Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
Gestur Gunnlaugs-
son böndi - Kveðjuorð
Fæddur 8. október 1895
Dáinn 10. apríl 1984
Ætíð kemur mér hann í hug, þá
ég heyri góðs mann getið — á Jón
biskup Ögmundarson að hafa sagt
— og þessi orð vil ég gjöra að mín-
um, þegar ég kveð Gest Gunn-
laugsson, föðurbróður minn, fyrr-
um bónda í Meltungu í Kópavogi.
Allt frá því, er ég man fyrst,
heyrði ég hann aldrei annað
nefndan en Gest bróður af föður
mínum og milli þeirra var mjög
kært bræðralag og þetta, að hann
var nefndur bróðir á mínu
bernskuheimili, færði mér heim
sanninn um, að orðið bróðir þýddi
eitthvað mikið, því að ég hafði
aldrei orðið þess sjálfur aðnjót-
andi að eiga bróður eða systur,
sem lifðu.
Mér eru mjög minnisstæð jól
ein er ég var ungur, að þannig var
ástatt, að hvorki fengust kerti né
spil í kaupfélaginu í Búðardal, að
nágranni okkar einn kom með
pakka til okkar skömmu fyrir jól
og er sá pakki var opnaður inni-
hélt hann m.a. þá hluti, sem
barnshjarta mitt tengdi mest jól-
um, nefniiega kerti og spil, og þá á
ég að hafa sagt „mikill blessaður
Gestur er þetta", því að pakkinn
var einmitt frá Gesti frænda mín-
um.
Er ég óx og við fluttumst til
Reykjavíkur kynntist ég honum
enn betur og þá sá ég og sé
kannski ennþá gleggra nú er ég lít
yfir farinn veg, að það var með
ólíkindum hve stórt hjarta rúmað-
ist í svo lágvöxnum manni. Ætíð
var hann boðinn og búinn til að
hjálpa, hvort sem var á nóttu eða
degi, og það henti oft.
Gestur var jafnan glaður og
reifur og hafði spaugyrði á vörum,
en undir sló hans stóra og heita
hjarta, það vita best þeir er hon-
um voru skyldastir og þau mörgu
börn, er hann ól upp, bæði stjúp-
dætur, kjörsonur og aðrir, er
lengri eða skemmri tíma dvöldu í
Meltungu, en þar bjuggu þau
Loftveig heitin Guðmundsdóttir
langan aldur og þar mátti heita að
stæði borð við þjóðbraut þvera.
Þar var ávallt gestkvæmt og þar
var gestrisni í fyrirrúmi, það var
því vel til fallið það nafn sem hús-
bóndinn bar.
Það saxast nú óðum á hóp
þeirra smaladrengja, er upp úr
síðustu aldamótum áttu létt spor
upp af efstu drögum Vífilsdals í
Dalasýslu. Þeir voru einnig léttir í
lund og tryggir í lund hvert sem
þeirra ævistarf var, í sveitinni eða
hér í Reykjavík og það henti einn
þeirra að reikna út gang himin-
tungla svo frægt varð. Þeir hverfa
nú einn af öðrum yfir móðuna
miklu og mosinn og lyngið á efstu
drögum dalsins geymir enn spor
þeirra og hrundir smalakofar und-
ir Bríkum og á Seljamúla vitna
um verk ungra handa, er reistu þá
um það leyti, er þjóðin var að
vakna fyrir alvöru til lífsins í
byrjun aldar.
Ég þakka kærum föðurbróður
mínum vináttu hans og frænd-
rækni við mig og mína, bæði for-
eldra mína, svo og konu mína og
börn okkar.
Það veit ég að Gestur átti góða
heimvon handan við móðuna
miklu, þar sem vinir og ættingjar
bíða hans — því hvar sem hann
fer, þar fer góður drengur.
Halldór Ólafsson
Nú er hann afi í Meltungu, eins
og við kölluðum hann, kominn yfir
landamærin miklu, — hefur kvatt
þetta líf eftir langan og góðan
starfsdag.
