Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 36

Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 36
36 t8BI JIH’IA ,8r ÍIUíJAaUXIVaiM ,QIGAJ9VIiJ05I0W MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984 t Systir mín, GUÐBJÖRG (STELLA) STEFÁNSDÓTTIR, fyrrv. matráðskona sjúkrahússins á Patreksfiröi, lést 16. apríl. Fyrir hönd systkina, Pálína Stefánsdóttir. t Konan mín, KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR, Skógskoti, Miðdalahreppi, sem lézt 12. apríl, veröur jarösungin á Kvennabrekku laugardaginn 21. apríl. Kristmundur Guðbrandsson. t Bróðir okkar, BJÖRN RAGNAR STEFÁNSSON frá Framtíð, Vestmannaeyjum, lést 7. apríl. Jaröarförin hefur farið fram. Systur hins látna. t Eiginmaöur minn og faðir okkar, SÆMUNDUR PÁLSSON, múrari, Byggðarenda 16, andaöist 16. apríl. Guðrún Oddsdóttír og synir. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi. HJALTI JÓNSSON frá Víðiholti, er lést 6. apríl veröur jarösunginn frá Víöimýrarkirkju laugardaginn 21. apríl kl. 14.00. Þrúður Hjaltadóttir, Kristín Hjaltadóttir, Hörður Hjaltason, Eiríkur Hjaltason, Árný Hjaltadóttir, Guöbjörg Hjaltadóttir, Eygló Hjaltadóttir, Auöur Hjaltadóttir, Hlífar Hjaltason, Ólína Eiríksdóttir, Helgi Magnússon, Ásmundur S. Guömundsson, Ása Sígurlaug Halldórsdóttir, Jóhanna Sigmundsdóttír, Lionel Levesque, Haraldur Óskarsson, Halldór Ólafsson, Jón Þór Guöjónsson, Sígríöur Helgadóttir barnabörn. Systir okkar, ÁSRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, hjúkrunarkona, Viöimel 19, Raykjavík, verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. þ.m. kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir en þeim sem vildu minn- ast hennar er bent á líknarstofnanir. Systkinin. t Utför GUÐMUNDAR JÓNSSONAR á Rafnkelsstööum veröur gerö frá Útskálakirkju miövikudaginn 18. apríl kl. 14.00. Karólína Guömundsdóttir, Síguröur Björnsson, Jónas Guðmundsson, Björg Árnadóttir, Gunnar Guömundsson, Gréta Úlfsdóttir, Ragnar Guðmundsson, Guöný Kjartansdóttir, Ása Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Jón Gunnlaugs- son — Minning Andlát tengdaföður míns, Jóns Gunnlaugssonar, kom okkur í fjöl- skyldunni ekki á óvart, svo langt hafði helstríð hans verið. Því var það okkur fremur léttir þegar yfir lauk, þó sár söknuður sitji eftir hjá okkur öllum sem til hans bezt þekktu. Þó árin væru orðin sextiu og átta og Jón kominn á eftir- launaaldur þá var þetta ekki tíma- bært, fannst okkur einhvernveg- inn, því svo innilega þótti honum vænt um lífið sem honum hafði verið gefið og daginn í dag. Engin öldrunarmerki í hans hugsun, vil eða uppgjöf, heldur skyldi allt vera bætt og áfram haldið. Við höldum að Jón heitinn hafi ekki gert sér grein fyrir að hverju stefndi og líknsamur var skapar- inn að opna ekki augu hans fyrir þeirri staðreynd. Þó efast ég ekki um, að hann hefði tekið á þeim hlutum með sömu eðlisgreind og honum var í blóð borin. Hann hafði fyrst og fremst áhuga fyrir líðandi stund og tók á verkum hversdagsins með karlmennsku og einstakri stillingu. Aldrei heyrði ég hann kvarta yfir fortíðinni, heldur leit hann jákvæðum augum yfir farinn