Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
47
Morgunblaöió/Kristjan Einarsson.
Haukar bikarmeistarar
• Bikarmeistarar kvenna í körfuknattleik, Haukar úr Hafnarfirði. Aftari röð frá vinstri: Hafdís Sigur-
steinsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Pálsdóttir, Sólveig Pálsdóttir, Sigrún Skarphéðins-
dóttir, Unnur Henrysdóttir og Kolbrún Jónsdóttir þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Elva Sverrisdóttir, Ásta
Óskarsdóttir, Svanhildur Guðlaugsdóttir, fyrirliði, Sóley Indriðadóttir og Kristín Sæmundsdóttir.
Landslió í körfuknattleik valið
LANDSLIÐ íslands í körfuknatt-
leik heldur til Óslo til þátttöku í
C-riðli Evrópukeppninnar þann
25. apríl nk.
Landsliðshópurinn er skipaöur
eftirtöldum leikmönnum:
Pálmar Sigurösson Haukum 7, Jón
Sigurösson KR 116, Torfi Magn-
ússon Val 86, Sturla Örlygsson
UMFN 0, Kristján Ágústsson Val
59, Garöar Jóhannsson KR 4, Jón
Steingrímsson Val 8, Flosi Sig-
urösson U. Wasington 11, Jón Kr.
Gíslason ÍBK 19, Valur Ingimund-
arson UMFN 34.
Bikarkeppni HSI:
Valsmenn burstuðu
íslandsmeistarana
— Stjarnan og Þróttur sigruðu
ÞRÍR LEIKIR fóru fram í gær-
kvöldi í bikarkeppni HSÍ i hand-
knattleik. í Laugardalshöllinni
léku Valur og FH. Valsmenn unnu
öruggan og stóran sigur, 33—24. t
hálfleik haföi FH þó forystuna,
13—12. í síöari hálfleik sigu
Valsmenn hægt og sígandi fram-
úr og átti FH ekkert svar við góö-
um leik þeirra. Valsmenn eru því
komnir áfram í bikarkeppninni en
íslandsmeistarar FH eru úr leik.
Á Seltjarnarnesi léku Grótta og
Stjarnan. Stjarnan sigraöi 26—18.
j hálfleik var staöan jöfn, 8—8.
Sigur Stjörnunnar var öruggur.
Liðið skoraöi sex fyrstu mörkin í
síðari hálfleik og eftir það var aldr-
ei nein spurning um hvoru megin
sigur myndi lenda, aöeins hversu
stór hann yrði. Jafnræöi var hins
vegar meö liöunum í fyrri hálfleikn-
um.
í Seljaskóla léku svo KR og
Þróttur. Þróttur sigraöi eftir hörku-
spennandi leik með einu marki,
28—27. í hálfleik skildi líka eitt
mark, þá var staöan 14—13 fyrir
Þrótt. Jafnræöi var meö liðunum
allan leikinn út í gegn og barist af
mikilli hörku.
f kvöld fer fram einn leikur í bik-
arkeppninni. Víkingar leika gegn
KA i Seljaskóla og hefst leikurinn
kl. 20.00.
— I»R
Jafntefli hjá
Watford og Man Utd.
ÚRSLIT í ensku knattspyrnunni í
gærkvöldi urðu þessi:
1. deild:
Coventry — N.Forest 2—1
Southampton — Everton 3—1
Watford — Man. Utd. 0—0
West Ham — Luton 3—1
2. deild:
Cardiff — Crystal Palace 0—2
Norman Whiteside dauöafæri á
markteig en skaut framhjá.
Southampton hefndi ófaranna
gegn Everton og sigraði 3—1, öll
mörkin komu í síöari hálfleik. Dave
Armstrong skoraöi tvö og Steve
Moran eitt. Kevin Richardsson
skoraöi eina mark Everton. Tony
Cotte skoraði tvö og Alvin Martin
eitt fyrir West Ham. Eina mark Lut-
on skoraöi Paul Walsh.
• Kristinn Einarsson, UMFN,
einn efnilegasti nýliðinn í úr-
valsdeildinni. Ljósm./Einar Falur
• Pálmar Sigurðsson, Haukum
stigahæsti leikmaður úrvals
deildarinnar.
Þau hlutu verðlaun:
Pálmar stigahæstur
Á uppskeruhátíö Körfuknatt-
leiksmanna voru afhent verölaun
til þeirra einstaklinga sem skarað
hafa fram úr á einhverju sviði.
Verðlaunayeitingin miöast ein-
ungis við Úrvalsdeild og 1. deild
kvenna. Eftirtaldir hlutu verð-
launin.
Stigahæsti leikmaöur úr-
valsdeildar 1984
Pálmar Sigurösson Haukum 460
Valur Ingimundarson UMFN 450
Kristján Ágústsson Val 389
Stigahæsti leikmaður 1.
