Morgunblaðið - 18.04.1984, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.04.1984, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984 33 fundist telpuhnokkinn vera á nægilega öruggum stað á skipinu. Tók hann þá til sinna ráða, gekk til hennar, tók hana í faðminn og bar hana þangað sem honum fannst heppilegri staður fyrir hana. Mér fannst þetta skemmti- legt ævintýri sen endaði líka ljóm- andi vel, þótt þau sæjust ekki í mörg ár eftir þessa sjóferð. Þau hjónin settu svip á bæinn. Hann karlmannlegur og fríður, hún glæsileg svo eftir var tekið. Á áttræðisafmæli hennar síð- astliðið haust, var ekki hægt að sjá að þar færi svo öldruð kona. Hún sjálf vildi láta sem minnst bera á þessu merkisafmæli. Hefur sennilega fundið að heilsufarið samrýmdist ekki viljanum. Þökk sé ástvinum hennar fyrir það að gefa okkur vinum hennar tæki- færi til þess að eiga með henni enn eina hugljúfa stund. Þá hvíslaði ég að henni þessum ljóðlínum: Ennþá fríð er ásýnd þín augun blíðu ljóma. Ertu víða, Unnur mín, enn til prýði og sóma. Fyrir þetta lítilræði hlaut ég að launum eitt af hennar fallegu brosum og hlýjan koss á vangann. Hún var heittrúuð kona, sem unni kirkju og kristindómi og var virk- ur þátttakandi í félögum innan kirkjunnar með peningagjöfum, stjórnun og orgelleik. Nú er hiut- verki hennar lokið hér í heimi. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég ástvinum hennar öllum. Það er bjart yfir minningunni. Hún var blessuð af Drottni. Filippía Kristjánsdóttir „Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins." Þessi orð úr 14. kapítula Róm- verjabréfsins voru í huga mínum eftir síðustu heimsókn mína til Unnar Eriendsdóttur á Landa- kotsspítala, en þaðan átti hún ekki afturkvæmt. Er síminn hringdi laugardagskvöidið 7. þ.m. og mér var flutt andlátsfregn hennar, komu þau aftur í hugann. Þau áttu vel við líf og starf Unnar og voru í samræmi við fyrirheit Drottins, sem hún treysti staðfastlega. Unnur fæddist á Akureyri. En foreldrar hennar, Sigurbjörg Ólafsdóttir og Erlendur Sveinsson klæðskeri, fluttu til Reykjavíkur, meðan hún var barn að aldri, og þar átti hún heima upp frá því. Unnur og systkini hennar ólust upp á góðu heimili. Minningarnar þaðan voru henni mjög kærar. Oft færði hún kristilega starfinu gjaf- ir tengdar nöfnum foreldranna. En ekki vildi hún láta mikið á þeim gjöfum bera. Var það i sam- ræmi við skapgerð hennar, því að tilfinningum sínum flíkaði hún aldrei. Unnur var mjög glæsileg kona með mikinn persónuleika og reisn. Jafnframt var hún hlý, elskuleg og mjög trygg vinum sínum. Korn- ung stofnaði hún eigið heimili með manni sínum, Guðmundi Mark- ússyni, sem látinn er fyrir nokkr- um árum. Hann var skipstjóri og sótti áratugum saman gull í greip- ar Ægis. Uppeldi þeirra barna, sem eiga sjómann að föður, kemur oftast í hlut móðurinnar. Svo var Minning: Gunnar Sigurður Kristjánsson einnig á heimili Unnar og Guð- mundar. Þau eignuðust 4 börn. En tveir synir lifa foreldra sína. Ann- ar þeirra, Markús, fetaði í fótspor föðurins, en hinn, Guðmundur, er læknir í Svíþjóð. Þeim báðum og fjölskyldum þeirra eru hér með fluttar einlægar samúðarkveðjur. Fyrst kynntist ég Unni í KFUK og síðar enn betur í Kristniboðsfé- lagi kvenna. f báðum þessum fé- lögum starfaði hún af mikilli