem ég vil að
varðveitist. Ég fer ekki í neinn
tískujakka til að mála þetta.
Það er því mjög mikilvægt í lífi
hvers listamanns, að fá slíkt
verkefni, þar sem þú þarft að
spyrja sjálfan þig svo margra
spurninga og meta allt þitt lífs-
starf. Og þessi sýning er hluti af
svörunum við þessum spurning-
um. Þemað í kirkjuskreytingunni
verða sæluboðorðin, sem Kristur
boðaði í Fjallræðunni og ég fékk
frjálsar hendur með að velja
þemað, sem arkitektinn og sókn-
arpresturinn síðan samþykktu.
Og það má líka geta þess, að ég
ætla að hafa Jesúm brosandi, sem
ég held að hafi aldrei verið gert
áður. Þetta verður hinn mildi Jes-
ús. Freskan kemur til með að
verða eins konar minnisvarði og
verður mikilvægasta verk sem ég
hef unnið í lífinu. Svona tækifæri
fær maður ekki oft í lífinu og þvi
má segja, að sýningin mín nú að
Kjarvalsstöðum sé undirbúning-
ur að lífsverkefni mínu,“ sagði
Baltasar.
Sýning Baltasar að Kjarvals-
stöðum verður opin nú yfir hátíð-
arnar, frá klukkan 14.00 til 22.00
alla daga, en henni Iýkur á annan
í páskum.
Kartöflurnar nánast blaut eðja:
36,4% í 3. flokk og
þar fyrir neðan
SAMKVÆMT KÖNNUN sem Neytendasamtökin gengust nýlega
fyrir, þar sem kartöflur úr 19 verslunum voru kannaðar og flokkað-
ar, þá hafna 36,4% af þeim pokum sem neytendum stendur til boða
úr þeim verslunum í 3. flokki eða neðar, en fyrir þessa vöru verða
neytendur að greiða fullt verð. Þetta kemur fram í frétt frá Neyt-
endasamtökunum um könnun sem þau gengust fyrir þann 11. þessa
mánaðar.
Þar kemur fram að það voru 22
2,5 kílóa kartöflupokar sem keypt-
ir voru til könnunarinnar, og það
var fulltrúi yfirmatsmanna garð-
ávaxta, Hrafnlaug Guðlaugsdótt-
ir, sem var matsmaður. Matið fór
fram í húsi Grænmetisverslunar
landbúnaðarins.
í frétt Neytendasamtakanna
segir að kartöflur frá einni versl-
un hafi skorið sig úr, og verið nán-
ast blaut eðja. Það hafi verið kart-
öflur frá SS Miðbæjarmarkaði.
Þar hafi m.a. verið á boðstólum 12.
apríl poki pakkaður í febrúar.
voru dagsetningar á kartöflum
þar kannaðar nánar vegna þessa
og í ljós kom að um helmingur var
pakkaður um miðjan mars og það
nýjasta var frá 2. apríl.
í kartöflunum frá Finnlandi
hefur fundist sýking, svokallað
hringrot, og af þeim sökum hefur
liðlega 50 tonnum verið fleygt á
öskuhauga. Sjúkdómur þessi er
ekki hættulegur heilsu manna, en
Neytendasamtökin beina því engu
að síður til fólks að það forðist að
setja niður erlendar matarkartöfl-
ur í garða sína, þar sem slíkt gæti
haft í för með sér mikið tjón fyrir
framleiðslu garðávaxta á tslandi.
Morgunblaðið sneri sér til
Gunnlaugs Björnssonar, forstjóra
Grænmetisverslunarinnar, vegna
þessa. „Þetta er nú ekki að öllu
leyti okkar mál, heldur einnig
smásöludreifingarinnar, þar sem í
mörgum tilvikum er farið mjög
illa með þessa vöru, einmitt á
þeim tíma þegar hún þolir ekkert
hnjask," sagði Gunnlaugur m.a.,
en hann bætti því við að auðvitað
væri leitt til þessa að vita, enda
hefði pökkun og afgreiðsla á
finnsku kartöflunum, sem verst
komu út úr könnuninni, verið
stöðvuð.
Austurrískir skíðakennar-
ar í Bláfjöllum um páskana
SKÍÐASKÓLI Ármanns hefur feng-
ið til liðs við sig I Bláfjöllum um
páskana tvo austurríska skíðakenn-
ara, sem munu kenna ásamt Hafliða
B.Harðarsyni skólastjóra, Einari
Úlfssyni yfirkennara skíðaskólans
o.fl.
Það eru þeir Helmut Mayer,
sem er íslensku skfðafólki kunnur
fyrir kennslu í Kerlingafjöllum sl.
10 ár og Herbert, sem kenndi 1979
og 1980 í Kerlingafjöllum. Báðir
hafa lokið hinu austurríska skíða-
kennaraprófi, auk þess sem Helm-
ut er gamall landsliðsmaður Aust-
urríkis, og getur einnig státað af
æðstu gráðu skíðakennara, hinni
erfiðu þjálfaragráðu Austurríkis.