deildar kvenna
Sóley Indriöadóttir Haukum 280
Kolbrún Leifsdóttir ÍS 197
Erna Jónsdóttir KR 167
Besta vítaskytta Úrvalsdeild-
ar 1984:
Guóni Guönason KR 52/43 86,69%
Pálmar Sig. Hauk. 124/94 75,81%
Pátur Guömundsson ÍR 54/40 74,07%
Besta vítaskytta 1. deildar
kvenna:
Svanhildur Guól. Hauk. 61/37 60,66%
Kolbrún Leífsdóttir ÍS 62/37 59,68%
Sóley Indrióad. Hauk. 206/115 55,83%
Nýliöi ársins:
Guóni Guónason KR
Kristinn Einarsson UMFN
Tómas Holton Val
Prúöasti leikmaður Úrvals-
deildar:
Kristinn Kristinsson Haukum
Guöni Guönason KR
Tómas Holton Val
Besti dómarinn í Úrvalsdeild:
Gunnar Bragi Guðmundsson
Jón Otti Ólafsson
Kristbjörn Albertsson
Besti varnarmaður Úrvals-
deildar:
Torfi Magnússon Val
Sturla Örlygsson UMFN
Pátur Guðmundsson ÍR
Besti leikmaöur Úrvalsdeild-
ar:
Valur Ingimundarson UMFN
Pálmar Sigurösson Haukum
Jón Sigurðsson KR
Besti leikmaður 1. deildar
kvenna:
Sóley Indriðadóttir Haukum
Kolbrún Leifsdóttir ÍS
Emelía Siguróardóttir ÍR
Þjálfari: Hilmar Hafsteinsson.
Aöstoöarmaöur þjálfara: Siguröur
Hjörleifsson og er hann jafnframt
fararstjóri.
Man. Utd. lék án Bryan Robson,
Remi Moses og Arnold Muhren i
gær gegn Watford. Leikur liöanna
var jafn. En undir lok leiksins fékk
Man. Utd. er nú einu stigi á eftir
Liverpool í 1. deild, hefur hlotiö 68
stig í 36 leikjum. En Liverpool hef-
ur leikiö 35 leiki og er meö 69 stig.
Skíðamót íslands fer
fram á Akureyri um páskana
Skíöamót íslands fer fram í
Hlíðarfjalli viö Akureyri um pásk-
ana. Þetta er í 45. sinn sem skíöa-
mót íslands er haldið. Mótiö verð-
ur sett í íþróttahöllinni miöviku-
daginn 18. apríl kl. 20.
Á fundi sem skíöaráö Akureyrar
hélt meö blaöamönnum á dögun-
um vildi Þröstur Guöjónsson for-
maður skíöaráös byrja á því aö
geta þess aö Hafskip væri styrkt-
araöili aö þessu móti og gæfu þeir
öll verðlaun og rásnúmer í mótinu
og heföi veriö mjög gott samstarf
milli SRÁ og Hafsklps í öllu sam-
bandi viö landsmótið.
Þröstur sagöi aö ströng skilyrði
þyrfti aö uppfylla til aö halda slíkt
mót og meðal þess sem gert hefur
veriö í Hlíöarfjalli gagngert fyrir
þetta mót er aö komiö hefur verið
upp sérstöku tímatökuhúsi og
ráshúsi í stórsvigi. Einnig hefur
verið komiö upp snyrtiaöstööu og
salerni við göngubrautina eins og
alþjóöalög gera ráö fyrir. Auk þess
veröur settur upp tímatökubúnaö-
ur sem tengdur veöur tölvu og
verður hægt aö birta öll úrslit aö
lokinni hverri grein en áöur var
ekki hægt að gera þaö á staðnum.
Gert er ráö fyrir aö um 70 kepp-
endur taki þátt i landsmótinu aö
þessu sinni og keppt er i 26 grein-
um. Starfsmenn í sjálfboöavinnu
eru milli 50 og 60 og vinna þeir
mikið og óeigingjarnt starf.
ívar Sigmundsson forstööumaö-
ur Skiöastaöa vildi koma því á
framfæri aö keppni á landsmótinu
hæfist nú fyrr á morgnana en venja
er, og væri þaö gert til aö almenn-
ingi gæfist kostur á aö nota brekk-
urnar eftir hádegi, en keppni á aö
vera lokið um hádegi mótsdagana.
Kvöldvökur og dansleikir veröa í
Sjallanum mótsdagana og þar
verður mótinu einnig slitiö á
sunnudagskvöld. í nefndinni sem
sér um skipulagningu mótsins eiga
sæti Óöinn Árnason, Siguröur Aö-
alsteinsson, Magnús Gíslason,
Guömundur Sigurbjörnsson og
Þröstur Guðjónsson.
Dagskrá skíöamóts íslands er sem
hér segir:
Mióvikudagur 18. apríl.
Kl. 20.00 Mótssetning
Kl. 21.00 Fararstjóralundur
Fimmtudagur 19. apríl.
Kl. 9.00 Stórsvig karla og kvenna
Kl. 11.00 Skíóaganga.
Fl. 16—18 ára stúlkna 3,5
km. Fl. 19 ára og eldri
kvenna 5,0 km. Fl. 17—19
ára pílta 10,0 km. Fl. 20 ára
og eldri karla 15,0 km.
Kl. 17.00 Fararstjórafundur
Föstudagur 20. apríl.
Kl. 11.00 Boóganga karla og kvenna
Kl. 15.00 Skíðaþing
Laugardagur 21. april.
Kl. 9.00 Svig karla og kvenna
Kl. 13.00 Skíóastökk karla
Sunnudagur 22. apríl.
Kl. 10.00 Flokkasvig karla og kvenna
Kl. 11.00 Skíóaganga.
Fl. 16—18 ára stúlkna 5 km.
Fl. 19 ára og eldri kvenna 7,5
km. Fl. 17—19 ára pilta 15,0
km. Fl. 20 ára og eldri karla
30,0 km.
Kl.20.00 MÓtSSlit.
• Allt besta skíðafólk íslands verður meðal þátttakenda á skíöa-
landsmótinu sem hefst á Akureyri í dag. Verður keppni án efa hörð og
spennandi í öllum greinum. Ljósm./Morgunblaöið/ Þórarinn Ragnarsson