Gestur heitinn var fóstri okkar
frá því við vorum börn. Hann var
raunar mikið meira en það. Hann
var stjúpafi okkar, varð nánasti
ættingi okkar. Við minnumst hans
sem mikilmennis, og má allt að
einu skrifa það orð með stórum
stöfum. í lífi sínu og verkum reisti
hann þann varða sem maður finn-
ur innan í sér. Við, sem Meltungu-
hjónin ólu upp, höfum mikið að
þakka.
Þegar við vorum börn, sagði
amma okkur að tveir englar gættu
Meltunguhússins, væru hvor á sín-
um mæni. Okkur fannst þetta rétt,
og hefur fundist síðan. Jafnsatt
finnst okkur, að þegar þessir engl-
ar fylgdu afa að hinu gullna hliði,
hafi þar verið margir móttakend-
ur, bæði menn og málleysingjar,
því meðal málleysingjanna átti
hann marga og umtalsverða vini.
Nú er komið að leiðarlokum og
nú þegar við kveðjumst viljum við
þakka samfylgdina og það sem við
nutum þar. Þó verður það þakk-
læti aldrei með orðum gert.
Uppeldissynir
Gott gott er gott!
FINNICE súkkulaðikex
er gott gott.
Fáið ykkur FINNICE.
Fráááábært!
kantclan
FINNSKT Gft
< t f
Unnur Erlends-
dóttir - Minning
Fædd 27. október 1903
Dáin 7. apríl 1984
„£g er upprUan og IÍM. Ilver sem trúir á mig
mun lifa þótt hann deyi.“
Þessi orð úr heilagri ritningu
komu mér strax í hug þegar ég
frétti að Unnur Erlendsdóttir
vinkona mín væri flutt héðan úr
heimi. Þegar systur mínar heim-
sóttu hana helsjúka og hún mátti
vart mæla, spurði hún hvernig
mér liði. Hún vissi að ég hafði orð-
ið fyrir slysi. Þetta lýsir vel um-
hyggju hennar, tryggð og kær-
leika, sem hún var svo rík af. Það
voru blandaðar tilfinningar sem
hreyfðu sér í brjósti mínu við lát
hennar. Mikill söknuður og mikið
þakklæti. Þakklæti fyrir lausn
hennar frá þjáningum sjúkdóms-
ins. Þakklæti fyrir líf hennar og
störf.
Það var áliðið kvölds laugárdag-
inn 7. apríl. Ég var gengin til náða
fyrir nokkru. Hugur minn beindist
að eilífðarmálunum og hverful-
leika þessa jarðneska lífs. Það var
óvenjulega kyrrt og hljótt. Ekkert
bílaskrölt fyrir utan gluggann.
Engin innanhúss truflandi tónn.
Skyndilega kvað við skær og fagur
klukknahljómur. Mér brá sem
snöggvast. Frá barnsaldri hafði ég
heyrt að klukknahljómur boðaði
mannslát. Ég hafði ekki verið sér-
lega trúuð á það, en nú brá svo við
að mér varð að orði: „Nú er Unnur
mín farin “ Kannski voru þetta
klukkur himnanna að bjóða hana
velkomna heim. Átti þetta ef til
vill líka að minna mig á að vera
viðbúin síðasta kallinu? Þá kaupir
sér enginn frí. Veruleikinn lét ekki
á sér standa. Þennan dag, 7. apríl,
fékk Unnur hvíldina.
Hún var fædd á Akureyri 27.
október 1903. Foreldrar hennar
voru merkishjónin Sigurbjörg
Ólafsdóttir og Érlendur Sveinsson
klæðskeri. Þau eignuðust 3 börn.