trúmennsku. Barn að aldri hóf hún að leika á hljóðfæri á fundum KFUK. Sagði hún löngu síðar frá því, að þá hefði hún verið mjög feimin við konurnar. Því bað hún þess, að hljóðfærinu væri snúið þannig, að hún gæti falið sig bak við það. Seinna var hún kosin í stjórn KFUK og gegndi þar stjórnarstörfum nokkuð á fjórða áratug. Meðan henni entist heilsa og kraftar sótti hún með trúfesti bæði fundi félagsins og samkom- ur. Sem barn hafði Unnur komið með móður sinni á fundi Kristni- boðsfélags kvenna, en þar var Sig- urbjörg virkur meðlimur. All- mörgum árum síðar gekk hún sjálf í það félag og var formaður þess í meira en aldarfjórðung. Auk þess sat hún við hljóðfærið á fundum félagsins eins lengi og kraftar leyfðu eða fram undir síð- ustu áramót. Unnur var mikil bænakona. Oft bað hún fyrir landi og þjóð, eink- um sjómannastéttinni. í áratugi kom hún og nokkrar vinkonur hennar saman til bæna á hverjum mánudegi, bæði vetur og sumar. Sú blessun, sem hlotist hefur af þeirri þjónustu er ómæld. Auk þess var alltaf gott að vita, að þær báru starfið bæði heima og á kristniboðsakrinum á bænaörm- um fram fyrir Drottin. Því finnum við, sem eftir stöndum, sárt til þess, að félögin okkar, og við sem einstaklingar, eru miklu fátækari en áður, er þessar konur hverfa af sjónarsviðinu hver af annarri. Unnur trúði einlæglega á sinn himneska föður og frelsara. Bar líf hennar þess ljósan vott og sá vitnisburður, sem hún flutti á kristilegum fundum og samkom- um. Hún treysti Drottni allt til enda. Skömmu fyrir andlátið, heyrði ég hana með veikri rödd biðja frelsara sinn að gefa sér brátt heimfararleyfi í himin hans. Að leiðarlokum þökkum við Drottni, sem gaf okkur Unni Er- lendsdóttur. Við þökkum trúfesti hennar og vináttu, allar samveru- stundirnar og fyrirbænirnar. Þessar þakkir ber ég fram per- sónulega. En þær eru einnig flutt- ar í nafni félagssystranna í Kristniboðsfélaginu og fyrir hönd KFUK. Lilja S. Kristjánsdóttir í dag, 18. apríl 1984, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík útför Gunnars Sigurðar Kristjánssonar. Gunnar kom heim til sín að Móatúni 5, Tálknafirði, úr veiði- ferð þriðjudaginn 10. apríl síðast- liðinn, fékk heilablóðfall og var fluttur í Landspítalann í Reykja- vík þar sem hann andaðist um tvö- leytið daginn eftir. Gunnar var fæddur á ísafirði 6. desember 1935, sonur hjónanna Jónu Guðbjargar Sigurðardóttur og Kristjáns Karls Péturssonar. Kristján Karl andaðist 1972 en Jóna Guðbjörg býr nú að Þver- brekku 4, Kópavogi. Gunnar ólst upp á ísafirði ásamt systrum sínum Gerði og Margréti, en fór þaðan ungur og stundaði margvísleg störf enda var hann bæði fjölhæfur og verk- laginn. Gunnar dvaldist tvö ár í Æðey og þar kynntist hann Höllu Her- móðsdóttur. Þau giftu sig og eign- uðust tvö börn, Kristján Karl og Ingibjörgu. Með þeim ólst upp Hermann Þór Jónsson, sonur Höllu. Þau skildu. Vafalaust er það ekki í anda Gunnars að vera með lof og orð- Fædd 2. febrúar 1921 Dáin 10. aprfl 1984 Mig langar með fáeinum línum að minnast afasystur minnar, Hrefnu Árnadóttur. Hún var fædd í Hafnarfirði 2. febrúar 1921, dóttir hjónanna Árna Sigurðssonar og Sylvíu Is- aksdóttur. I Hafnarfirði ólst Hrefna upp ásamt þremur eldri systkinum, og þau komu sér öll upp heimili hér í Firðinum fyrir utan einn