Morgunblaðið - 29.04.1984, Blaðsíða 1
96 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
97. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Khadaffy leiðtogi Líbýu:
Fyrirmæli um að
gert verði hlé á
hermdarverkum
Lundúnum, 28. apríl. AP.
tUNDÚNABLAÐIÐ The Times
segist í dag hafa fyrir því heimildir
að Moammar Khadaffy leiðtogi
Líbýu hafi fyrirskipað hermdar-
verkasveitum sínum í sendiráðum
Líbýumanna víða um heim að gera
hlé á starfsemi sinni um óákveðinn
tíma.
Óttaðist
kjarnorku-
stríð og myrti
fjölskylduna
Kotherham, 28. apríl. AP.
FRANK Parry, 52 ára gamall
bókavörður í Kidlington í Ox-
fordshire á Englandi, myrti konu
sína, dóttur og móður „til að
forða þeim undan þeirri ógn aö
deyja af völdum geislavirks úr-
fellis yfirvofandi kjarnorkustyrj-
aldar“, eins og hann orðaði það í
bréfi sem hann skildi eftir áður
en hann stytti sér sjálfur aldur.
Parry vann ódæðisverkið 28.
mars sl., en upplýsingar um
ástæður verknaðarins komu
fram í réttarrannsókn í dag.
Parry mun fyrst hafa vegið
Audrey konu sína á laun á
heimili þeirra, farið síðan með
Justine, 12 ára dóttur þeirra, í
gönguferð og skotið hana til
bana og að því búnu snúið aft-
ur til heimilis fjölskyldunnar
þar sem hann myrti tæplega
áttræða móður sína, Ruth að
nafni. Þegar lögregla kom á
vettvang miðaði Parry morð-
vopninu að sjálfum sér, hleypti
af og lést samstundis.
Útvarp Líbýustjórnar sagði
hins vegar að „byltingarnefndir"
Líbýumanna i Bretlandi mundu
halda áfram baráttu gegn and-
stæðingum Khadaffys sem þar
dvelja í útlegð.
Líbýsku sendiráðsstarfsmönn-
unum frá London var fagnað sem
hetjum við heimkomuna til Tríp-
ólí í gær. Mannsöfnuður á flug-
vellinum þar hrópaði byltingar-
vígorð og slagorð gegn Bretum á
meðan starfsmennirnir tíndust
út úr þotunni sem sótt hafði þá
til London.
Að sögn The Times óttast
Khadaffy að ríki Efnahags-
bandalags Evrópu beiti Líbýu
efnahagslegum refsiaðgerðum ef
frekari óhæfuverk verða unnin.
Hryðjuverk „byltingarnefndar"
Khadaffys í Lundúnum 17. apríl
sl. leiddi sem kunnugt er til
dauða breskrar lögreglukonu og
að auki særðust ellefu líbýskir
andstæðingar Khadaffys.
Morgunbladid/Hildur Einarsdóttir
ÞESSIR glöðu krakkar urðu á vegi Ijósmyndara Morgunblaðsins
á Bíldudal fyrir skömmu. Það er skemmtilegt, þegar vor er í lofti,
að leika sér á bátsskel í höfninni, enda má sjá það á svip
krakkanna í bátnum.
Pólsk stjórnvöld um 1. maí:_
Samstaða
haldi sig
á mottunni
Varsjá, 28. aprfl. AP.
PÓLSKA ríkisútvarpið færði þar-
lendri alþýðu þau boð í dag að yfir-
maður leynilögreglunnar myndi sjá til
þess að hver sá sem sýndi sig styðja
Samstöðu í kröfugöngum verkalýðs-
dagsins 1. maí myndi verða afhjúpað-
ur, hundeltur og honum refsað
grimmilega.
Skilaboð leynilögreglunnar þóttu
endurspegla nokkurn ótta stjórn-
valda við að Samstaða færi sér dag-
inn í nyt með því að minna fólk
rækilega á tilvist hinna ólöglegu
frjálsu verkalýðsfélaga. Stjórnvöld
hafa skipulagt aðgerðir dagsins, en
tvö síðustu árin hefur Samstaða
gengist fyrir eigin aðgerðum í
trássi við vilja stjórnvalda.
