Morgunblaðið - 18.04.1984, Side 22

Morgunblaðið - 18.04.1984, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984 Samband evrópskra verkalýðsfélaga: Krafa um 35 stunda vinnuviku á oddinn Briissel. 17. apríl. AP. SAMBAND evrópskra verkalýðsfé- laga (ETUC) hóf í vikunni herferð sem miðar að því að hvetja til mikill- ar þátttöku í kosningum til Evrópu- þingsins, sem fram eiga að fara 17. júní nk. Jafnframt hvatti sambandið til þess að tekin yrði upp 35 stunda vinnuvika til þess að draga úr at- vinnuleysi í álfunni. Forseti ETUC, Georges Deb- unne, segir að ástæðan fyrir því að sambandið hafi ákveðið að hvetja til þátttöku í kosningunum til Evrópuþingsins sé sú að „lýðræð- isleg, sterk og samhent Evrópa er besta trygging sem hægt er að fá í baráttunni gegn kreppunni". Hann sagði jafnframt að æ fleiri gerðu sér grein fyrir því að veruleg stytting vinnutíma væri eitt þýðingarmesta atriðið í bar- áttu gegn atvinnuleysi. Þrettán milljónir manna ganga um þessar mundir atvinnulausar í ríkjum Efnahagsbandalags Evr- ópu. Fjórðungur þess hóps er yngri en 25 ára og helmingur hinna ungu atvinnuleysingja er konur. Krafan um 35 stunda vinnuviku hefur verið mjög áberandi í Þýskalandi að undanförnu. Hér er þeirri kröfu haldið á lofti í mótmælagöngu á vegum vestur-þýska alþýðusambandsins í Hamborg fyrir nokkru. Dómstólsmenn í Haag fá vinnufrið vilja Haag, 17. apríl. Al’. Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur látið þau skilaboð berast til ríkis- stjórna Nicaragua og Bandaríkj- anna, að vinsamlega aðhafast ekkert á næstunni sem haft gæti áhrif á umfjöllun dómstólsins um kæru fyrrnefnda landsins á hendur þess síðarnefnda að hafa komið fyrir tundurduflum í hafnarmynnum borga í Nicaragua. Nicaragua-stjórn lagði fram kæru sína snemma í síðustu viku, en daginn áður hafði Bandaríkja- stjórn tilkynnt að hún myndi ekki hlýta úrskurði dómstólsins á þeim forsendum að sandinistarnir í Nicaragua væru að nota dómstól- inn í áróðursskyni. Hinir 16 fulltrúar alþjóða- dómstólsins sátu á fundi vegna þessa máls í dag, en ekkert var látið uppi um fundarefni. Dóm- stóllinn gæti skipað Bandaríkja- mönnum að hætta stuðningi við hina svokölluðu „contra“-skæru- liða sem berjast gegn sandinista- stjórninni og hafa stuðning Bandaríkjanna. Á hinn bóginn hefur dómstóllinn ekkert umboð eða vald til að framfylgja úrskurð- um sínum, verður að treysta því og vona að viðkomandi þjóðir beri virðingu fyrir dómstólnum. Gromyko sækir Ungverja heim BúdapeKt, 17. apríl. Al’. ANDREI Gromyko utanríkisráóherra Sovétríkjanna kom í dag í opinbera heimsókn til Ungverjalands. Síðar í vikunni mun hann sitja fund utanrík- isráðherra Varsjárbandalagsríkja í Búdapest þar sem samskipti ríkja í austri oe vestri eru cinkum á dagskrá. Kvöldblaðið Esti Hirlap í Búda- pest sagði að ekki væri undarlegt þótt heimsóknin vekti athygli „þeg- ar öfgaöfl innan NATO og forystu- menn í Bandaríkjunum varpa dökk- um skugga spennu yfir heiminn". Rússar gefa í skyn að þeir muni ekki senda lið á ólympíuleikana Moskm. 