Tvö þau elstu voru fædd á Akur-
eyri. Þaðan fluttist fjölskyldan til
Reykjavíkur. Þau hjón voru bæði
austfirskrar ættar. Móðurforeldr-
ar Unnar bjuggu um árabil í
Mjóanesi á Fljótsdalshéraði. Inn-
an við tvítugsaldur giftist hún
Guðmundi Markússyni er seinna
varð virtur og aflasæll togaraskip-
stjóri. Brúðkaupsdagurinn varð
happadagur þeirra beggja, svo
samhent og samrýnd voru þau alla
tíð. Sjálf sagði hún mér að hann
hefði borið mikla umhyggju fyrir
sér og ekkert sparað til þess að
henni gæti liðið vel.
Fyrstu árin bjuggu þau á Rán-
argötu 29 en fluttu svo í nýbyggt
hús nr. 4 við Unnarstíg og bjuggu
þar allan sinn búskap. Þau eignuð-
ust 4 börn, 3 syni og eina dóttu-r.
Einn drenginn sinn misstu þau
fimm ára gamlan á sviplegan hátt.
Það var mikill sorgartími. Dóttir
þeirra bjó erlendis og andaðist þar
fyrir tveimur árum. Þá undraðist
ég sálarstyrk Unnar, en vissi þó
hvaðan hann kom. Synirnir sem
eftir lifa eru Guðmundur læknir í
Svíþjóð og Markús skipstjóri sem
býr hér í borg. Guðmundur Mark-
ússon eiginmaður Unnar er látinn
fyrir nokkrum árum.
Hún sagði mér eitt sinn, á sinn
skemmtilega hátt, frá fyrstu
kynnum þeirra. Hún var þá tólf
ára og var að koma úr sumardvöl
frá ættingjunum á Austurlandi.
Hún kom sjóleiðina og Guðmund-
ur var stýrimaður á skipinu, þá
fulltíða maður. Það var vont í sjó-
inn og hefur stýrimanni víst ekki
NÁMSKEIÐ
¥Félag íslenskra stórkaupmanna
Hús Verslunarinnar — 108, Reykjavík
VERZLUNARSKÓLI ISLANDS
STOFNAÐUR 1905
Félag íslenzkra stórkaupmanna
og Verzlunarskóli íslands
munu á næstunni efna
til tveggja námskeiöa:
a) Námskeið í almennings-
tengslum
Tilgangur námskeiösins er aö kynna þátttakendum
auglýsingatækni sem nefnd er almenningstengsl.
Auglýsingatækni þessi hefur lítiö veriö notuð hér á
landi til þessa. Hún beinir sjónum manna aö auglýs-
ingaleiöum sem alltof sjaldan eru farnar og kosta oft
á tíðum lítiö sem ekkert.
Námskeiðiö veröur haldiö hjá Félagi íslenzkra stór-
kaupmanna í Húsi verzlunarinnar, dagana 24., 25.,
26. og 27. apríl nk. og stendur frá kl. 13:15 til 15:00
daglega. Þátttökugjaldiö er kr. 1.700.00.
b) Námskeið í frjálsri álagningu í frjálsri samkeppni
Tilgangur námskeiösins er aö þjálfa þátttakendur í
aö hugsa og verðleggja sína vöru og þjónustu viö
skilyrði frjálsrar samkeppni. Á námskeiöinu veröur
fariö í mótun veröstefnu. Ennfremur veröa kynntar
hagnýtar reiknireglur sem nauðsynlega þarf þegar
verðstefnan er mótuö og kynnt verða þau lögmál
sem gilda viö skilyröi frjálsrar samkeppni.
Námskeiðið veröur haldiö hjá Félagi íslenzkra stór-
kaupmanna í Húsi verzlunarinnar, dagana 2., 3., 4.
og 7. maí nk. og stendur frá kl. 13:15 til 15:00 dag-
lega. Þátttökugjaldiö er kr. 1.700,00.
Kennari á námskeiöunum veröur Helgi Baldursson,
kennari viö Verzlunarskóla íslands.
Þátttöku skal tilkynna til skrifstofu Félags ís-
lenzkra stórkaupnjanna, Húsi verzlunarinnar, 5.
hæö, sími 10650, eda skrifstofu Verzlunarskóla
íslands, Grundarstíg 24, í síma 13550, fyrir miö-
vikudaginn 18. apríl nk.