Safnast verður saman dag
hvern við Þjónustumiðstöðina í
Bláfjöllum fyrir kl. 11 f.h. og verð-
ur þá kennt til kl. 13. Um kl. 13
hefst svo annað námskeið sem
stendur til kl. 16. Boðið er upp á
kennslu fyrir skíðamenn af öllu
tagi. Byrjendum og börnum verð-
ur kennt f nánd við Þjónustumið-
stöðina, en þeir sem lengra eru
komnir fá að spreyta sig hvar sem
er á skíðasvæði Bláfjalla. Barna-
garðurinn verður starfræktur
fyrir neðan Þjónustumiðstöðina
með svipuðu sniði og undanfarin
ár. Þar er börnum kennt á skíði
með aðstoð ýmissa þrauta svo sem
hóla og hliða. Tekið er á móti
börnum ailt niður í 2ja ára og
þeirra gætt uns foreldrar vitja
þeirra. Innritun er fyrirfram í
síma og f Þjónustumiðstöðinni áð-
ur en kennsla hefst.
Mjólkurfræðingar semja:
Fá fram ákvæði
varðandi vinnu-
réttindamál
SAMNINGAR tókust með mjólkurfræðingum og viðsemjendum þeirra um
kvöldmatarleytið á mánudag eftir rúmlega 30 klukkustunda langan samn-
ingafund, en fundurinn hófst klukkan 10 á sunnudagsmorguninn. Samning-
urinn er sá sami og samningur ASÍ og VSÍ frá 21. febrúar í vetur, hvað varðar
gildistíma, uppsagnarákvæði og áfangahækkanir, en auk þess náðu mjólkur-
fræðingar fram ákvæðum varðandi vinnuréttindamál. Samningurinn er aft-
urvirkur til 21. febrúar.
Verkfalli mjólkurfræðinga sem
hófst á miðnætti á sunnudag er
því aflýst og var vinna í mjólkur-
stöðvunum með eðlilegum hætti f
gær.
Guðmundur Sigurgeirsson, for-
maður Mjólkurfræðingafélags ís-
lands, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið vera eftir atvikum
ánægður með samninginn. Við-
ræðurnar hefðu fyrst og fremst
snúist um vinnuréttindamál og
þeir hefðu fengið fram ákveðna
tryggingu varðandi þau. Um væri
að ræða skilgreiningu á störfum
mjólkurfræðinga, hvaða störfum
þeir ættu að gegna og trygging
fyrir því að þeir gegndu þeim
störfum í framtíðinni. Þeir hefðu
síðan tekið til við að ræða kaup-
gjaldsmálin á mánudagsmorgun-
inn og gengið tiltölulega fljótt og
vel að fá niðurstöðu í þau mál.
„Ég held ég verði að vera
ánægður með samninginn. Það er
eins og alltaf í samningum að
maður verður að gefa eftir af sín-
um kröfum, en ég held ég geti
ánægður skrifað undir þessa
samninga," sagði Guðmundur.
Gert er ráð fyrir að félagsfund-
ur verði hjá Mjólkurfræðingafé-
lagi íslands nú í vikunni, þar sem
samningurinn verður borinn undir
atkvæði félagsmanna.
Frá undirritun samnings Mjólkurfræóingafélagsins og Vinnumálasambands Samvinnufélaganna um kvöldmatarleyt-
ið í gær hjá ríkissáttasemjara. Morgunbi»*tó/ kee.
*
Askorun Frétta- og fræðsludeildar sjónvarpsins:
Sjónvarp verði á fímmtudögum
FRÉTTA- og fræðsludeild sjónvarps-
ins segist í bréfi, sem lagt var fram á
fundi útvarpsráðs þann 13. þ.m.,
heita á útvarpsráð og útvarpsstjóra
að taka upp fréttir og jafnframt
kvölddagskrá alla fimmtudaga sem
aðra daga vikunnar frá og með byrj-
un næsta árs.
í bréfi FFD kemur einnig fram,
að sjónvarp á fimmtudögum sé að-
eins rökrétt framhald af afnámi
sumarlokunar sjónvarpsins í júlí.
Þá telur deildin að fráleitt sé að
hafa einn fréttalausan dag í vik-
unni þegar fast starfslið er fyrir
hendi fimmtudaga sem aðra daga.
Ennfremur séu fréttasendingar
keyptar erlendis frá á fimmtudög-
um og stór hluti þeirra úreldist á
þeim tíma sem líður þar til fréttir
eru sýndar á föstudagskvöldum.
Þá segir einnig í bréfi FFD, að
lágmarkskrafa sé, að íslenskir
sjónvarpsáhorfendur eigi valkost
á milli íslensks og norsks sjón-
varpsefnis á fimmtudögum nú
þegar ljóst virðist að möguleikar
séu fyrir hendi á móttöku efnis frá
norska sjónvarpinu.