veg, sjaldan var rætt um hvað framundan væri. Hann hafði ríka ábyrgðartilfinningu og var mjög traustur persónuleiki. Jón var Skagfirðingur, fæddur að Ytri-Kotum í Norðurárdal 15. nóvember 1915, sonur sæmdar- hjónanna Friðbjargar Halldórs- dóttir frá Stóra-Dunhaga og Gunnlaugs Guðmundssonar frá Bási í Hörgárdal. Friðbjörg fór tveggja ára að aldri í fóstur til hálfsystur sinnar, Sæunnar Jónsdóttur, og flutti með þeim hjónum Sæunni og Sigurði manni hennar til Skagafjarðar árið 1898. Gunnlaugur ólst upp í foreldra- húsum tií fermingaraldurs. Var í vinnumennsku í nokkur ár, keypti sér lausamannsbréf og stundaði vinnu hér og þar. Árið 1909 giftast þau Friðbjörg og Gunnlaugur og hefja búskap að Ytri-Kotum og eiga þar heimili næstu tólf árin. Ytri-Kot eru fremsti bær í Norð- urárdal áður en farið er austur yf- ir Öxnadalsheiði. I Skagfirskum ritum er sagt um Friðbjörgu Halldórsdóttur: „Hún var í góðu meðailagi á vöxt gervi- leg kona myndarleg og vel gefin. Hún var hógvær en ákveðin í framkomu, stjórnsöm á heimili, hagvirk og að öllu vel verki farin. Hún var lærð saumakona, hafði fallega söngrödd og var mjög sönghneigð. Góð eiginkona og móðir, mjög gestrisin og vel kynnt.“ Um Gunnlaug er sagt m.a.: „Gunnlaugur var meðalmaður á hæð, frekar þrekinn en liðlega vaxinn, dökkhærður með mótleit augu. Hraustmenni og kjarkmað- Kristilegur þroski Eg hef beðið og beðið Guð, að hann gerði mig að betri kristn- um manni, en mér fer lítið fram. Hví svarar Guð ekki bænum mínum? Hafið þér nokkurn tíma hugleitt, hvernig Guð kann að svara bænum yðar? Eg hef oft orðið þess var, þegar fólk biður á svipaðan hátt, að það væntir þess, að Guð gefi því allt í einu mikinn andlegan kraft, svo að öll andleg vandamál verði úr sögunni. En Guð fer yfirleitt ekki þannig að. Guð vill, að þér verðið betri kristinn maður, og það gleður mig, að sú er líka löngun yðar. Biblían segir: „Eins og þér því hafið tekið á móti Kristi, drottni Jesú, svo skuluð þér lifa í honum, rótfestir og byggð- ir á honum, vera staðfastir í trúnni, eins og yður hefur verið kennt, og skara fram úr í þakklátssemi." (Kól. 2, 6-7). Takið eftir, að Biblían gefur okkur leiðbeiningu um, hvernig við vöxum í Kristi: Við eigum að halda áfram að „lifa í honum". En hvernig gerum við það? Á sama hátt og jurtin á rætur sínar í moldinni og dregur næringu úr henni, þannig erum við rótfest í Kristi og tökum andlega næringu frá honum. Þegar við gerum það, þroskumst við og berum ávöxt. Að lifa í Kristi — það er það meginatriði, sem þér þurfið að koma auga á. Guð hefur fengið yður „tæk- in“ í hendur, svo að það megi verða. Orð Guðs skiptir þar miklu máli, Biblían. Andlegur þroski á sér ekki stað í tómarúmi. Við þurfum fæðu til að styrkja líkamann. Eins þörfnumst við andlegrar fæðu til að öðlast andlegan kraft, og hann hefur Guð gefið okkur í Biblíunni. Takið vel eftir, að Biblían segir: „Trúin kemur af boðuninni (af því að hlusta á boðskapinn), en boðun- in byggist á orði Krists." (Róm. 10,17). Gefið þér gaum að rödd Guðs á hverjum degi með því að lesa orð hans og rannsaka þau með bænarhug? Þetta er það mikilvægasta, sem þér getið gert til að styrkja trúna og taka framförum sem kristinn maður. Guð vill gera yður að betri og styrkari læri- sveini, og hann hefur gert það mögulegt. Snúið yður til hans daglega í orði hans og biðjið hann að hjálpa yður að tileinka yður sannindi þess í lífi yðar. ur. Engrar skólamenntunar naut hann í æsku, en var vel að sér og bókhneigður sem frændur hans margir. Það liggur ljóst fyrir hver afreksmaður Gunnlaugur var.