bróður sem lézt af slys- förum fyrir mörgum árum. Það eru fá ár síðan ég fór að venja komur mínar á Hverfisgöt- una til Hrefnu. Oft fór maður fýluferð því Hrefna hafði ótal áhugamál sem hún sinnti af lífi og sál. Gat maður oft ekki annað en smitast af áhuga hennar á þeim hlutum sem hún var hvað mest upptekin af hverju sinni. skrúð á kveðjustundu. Gunnar var hress í bragði, gleðimaður á góðri stund en lítið fyrir það gefinn að flíka tilfinningum sínum. Ég kynntist Gunnari 1972 en þá var hann á bát er var að veiðum í Norðursjó. Sjórinn hafði sérstakt aðdráttarafl fyrir hann og starf hans að miklum hluta bundið sjónum. Undanfarin ár var hann bátsmaður á togaranum Tálkn- firðingi. Samt sem áður held ég að bús- kapur hafi verið honum hugleik- inn. Gunnar hafði stundað nám í Bændaskólanum á Hvanneyri og lokið þaðan búfræðiprófi 1954. Hann var um tíma við bústörf í Guðbrandsdal í Noregi og einnig starfaði hann um tíma sem ráðs- maður á stórbúi Þorvalds Guð- mundssonar á Vatnsleysuströnd. Skömmu áður en hann dó ræddi hann við mig af miklum áhuga um hugmyndir sem fram hefðu komið um fiskeldi í Tálknafirði og þann möguleika að gera fiskeldi að búgrein. Sem farmaður hafði Gunnar kynnst fjarlægum löndum. Hann hafði einnig yndi af að ferðast og var hinn besti ferðafélagi. Hann Hrefna hafði mikið dálæti á blómum og allri garðrækt og eyddi hún oft löngum tíma í að hlúa að plöntum sem hún hafði í litlu gróðurhúsi, hús þetta kallaði Hrefna Þröm. Hafði ég alltaf gaman af að fylgjast með henni þegar hún var að fást við plönt- urnar hverjar svo sem þær voru. Þegar maður hugðist heim- sækja Hrefnu var best að vera vel svangur. Manni var alltaf tekið með mikilli hlýju og alltaf kúf- fylltur af mat og kökum. Eru margar góðar minningar tengdar Hverfisgötunni og er sárt að geta ekki lengur leitað til Hrefnu og fengið álit og heilræði á hinum ýmsu málum, skipti þar litlu sá aldursmunur sem á okkur var. Hrefna frænka giftist aldrei en var í sambúð með Benedikt Ein- hafði ferðast með okkur hjónun- um bæði innanlands og utan og er mér einkum minnisstæð ferð um Kanada. Við vorum búin að skipu- leggja ferð til Mið-Evrópu í júní en Gunnar hefur nú verið kallaður í aðra ferð. Gunnar var svo lánsamur að kynnast Sigríði Sigutðardóttur og settu þau saman bú á Tálknafirði. Þar bjuggu þau í fallegu húsi með útsýni yfir bæinn og fjörðinn. Leiðin er löng frá Reykjavík til Tálknafjarðar og því ekki auðvelt að hittast oft. Ég minnist þess hve ánægjulegt var að heimsækja þau Gunnar og Sigríði á Tálknafirði og sjá hve vel þau höfðu komið sér þar fyrir. Ég kveð Gunnar mág minn með þökk og virðingu og votta ástvin- um hans mína innilegustu samúð. Guðlaugur R. Guðmundsson arssyni í nokkur ár eða þar til hann lézt árið 1980. Nutum við frændsystkinin í ríkum mæli góðs af örlæti hennar og hjartahlýju. Vil ég svo að lokum þakka henni samfylgdina. Frænka Hrefna Árnadótt- ir - Minningarorð bjoðum aðeins gæðagrípi Fullkomm varahluta- og vidgerðaþ|ónusta Þekking - öryggi - reynsla Mesta úrval landsins af þekktum viðurkenndum merk|um 10 ára ábyrgð. Sétverslun i meira en hálfa ö'ld .. Reiöhjólaverslunin ORNINN Spítalastíg 8 Símar: Verzl.: 14661 S. 26888 Winther & % YCLE5 PEUCEOT A) KALKHOFF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.