17. apríl. Al’. MARAT GRAMOV, framkvæmda stjóri sovésku ólympíunefndarinnar, sagði í dag, að svo gæti farið að Sovétmenn myndu ekki taka þátt í sumarólympíuleikunum sem haldnir verða í Los Angeles. Færi það alfar- ið eftir því hvort Bandarfkjastjórn myndi bregðast með viðunandi hætti við kvörtunum Sovétmanna um undirbúning leikanna. Sovéska fréttastofan Novosti ásakaði Banda- ríkin á sama tíma um að reyna að hindra Sovétmenn í því að taka þátt í leikunum. Gramov hinn sovéski ásakaði Ronald Reagan og stjórn hans um „illa fyrirhyggju" í þessu máli, til stæði með ódrengilegum brögðum að gera Sovétmönnum ókleift að taka þátt f leikunum og Banda- ríkjastjórn styddi með ráðum og dáð þá hópa sem berjast gegn sov- éskri þátttöku. Hann þvertók fyrir það að Sovétmenn væru að leita sér að átyllu til að mæta ekki og hefna sfn þannig á Bandarikja- mönnum fyrir að koma ekki til leiks á síðustu sumarleika sem haldnir voru f Moskvu. „Það er undir Bandaríkja- mönnum sjálfum komið að gera jarðveginn þannig úr garði að við getum sent lið okkar. Frestur til að staðfesta þátttöku rennur út 2. júnf og við munum ekki staðfesta þátttöku okkar fyrr en í lok maí, ekki fyrr en Bandaríkjamenn hafa sýnt að þeir muni koma fram við okkur sem þeim ber,“ sagði Gramov og ítrekaði að um hefnd- araðgerðir væri ekki að ræða. Fréttastofan Novosti greindi frá því að samsteypa ein mikil hefði tekið sig til í Bandaríkjunum, skýrt sig „Bann gegn Rússum" og yfirlýst stefna hennar væri að misþyrma hverjum þeim sovésk- um iþróttamanni eða ferðamanni sem á vegi meðlima samsteypun- ar kunna að verða. Talsmenn Bandaríkjastjórnar hafa til þessa sagt að ekki sé hinn minnsti fótur fyrir ásökunum Sovétríkjanna, þetta sé hreinlega þeirra svar við aðgerðum Banda- rfkjamanna að mæta ekki á 01 f Moskvu fyrir fjórum árum, en það gerðu þeir til þess að mótmæla hernaði Sovétmanna í Afganist- an. Þreyttur njósnari Ertu örmagna? spuröi blaöamaöur Aftenposten og Arne Treholt svaraöi aö bragöi: Já, hvaö sýnist þér? Myndin var tekin í síðustu viku þegar Treholt, fyrrum skrifstofustjóri í norska utanríkisráöuneytinu, sem sakaöur er um njósnir í þágu Sovétríkjanna, var fluttur í Drammen- fangelsið eftir að hafa veriö yfirheyröur á lögreglustöðinni í Ósló. í fylgd með honum voru fjórir lögreglumenn og eins og sést á myndinni var hann tryggilega járnaður. Asýndar virtist hann ekki bugaður eftir strangar yfirheyrslur sl. tólf vikur. Janni Spies: Ein ríkasta ekkja Evrópu Kaupmannahöfn, 17. apríl. Al'. HIN 21 ÁRS gamla Janni Spies er orðin einhver ríkasta ekkja Evrópu, eftir að hinn frægi eiginmaöur henn- ar, ferðaskrifstofujöfurinn Simon Spi- es, lést í vikunni, en þau höföu verið gift í 11 mánuði. Frú Spies lýkur grunnskólanámi í sumar og tekur þá alfarið við rekstri fyrirtækisins, mik- illar samsteypu feröaskrifstofa, gisti- húsa, kvikmyndahúsa og sjö Boeing- 720 farþegaþota. „Ég ætla að gera Janni að kátri ekkju“ sagði Spies í gamni og al- vöru er þau gengu í það heilaga fyrir tæpu ári. Janni var fjórða kona hans, en öll hjónaböndin fyrri enduðu með skilnaði innan árs. Margir veltu vöngum yfir því er Spies og Janni giftust, hvort hin unga stúlka ásældist auð Spies. Fyrirtæki Spies eru metin á 112 milljónir dollara og arfurinn því meira en umtalsverður. Hins vegar munu riú flestir Danir vera þeirrar skoðunar nú, að ekkert óhreint hafi verið í pokahorninu og hin unga Janni Spies sé í raun mjög vönduð og óvenjuleg stúlka. Fremur lítið er vitað um Janni Spies, upphaflega Janni Brodersen, eiginlega lítið annað en að faðir hennar er fulltrúi hjá Pósti og síma í Kaupmannahöfn. Nú er hún nokk- Janni Spies urs konar „Lady Di“ þeirra Dana, aðlaðandi og óútreiknanleg, korn- ung í ábyrgðarstöðu, en að sjá nógu þroskuð til að spjara sig og vel það. Hún hætti í grunnskóla til að hefja fábrotið skrifstofustarf hjá Spies. Fjórum árum síðar var hún bæði eiginkona forstjórans og gjaldkeri fyrirtækisins. Nú er hún forstjór- inn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.