“ Sagt er að hann hafi verið mjög góður fjallamaður, einstaklega ratvís, og var tíðum fylgdarmaður ferðamanna gangandi eða ríðandi er leið áttu yfir Oxnadalsheiði. Um þau bæði er sagt: „Ríkur þáttur í fari þeirra beggja hjóna var greiðvikni og gestrisni, og mun margur hafa notið þess þau árin er þau bjuggu á heiðarbænum Ytri-Kotum. Þessar umsagnir um hjónin eru miklar og góðar því oft er reynt í æviskrám, og er raunar gert, að draga allt fram bæði jákvætt og neikvætt, en allir virðast sammála um ágæti þessara hjóna, foreldra Jóns Gunnlaugssonar. Hann var fjórði í röðinni af fimm systkinum. Hin eru Halldór, dó ungur, Lilja, húsfreyja í Ás- hildarholti, Kristín, húsfreyja í Geldingaholti, og Jóhann, bóndi á Víðimýri í Skagafirði. Allt er þetta dugnaðar- og mannkostafólk sem ánægjulegt er að kynnast og gott er heim að sækja. Hjá þessum mætu foreldrum og í góðum systkinahópi elst Jón upp og á þar við að „sjaldan fellur epl- ið langt frá eikinni" því svo ríku- lega hafa þau fengið í arf kosti foreldra sinna og gott uppeldi í veganesti. Árið 1933 eru Friðbjörg og Gunnlaugur flutt að Bakka, og sama ár fer Jón í Hólaskóla og er þar veturinn 1933—1934 og svo aftur seinni hluta vetrar 1935, þá við trésmíðanám. Þegar Jón var skólapiltur á Hólum tók hann strax virkan þátt í félagsmálum skólans. Hann var glaðsinna og hafði fengið í arf fagra söngrödd og byrjaði mjög ungur að syngja. í Hólaskóla var söngkór sem hann var félagi í og ennfremur var stofnaður þar kvartett, þar söng Jón fyrsta tenór. Jón Gunnlaugsson var tví- kvæntur. Hann giftist fyrri konu sinni 1936, Soffíu Jónsdóttur frá Vatnsleysu, Viðvíkurhreppi, Skagafirði, og hófu þau búskap á Bakka ásamt foreldrum Jóns fram til ársins 1941. Þau eignuðust tvo syni, Friðbjörn Gunnlaug, bifvéla- virkjameistara, Kópavogi, og Hrein, trésmíðameistara, Sauð- árkróki. Þau skildu. Jafnhliða búskap á Bakka stundaði Jón bif- reiðaakstur og ræðst í það að kaupa vörubíl árið 1936, og tekur þá að sér mjólkurflutninga ásamt fólksflutningum víðsvegar að úr héraðinu til Sauðárkróks. Hann býr í Skagafirði til ársins 1942, er hann flytur til Siglufjarðar með seinni konu sinni, Maríu Njáls- dóttur frá Hrafnseyri við Arnar- fjörð. Stofna þau heimili þar ásamt dóttur Maríu frá fyrra hjónabandi, Guðnýju Þórðardótt- ur, nú varðstjóra hjá Landssíma íslands. Með þeim Guðnýju og Jóni tók- ust strax miklir kærleikar og var áberandi í fari þeirra beggja gagnkvæm virðing og væntum- þykja þeirra í milii. Á Siglufirði vann Jón við bif- reiðaakstur og aðra algenga vinnu. Hann hafði meirapróf og stundaði ökukennslu um skeið. Hann var mjög verklaginn og góður smiður. Skar jafnframt út á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.