Vitað er að Samstaða ætlar sér
hið sama nú, þannig heyrðist í fá-
einar mínútur til leyniútvarps-
stöðvar samtakanna í Varsjá og
víðar í dag. Áður en ríkisaðilar
fengu ráðrúm til að trufla útsend-
inguna með háværri lúðrasveitar-
tónlist, tókst Samstöðumönnum að
nefna fjóra staði þar sem samtökin
ætla að gangast fyrir mótmælaað-
gerðum, tveir þeirra eru í miðbæ
Varsjár og einn við hin risastóru
stáliðjuver Huta Warszawa í norð-
urhluta Varsjár. Lech Walesa, per-
sónugervingur Samstöðu að flestra
mati, hefur ekki tjáð sig um aðgerð-
irnar enn sem komið er.
Fundur Reagans og Dengs:
Leiðtogarnir ræddu um
kjarnorkuvígbúnaðinn
Peking, 28. aprfl. AP.
RONALD Reagan forseti Banda-
ríkjanna og Deng Xiaoping leiðtogi
kínverska kommúnistaflokksins hitt-
ust { Peking í dag og áttu fund sem
háttsettir embættismenn sögðu hafa
verið „afar gagnlegan" þó ekki hafi
spurst nákvæmlega hvað þjóðhöfð-
ingjunum fór á milli. Reagan kom síð-
an fram í kínverska sjónvarpinu og
fiutti ávarp, áður en hann lagði af stað
með föruneyti sínu að Kínamúrnum.
Fréttamenn fengu að vera við-
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
gær.
Símamynd AP
og frú hans Nancy hittu kínverska þjóðarleiðtogann Deng Xiaoping í
staddir fyrstu mínútur fundar
þeirra Dengs og Reagans. Deng
sagði fyrst að hann hefði beðið
spenntur í tvö ár eftir að hitta
Reagan, „því það er gagnlegt að við
ræðum saman persónulega um ýmis
mál“. „Ég er fyllilega sammála,"
svaraði Reagan um hæl, en síðan
snéri Deng sér að Nancy Reagan
sem var viðstödd fyrstu mínútur
fundarins eins og fréttamennirnir,
sem tóku myndir.
Sem fyrr segir hefur lítið frést
um hvað þeir Reagan og Deng
mæltu hvor við annan, en kjarn-
orkuvígbúnaðurinn er talinn hafa
skipað veglegan sess á dagskránni,
svo og vaxandi hernaðarumsvif
Sovétmanna. Háttsettir embættis-
menn hafa einnig átt fundi og þar
hefur borið á góma mögulega
vopnasölu Bandaríkjamanna til
Kínverja. Þá ræddu Reagan og
Deng nokkuð um Taiwan-vanda-
málið og sagði Deng að Banda-
ríkjamenn þyrftu ekki að óttast að
tengsl þeirra við Taiwan þyrftu að
rofna þó eyjan sameinaðist Kín-
verska alþýðuiýðveldinu, bæði Kína
og Taiwan myndu þróa tengslin upp
á nýtt með jákvæðum hætti eftir að
það væri orðið.
Reagan hefur látið vel af móttök-
unum sem hann hefur fengið í
Kína, en förunautar forsetans segja
þó dálítinn skugga hafa fallið á
ferðina, er kínverska sjónvarpið •
klippti nokkur atriði úr ávarpi for-
setans til kínversku þjóðarinnar.
„Það hefði gefið kínverskri alþýðu
betri og gagnlegri hugmyndir um
Bandaríkin og þeirra viðhorf,"
sagði einn úr föruneyti Reagans.
Eftir fréttamannafundinn fóru
Reagan og föruneyti hans allt að
hinum 4.000 kílómetra langa Kína-
múr. Gekk forsetinn upp á múrinn
og gat ekki dulið hrifningu sína.
„Að þessi múr skuli hafa verið
reistur með handafli, það er ótrú-
legt. Þetta er sannarlega ein af
furðum veraldar," sagði Reagan.
Tyrki særður
í Teheranborg
Ankara, 28. apríl. AP.
TVEIR vopnaðir menn, sem óku
bifhjóli, skutu í morgun á eiginmann
eins af sendiráðsriturum Tyrkja í
Teheran og særðu hann alvarlega.
Hann var ásamt konu sinni á leið frá
heimili þeirra í sendiráðið. Mennirn-
ir, sem talið er að séu félagar i
ASALA, leyniher Armeníumanna,
komust undan.
Verknaðurinn var framinn
þremur stundum áður en Turgut
Ozal forsætisráðherra Tyrklands
kom til borgarinnar í opinbera
heimsókn.